Alþýðublaðið - 12.04.1927, Qupperneq 3
ALÞ. ÝÐUBLAÐIÐ
S
Colman’s Sirniep,
Colman’s Línsterkju.
þá fáið þér ábyggilega þaðbezta.
sjómílu undan landi ' án pess, áð
uarðskipið hafi haft néina tilburði
til að ganga úr skugga um stað
togarans, ásamt ýmsum öðrum
misfellum. Frásaga Heðins er pess
vegna — því miður — enn þá
ekki ósönnu'ð. En nú verður að
halda áfram rannsókninni, svo aS
upp komi sekt eSa sýkna, og væri
þá ekki úr vegi aS yfirheyra menn
af togurunum íslenzku. ViS svo
búiS má aS xnlnsta kosti með engu
móti standa. (Frh,.)
Meðvi stelM.
Einræðistiiraun eða afglöp.
ViS fj'árlagaumræSurnar í gær
benti einn fjárveitinganefndar-
manna (Tr. Þ.) á þaS, að stjórnin
hefSi gengið frá fjárlagafrv. eins
og gengisviðaukinn hefði þegar
verið lögteidnn fyrir næsta ár,
en frv. um þaS lagði hún fyrst
fram nú nýlega, — þegar langt
er liðið fram á þingtimann. Gat
hann þess til, aS stjórnin hefði
týnt gengisviðaukanum úr tillög-
um sínum, og ef svo er, hefir
hún loks fundið hann aftur seint
og um síðir. — Slik afglöp sýndu
þá óverjandi sauðsku í fjármála-
stjóminni. Þó er önnur skýring
til, en sízt álitlegri fyrir þing-
ræðið. Hún er sú, að með því að
legg a frv. um framlengingu geng-
Isvjðaukans svona seint fyrir þing-
ið, ætli Jón Þörláksson sér að
kúga það til aö samþykkja frv.,
til þess að ekki verði verulega
mikill tekjuhalli á fjárlögunum,
þar eð héðan af vinnist því varla
tími til að breyta þeim verulega,
og tillögur um heppilegri tekju-
þtofn i staðinn Jiggja ekki fyrir,
enda hægra að þvælast fyrir góð-
um tillögum, þótt fram kæmu,
en að vinna þeim sigur. Svar J.
Þorl. benti og engu síöur í þá
áttina en hina. Hann kvartaði und-
an því, að þetta væru eldhúss-
dagsumræður og hóf síðan upp
harmakvein um það, að þingið
vildi ekki lofa stjórninni að ráða
fjárlögunum.
Þegar vantraust þingmanna á
stjórninni var rætt, spurði Héð-
inn Valdimarsson, hvers vegna
stjórnin léti það viðgangast, að
þegar veittar væru undanþágur
fyrir vélstjóra á „mótor“sI'Jpum,
þá væru teknar 50 kr. af hverjum
þeirn manni, sem undanþága er
veitt, í stað 10 kr., sem er lög-
legt gjald til ríkisins. Og þetta
væri gert undir handarjaðri
stjórnarinnar. Spurði'hann M. G.,
hvað yrði af mismuninúm. Magn.
Guðm. kom eins og af fjöllum,
en tók þó í það skiftið vel í að
grenslast eftir þessu. Við um-
ræðu f járlaganna, þá, er nú stend-
ur yfir, ítrekaði Héðinn spum-
inguna; en þá varð Magnúsi ó-
greitt um svarið. —
Lokið var í gær að ræða fyrri
hluta fjárlaganna og byrjað að
ræða hinn síðari, en atkv.gr. verð-
ur í senn um báða hluta. Frv.
Þórarins um vegagjaldssamþykt-
irnar var afgr. til e. d., landa-
merkjafrv. og frv. um rannsókn
banameina og kenslu í meína- og
Iíffæra-fræði var báðum vísað til
2. umr. Hið síðara er komið frá
e. d. Það fór til allsh.nd. Ein
umræða vkr ákveðin um hvora
þingsál.-till., um póst- og síma-
stöðvar og um sildaryfirmatsmann
á Seyðisfirði.
Efri slelM.
- „Titan“-sérleyfið.
Þar voru 8 mál á dagskrá og
ekki öll merkileg. Frv. urn brt.
á bifreiðalögunum, sem var til
3. umr., var frestað. Frv. um lög-
gildingu verzlunarstaða og fjár-
aukalagafrv. fóru bæði til 3. umr.
Frv. um brt. á landaskiftalögun-
um fór til 2. umr. og landbún-
aðarn., en frv. um samskóla, sem
líka fór til 2. umr., fór í menta-
málan. Frv. um viðauka við veð-
lögin fór til 2. umr. og allshn.,
en frv. um útgáfu nýs flokks af
bankavaxtabréfum Landsbankans
fór til 3. umr. Síðasta málið var
„Titan“frv. (sérleyfi til járnbraut-
arlagningar milli Rvikur og Þjórs-
ár og til að virkja Urriðafoss),
og var það til 2. umr. í deild-
inni lýsti sér almenn vantrú á
því að „Titan“félagið hefði nokk-
uð fjármagn eða von um fé til að
koma þessum fyrirætlunum í
framkvæmd, og skein út úr flest-
um óttinn við, að það ætti að
hafa sérleyfið í brask. J. Baldv.
spurðist. fyrir um, hvaða trygg-
ingar væru fyrir því, að fyrirætl-
animar kæmust í framkvæmd.
Það liti helzt út fyrir, aö félagið
ætlaði að virkja Þjórsá, en leggja
svo streng til Reykjavíkur og
leiða aflið út í Skerjafjörð. Ann-
ars langaði h.ann til að vita, hvað
félagið ætlaði að gera við aflið.
Jón bar og fram og mælti méð
brt. um, að félagið mætti ekki
flytja inn útlenda verkamenn
nema með leyfi Alþýðusambands
íslands, eða til vara, að það mætli
ekki gera það, meðan innlendir
verkamenn fengjust. Ráðh. (M. G.)
kvað félagið enn ekki vera buio
aÖ ráða við sig, til hvers ætti að
nota aflið. Jónas frá Hriflu kvað
járnbrautar vera þörf, en að það
væri nú trú almennings, þó að
margt mælti á móti, að að eins
útlent félag gæti komið henni á
laggirnar, og þessi almannatrú
stæði í vegi fyrir því, að ríkið
gæti lagt járnbrautina. Það yrði
því að láta almenningsálitið
hlaupa af sér hornin I þessu efni
og sannfæra sig um getuleysi fé-
lagsins; þá gæti ríkið komið til
greina. Ráðh. (M. G.) kvaðst ekki
þekkja fjárhag félagsins og ekki
hafa leyfi til að segja til eigna
þess. B. Kr. hafði ásamt E. Á.
borið fram tillögur um aukna
tryggingu fyrir framkvæmdum, en
féll þó frá þeim samkv. þrábeiðni
bráðab.ríkisstjórnarinnar. Hann
lýsti þó greinilega ótrú sinni á
„Titan“-félaginu og bolmagni
þess. M. Kr. mælti eindregið með
frv. Umræðunni var frestað.
Erlensd siisiskefti.
Khöfn, FB., 11. apríl.
Kröíuv Rússa út af þjóðaréttar-
broti Pekingstjórnarmnar i Kína
Frá Moskva er símað: Ráð-
stjórnin rússneska hefir slitið
stjórnmálasambandi víð stjórnina
í Peking og sent henni mótmæli
út af innrásinni í bústað sendi-
herra Rússa. Heimtar ráðstjórnin,
að kínverski hervörðurinn verði
fluttur frá bústað sendiherrans og
skjölum öllum, er tekin voru, aft-
ur skilað. Enn fremur krefst ráð-
stjórnin þess, að handteknum
embættismönnum verði þegar
slept. Sendisveit Rússa * Peking
er kölluð heim, þangað til kröf-
unum er fullnægt, en ræðismenn-
irnir eru ekki kallaðir heim.
Peldng-stjórnm verkfæri út-
íendra > yfirgangsseggja.
Stjórnin í Rússlandi fullyrðir,
að stjórnin í Peking sé verkfæri
í höndum útlendra yfirgangs-
seggja, er séu að reyna að egna
Rússa til ófriðar.
karlar og konur, sem skilja að-
stöðu sina í þjóðfélaginu, aðstöðu
sté.far sinnar, hinnar un lirokuðu
stéttar, láta sér hvarvetna ant
um að sýna, að þeir skilji einnig
hlutverk stéttar sinnar, „að byggja
réttláít þjóðfélag". Þess vegna
fjölmenna líka alls staðar annars
.staðar, úti í hinum mcntaða heimi,
allar vinnustéttir innan þjóðfé-
lagsstéttar a’þýðu í kröfugöngu
jafnaðarmanna og annarar alþýðu
1. maí, karlar og konur úr hópi
verkamanna, sjómanna, iðnaðar-
manna, verzlunarmanna, smá-
bænda og ýmis konar launastarfs-
manna, mentamanna og andans
manna. — Nú líður óðum að deg-
inum, og er ekki ráð, nema í
Mffoiiaifi.
ísl. smjör, hangikjöt, nýtt
skyr. Allar vörur Standast
samkeppni að gæðum og
verði í
verzlun Símonar Jónssonar.
Grettisgötu 28. Sími 221.
Sjáii múi
Molasykur 40 aura. Hveíti, bezfa
teg., 28 aura. Smjörlíki 80 aura.
Húsholdnings-súkkulaði 1.50. —
Þetta er og verður lægsta verðið.
Gildir að eins til Páska.
ÉafnrOnnnlaugsson.
Holtsgötu 1. Simi 932.
' Mikið úrval af
S©xl ©n ktijkeaffl
útl. og heimabökuðu
Jýg HJMTSRS8N & CO.
Netakúlnr,
áriðnar og óáriðnar, og
porskanetaslöngur
fyrirliggjandi
0. EUIiisen.
Ævextip
nýir og niðarsoðnir. — Hvergi
betri kaup en í verzlun
JBM iMITABSffl ti Cð.
tíma sé tekið, að búa svo í hag-
inn fyrir sér, að ekki nema verstu
óhöþp hindri alþýðufólk hér í bæ
frá að sýna 1. maí, að það skilji
aðstöðu sína og hlutverk stéttar
sinnar í sögu íslendinga.
Aflafréttir.
Keílavík, FB, 12. apríl.
Fremur tregur afli á Ióð; hafa
að eins tveir bátar róið undan
farið með línu og annar fengið
3—4 skpd. (á gam'a beitu), en
hinn 8—9 skpd. (á nýja beitu).
f— í net hefir veið t reitingur út
með berginu fyrir framan • Kefla-
Kvík. Vélbátaafli 2—600.
Sandgerði, FB., 12. april.
Ekld róið í nokkra daga, en
seinast, þegar róið var, fengust
100—150 fiskar. „Gissur hviti“ er
eini báturinn, sem verið hefir með
lóð undan farið og fengið 350
til 390 potta í róðri. Annars hafa
bátar ekki róið vegna þess, hve
lítið fæst á línu, énda er sá tími
nú, er fiskur tekur að fitna og
tekur þá helzt ekki beitu, en svo
örvast veiði aftur, þegar komið
er vel fram yfir miðjan apríl.