Helgarpósturinn - 12.06.1986, Síða 3

Helgarpósturinn - 12.06.1986, Síða 3
FYRST OG FREMST VINUM OKKAR á Þjóðviij- anum varð svolítið á í messunni um daginn — eða voru þeir kannski svolítið að gantast með einkavin sinn Þröst Ólafsson. Þannig var mál með vexti að á annarri síðu Þjóðviljans var hin mætasta frétt um framkvæmdirnar miklu sem nú standa yfir í Öskju- hlíðinni, þar sem hitaveitugeym- arnir gömlu hafa verið fjarlægðir en í staðinn koma nýir geymar, út- sýnisaðstaða og veitingastaður. í fréttinni segir: „Gerð hefur verið teikninga af útsýnisaðstöðunni og veitingahúsinu sem komið verður fyrir á geymunum en um er að ræða stóran glerkúpul sem snýst.“ Þetta er síðan áréttað í mynda- texta og þar vísað til innfelldrar myndar ,,af hitaveitugeymunum og veitingahúsinu sem væntanlega verður reist á geymunum". Það stingur hinsvegar í augu að inn- fellda myndin er af Þresti Ólafs- syni og því spyrjum við: Er þetta handvömm Þjóðviljamanna? Voru þeir að stríða Þresti? Eða — hefur Ingimundur Sveinsson arkitekt blátt áfram kosið að reisa glerkúp- ulinn mikla sem snýst í líki Þrastar Ólafssonar að fyrirmynd frelsis- styttunnar bandarísku. Það yrði þá líklega í þakklætisskyni fyrir ötult starf Þrastar í þágu verka- lýðshreyfingarinnar... NYLEGA voru fósturnemar í útskriftarferðalagi í Ungverjalandi og með þeim kennarar, meðal annars Inga Bjarnason leikstjóri. Ingu langaði þessi ósköp að fara á ungversku þjóðaróperuna í Búda- pest og mætti galvösk á staðinn eitt kvöldið. Þar var henni tjáð að uppselt væri fyrir lifandi löngu og uppselt langt fram í tímann, þann- ig að vonlaust væri að komast að í bráð. En Inga dó ekki ráðalaus, heldur dró hún upp leikstjórapass- ann sinn og tilkynnti forsvars- mönnum óperunnar að hún væri enginn annar en forstjóri íslensku þjóðaróperunnar, komin alla þessa leið til að kynnast því besta sem í boði væri. Við þetta bráðnuðu for- svarsmennirnir vitaskuld á staðn- um og fyrr en varði var Inga kom- in í einkastúku á besta stað... MARGUR MAÐURINN á ofanverðum Alþýðuflokkslista hrökk í kút um miðja kosninga- nóttina. Úrslitin voru á þann veg að ófáir kratar, sem bjuggust varla við að verða varamenn í bæjar- stjórnum, hvað þá meira, komust auðveldlega inn. í prakkaraskap sínum hafa menn til dæmis bent á orð Áslaugar Einarsdóttur fyrir kosningarnar, en hún skipaði þriðja sæti kratalistans á Akureyri. Áslaug sagði í viðtali við Alþýðu- manninn nyrðra og rétt er að endurtaka, fyrir kosningarnar: „Það vildi engin kona taka þriðja sætið, en menn vildu endilega fá konu í það og ég var þrábeðin um að taka það, sem ég gerði. Þess vegna sit ég í súpunni.. .“ Já, heldur betur ... ÞAÐ ER EKKI alltaf þakklátt hlutskipti að flytja lítilli þjóð fréttir utan úr hinum stóra heimi, og kannski ekki alltaf hægt að ætlast til þess að þær séu alveg glænýjar. Um daginn birti Morgunblaðið til dæmis litla og yfirlætislausa frétt, það mun hafa verið fyrir réttri viku, á síðunni þar sem sagt er frá frægu fólki í útlandinu. Þarna stóð að Sherlock Holmes yngri væri kvikmynd sem Steven Spielberg væri nú að leggja síðustu hönd á, að efni til ekki ósvipuð leynilög- reglusögum A.C. Dcyle. Hið hryggilega í þessu máli er það að téð kvikmynd var frumsýnd hér á landi fyrir mörgum vikum og er fyrir löngu búin að ganga sér til húðar í reykvísku kvikmyndahúsi. En framtakið er gott... MARGIR HAFA brosað út í annað að flennistórum litprentuð- um auglýsingum sem hafa verið að birtast í blöðum upp á síðkastið frá aðila sem kallar sig „Markaðs- nefnd". Þar er kynnt til sögunnar nýtt dýr í ríki íslenskrar náttúru — dýr sem „lifir við frelsi úti í guðs- grænni náttúrunni, þar sem það nærist á hreinum og ómenguðum villigróðri" og gefur af sér kjöt sem er „hrein villibráð og kraftur- inn eftir því.“ Jú, þetta dýr sem hleypur svo frjálst um fjallasal heitir „íslenskt fjallalamb", en hét hér áður fyrr annað hvort ,,læri“ eða „hryggur" þegar það var ófrá- víkjanlegur hluti af sunnudagsmat- borði landsmanna, sumsé á þeim tíma áður en aðrir en útlendingar fóru að hafa efni á því að éta þessa skepnu. Já, tímarnir breytast og iömbin með.. . HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR Hvalræði Víða er stjórnað að sovéskum sið með sameignaralræði. En er nokkuð betra að búa hér við bandarískt hvalræði? Niðri. „Ég á eftir ad fara yfir þetta en ég reikna med ad þetta sé rétt“ - HERMANN BJÖRGVINSSON VIÐ DV 10. JÚNÍ VARÐANDI ÁKÆRU í OKURMÁLINU SEM HONUM VAR BIRT ÞENNAN DAG. Bjarni Tryggva — trúbador „Ég er hvorki nýr einn né annar, þótt óneitanlega slæðist inn áhrif frá ýmsum. En áhrifin eru þó hverfandi lítil frá hverjum stað út af fyrir sig. Svo er ég líka 23ja ára gamall og varla getur það talist „nýtt" eða hvað? Svo erum við Bubbi ekki að gera sömu hlutina." — Hvaðan ertu eiginlega, Bjarni? „Ég er frá Neskaupstað." — Hvað hefur þú verið að gera hingað til — fyrir utan tónlistina? „Ég hef verið á sjó. Helst á loðnu, í Austfjarðaþokunni og reyndar allt í kringum landið." — Hvenær hófst þá þinn tónlistarferill? „Það er varla hægt að segja að hann sé hafinn enn. En eitt- hvað hefur maður verið að gaula úr sér garnirnar síðustu árin, hef verið að spila á kassagítar frá fermingu við allar hugsanleg- ar aðstæður." — Og nú syngur þú á Listahátíð. Hvernig tilfinning er það? „Þetta er nú framar öllum mínum vonum." — Nú ertu kominn með plötusamning hjá Steinari. Hvernig kom það til? „Gegnum Pétur Kristjánsson sem heyrði mig upphaflega spila í „fyllibyttupartýi" á Akranesi. Pétur hafði eitthvert sam- band við mig, en það leið ár og dagur og það endaði með því að ég byrjaði á plötunni upp á mitt eindæmi. Það er svo undir lokin að Steinar Berg kemur inn í dæmið." Nú höfum við heyrt að Steinar ætli að gera úr þér súperstjörnu. „Nú veit ég ekki um hans þankagang. Hann hlýtur að sjá ein- hverja peningavon í þessu!" — Hvað segir þú sjálfur, ertu metnaðargjarn? ,úá, maður hefur vissulega sinn metnað, en þó get ég varla talað um miklar væntingar þessa stundina. Þær koma ekki fyrr en þær koma, það er að segja þegar fólkið leyfir manni að hafa þær." — Hvað segir þú okkur af væntanlegri plötu þinni? „Þetta er efni sem ég þarf að losa mig við til að geta haldið áfram að semja og skapa eitthvað nýtt." — Um hvað fjalla textar þínir öðru fremur? „Þeir fjalla öðru fremur um það sem mér er ofarlega í huga í það og það skiptið, það er ekkert einleikið." — Sjómannslífið, kannski? „Satt að segja reyni ég að hugsa ekki um sjóinn núorðið. Það er tímabil sem ég er að reyna að gleyma." — En ertu þá pólitískur í textum þínum? „Hvað er það?" — Hvernig myndir þú flokka tónlist þína? „Nú veit ég varla. Þetta er bara melódískt rokk. Hún er auð- vitað nokkuð öðruvísi þegar ég er einungis með kassagítarinn og þá einn, en á plötunni er ég með hljómsveit. Þegar ég er einn þá er þetta mikið til Horfumst-í-augu-lög." — Að lokum Bjarni, hvað er framundan? „Að rífa mig upp frá sjónum á allan hugsanlegan hátt og reyna að fylgja plötunni eftir". Bjarni Tryggva trúbador hefur ekki verið mikið í sviðsljósinu hingað til, en skýtur nú skyndilega upp kollinum meðal þungavigtarmanna á Listahátíðinni ( Reykjavík á hljómleikum sem aðstandendur kalla „mestu rokkhátíð islandssögunnar", hvorki meira né minna. Fram kem- ur hjá Bjarna hér að það hafi verið Pétur Kristjánsson poppari sem fyrst „uppgötvaði" hann, en eftir að Steinar Berg hóf afskipti af Bjarna hefur sá sagt að Bjarni verði næsta stóra sólónúmerið (íslensku poppi. Ertu nýr Bubbi? HELGARPÓSTURINN 3

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.