Helgarpósturinn - 12.06.1986, Side 6

Helgarpósturinn - 12.06.1986, Side 6
FORSÆTISRÁÐHERRA GERT VIÐVART UM STÖÐU ALBERTS GUÐMUNDSSONAR SIEINGRlMUR 06 M RftDDII FRAMTÍ6 ALI leftir Halldór Halldórsson myndir: Jim Smart Forsœtisráöherra lét kanna Hafskipsmáliö og bauö Albert síðan aö segja af sér. Valdamenn í Sjálfstœöisflokknum telja aö Albert eigi aö fara frá. Pólitískur titringur í Sjálfstœöisflokknum og í ríkisstjórninni. Skýrsla skiptaráöenda og framburður sakborninga bendir til þess aö ekki sé allt sem sýnist. Hins vegar gera menn frekar ráð fyrir því að eldri þingmenn flokks- ins séu ekki þessarar skoðunar og telji það ekki mikið mál þótt einn af ráðherrum flokksins sé yfirheyrður í sakamáli. Það er semsé gert ráð fyrir veru- legu kynslóðabili í skoðunum manna á því hvað gera skuli eða hvernig flokkurinn eigi að bregðast við. Eftir því sem Helgarpósturinn kemst næst er ekki gert ráð fyrir því að neitt gerist í málinu fyrr en að lokinni rannsókn og jafnvel ekki fyrr en að lokinni málsmeðferð hjá ríkissaksóknara. Það er til marks um það hversu al- varlegum augum málið er litið, að flokksleiðtogarnir Steingrímur og Þorsteinn munu hafa rætt málið sér- staklega. í viðtali við HP hér í opnunni telur Albert af og frá að hann segi af sér og líkir ásökunum á hendur sér við ýmsar aðrar sem hann hefur orðið fyrir á 20 ára stjórnmálaferli. í þessu sambandi er rétt að taka fram að það sem ýtt hefur undir æ háværari kröfur um afsögn Alberts er sú staðreynd, að við rannsókn Hafskipsmálsins hafa komið fram upplýsingar sem sýna að Albert hef- ur fengið allnokkrar fjárhæðir frá yfirmönnum Hafskips, bæði á með- an hann var stjórnarformaður fyrir- tækisins og eftir að hann hætti þvi í júní 1983. Hvort allar þessar greiðslur geta talizt eðlilegar eða ekki er einmitt eitt af rannsóknarefnum Rannsókn- arlögreglu ríkisins og á þessi atriði er bent í skýrslu skiptaráðenda til ríkissaksóknara. Heimildir Helgar- póstsins segja að við yfirheyrslur hjá RLR hafi a.m.k. tveir þeirra Haf- skipsmanna, sem sitja eða sátu í gæzluvarðhaldi, borið að ekki væri allt sem sýndist í sambandi við a.m.k. eina greiðsluna. Hún hljóð- aði upp á 117 þúsund krónur, greidd af leynireikningi Páls Braga Krist- jónssonar og framseld af Albert Guðmundssyni. lnnan ríkisstjórnarinnar og með- al forystumanna Sjálfstœðisflokks- ins velta menn nú alvarlega fyrir sér stöðu Alberts Guðmundssonar sem ráðherra og valdamanns í Sjálf- stœðisflokknum. Raddir eru uppi um það að vegna rannsóknar RLR á meintu fjármálamisferli hjá Haf- skipi og tengsla Alberts við fyrirtœk- ið verði að gera þá kröfu til iðnaðar- ráðherra að hann segi af sér ráö- herradómi, a.m.k. á meðan á rann- sókn málsins stendur. Helgarpósturinn hefur áreiðan- Iegar heimildir fyrir því að Stein- grímur Hermannsson forsætisráð- herra hafi reifað þann möguleika að í stöðunni væri ekki annað fært en að Albert segði af sér. Þetta mun Steingrímur hafa sagt í síðustu viku. Samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum blaðsins var forsætisráðherra gert viðvart um það, að við rann- sókn málsins hefði ýmislegt komið upp sem þyrfti frekari rannsóknar við og var þar átt við hugsanleg sak- arefni sem tengdust Albert Guð- mundssyni. Eftir að hafa fengið nán- ari fregnir af málinu mun Steingrím- ur hafa rætt við Albert og boðið honum að segja af sér. Þetta á Al- bert að hafa afþakkað. í viðtali hér við hliðina neitar Albert raunar að hann og Steingrímur hafi rætt af- sögn sína, heldur hafi þeir einvörð- ungu rætt Hafskipsmálið eins og hverjir aðrir borgarar í þessu landi. Nú bíður Steingrímur átekta og á raunar ekki margra kosta völ á með- an á rannsókn máisins stendur enda liggur ekki fyrir að iðnaðarráðherra hafi gerzt brotlegur á einn eða ann- an hátt. Komi það hins vegar í ljós að lok- inni lögreglurannsókn að svo kunni að vera, má búast við því að forsæt- isráðherra leggi málið fyrir þing- flokk Sjálfstæðisflokksins, sem þá þarf að taka ákvörðun um hvað gera skuli. Hér skal undirstrikað að ekkert liggur fyrir um það opinberlega hvort Albert Guðmundsson hafi gerzt brotlegur við lög, en heimildir Helgarpóstsins segja að tveir sex- menninganna í Hafskipsmálinu hafi gert grein fyrir hugsanlegum sakar- efnum, sem fram komu í skýrslu skiptaráðenda, og samkvæmt því virðist eitthvað fara á milli mála. Til viðbótar þessu má nefna hér að við rannsókn og yfirheyrslur Haf- skipsmálsins hefur komið á daginn, samkvæmt heimildum Helgarpósts- ins, að annar alþingismaður hefur verið nefndur sem þiggjandi fjár frá Hafskipi fyrir milligöngu annars þingmanns. Þessum peningum var variðtil þessaðfaraí heilsubótardvöl erlendis. Þessir menn eru góðir vin- ir, Jrótt ekki séu þeir í sama flokki. I Sjálfstæðisflokknum eru menn farnir að ræða stöðu Alberts í Ijósi nýrra upplýsinga en þó aðallega sögusagna og hvílir málið aðallega á Þorsteini Pálssyni fjármálaráð- herra og formanni Sjálfstæðis- flokksins. Hann og nokkrir flokks- bræður hans hafa rætt þetta mál í sínum hópi, en enn hefur ekkert verið ákveðið í þessu efni. Meðal yngri þingmanna flokksins er það sjónarmið ríkjandi að það eitt, að einn af ráðherrum flokksins skuli liggja undir grun í sakamáli og kunni að verða yfirheyrður hjá rannsóknarlögreglu, nægi eitt út af fyrir sig til þess að viðkomandi ráð- herra segi af sér. Ella sé blettur á flokknum. BJÖRGÓLFUR KREFSl 5 MILUÓNA Í VWBÓTARLAUN ÚR ÞROTABÚIHAFSKIPS! Kröfur í þrotabúið alls Á föstudag í næstu viku verður skiptafundur í þrotabúi Hafskips, en kröfulýsingarfresti í búið lauk 15. síðasta mánaðar. Alls eru tölusettar kröfur í búið 933, alls að fjárhæð tæpir tveir komma fjórir milljarðar. í þykku fjölrituðu hefti frá Skipta- ráðandanum í Reykjavík kemur í ljós að viðurkenndar kröfur nema rétt röskum einum milljarði króna. Þessi upphæð gæti hækkað. Samkvæmt viðurkenndum kröf- um virðist sem það vanti á bilinu 500—600 milljónir króna í eignum til þess að hægt verði að mæta við- urkenndum kröfum. Kröfuhafar eru af ýmsu tæi. Þann- ig á Útvegsbankinn drjúgar kröfur, ýmsir gámaleigjendur, s.s. Flexi Van, en krafa þessa eina fyrirtækis um 2,4 milljarðar er einhvers staðar á bilinu 110—120 milljónir króna, en bústjórar viður- kenna aðeins um 250 þúsund krón- ur. Þá gerir íslenzka skipafélagið kröfu upp á röskar 200 milljónir vegna missis af væntanlegum hagnaði(l). Þá er mikill fjöldi krafna starfs- manna um vangreidd laun, bíla- styrki og orlof. I þessum hópi eru m.a. Björgólfur Guðmundsson, Ragnar Kjartansson, Þórður Hilmarsson, Sigurþór Guðmunds- son og Árni Árnason. Sérstaka at- hygli vekur krafa Björgólfs Guð- mundssonar um viðbótarlaun sam- kvæmt samningi upp á röskar fimm milljónir króna auk kröfu vegna út- tektar á greiðslukorti, sem hljóðar upp á rúmar 250 þúsund krónur. Björgólfur Guömundsson fyrrverandi forstjóri Hafskips. 6 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.