Helgarpósturinn - 12.06.1986, Side 7
HAFSKIPSMALINU
Heimildir Helgarpóstsins herma
að þessum peningum hafi verið var-
ið til að kosta veglega sextugsaf-
mælisveizlu sem Albert Guðmunds-
son bauð tii á Hótel Sögu í október
1983 og samkvæmt bókum Haf-
skips og framburði vitna hafi ekki
verið um að ræða afsláttargreiðslu
til Heildverzlunar Alberts Guð-
mundssonar.
Sjálfur segir Albert við HP að
þarna hafi verið á ferðinni eðlileg
afsláttargreiðsla.
Heimildir HP herma hins vegar
að rannsóknarmenn hafi staldrað
við þessa tölu, einkum vegna þess
að hún var greidd eftir að Albert var
hættur stjórnarformennsku, jafn-
framt því hvernig fjárhæðinni var
varið.
Hvað varðar almennt greiðslur til
Alberts Guðmundssonar, sem hann
kveður vera afsláttargreiðslur, þá
má rekja þær allt aftur til ársins
1979, þegar hann tók við stjórnar-
formennsku Hafskips, og fram á síð-
asta ár. Þessar greiðslur komu ýmist
af leynirekningum Björgólfs Guð-
mundssonar, Ragnars Kjartansson-
ar eða Páls Braga Kristjónssonar.
Rétt er að fram komi hér að leyni-
reikningarnir voru allir á nafni Haf-
skips en bundnir nafni þessara
þriggja áðurnefndu einstaklinga.
Það sem greindi ávísanirnar af
leynireikningunum frá venjulegum
Hafskipsávísunum var að þær voru
ekki stimplaðar með stimpli Haf-
skips, sem eitt út af fyrir sig er ákaf-
lega óvenjulegt.
Þessa dagana ganga alls kyns
sögusagnir um Hafskipsmálið og
meintan þátt Alberts Guðmunds-
sonar í því. í þessum sögum er flest
ofsagt, einkum staðhæfingar um
hlut Alberts Guðmundssonar.
Það vill nefnilega gleymast, að
enn hefur ekkert sannazt á Albert
og hann hefur enn ekki verið yfir-
heyrður, þótt að því komi síðar, t.d.
vegna setu hans í stjórn Hafskips.
Albert hefur þráfaldlega neitað því
að hann hafi á nokkurn hátt gerzt
brotlegur í þessu máli og á það jafnt
við um afsláttar- og ferðagreiðslur
til hans og spurningar, sem varpað
hefur verið fram um þátt hans í
Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra.
óeðlilegri lánafyrirgreiðslu til
handa Hafskipi á þeim tíma, er
hann var stjórnarformaður bæði
Hafskips og Útvegsbankans.
Á hinn bóginn ráðast vangaveltur
æðstu manna í ríkisstjórn og Sjálf-
stæðisflokknum — um nauðsyn
þess, að Albert víki sæti á meðan á
rannsókn stendur — af því að slíkt
sé siðferðileg skylda hans. Viðmæl-
andi Helgarpóstsins úr þingliði
framsóknarmanna sagði sem svo,
að fyrir 10—15 árum, jafnvel 5 ár-
um, hefði það þótt út í hött að gera
slíkar siðferðilegar kröfur til
manna. Nú væri hugsunarhátturinn
breyttur, krafa sem þessi ætti fullan
rétt á sér. Undir þetta tók einn af
þingmönnum Sjálfstæðisflokksins.
Annar sagði sem svo, að burtséð
frá siðferðilegum skyldum Alberts
Guðmundssonar væri Hafskipsmál-
ið og tengsl Alberts við fyrirtækið
pólitískt mjög óþægilegt mál sem
krefðist aðgerða, hvort sem þær
sakir, sem Albert hefur verið bor-
inn, væru réttar eða rangar.
í þessu sambandi þýddi ekki að
vitna til fordæmis frá því rétt eftir
1930, þegar Magnús Guðmundsson
ráðherra neitaði að víkja úr ríkis-
stjórn þrátt fyrir lögreglurannsókn
og ákæru, því nú væru gerðar allt
aðrar kröfur til stjórnmálamanna.
Magnús var dæmdur sekur í undir-
rétti og sagði af sér, en var síðan
sýknaður í Hæstarétti og tók þá aft-
ur við ráðherrasæti sínu.
í sjálfu sér þarf ekki að koma fólki
á óvart að Albert Guðmundsson hafi
verið svo lengi tengdur Hafskips-
málinu í ræðu og riti. Hann var sem
fyrr segir formaður stjórnar Haf-
skips 1979—1983 og formaður
bankaráðs Útvegsbankans
1981—1983, en Hafskip var stærsti'
viðskiptavinur Útvegsbankans á
sama tíma og Albert var formaður
beggja fyrirtækjanna.
Þáhefurþaðlöhgum verið vitað
að samband Björgólfs Guðmunds-
sonar og Alberts var mjög náið og á
kvöldin munu þeir gjarnan hafa far-
ið saman í ökuferðir um bæinn og
rætt málin. Sumir segja að Björgólf-
ur hafi verið nánasti ráðgjafi Al-
berts.
Steingrlmur Hermannsson
forsætisráðherra.
Albert Guðmundsson: Hef rætt Hafskipsmólið við Steingrím
Hermannsson og Þorstein Pálsson:
„AFSÖGN HEFUR
EKKIYERIÐ RÆDD"
„Þetta var enginn sérstakur Hafskipsafsláttur/' segir Albert um
afsláttargreiðslur til sín og kveðst ekki kannast við neina
leynireikninga. Fékk ferð til Nizza í gjöf frá Hafskip á
sextugsafmælinu.
,,Ég kannast ekki við aðrar
greiðslur til mín en laun fyrir stjórn-
arformennsku, sem samið var um
hverju sinni, og svo hafði heildverzl-
unin, eins og svo margir aðrir, samn-
ing um afslátt miðað við þau við-
skipti sem fyrirtækið færði Haf-
skipi," sagði Albert Guðmundsson
iðnaðarráðherra í samtali við Helg-
arpóstinn í gær. Hann bætti því við,
að þetta væri viðurkenndur við-
skiptamáti alls staðar í heiminum.
,,Nú, og svo gáfu þeir mér í sex-
tugsafmælisgjöf ferðalag að eigin
vali. Þeir ætluðu að bjóða mér í sjó-
ferð á einhverju lystiskipi að frjálsu
vali, en ég er ekki sjómaður og verð
sjóveikur um leið og ég hugsa til
þess að fara á sjó, svo ég valdi að
fara niður til Nizza (í Frakklandi) á
þeim tíma sem ég fer venjulega
þangað (á vorin). Þetta var sextugs-
afmælisgjöfin frá Hafskip."
— Er bara um þessa eiriu ferd ad
rœda?
„Ja, ég held að ég hafi farið eina
ferð sem stjórnarformaður á vegum
fyrirtækisins til þess að skoða að-
stöðuna í Ipswich á Englandi."
— Nú hef ég heyrt sérstaklega til-
tekna ávísun, sem hljódar upp á 117
þúsund krónur, sem á upphaf sitt á
einum af leynireikningunum svo-
kölludu sem uppgötvuöust í Útvegs-
bankanum, og þú munt hafa fram-
selt. Hvada ávísun var þetta?
„Þetta var greiðsla, þ.e. afsláttur
af þeirri frakt sem fyrirtækið hafði
komið með yfir til Hafskips í við-
skipti. Hins vegar kannast ég ekki
við neina leynireikninga né hvaða
reikninga fyrirtækið notaði til að
greiða út af.“
— En nú skilst mér ad þaö sé t.d.
sett spurningarmerki vib þessa
greibslu vegna þess ab um sé ab
rœba afsláttargreibslu af frakt sem
heildverzlunin þurfti alls ekki ab
greiða heldur ATVR, þar sem um
hafi verib ab rœba flutning á áfengi.
Um hafi verib ab ræba afslátt af
fraktkostnabi sem var enginn fyrir
heildverzlunina?
„Það er afsláttur af allri frakt, það
er sama hvaða frakt það er, sem fyr-
irtæki koma með í viðskipti, en það
er ekki afsláttur sem er tekinn frá
áfengisverzluninni. Þetta er tekið af
tekjum sem innflutningsfyrirtæki
skaffa flutningafyrirtækinu. Það er
ekki neitt þarna sem er greitt af
áfengisverzluninni."
— Pannig að þetta er ekki afslátt-
ur af frakt, sem ATVR var búin ab
greiba hvort sem var?
„Nei, nei, þetta er afsláttur af
þeim tekjum sem skipafélagið hef-
ur af innflytjanda. Þetta er hjá öllum
skipafélögum. Þetta er enginn Haf-
skipsafsláttur sérstakur. Þetta er
svona hjá öllum skipafélögum.
Þetta eru ekkert óeðlileg viðskipti."
— Þú hefur fengib þessa afslœtti
eftir ab þú hœttir stjórnarfor-
mennskunni hjá Hafskipi?
„Það kemur málinu ekkert við, en
ég reikna satt að segja með því.
Þetta er nú svo lítið fyrirtæki að ég
veit ekki hversu mikla frakt það
skaffaði."
— Nú er mér kunnugt um ab þessi
mál hafi verib rœdd á mebal œbstu
valdamanna stjórnarflokkanna og
mér hefur verið sagt að vegna þeirr-
ar rannsóknar, sem nú fer fram, haf-
ir þú átt fund meb Steingrími Her-
mannssyni forsœtisrábherra um
Hafskipsmálib ab beiðni hans?
„Nei. En við Steingrímur höfum
rætt Hafskipsmálið. Við höfum gert
það.“
— En þab hefur ekki komib til tals
að þú segðir af þér meðan á rann-
sókninni stendur?
„Nei, nei, nei. Ég hefði þá ekkert
annað að gera en að segja af mér.
Það hafa verið blaðaskrif, sem hafa
verið skrifuð beinlínis til þess að
brjóta niður mína persónu, allan
tímann frá því ég kom í pólitík."
— Líturbu þá á þetta mál sem of-
sóknir?
„Ég vil ekki leggja neitt mat á það.
Ég á bara svo erfitt með að trúa því
að menn haldi svona áfram, hvernig
sem niðurstaðan er, úr hverju mál-
inu á fætur öðru."
— Hefurbu rœtt þín mál vib Þor-
stein Pálsson?
„Ég hef ekkert rætt þetta við Þor-
stein Pálsson. Hafskipsmálið hefur
náttúrlega borið á góma á milli okk-
ar, eins og manna á meðal.“
— Þib hafib þá ekkert rœtt um
hugsanlega afsögn þína?
„Nei, nei.“
— Hefur þú verið bobaður í yfir-
heyrslu?
„Nei
— Býstu vib þvt?
„Ég á ekkert frekar von á því. Ég
sé ekki af hverju. Ég tek þarna við
stjórnarformennsku í tveimur fyrir-
tækjum (Hafskipi og Útvegsbankan-
um) og það væri þá ekki nema
vegna þess að það sé einhver stór-
glæpur að vera stjórnarformaður í
fyrirtækjum.
— En gœti ekki einmitt komib til
þess vegna þess ab þú varst stjórn-
arformabur á tímabili sem er til
rannsóknar?
„Ég var ekki eini stjórnarmaður-
inn. Það hvílir ekkert minni ábyrgð,
út af fyrir sig, á stjórninni í heild.
Hvað með alla hina sem eru í stjórn-
inni?"
Um afskipti af lánafyrirgreiðslum
til Hafskips sagði Albert Guðmunds-
son að það væri bezt að banka-
stjórnin svaraði því. „Ég hef aldrei
haft afskipti af störfum bankastjór-
anna í útlánum, enda ekki mitt starf
og ég hafði enga stöðu til þess.“
Albert Guðmundsson lagði
áherzlu á það að bæði Hafskip og
Útvegsbankinn hefðu staðið vel
þegar hann hætti stjórnarfor-
mennsku hjá báðum þessum aðilj-
um árið 1983. -H.H.
HELGARPÓSTURINN 7