Helgarpósturinn - 12.06.1986, Síða 9

Helgarpósturinn - 12.06.1986, Síða 9
YFIRHEYRSLA nafn: Pétur Einarsson fæddur: 4.11. 1947 heimili: Ásvallagata 52 staða: Flugmálastjóri áhugamál Flug, hestamennska, útivera og margt fleira laun: 81 þúsund kr. á mánuði bifreið: Mazda '78 Lýðræði mjög hættulegur hlutur — Eftir mjðg umrætt flugatvik í síð- ustu viku dreifðir þú til fjölmiðla skýrslu, úttekt á íslenskri flugumferðar- þjónustu sem unnin var á vegum flug- málastjórnar Bandaríkjanna. Skýrslan er dagsett í desember 1985. Af hverju setur þú hana í umferð akkúrat núna? „í>að var nú vegna þess að það hefur farið fram geysilega mikil umræða um flugum- ferðarþjónustuna og einstaka menn í Félagi flugumferðarstjóra virtust leggja á það áherslu að þetta tilvik hefði orðið vegna að- stæðna á vinnustað. Færustu sérfræðingar eru búnir að rannsaka flugumferðarþjónust- una og ég vil benda á að það var byrjað að rannsaka svona flugatvik árið 1976 og þetta er alis ekki fyrsta atvikið sem hefur orðið innan íslensku flugumferðarþjónustunnar." — Ertu ekki að notfæra þér þetta flug- atvik til að koma höggi á Félag flugum- ferðarstjóra? „Nei, ég hef engan hug á því, heldur hinu, að lagfæra þessa þjónustu með einu eða öðru móti. Það er hins vegar ljóst að innan þeirrar stéttar eru nokkrir menn sem virðist ekki ganga annað til í sínu starfi en að gera allt vitlaust." —-Nú fá flugumferðarstjórar kaldar kveðjur i skýrslunni og sagt að þeir séu agalausir. Eru þeir agalausir? „Hér verða menn að átta sig á því hvað orðið „discipline" á ensku gæti þýtt á ís- lensku. íslenska orðið „agi" hefur svolítið sérstaka merkingu. í þessari skýrslu er átt við að menn fari ekki nákvæmlega eftir þeim reglum sem fara á eftir. Landsmönnum hættir til að hafa sínar eigin reglur, það kom mjög berlega í ljós í þessu síðasta flugatviki að þar hafa menn unnið eftir sínu höfði. Þetta agaleysí er hins vegar ekki eingöngu ís- lenskt vandamál, það er alþjóðlegt innan flugumferðarþjónustunnar og e.t.v. vegna þess að tækninni hefur fleygt svo gífurlega fram á undanförnum árum. Þess vegna er enn nauðsynlegra að vanda vinnubrögð." — Nú segir í skýrslunni a engin skipu- lögð námsskrá sé til um undirbúnings- þjálfun flugumferðarstjóra. Er ekki ver- ið að hnýta þarna í þig? „Skýrslan er samin í desember 1984 og eft- ir það hefur mikið verið endurbætt. Ég vil vekja athygli á því að geysilegar framfarir hafa átt sér stað innan flugumferðarþjónust- unnar síðan þá og ég hef lagt mikið kapp á að kippa þessu í liðinn. Eftir geysilega bar- áttu við Félag flugumferðarstjóra um að námi yrði komið í fastar skorður, urðu stríðs- lok í desember sl. þegar þeir afléttu siðasta starfsþjálfunarbanninu." — Flugumferðarstjórar segja að þegar þú hafir sest í flugmálastjórastól árið 1982 hafi verið tU skjalfest samkomulag milli þeirra, flugmálastjórnar og ráðu- neytisins um námstilhögun, en þú hafir ekki getað séð þetta samkomulag í friði og strax farið að hrófla við því... „Þetta er rangt." — Þeir segja að þú hafir komið í veg fyrir að þeir fengju greiðslur í eftir- menntunarsjóð sinn vegna starfsþjálf- unar og þess vegna hafi þeir hætt að kenna.“ „Þetta er rangt. Haustið 1984 stóðu yfir sérkjarasamningar við Félag flugumferðar- stjóra og þeir voru þá með alhliða bann á nám og þjálfun meðan þeir stóðu í þessum samningum og þess vegna neitaði ríkið að semja við þá um greiðslur vegna starfsþjálf- unar. Hins vegar samdi ég sérstaklega við þá í janúar 1985 um starfsþjálfun og margt fleira. Það samkomulag sviku þeir hins veg- ar algjörlega í ágúst á sama ári.“ — Víkjum aftur að skýrslunni. Hún er um margt óljós, enda tekið fram í upp- hafi hennar að starfsmenn bandarísku flugmálastjórnarinnar hafi unnið hana upp úr minnispunktum teknum eftir frá- sögn David Anderson þegar hann hafði legið sjúkur í nokkra mánuði. Er það ekki ábyrgðarleysi af þér að afhenda fjölmiðlum skýrslu sem unnin er við svona aðstæður? „Ef það er ábyrgðarleysi að segja sannleik- ann, þá er það það.“ — Flugumferðarstjórar hafa vísað þessari skýrslu á bug og sagt að hún sé samhljóða þeim hugmyndum sem þú hafir sett fram áður en Anderson kom hingað til að vinna þessa úttekt. Ert þú kannski aðalhöfundur þessarar skýrslu? „Innan stéttarfélags flugumferðarstjóra eru 2—3 menn sem hafa um áratuga skeið ekki gert annað en að standa í skærum við íslensk yfirvöld. Þessir menn verða annað hvort að stilla sig eða fara að vinna annars staðar. Þeir hafa haldið því fram að ég hafi stjórnað samgönguráðuneytinu, flugráði og nú síðast flugmálastjórn Bandaríkjanna. Þótt sjálfsálit mitt sé í góðu lagi þá er þetta ailt saman rangt.“ — Flugumferðarstjórar segja að full- yrðingar þínar um að þeir hafi sagt nei við öilum betrumbótum séu alrangar, þeir hafi þvert á móti komið með ýmsar ábendingar í tæknimálum sem mætt hafi miklu áhugaleysi flugmálastjórnar og að allar betrumbætur á tölvubúnaði hafi verið að þeirra frumkvæði ef ekki beinlínís þeirra verk. Er þetta rétt? „Þetta með þeirra þátt í betrumbótum á tölvubúnaði er út af fyrir sig rétt. Flugmáia- stjórn hefur fengið nokkra flugumferðar- stjóra til að aðstoða sig í þessu máli, það er það sem er rétt í þessu. Þetta er dæmigert fyrir talsmátann, allt er rifið niður og gert torkennilegt með útúrsnúningum. Við erum núna með 4—6 ára plan um fullkomnun á tölvuþjónustunni hjá flugumferðarstjórninni og bíðum eftir samþykki fyrir því plani. Þetta er vinna sem var sett í gang eftir að ég varð flugmálastjóri og alls ekki fyrir frumkvæði frá Félagi flugumferðarstjóra. Annars eru 90—95% flugumferðarstjóra miklir ágætis- menn sem ekki mega vamm sitt vita og vilja gera sitt besta í sínu starfi og það hefur verið virkilega ánægjulegt að vinna með þeim. Hins vegar eru nokkrir menn sem hafa gert þessari stétt og íslenskum flugmálum meira ógagn en nokkrir aðrir einstaklingar sem ég veit til.“ — Flugumferðarstjórar segja að þú hafir ekki hundsvit á tæknimálum. „Og hvað? Þeir mega segja það, mér er ná- kvæmlega sama en ég hef hina færustu sér- fræðinga mér við hlið í tæknimálum." — Hefði verið hægt að koma upp árekstraraðvörunarkerfi þegar árið 1978 þegar núveranli tölvustýrð skeytadreifing var tekin upp? „Nei, tæknilegir möguleikar voru þá ekki fyrir hendi.“ — Ertu ekki alltof óbilgjarn til að gegna þessu starfi? „Það má vel vera." — Ertu andsnúinn hugmyndum um lýðræði? „Nei, en lýðræði er mjög hættulegur og vandmeðfarinn hlutur. Og það hef ég sagt flugumferðarstjórum eins og öðrum. Það er til ágæt vísa um þetta og hún er svona: Heimskingjum er hópað saman, / hafa þeir af öðrum gaman / eftir því sem þeir eru fleiri / eftir því verður heimskan meiri. Og dæmi um þetta er þegar Félag flugumferðarstjóra heldur fund og lögð er fyrir ákveðin tillaga. Það eru 16 manns á fundinum, 12 eru með tillögunni en 4 á móti og tillagan því sam- þykkt. Þá rís einn fjórmenninganna upp og segir nei, þetta er ekki svona, ég er hér með 18 mótatkvæði í vasanum. Af hverju heldurðu að þeir hafi svona ofsa- vald á sínum félagsmönnum? Vegna þess að þeir hóta þeim brottrekstri hvenær sem er og benda þeim á að þeir hafi þegar rekið menn úr félaginu og ef þeir verði reknir fái þeir aldrei vinnu hér framar. í þessu felst ógnarvald þessara manna." — Gömlu varðstjórarnir sem voru taldir óhæfir til að gegna varðstjóra- stöðum þegar nýja skipulagið kom í framkvæmd í janúar eru nú aftur komn- ir í fyrri stöður sínar. Er þetta ekki þver- sögn? „Þeir eru þar til bráðabirgða vegna þess að við þurfum að komast í gegnum sumarið, en að öðru leyti er kerfið allt saman óbreytt. Það hefur enginn getað haft það eftir mér að það séu mennirnir sem séu óhæfir. Það var kerfið sem var ekki nógu gott og við brutum það upp með nýjum mönnum frekar en að láta gamla menn vinna eftir nýjum aðferð- um." — Geta þessar deilur og samskipta- örðugleikar milli þín og flugumferðar- stjóra ekki reynst flugörygginu hættu- legri en þau atriði sem skýrslan nefnir að ógni því? „Ef menn vinna sitt starf innan flugum- ferðarþjónustunnar eins og á að vinna það þá er engin hætta á ferðum. Hins vegar eru þessar sífelldu deilur ekkert eingöngu við mig. Þessir örfáu flugumferðarstjórar sem standa að þessu eru engir kjánar, þeir eru út- smognir í þessum málum enda hafa þeir ára- tuga reynslu. Þeir hafa ákveðið að persónu- gerva þessar deilur við mig, eins og þetta sé bara deila við Pétur Einarsson flugmála- stjóra, Þetta er gjörsamlega rangt því þessir menn eru búnir að standa í áratuga deilum við samgönguráðuneytið, samgönguráð- herra og fyrrverandi flugmálastjóra. Ég á ekki í deilum við nokkurn mann. Við höfum afgreitt þau mál hér sem við getum afgreitt innanhúss og þegar það hefur ekki verið hægt, eins og með þessi skipulagsmál, hefur þeim verið vísað á æðra stjórnunarstig þar sem þau hafa verið afgreidd. Viðbrögð flug- umferðarstjóra varðandi skipulagsmálin voru þau að samgönguráðherra hefði svikið þá. Þessar deilur við mig eru bara tilbúið fjöl- miðlamál. Þetta er stéttarfélag og ég tel að það eigi að standa að kjarabaráttu og beita sér fyrir friði á vinnustað. En þarna eru ein- staka menn sem beita sér fyrir því að hleypa hlutunum upp í loft í minnstu málum. Til að fá launahækkanir setja þeir mál í klemmu og setja t.d. á yfirvinnubönn, náms- bönn, utanferðarbönn og alls konar bönn, flugstjórnarsvæðisbönn meira að segja, og til að leysa þessi bönn þarf alltaf að borga eitt- hvað. Ég er bara ekki samningsaðili í því að borga flugumferðarstjórum, það er fjármála- ráðuneytið og það vita þeir ósköp vel. Trixið er hins vegar að persónugerva deiluna. En mikill meirihluti flugumferöarstjóra eru hinsvegar ágætismenn." — Nú tala þeir um ad deilur ykkar á milli séu orðnar svo magnaðar að þriðji aðili verði að skerast í leikinn. „Þriðji aðilinn? Þeir eiga væntanlega við samgönguráðherra. Hann er margsinnis bú- inn að skerast í leikinn. Það eru akkúrat eng- ar deilur á ferðinni í dag, allavega ekki við mig. Flugumferðarstjórar eiga nú í sérkjara- samningum og það er við fjármálaráðuneyt- ið og mér þætti vænt um að fá að frétta hvernig það fer. Ætli það verði ekki mér að kenna ef illa fer, ekki verður það mér að þakka ef þeir verða ánægðir með samning- ana.“

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.