Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 12.06.1986, Qupperneq 14

Helgarpósturinn - 12.06.1986, Qupperneq 14
t Frá ÞórsmbrK. Á Vatnajökull: Víðáttan sn^inn, himinnfnn' ^aður/nn. eftir G. Pétur Matthíasson myndir Jim Smart, Hjólmar R. Bórðarson o.fl. FÖGUR HLIÐIN SAGÐI GUNNAR Á HLÍÐARENDA ÁÐUR EN HANN SNERI AFTUR. EFLAUST HEFUR HONUM FUNDIST HLÍÐIN FEGURSTI STAÐUR Á ÍSLANDI. EN HVAÐ FINNST OKKUR HINUM SVONA I UPPHAFI SUMARS? Hvert ætlaröu að ferðast í sumar? Ætlarðu kannski að fara í sólarlandaferð? Eða ætlarðu loksins að koma því í verk að ferðast um eigið land? Á íslandi er að finna gnótt fallegra staða og skiptir þá engu hvaða augum þú lítur fegurð. Flest er hægt að finna. Við á HP slógum á þráðinn til nokkurra valinkunnra íslendinga og spurðum hvaða staður á landinu þeim þætti fegurstur. Við vorum ekki að leita eftir fegursta stað á íslandi, því við íslend- ingar verðum vonandi aldrei sammála um það. Enda nefndi ekkert þeirra sex sem spurð voru nákvæmlega sama staðinn. Hér koma staðirnir, fólkið og svörin: Huert œtlardu ad ferdast í sumar? Ætlardu kannski ad fara í sólar- landaferö? Eda œtlaröu loksins aö koma þuí í uerk aö feröast um eigiö land?Á íslandi er aö finna gnótt fal- legra staöa og skiptir þó engu huaöa augum þú lítur fegurö. Flest er hœgt aöfinna. Viö ú HP slógum ó þróöinn til nokkurra valinkunnra íslendinga ogspuröum hvaöa staöur ó landinu þeim þœtti fegurstur. Viö vorum ekki aö leita eftir fegursta staö ú ís- landi, því viö Islendingar ueröum vonandi aldrei sammúla um þaö. Enda nefndi ekkert þeirra sex sem spurö voru nókvœmlega sama staö- inn. Hér koma staöirnir, fólkiö og svörin: Höskuldur Jónsson: Snæfellsnesið hrífur minn huga „Fegurðin er óskaplega vand- meðfarin,“ sagði Höskuldur Jóns- son, forstjóri Áfengis- og tóbaks- verslunar ríkisins. „Menn tengjast oft fæðingarstöðum sínum sérstök- um böndum og sjá þar hreint loft, fögur fjöll og tæran sjó. En ef ég ætti að nefna einn stað á landinu þar sem ég tel meira að sjá á litlum bletti en annars staðar á landinu og hrífur minn huga, þá er það Snæfellsnesið, og þá sérstaklega útnesin. Ég tel að ströndin í Breiðavíkurhreppi og Snæfellsjökullinn séu með mestum fágætum á okkar landi. Ef tilgreina á fallega staði þá má nefna Torfajökulssvæðið, Land- mannalaugar og Lónsöræfi þar sem litasamsetningin og litadýrðin er ótrúleg. Hrífandi landslag er líka í Þórsmörk, Skaftafelli og Núpsstaða- skógi. Og á mörgum stöðum má sjá einstök furðuverk, þótt landslagið í heild sé ekki merkilegt. En ef ég hefði einn dag til að sýna útlendingi landið myndi ég fara með hann vest- Gunnar Guðmundsson: Ég myndi nefna Þórsmörk að sumri „Það fer dálítið eftir árstíma hvar fallegast er,“ sagði Gunnar Guö- mundsson, forstjóri Guðmundar Jónassonar hf. „En ég held að ef ég yrði að velja einhvern einn — sem er erfitt val — þá myndi ég nefna Þórsmörk að sumri. Á veturna eru það enn frekar aðstæðurnar sem skapa fegurðina en á sumrin. Þá er fallegast að vera í björtu veðri uppi á fjöllum þar sem mikið útsýni er. Þórsmörk hefur samt alltaf vinn- inginn. Maður er kunnugri henni vegna þess hvað hún er tiltölulega stutt frá Reykjavík. En það eru auð- vitað ótál aðrir staðir sem koma upp í hugann við svona spurningu. Hjálmar R. Bárðarson: Ég legg alla staðl að jöfnu „Ég veit ekki hvort ég get tekið nokkurn stað fram yfir annan," sagði Hjúlmar R. Bóröarson, fyrr- verandi siglingamálastjóri. „Það eru allir staðir fallegir þegar vel viðrar er oft sagt en staðir geta líka verið mjög fallegir í slæmu veðri. Ég er búinn að fara víða og kann alltaf vei við mig hvar sem er á landinu. Ég held ég leggi alla staði að jöfnu. Ég er hlutlaus og vil ekki fara að leggja dóm á staði. Það er alls staðar hægt að finna góð mótíf ef nógu vel er skoðað. Annars er mat á því hvað er fal- legt svo afstætt. Einum finnst þetta en öðrum hitt. Það er jafnvel fallegt uppi á Vatnajökli þar sem allt er auðn. Þar finnst mönnum að ekkert sé að sjá en það er nú bara töluvert þegar að er gáð. Hvít snjóbreiðan og himinninn er nóg til að hægt sé að tala um fegurð. Höskuldur Jónsson. Gunnar Guðmundsson. Hjálmar R. Bárðarson. ! vagna- - og i frarr 14 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.