Helgarpósturinn - 12.06.1986, Page 15
Gunnlaugur Þórðarson:
Jöklasýnin, við-
áttan og tærleikinn
,,Það er voðalega erfitt að svara
svona spurningu," sagði Gunnlaug-
ur Þórðarson hæstaréttarlögmaður
inntur eftir fallegasta stað á landinu
að hans mati. „Eg hef nú ekki komið
á alla staði landsins en stórfengleg-
asta landsýn sem birst hefur mér
hingað til er þegar komið er austan
að, ofan Almannaskarð, og Horna-
fjörður og Vatnajökull blasa við aug-
um. Þar held ég að sé einn fegursti
staður á landinu, þótt það sé óskap-
lega erfitt að svara þessu.
Annars grípur mig alltaf sérstök
tilfinning á Þingvöllum. Mér finnst
fáir staðir á jarðríki sem jafnast á við
Þingvelli. En fegurðin er stórfeng-
legri þegar horft er vestur frá Al-
mannaskarði. Jöklasýnin, víðáttan
og þessi tærleiki í fjarska."
B[örn Th. Björnsson:
Ogmundarhraunið
er ótæmandi
„Fallegasti staður á landinu, já. Ef
maður væri nú svo vel að sér að
maður vissi það,“ sagði Björn Th.
Björnsson listfræðingur. „Sjálfur er
ég nú búinn að ganga um Þingvelli
undanfarin ár. Þótt ég hafi einnig
farið víðar þá leita ég oftast þangað.
Ég er reyndar nýbúinn að skrifa bók
um gönguleiðir og staði á Þingvöll-
um.
Sumir leggja í orðið fegurð stór-
brotna og hrikalega náttúru en aðrir
margbreytileikann í nærsýn. Ég veit
Gunnlaugur Þórðarson.
ekki hvað þú átt við með orðnu feg-
urð.
—- Það er helst huað þér sjálfum
finnst fallegt.
„Fallegast finnst mér Ögmundar-
hraunið og Þingvellir. Það eru mínir
uppáhaldsgöngustaðir úr bænum.
Ögmundarhraun er geysilega
magnað hraun með mörgum merki-
legum stöðum. Ég vinn þannig
vinnu að ég tek mér frí dag og dag
og fer því ekki langt frá, ég fer í
dagstúra. En Ögmundarhraunið er
ótæmandi, ég hef farið þar um árum
saman og þar þrýtur aldrei það sem
hægt er að skoða. Sama á við um
Þingvelli. Og þegar ég segi Þingvelli
þá á ég ekki við pulsubarinn og Val-
höll, ég á við Bláskóga.
Ég ætla ekki að tala um Öræfajök-
ul. Þar er allt annars konar fegurð
sem ég get fundið í Sviss. En Ög-
mundarhraun get ég ekki fundið,
frekar en Þingvelli, annars staðar í
Evrópu.
Björn Th. Björnsson.
Maríanna Friðjónsdóttir:
Reykjanesið yndis-
lega nakið
„Minn staður er í næsta nágrenni
við Reykjavík. Mér finnst Reykja-
nesið yfirhöfuð fallegur staður,"
sagði Maríanna Friðjónsdóttir, dag-
skrárgerðarmaður og rallökumað-
ur. Reykjanesið er yndislega eyði-
legt og nakið svæði. Grár sandurinn
er mjög fallegur með melgresisþúf-
urnar á stangli hér og þar. Það er
dásamlegt að keyra milli Hafna og
Grindavíkur. Við Kleifarvatn er
verulega sérstætt samspil lita, þrátt
fyrir að það sé eyðilegt.
Það er óhætt að mæla með því að
rúnta um Reykjanesið á sæmilegum
sunnudegi. Það má líka halda áfram
að keyra frá Grindavík til Krýsuvík-
ur. Það er mjög falleg leið og öðru-
vísi en á milli Hafna og Grindavíkur.
Afar sérkennilegt landslag.
Marfanna Friðjónsdóttir.
Framúrakstur á vegum úti krefst kunnáttu og skynsemi. Sá sem ætlar
framúr þarf að gefa ótvírætt merki um vilja sinn, og hinn sem á undan
ekur þarf að hægja ferð. Stefnuljósin er sjálfsagt að nota. Minnumst
þess að mikil inngjöf leiöir til þess að steinar takast á loft, og ef hratt
er farið ökum við á þá í loftinu.
HREINNA LOFT
Það er ekki bara hreinna lofl og auðveldari þrif sem fylgja þvf að velja
TARKETT PARKETT á gólfin.
TARKETT PARKETT er heimsfrægt fyrir stöðugleika.
TARKETT PARKETT hefur sérstaklega sterka lakkhúð.
TARKETT PARKETT er auðvelt í uppsetningu.
Þeim fjölgar sífellt sem velja TARKETT PARKETT á gólfin, því þeir vita að
þau verða fallegri og fallegri með hverju ári sem Ifður.
HARÐVIÐARVAL
Krókhálsi 4
110 Reykjavik
Sími 671010
Allt í bílinn a
raoyst
Siöumúla 7-9, * 82722
á Monroe Radial Matic
Monroe Gas Matic
Monroe Magnium
Monroe Super Strut
Öruggt grip með Monroe
fMOMROEf
HELGARPÖSTURINN 15