Helgarpósturinn - 12.06.1986, Síða 16

Helgarpósturinn - 12.06.1986, Síða 16
í Hér vantar alveg turn- inn, segir Júlíus Vífill Ingvarsson óperu- söngvari og bendir á teikningu Guðmundar Jónssonar af væntan- legu tónlistarhúsi. i teikningu Guðmundar er gert ráð fyrir að í húsinu verði tveir salir, annar stór þar sem rúmast um 1500 manns í sæti en hinn minni þar sem verða sæti fyrir um 150 áhorfendur. Hliðarsvið eru engin, ekki gryfja fyrir hljómsveit og ekki sviðsturn, heldur lækkar þakið ofan við sviðið. „Það er búið að finna góðan arki- tekt en leikurinn er alls ekki búinn," sagði Júlíus Vífill í samtali við HR DEILUR UM BYGGINGU TÓNLISTARHÚSS „KLUÐUR SEM ÞUMBAST í GEGN“ Fyrirhuguö bygging tónlistarhúss t Reykjavík, sem œtlaö er aö vera miöstöö tónlistarlífs á Islandi, hefur vakiö miklar deilur. Fjöldi tónlistar- manna og óperusöngvara benda á aöeftir sem áöur veröi óperusöngur á Islandi í húsnœöishraki. Kostnaö- ur viö tónlistarhúsiö er talinn í hundruöum milljóna króna en eftir sem áöur þarf aö byggja annaö álíka hús fyrir óperusöng, veröi fylgt þeim hugmyndum sem réöu feröinni viö gerö forskriftar fyrir samkeppni arkitekta um teikningu aö húsinu. Verölaunateikningu Guðmundar Jónssonar telja óperu- söngvarar sýna allsendis ófullnœgj- andi byggingu og forsvarsmenn Samtaka um byggingu tónlistarhúss svara því til aö ekki standi til aö annar aöili en Sinfóníuhljómsveit ís- lands eigi þar sitt heima. „Óperan veröur svo gestur okkar númer eitt," segir Armann Örn Ármannsson, verktaki í Ármannsfelli, sem talinn er helsta driffjöörin meöal þeirra sem aö byggingunni standa. „Ég sé ekki fram á annað en hér sé verið að gera stórkostleg mistök. Við höfum ekki efni á því að byggja tvö hús, eitt fyrir Sinfóníuhljóm- sveitina og annað fyrir Óperuna," sagði Siguröur Björnsson, fram- kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveit- arinnar, en meðal annarra sem lýst hafa andstöðu við byggingaráform Ármanns eru Jón Þórarinsson tón- skáld, Jón Asgeirsson tónskáld, Sveinn Einarsson, fyrrverandi þjóð- leikhússtjóri, Gísli Alfreösson þjóð- leikhússtjóri, Kristján Jóhannsson óperusöngvari, Júlíus Vífill Ingvars- son, formaður óperudeildar Félags íslenskra leikara, og fleiri. „Það var ekki hlustað á okkur," segja þeir Júlí- us og Sigurður. „Við förum ekki héðan nema við fáum okkar eigin sal þarna, annars verðum við bara áfram í Gamla bíói," sagði Garöar Cortes, fram- kvæmdastjóri íslensku óperunnar, í samtali við HP um notagildi hins nýja tónlistarhúss fyrir óperusöng. „Auðvitað hlýtur það að vera og því fylgir meiri stofnkostnaður að fara þá leiðina," sagði Garðar þegar blaðamaður spurði hvort ekki yrði þá að byggja annað eins hús fyrir óperustarfsemi innan fárra ára. Klofningur í nefnd Á laugardag voru kynnt úrslit samkeppni um hönnun tónlistar- húss. Pað eru Samtök um byggingu tónlistarhúss sem standa að þessari framkvæmd og var forskrift að hús- inu send út til arkitekta á síðasta ári. Að gerð forskriftarinnar vann hópur a vegum SBTH sem í áttu sæti m.a. Jón Þórarinsson tónskáld, Finnur Torfi Stefánsson, lögfræðingur Fé- lags íslenskra hljóðfæraleikara, og Karólína Eiríksdóttir tónskáld. Nefnd þessi klofnaði í afstöðu sinni til þess hvernig húsið skyldi úr garði gert. Jón Þórarinsson vildi að byggt yrði allsherjar tónlistarhús sem jafn- framt tónleikahaldi myndi rúma starfsemi óperuleikhúss, en lenti í minnihluta. Meirihluti nefndarinnar taldi rétt að byggja veglegt tónlistar- hús sem yrði miðstöð íslensks tón- listarlífs og aðsetur Sinfóníuhljóm- sveitar íslands, svo vitnað sé til for- skriftar sem nefndin sendi frá sér. Annarsstaðar er tekið fram um notkun á stóra salnum í húsinu að þar skuli „fara fram flutningur og upptaka á hljómsveitartónleikum, óratóríu-, kórtónleikum og einleiks- tónleikum, enn fremur á popp-, jass- tónleikum og léttri tónlist. Flutning- ur á óperum, þar sem notaöur er einfaldur sviösbúnaöur, fer sömu- leiöis fram íþesum sal." (Leturbreyt. HP). Nýtt Kröfluævintýri?! „Við erum að tala hér um hús sem kostar hálfan til heilan milljarð króna og jafnast á við Kröfluævin- týri. Ef farið verður út í að hafa það einungis fyrir Sinfóníuhljómsveitina þá verður það illa nýtt. Hljómsveitn heldur ekki tónleika nema tvisvar í mánuði. Miklu stærri þjóðir hafa byggt hús með fjölþættari nýtingu þar sem rúmast starfsemi bæði óperu og hljómsveita. Við höfum dæmin fyrir okkur utan úr hinum stóra heimi að þetta er hægt,“ sagði Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður óperudeildar Félags íslenskra leik- ara, í samtali við HP. „Ef við íslend- ingar ætlum að vera þeir flottræflar að byggja sérhús sem rúmar bara starfsemi Sinfóníuhljómsveitarinn- ar, þá er það miklu meira en við höf- um efni á. Og með þessu ævintýri verður ekki farið út í það að byggja óperuhús næstu áratugi." Hugmynd Júlíusar og félaga hans í óperudeild Félags íslenskra leikara er að byggja megi hús með einum stórum sal og öðrum minni til æf- inga sem þá myndi nægja sem heimili bæði óperuleikhúss og Sin- fóníuhljómsveitarinnar. Sigurður Björnsson, framkvæmdastjóri Sin- fóníuhljómsveitar Islands, tók í sama streng í samtali við HP. „Ég er ekki í nokkrum vafa um að þarna á að byggja fjölnýtishús. Það er algjör misskilningur að þarna yrðu árekstrar, þó svo að Óperan yrði þarna líka. Ég hef sjálfur sungið í þannig húsi í 15 ár erlendis, en það var ekki talað við mig, hvorki sem - ÓPERUNNI ÚTHÝST. FJÖL- MARGIR TÓNLISTAR- MENN ÓÁNÆGÐIR. EKKI HÆGT AÐ HAFA TVÆR DROTTNINGAR í SAMA HÚSI? BYGG- ING SEM KOSTAR HUNDRUÐ MILLJ- ÓNA OG ÞARF AÐRA TIL. FLOTTRÆFILS- HÁTTUR AÐ MATI ÓPERUSÖNGVARA. framkvæmdastjóra Sinfóníuhljóm- sveitarinnar né fyrrverandi óperu- söngvara. Á móti Óperunni Málið er að þeir aðilar sem standa að þessu og kalla sig Samtök um byggingu tónlistarhúss vilja alls ekki óperu inn í þetta hús. Ég veit ekki hvernig það er komið inn hjá þeim. Við gerum okkur alveg grein fyrir því að það myndi kosta meiri pen- inga að byggja yfir Óperuna um leið en Óperan á í rauninni ekkert hús fyrir sína starfsemi. Auk þess yrði húsið um leið nýtanlegt til fleiri hluta en ella,“ sagði Sigurður enn- fremur. Júlíus Vífill sagði í samtali við HP að það sem þyrfti til þess að húsið yrði fullnægjandi óperuhús væri hliðarsvið, helst beggja megin, hljómsveitargryfja, búningsher- bergi, smiðjur fyrir hina ýmsu lista- menn sem að óperum starfa og síð- leftir Bjarna Harðarson myndi ast en ekki síst turn yfir sviðinu þar sem koma mætti fyrir sviðsbúnaði og leiktjöldum. Meðan sýningar væru hjá öðrum aðilanum gæti hinn haldið æfingar á litla sviðinu. „Við blásum á að Óperan og Sinfónían gæti ekki unnið saman," sagði Júlíus. Þarf tvö heimili? Menn greinir mjög á um það hvort íslenska óperan og Sinfóníuhljóm- sveitin geti unnið í sömu salarkynn- unum. „Það er óraunhæft að ætla að fara inn á heimili hjá einhverjum öðrum. Við getum ekki búið inni á Sinfóníuhljómsveitinni frekar en að hún gæti búið með okkur. En ég er ánægður með að hún fái sitt heimili og við erum auðvitað ánægð hér í Gamla bíói," sagði Garðar Cortes í samtali við HP. „Ég lagði fyrir þessa menn ákveðnar hugmyndir. Það er þarna kammersalur fyrir 150 manns. Ef þeir nú gleymdu þessum kammer- sal en byggðu í staðinn fullkominn óperusal sem rúmar svona 750 manns í sæti, með gryfju og í gamla stílnum, þá væri komið það sem okkur dreymir um. Það væri ekki miklu dýrara og við eigum alls stað- ar nógu góða kammersali," sagði Garðar ennfremur. „En úr því að svona er komið þá finnst mér kjána- legt af okkur að fara að heimta eitt- hvað sem við höfum aldrei haft. Ég er mjög sáttur við okkar tilveru hér í Gamla bíói“ Tvær drottningar! „Það er ekki hægt að vera með tvær drottningar í sama húsi,“ sagði Hákon Sigurgrímsson, stjórnarfor- maður Sinfóníuhljómsveitarinnar, þegar HP innti hann eftir áliti í þessu máli. „Ég held samt að það eigi í samráði við arkitektinn að gera þær breytingar sem eru nauð- synlegar til þess að setja megi upp einstakar óperusýningar í þessu húsi. Guðmundur Jónsson arkitekt hefur sjálfur sagt mér að það sé auð- velt að koma þarna upp hliðarsviði og hljómsveitargryfju og ég mun beita mér fyrir því að það verði gert. En það er höfuðnauðsyn að menn sættist á það hvernig þetta á að vera. Menn rifust í áratugi um það hvar ætti að reisa Þjóðleikhúsið á sínum tíma og ég teldi stórslys ef svipað yrði hér uppi á teningnum. Það á ábyggilega eftir að byggja fleiri tónlistar- eða leikhús í Reykja- Jim Smartai^MHaBHBi vík. Það eru margir fleiri en Islenska óperan húsnæðislausir." „Það var tekin sú afstaða í okkar áhugamannasamtökum að í þessu húsi yrði aðstaða til að flytja óperu, en þetta verður ekki heimili ís- lensku óperunnar," sagði Ármann Örn Ármannsson, formaður Sam- taka um byggingu tónlistarhúss, í samtali við HP. „En annars vil ég sem minnst segja um þessar deilur. Það er mikilvægt fyrir okkur að það verði samstaða og ánægja um þessa byggingu." Aðspurður um breyting- ar á teikningu hússins sagði Ár- mann að gengið yrði til samninga við arkitektinn um byggingu húss- ins eftir þeirri teikningu sem nú ligg- ur fyrir. „Klúður sem þumbast f gegn'' „Þetta er klúður sem kemst í gegn fyrir þumbaraskap. Nokkurskonar one man’s show,“ sagði einn heim- ildamanna HP í samtali um málið. Svo virðist sem deilur um byggingu tónlistarhússins geti orðið til þess að tefja framgang byggingarinnar um ófyrirsjáanlegan tíma. Mikill fjöldi tónlistarmanna í landinu er andsnú- inn hugmyndum Ármanns og hans félaga í SBTH. Þessi sami hópur hef- ur með gildum rökum sýnt fram á að bygging þessa húss muni kalla á þörf fyrir annað tónlistarhús innan skamms tíma. Þrátt fyrir fjársöfnun áhugasamtaka þarf ekki að efast um að húsið verði að langstærstum hluta kostað af almannafé. Kostnað- aráætlun gerir ráð fyrir að húsið kosti um 400 milljónir króna en uppi eru raddir um að kostnaður verði mun meiri. Engar áætlanir liggja fyrir í þessum efnum og ekki heldur tölur sem varpað gætu ljósi á kostn- aðarauka við byggingu á tvöföldu húsi eins og því sem Garðar Cortes mælir með að reist verði. Júlíus Víf- ill Ingvarsson segir að kostnaður við að gera húsið að fjölnýtanlegu húsi fyrir bæði óperu og sinfóníuhljóm- sveit sé óverulegur en Ármann Örn Ármannsson segir að slík fyrirætlan geti tvöfaldað kostnað við bygging- una. Um nýtingu hússins er svipað- ur ágreiningur þar sem Ármann Örn vitnar til úttektar Rekstrarstof- unnar en niðurstaða hennar er að nýting hússins verði mjög góð. Aðr- ir, þ.á m. framkvæmdastjóri Sinfón- íuhljómsveitarinnar, telja að hús af þessu tagi verði aldrei fullnýtt nema Óperan komi inn í það líka. 16 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.