Helgarpósturinn - 12.06.1986, Side 26

Helgarpósturinn - 12.06.1986, Side 26
r i • SÝNINGARSTJÓRINN HELDUR ÓTRAUÐUR ÁFRAM OG OPNAR „KLÁMBÚLLU“ VIÐ BANDARÍSKA SENDIRÁÐIÐ. • „SKÓLASTJÓRI VERZLUNAR- SKÓLANS HAFÐI RÉTT FYRIR SÉR.“ • KLÚBBAR FARNIR AÐ SKJÓTA UPP KOLLINUM. • „OKKAR MAÐUR“ RÆDDI VIÐ HAUK SÝNINGARSTJÓRA UM ÚTVEGUN REKKJUNAUTS. SVARIÐ: EKKERT MÁL. ÍSLENSKA EÐA ENSKA? • LÖGREGLAN KANNAÐI STARFSEMINA í UPPHAFI EN ER HÆTT EFTIRLITI. • EIGANDI VEITINGASTAÐARINS UPPI OG NIÐRI: GUÐMUNDUR ER SLEFBERI OG SKÍTHÆLL. EIGANDI PÓSTVERSLUNARINNAR PAN ÞVÆR HENDUR SÍNAR AF GERÐUM SÝNINGARHÓPSINS: Það er engin ládeyda í kringum mennina tvo, sem sl. haust stofnuöu póstverslunina Pan og hófu ad versla með svokölluð hjálpartœki ástarlífsins. Algjör vinslit hafa nú orðið á milli þeirra Guðmundar Ásmundssonar og Hauks Haralds- sonar, m.a. vegna mismunandi við- horfa þeirra til nektarsýninga, sem farið hafa fram í nafni póstverslun- arinnar í vetur. Guðmundur telur sýningar þessar komnar út fyrir allt velsœmi og vill ekki hafa neitt með þœr að gera. Þar að auki telur hann sig vita fyrir víst að sum ungmenni I sýningarhópnum stundi vœndi fyr- ir milligöngu Hauks Haraldssonar, sem hafið hefur innflutning á er- lendum skemmtikröftum og mun opna ,,klámbúllu" á Laufásveginum þann 16. júní. HAUKUR ÚTVEGAR REKKJUNAUTA Helgarpósturinn náði tali af Guð- mundi Ásmundssyni fyrir nokkrum dögum og innti hann eftir því, hvort eitthvað væri til í sögusögnum um að krakkarnir í Pan-hópnum kæmu í heimahús til þess að gera meira en sýna varning frá póstversluninni og tína af sér spjarirnar. ,,Ég vil byrja á því að taka það mjög skýrt fram, að ég hef aldrei komið nálægt sýningunum, eins og þær hafa þróast á skemmtistaðnum Uppi og niðri. Hins vegar fer maður ekki í neinar grafgötur um hvað hef- ur verið að gerast þarna. Sýningarn- ar hafa verið í nafni póstverslunar- innar —• því miður — og sökum þess hef ég oft frétt um það sem á sér stað þarna." — Þú telur það með öðrum orð- um rétt, að hœgt sé að hafa sam- Heimildir greina frá því að f þessu húsnæði sé rekinn næturklúbbur og að þar gerist ýmislegt... band við þinn fyrri meðeiganda og að hann útvegi fólki rekkjunauta at báðum kynjum? „Ég væri ekki heiðarlegur ef ég bæri á móti allri vitneskju um að slíkt ætti sér stað." — Hver er staðan varðandi sam- starf ykkar Hauks núna? „Við erum algjörlega skildir að skiptum og póstverslunin er nú mitt einkafyrirtæki. Þessar sýningar, sem áttu upphaflega að vera til kynningar á vörum fyrirtækisins, eru orðnar hreinræktað klám, sem ég kæri mig ekki um að vera bendl- aður við. Þetta er „show-business" á lægsta plani og það er ekki ímynd að mínu skapi. Eftir þessa þróun hjá sýningar- flokknum, sem Haukur hefur frá upphafi séð algjörlega um, neyðist maður til þess að viðurkenna að menn eins og Þorvarður Elíasson, skólastjóri Verslunarskólans, standa með pálmann í höndunum. Þegar Bryndís Malmö var rekin úr vinnu sinni við skólann, eins og frægt varð í vetur, skrifaði ég skólastjóranum bréf þar sem ég mótmælti uppsögn- inni eindregið. Það bréf er nú mark- leysa. Þorvarður reyndist hafa rétt fyrir sér hvað varðar þessar sýning- ar. Því miður! Fólk gerir sér hins vegar ekki grein fyrir því, að póstverslunin hef- ur aldrei tengst þessum sýningum nema að nafninu til. Sýningarnar hafa heldur aldrei skilað aukinni sölu inn í fyrirtækið, frekar hið gagnstæða. Þær eru sjálfstætt fyrir- bæri, sem Haukur tók með trompi í upphafi og beindi strax inn á vægast sagt óheppilegar brautir. Meðal annars þess vegna erum við nú al- gjörlega skildir að skiptum. Ég kæri mig ekki um að verða einhver klám- kóngur." ÁHRIF ÁKVEÐINS VEITINGAMANNS — Þú varst samt sem áður sam- þykkur stofnun hópsins í vetur? „Já. Hópurinn var settur á lagg- irnar í góðri trú. Ákveðinn veitinga- maður hér í borg sá þarna hins veg- ar leið til að auka aðsókn að skemmtistað sínum og þrýsti á um breytta stefnu. Þetta hefur síðan komið slæmu orði á starfsemi póst- verslunarinnar. Það er mjög andstætt mínum ásetningi að auglýsa þessi viðskipti organdi og gargandi um allan bæ. Sá darraðardans hræðir fólk og hvekkir, og það óttast að nöfn þess verði hrópuð á götuhornum. Um einn hundraðshluti þjóðarinnar hef- ur hins vegar verslað við mig í gegn- um smáauglýsingarnar. Það er því Ijóst að eftirspurnin er mikil. Við Haukur höfum ekki sama matið á sjálfsvirðingu. Ég vil selja þær vörur, sem póstverslunin hefur boðið upp á til þessa, en án kláms. Það sjá allir, sem vilja, að það sem Haukur er að gera með þessum klámsýningum er hrein ónáttúra! Ég er alls ekki á þessari „línu" og legg mikla áherslu á að viðskipta- vinir mínir geti treyst mér fullkom- lega. Fólk kýs að leynd sé í heiðri höfð í þessum viðskiptum." INNAN RAMMA LAGANNA — Þú gerir mikinn greinarmun á þtnu fyrirtœki og því sem Haukur er að gera. „Svo sannarlega. Ég afgreiði t.d. alls ekki unga krakka og hef ekki til sölu vídeóspólur eða blöð, sem talist gætu klám. Ef það kemur fyrir að tollverðir gera athugasemdir við varning, sem ég hef fengið að utan, sendi ég hann undireins til baka. Annað kæmi mér ekki til hugar. Mér er mikið í mun að fara ekki yfir í það sem brýtur í bága við lögin." — Er eitthvað sérstakt á döfinni hjá þér núna? „Það verður sífellt þróun, já. Ég er m.a. að senda út bréf til allra minna viðskiptavina, þar sem ég geri þeim grein fyrir óánægju minni með þróun mála varðandi sýning- arnar. Ég vil að fólk geti treyst mér og minu fyrirtæki. Það má t.d. nefna þá nýbreytni að nú getur fólk fengið meðlimakort í póstversluninni. Meðlimir fá fréttir af nýjum vörum, sem berast, og einnig verð ég með vörur á tilboðs- verði, sem ég tilkynni hverju sinni. Þar að auki mun ég hafa „opið hús" öðru hvoru og sjá hvort það mælist ekki vel fyrir. Það eru margir óánægðir með að geta einungis kom- ið hingað á skrifstofutíma til að versla og vilja gjarnan geta komið og litið á vöruúrvalið á kvöldin eða um helgar." — Hefur þú heyrt um nætur- klúbba, sem sagt er að starfrœktir séu í einhverjum tengslum við sýn- ingarhópinn og þinn fyrri meöeig- anda í póstversluninni? „Eg hef heyrt sagt frá þeirri starf- semi en veit ekki að hve miklu leyti þetta tengist." „GÖÐIR MENN Á BAKVIÐ MIG" Spjallið við Guðmund Ásmunds- son varð ekki lengra, en næst lá leið blaðamanns að Laufásvegi númer 17, sem er reyndar aðeins einu húsi frá bandaríska sendiráðinu. Þarna hefur Haukur Haraldsson tekið á leigu rúmgott húsnæði og er hann, ásamt nokkrum iðnaðarmönnum, í óða önn að innrétta þar verslun, skrifstofu og litla íbúð fyrir skemmtikrafta, sem hann hyggst hafa milligöngu um að fá til lands- ins. í versluninni ætlar Haukur að hafa á boðstólum svipaðan varning og hægt hefur verið að kaupa hjá póstversluninni og bindur hann greinilega vonir við nálægð búðar- innar við sendiráðið. Forvitnilegast við þessar framkvæmdir er óneitan- lega hvernig maður, sem fyrir skömmu varð að hætta rekstri kristilegrar vídeóleigu, tekur sig nú til og leigir húsnæði á besta stað í bænum, innréttar síðan og kaupir lager í heila búð á einu bretti. Fyrsta spurningin til Hauks var því varð- andi það hvernig hann gæti fjár- magnað þessi miklu umsvif. „Það eru góðir menn sem standa á bakvið mig,“ var svarið. — Hverjir? „Það skiptir engu máli hverjir það eru.“ ÞELDOKK VÆNDISKONA Þar sem Haukur var greinilega 26 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.