Helgarpósturinn - 12.06.1986, Qupperneq 37
KVIKMYNDAFRÖMUÐURINN
Áður en Hrafn Gunnlaugsson tók
við starfi sínu hjá sjónvarpinu var
fyrst og fremst litið á hann sem kvik-
myndagerðarmann — höfund
ágætra mynda á borð við Óðal feðr-
anna og Hrafninn flýgur, að því
ógleymdu að Hrafn hefur líklega
stýrt fleiri leiknum myndum í sjón-
varpi en nokkur annar íslendingur.
Síðasta verkefni Hrafns á þessu
sviði var unnið á vegum frænda
okkar Svía — sjónvarpsmyndin
Böðullinn og skækjan. Reyndar fjár-
mögnuðu Svíar Hrafninn flýgur
einnig að hluta til. Hrafn lýsti því
reyndar yfir fyrir nokkru að hann
hygðist taka sér frí frá kvikmynda-
gerð í nokkurn tíma, enda starfið
hjá sjónvarpinu erilsamt. En hann
hefur síður en svo hætt afskiptum af
kvikmyndagerð, því hann situr í
stjórn Kvikmyndasjóðs ásamt Knúti
Hallssyni, Sigurði Guðmundssyni,
Sigurði Sverri Pálssyni og Kristínu
Jóhannesdóttur. Þar situr Hrafn í
krafti þess að vera formaður í áður-
nefndu Sambandi kvikmyndafram-
leiðenda, félagsskap sem að sögn
ríkir talsverð deyfð yfir. Það mun
ekki síst hafa verið fyrir tilstuðlan
Hrafns að Guðbrandur Gíslason
blaðamaður var ráðinn fyrsti starfs-
maður Kvikmyndasjóðs í vetur.
Guðbrandur sat einnig í dómnefnd í
smásagnakeppni Listahátíðar. Eftir
nokkra töf greiddi svo Kvikmynda-
sjóður út styrki í vor, þar á meðal
fimm milljónir til Friðriks Þórs Frið-
rikssonar og tvær milljónir til kvik-
myndafyrirtækisins F.I.L.M. Það var
styrkur til að undirbúa gerð hreyfi-
myndarinnar Tristan og ísold undir
leikstjórn Hrafns Gunnlaugssonar.
Auk þess að styrkja kvikmyndagerð
hér á landi er það líka í verkahring
Kvikmyndasjóðs að veita styrki til
að kynna íslenskar myndir erlendis;
til þess verkefnis hefur sjóðurinn
tvær milljónir til ráðstöfunar en út-
hlutun hefur ekki ennþá farið fram.
FORMAÐUR STJÓRNAR
LISTAHÁTÍÐAR
Formaður svokallaðs fulltrúaráðs
Listahátíðar í Reykjavík er Davíð
Oddsson borgarstjóri, en varafor-
maður Sverrir Hermannsson
menntamálaráðherra. Undir full-
trúaráðinu situr svo hin eiginlega
framkvæmdastjórn hátíðarinnar;
hana skipa þrír fulltrúar Iistamanna,
að þessu sinni þau Birgir Sigurðsson
rithöfundur, Kristín Jóhannesdóttir
leikstjóri og Stefán Baldursson leik-
hússtjóri. Að auki sitja í fram-
kvæmdastjórninni tveir stjórnskip-
aðir fulltrúar, einn frá Reykjavíkur-
borg og einn frá menntamálaráðu-
neytinu. Fulltrúi menntamálaráðu-
neytisins er Kristinn Hallsson
söngvari en fulltrúi borgarinnar og
formaður framkvæmdastjórnar er
Hrafn Gunnlaugsson. Það er hlut-
verk framkvæmdastjórnar að móta
Listahátíð og ákveða hvað verður á
„MUNSTRIÐ RUGLAST
OG MAÐUR ER EKKI
LENGUR GOTT SKALD"
LISTAMENNIRNIR
Við kjósum menn en ekki fiokka.
Við kjósum menn aó verðleikum.
Viðætlumaðkjósa
DAVfÐ ODDSSQN
borgarstjóra i Reykjavík.
Atti Htimir SvHnsson.
Ctmwkrí’ariat’jtw,
Auglýsingin i Morgunblaðinu föstudag-
inn 30. maí, daginn fyrir kjördag.
Egill Eðvarðsson; Eurovision-stjórnandi
og gamall kollegi úr sjónvarpinu.
Atli Heimir Sveinsson — „mér finnst
fólk ganga býsna langt í því að láta
flokka skammta sér óhaefa menn og
halda samt tryggð við þá."
Friðrik Þór Friðriksson; loksins komu
peningar til að gera leikna bíómynd.
Gunnar Þórðarson; semur tónlist við
flestar myndir Hrafns, þar á meðal
Reykjavikurmyndina ófrumsýndu.
Kjartan Ragnarsson; þeir Hrafn bera hit-
ann og þungann af Árnarhólshátiðinni.
Sigurður Rálsson; gamall félagi úr bar-
áttunni og formaður Rithöfundasam-
bandsins.
Steinunn Sigurðardóttir; skólafélagi,
rithöfundur, útvarps- og sjónvarps-
maöur.
Þórarinn Eldjárn; Matthildingur.
Þorsteinn Gunnarsson; arkitekt Borgar-
leikhússins.
boðstólum, en síðan ræður hún sér
framkvæmdastjóra til að sjá um
hinn daglega rekstur — í þessu til-
viki Salvöru Nordal.
Hrafn ætti reyndar að vera öllum
hnútum kunnugur á Listahátíð, því
*hann var framkvæmdastjóri hátið-
anna árin 1976 og 1978. Hann þykir
enda hafa verið býsna aðsópsmikill
og einráður í stjórninni; það mun til
dæmis hafa verið að eindregnu
frumkvæði hans að umdeildir
samningar voru gerðir við Ólaf
Laufdal veitingamann um að djass-
hljómleikar Listahátíðar skyldu
haldnir í Broadway en ekki í hinum
virðulegri og hljóðlátari hljómleika-
sölum. í þeim samningi var iíka
ákveðið að svokallaður Klúbbur
Listahátíðar skyldi verða í leiguhús-
næði Ólafs á Hótel Borg, en þegar
þetta er ritað virðist sá klúbbur vera
að fara út um þúfur með lítilli reisn,
enda hafa ekki fengist fyrir honum
tilskilin leyfi hjá stjórnvöldum.
Stefna þessarar Listahátíðar, undir
stjórn Hrafns Gunnlaugssonar, var
að hafa færri og líklega betri atriði
á boðstólum — hátíðin stendur enn-
þá yfir og dómur um það hvernig til
tókst hlýtur að bíða betri tíma.
STARFSMAÐUR AFMÆLIS-
HÁTÍÐARNEFNDAR
Það hefur víst ekki farið framhjá
neinum að höfuðborgin okkar,
Reykjavík, á afmæli á þessu ári og í
tilefni af því er boðið til gríðarlegrar
afmælishátíðar. Fulltrúa í afmælis-
nefndinni eiga allir borgarstjórnar-
flokkarnir í hlutfalli við fylgi —
nema Kvennalistinn sem sagði sig
úr nefndinni þegar konum þótti
sýnt að kostnaðurinn við hátíðina
yrði óhóflegur. Formaður afmælis-
nefndarinnar er náttúrleg Davíð
Oddsson borgarstjóri. Undir móður-
nefndinni starfa ýmsar nefndir sem
eiga að sinna afmörkuðum verkefn-
um á afmælisárinu og var ein þeirra
svokölluð Arnarhólsnefnd sem átti
að sjá um framkvæmd útihátíðar-
innar í miðbænum sjálft afmælis-
kvöldið, 18. ágúst. í þessari nefnd
áttu sæti María Jóhanna Lárusdótt-
ir, Kjartan Ragnarsson og Hrafn
Gunnlaugsson. Þegar Kvennalista-
konan María Jóhanna hvarf á braut
var afráðið að Hrafn og Kjartan
skyldu ráðnir starfsmenn sjálfrar af-
mælisnefndarinnar og er það eftir
sem áður í þeirra verkahring að sjá
um áðurnefnda skemmtun sem að
sögn verður af óþekktri íslenskri
stærðargráðu með margvísiegum
hljóðfæraslætti á mörgum pöllum,
ræðuhöldum borgarstjóra, blysför-
um, flugeldasýningum og leysi-
geislasjói. En það eru sumsé þeir
Hrafn og Kjartan, í samráði við póli-
tíkusa, sem ákveða hvaða listamenn
komast á pall á þessum mikla tíma-
degi í sögu Reykjavikur.
En þá er þáttur Hrafns Gunnlaugs-
sonar á afmælishátíðinni reyndar
ekki allur upp talinn, því á þessu ári
verður líklega frumsýnd kvikmynd
sem hann gerði í fyrra — sjálf af-
mælismyndin sem höfuðborgin
kostaði hann til að gera í tilefni
tímamótanna. Sú heitir Reykjavík,
Reykjavík, en tónlistina gerði Gunn-
ar Þórðarson.
Formaður Bandalags íslenskra
listamanna er Birgir Sigurðsson
leikritahöfundur. Hann situr í stjórn
Listahátíðar, eins og áður var sagt,
og hefur þar gegnt starfi blaðafull-
trúa framkvæmdastjórnar. Banda-
lag íslenskra listamanna á reyndar
annan fulltrúa í framkvæmdastjórn
Listahátiðar, nefnilega varafor-
mann þessara mætu samtaka —
Hrafn Gunnlaugsson, sem þar er
fulltrúi kvikmyndagerðarmanna.
VÖLD í SKJÓLl DAVÍÐS
Við treystum okkur ekki til að full-
yrða að hér höfum við gert ein-
hverja endanlega og óyggjandi út-
tekt á völdum og áhrifum Hrafns
Gunnlaugssonar í íslensku menn-
ingarlífi. Víða liggja leyniþræðir,
áhrifin geta jú verið margvísleg og í
litlu þjóðfélagi eins og okkar geta til
dæmis ættar- og vinatengsi skipt
sköpum. Við bentum til dæmis á
það áðan að einn mestur vinur og
samherji Hrafns er Sigurður Páls-
son, formaður Rithöfundasam-
bandsins. Sé vikið að ættartengslum
má hafa hugfast að mágur Hrafns er
Egill Ólafsson Stuðmaður, ein meg-
indriffjöðrin í því mikla veldi sem
Stuðmenn eru í íslensku menning-
ar- og skemmtanalífi. Stuðmenn
báru hitann og þungann af áramóta-
dansleiknum sem Hrafn stóð fyrir í
sjónvarpinu — og náttúrlega engin
ástæða til að fetta fingur út í það
þótt slíkir skemmtikóngar séu sem
oftast og mest í stofum landsmanna.
Eins og sakir standa má fullyrða
að Hrafn þiggi mest sín áhrif frá
skólabróðurnum Davíð Oddssyni
borgarstjóra — í flimtingum hefur
Hrafn jafnvel verið kallaður
skemmtanastjóri Davíðs. Það er í
skjóli Davíðs sem Hrafn er stjórnar-
formaður Listahátíðar og það er í
skjóli Davíðs sem hann gerir
Reykjavíkurmynd og stjórnar há-
tíðahöldum á Arnarhóli. Og það er
Markús Örn Antonsson útvarps-
stjóri, flokksbróðir Davíðs og fyrr-
um forseti borgarstjórnar, sem skip-
ar Hrafn dagskrárstjóra á sjónvarp-
inu með samþykki útvarpsráðs þar
sem sjálfstæðismenn hafa töglin og
hagldirnar.
Að lokum skulum við undirstrika
að þessi grein fjallar um völd og
áhrif Hrafns Gunnlaugssonar í ís-
lensku menningarlífi, ekki um
hæfni hans eða hæfileika. Hrafn er
atorkusamur og harðduglegur ung-
ur maður og eftir hann liggja mörg
góð dagsverk — aðrir verða því að
leggja mat á það hvort hann rís und-
ir þeim miklu völdum sem hann hef-
ur. En altént má ljóst vera að samlík-
ingin við þá mótingjana Kristin E.
Andrésson og Ragnar í Smára er frá-
leitt út í hött...
HELGARPÓSTURINN 37