Helgarpósturinn - 12.06.1986, Síða 38

Helgarpósturinn - 12.06.1986, Síða 38
HELGARDAGSKRAVEIFAN eftir Sigfinn Schiöth Föstudagur 13. júní 17.15 Á döfinni. 17.25 Krakkarnir í hverfinu. 17.50 Vestur-Þýskaland — Danmörk. Bein útsending frá HM í knatt- spyrnu. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður 20.40 Listahátíð í Reykjavík 1986. 20.50 Rokkveita ríkisins — Endursýn- ing Celcíus. 21.15 Sá gamli. Siegfried Lowitz. 22.15 Seinni fréttir. 22.20 Blekkingavefur ★★ Bandarísk bíó- mynd frá 1960. Leikstjóri David Miller. Aðalhlutverk: Doris Day, Rex Harri- son, John Gavin og Myrna Loy. Ungri konu er hótað dauða og oftar en einu sinni bjargast hún naumlega úr lífsháska. Skelfing konunnar magnast stöðugt en flestir daufheyrast við kvörtunum hennar. 00.20 Dagskrárlok. Laugardagur 14. júní 16.00 Listahátíð í Reykjavík '86 Bein útsending frá tónleikum í Háskólabíói. 17.00 Brasilía — Norður— írland. Bein útsending frá HM í knattspyrnu. 18.45 Iþróttir. RG.A. - meistaramótið ígólfi á Wentworthvelli. 19.25 Búrabyggð. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Listahátíð í Reykjavík 1986. 20.45 Listahátíðarsmellir. Kynntar verða þær erlendu hljómsveitir sem leika á popptónleikum Listahátíðar í Laugar- dalshöll 16. og 17. júní. 21.30 Fyrirmyndafaðir. 21.55 Kassöndrubrúin ★★★ Bresk/þýsk/ítölsk bíómynd frá 1976. Leikstjóri George Cosmatos. Aðalhlutverk: Sophia Loren, Richard Harris, Ava Gardner og Burt Lancaster. Spellvirki ber með sér banvænan sýkil eftir innbrot í rannsóknarstofu á veg- um Bandaríkjahers í Genf. Hann kemst í lest á leið til Stokkhólms og stofnar með því lífi allra farþeganna í hættu. 00.10 Dagskrárlok. Sunnudagur 15. júní 17.15 Sunnudagshugvekja. 17.25 Andrés, Mikki og félagar frá Walt Disney. 17.50 HM í knattspyrnu — 16 liða úrslit. Bein útsending. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.40 Sjónvarp næstu viku. 20.50 Lífið er saltfiskur — Baráttan um markaöina. íslensk heimildarmynd frá 1984, gerð í tilefni af 50 ára afmæli Sölusambands íslenskra fiskframleið- enda. 22.00 Aftur til Edens. Nýr flokkur. Ástr- alskur framhaldsmyndaflokkur í sex þáttum. Leikstjóri Karen Arthur. Aðal- hlutverk: Rebecca Gilling, Wendy Hughes og James Reyne. Lukkuriddari einn krækir sér í ríkt kvonfang, en hefur jafnframt auga- stað á vinkonu hennar. Markmið hans er að losa sig við eiginkonuna hið fyrsta en halda auði hennar. 22.45 HM í knattspyrnu — 16 liða úrslit. 00.30 Dagskrárlok. © Fimmtudagur 12. júní 07.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 07.15 Morgunvakt. 08.30 Fréttir á ensku. 09.05 Morgunstund barnanna. 10.30 Ég man þá tíð. 11.03 Samhljómur. 12.20 Fréttir. 13.30 í dagsins önn — Efri árin. 14.00 Miðdegissagan. 14.30 I lagasmiðju. 15.20 Frá Suðurlandi. 16.20 Síðdegistónleikar. 17.03 Barnaútvarpið. 17.45 í loftinu. Blandaður þáttur úr neyslu- þjóðfélaginu. 19.00 Fréttir. 19.50 Daglegt mál. 19.55 Grætur með öðru, hlær með hinu. Árni Tryggvason leikari syngur og segir frá. 20.35 Frá Listahátíð í Reykjavík 1986. 21.20 Reykjavík í augum skáida. 22.20 Fimmtudagsumræðan. Ferða- mannaparadísin ísland ekki ætluð innfæddum? 23.20 Kammertónlist. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. Föstudagur 13. júní 07.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 07.15 Morgunvaktin. 08.30 Fróttir á ensku. 09J)5 Morgunstund barnanna. 10.05 Daglegt mál. 10.30 Sögusteinn. 11.03 Samhljómur. 12.20 Fréttir. 14.00 Miðdegissagan. 14.30 Nýtt undir nálinni. 15.20 Endalok Trójustríðsins. Jón R. Hjálmarsson flytur söguþátt, þýddan og endursagðan. 15.35 Sænskir þjóðdansar. 16.20 Síðdegistónleikar. 17.03 Barnaútvarpið. 17.45 (loftinu. Blandaður þáttur úr neyslu- þjóðfélaginu. * Eg mœli meö Sjónvarp, föstudagskvöldð 13. júní, klukkan 20.00. Fréttir. Kolsvört mynd á hvolfi, síðan Páll Magnús- son á hlið með tali Eddu Andrés- dóttur afturábak. Tæknimaður sem á ekki að sjást, sést samt öðru- hvoru, líka bendiprik veðurfræð- ings sem er auðsjáanlega ennþá með hassperur úr Afríkuhlaupinu. 19.00 Fréttir. 19.55 Daglegt mál. 20.00 Lög unga fólksins. 20.30 Sumarvaka. 21.15 Frá Listahátíð í Reykjavík 1986: Tónleikar í Norræna húsinu á miðviku- dagskvöld. Fyrri hluti. Guðni Franz- son og Ulrika Davidson leika á klari- nett og píanó verk eftir Hákon Leifs- son, Kjartan Ólafsson, Guðna Franz- son og Hróðmar I. Sigurbjörnsson. 22.20 Vísnakvöld. 23.00 Frjálsar hendur. 00.05 í kvöldhúminu. 01.00 Dagskrárlok. Laugardagur 14. júní 07.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 07.15 Morgunglettur. 08.30 Fréttir á ensku. 08.45 Nú er sumar. 09.20 Óskalög sjúklinga. 10.25 Morguntónleikar. 11.00 Frá útlöndum. 12.20 Fréttir. 13.50 Sinna. Listir og menningarmál líð- andi stundar. 15.00 Miðdegistónleikar. 16.30 Úr safni Grimmbræðra. 17.00 íþróttafréttir. 17.03 Frá Listahátíð í Reykjavík 1986: 19.00 Fréttir. 19.35 Halldór Haraldsson leikur. 20.00 Sagan. 20.30 Harmoníkuþáttur. 21.00 Úr dagbók Henry Hollands frá ár- inu 1810. 21.40 íslensk einsöngslög. 22.20 Laugardagsvaka. 23.00 Kosningaútvarp vegna hreppskosn- inga. Sagt frá úrslitum kosninga í 160 hreppum á landinu og leikin tónlist þess á milli. 03.00 Dagskrárlok. Sunnudagur 15. júní 08.00 Morgunandakt. 08.35 Létt morgunlög. 09.05 Frá Listahátíð í Reykjavík 1986. 10.25 Út og suður. 11.00 Messa í Dómkirkjunni. 12.20 Fréttir. 13.30 Undrabarn frá Malaga. Um Pablo Picasso. 14.30 Frá Listahátíð í Reykjavík 1986: Tónleikar í Norræna húsinu 11. þ.m. Síðari hluti. Guðni Franzson og Ulrika Davidsson leika á klarinett og píanó verk eftir Hauk Tómasson, Lárus Hall- dór Grímsson og Hilmar Þórðarson. 15.10 Alltaf á sunnudögum. Svavar Gests velur, býr til flutnings og kynnir efni úr gömlum útvarpsþáttum. 16.20 Framhaldsleikrit. 17.00 Frá Listahátíð í Reykjavík 1986: 18.00 Sunnudagsrölt. 19.00 Fréttir. 19.35 Samleikur á víólu og píanó. Unnur Sveinbjarnardóttir og Halldór Har- aldsson leika. 20.00 Ekkert mál. 21.00 Nemendur Franz Liszt túlka verk hans. 21.30 Útvarpssagan: ,,Njáls saga". 22.20 Strengleikar. Halldór Björn Runólfs- son kynnir kaffihúsa- og kabaretttón- list og fjallar um myndlist tengda henni. 23.10 Frá Listahátíð í Reykjavík 1986: Vínarstrengjakvartettinn átónleikum í Gamla bíói fyrr um daginn. 24.00 Fréttir. 00.05 Milli svefns og vöku. 00.55 Dagskrárlok. Fimmtudagur 12. júní 20.00 Vinsældalisti hlustenda rásar tvö. 21.00 Um náttmál. 22.00 Rökkurtónar. 23.00 Þrautakóngur. 24.00 Dagskrárlok. Föstudagur 13. júní 09.00 Morgunþáttur. 12.00 Hlé. 14.00 Bót í máli. 16.00 Frítíminn. 17.00 Endasprettur. 18.00 Hlé. 20.00 Þræðir. 21.00 Skuggar. 22.00 Kvöldsýn. 23.00 Á næturvakt. 03.00 Dagskrárlok. Laugardagur 14. júní 10.00 Morgunþáttur. 12.00 Hlé. 14.00 Við rásmarkið. 16.00 Listapopp. 17.00 Skuggar. 18.00 Hlé. 20.00 Bárujárn. 21.00 Milli stríða. 22.00 Framhaldsleikrit. 22.37 Svifflugur. 24.00 Á næturvakt. 03.00 Dagskrárlok. Sunnudagur 15. júní 13.30 Krydd í tilveruna. 15.00 Dæmalaus veröld. 16.00 Vinsældalisti hlustenda réar tvö. 18.00 Dagskrárlok. Svæðisútvarp virka daga 17.03-18.15 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík og nágrenni — FM 90,1 MHz. 17.03-18.30 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 MHz. ÚTVARP Fréttir á ensku... Hvað kaustu? — spyrja menn löngu fyrir kjördag og rekur svo í rogastans þegar ég segi þeim að það sé auðvitað ekki kosið fyrr en 14. júní. Það er auðvitað einkenn- andi fyrir það óðagot sem alltaf er á þétt- býlinu að þar skuli menn kjósa þremur vik- um fyrir kjördag, — en verður ekki tekið upp í yfirvegaðri landshlutum. Og biessað Ríkisútvarpið ætlar svo að senda okkur úrslitin þannig að við í uppsveitunum get- um fylgst með hvernig þeim gengur þarna í niðursveitum. Það verður semsagt kosningaútvarp um helgina og ástæða til þess að mæla með þessum dagskrárlið. Sjónvarpið á sér litla málsbót í þessum efnum. Þar verður áreið- anlega einhver bíómyndin þetta kvöld og látið eins og ísienskir sveitamenn séu ekki til lengur. Gerir kannski ekki neitt því þetta kvöld munu íslenskir oddvitar og hrepps- nefndarkarlar vísast láta sem sjónvarpið sé ekki til og hafi aldrei verið það. Og allt um það. Fréttir á ensku (8:30 á morgnana) er nán- ast það eina sem undirritaður hefur heyrt af útvarpinu í annasamri viku. Þessi frétta- tími er um margt ágætur, kemur sér vel þegar maður sefur af sér áttafréttir og þarf að vera kominn til vinnu kl. níu. Flest okk- ar skilja nóg í ensku til þess að heyra hvort tekist hafi að vega Reagan eða lækna aids. Það er á hinn bóginn umhugsunarefni hvort þessar fréttir henti útlendingum. Hugsandi um túrista með bakpoka og prímus uppi á reginfjöllum þá held ég að sá hafi lítinn áhuga á heimsmálunum, marg- þvældum. Það er eiginlega verið að svíkj- ast aftan að fólki sem ætlar að taka sér frí frá hinum stóra heimi með flótta upp á þetta eyðisker, þegar svo er baunað á það slysasögum og pólitískri refskák úr henni versu. Hversvegna ekki að leyfa því að kynnast íslandi og íslendingum með því að segja því af kosningum á Jökuldal, brúar- byggingu í Þórsmörk, Listahátíð í Reykja- vík og hvalveiðum í Hvalfirði? Sjálfur á ferðalagi í suðlægum löndum má ég aldrei vera að því að kaupa „lókal“ blöð ef þau fást á aðgengilegum tungum og vissulega segir það heilmikið að vita af offram- leiðsluvanda bænda þegar skoðaðar eru blómlegar sveitir landsins. Núna eru í þess- um ensku fréttatímum stuttir pistlar um veðrið hér heima og vegina en hvergi nærri nóg. SJONVARP eftir Friðrik Þór Guðmundsson Kjarnorka í Borgarfirði Það fer ekkert á milli mála að sjónvarps- viðburður síðustu viku var leikur Dan- merkur og Uruguay á heimsmeistaramót- inu í Mexíkó. Hvílíkt undur. Það var hrein unun að horfa á þessa Elkjæra og Ládrúpa leika sér að lánlausum meisturum Suður- Ameríku, þótt maður væri reyndar farinn að vorkenna fórnarlömbunum í lokin og óska þeim annars marks, svona í sárabæt- ur. Ég get ekki að því gert, að ég hef það ónotalega á tilfinningunni að þessir létt- leikandi Danir verði svo miklir og öruggir með sig í leiknum á móti V-Þýsklandi að þeir renni bókstaflega á rassinn. Það er kannski í stakasta lagi, þeir eru enda ör- uggir áfram í sextán liða úrslitin. Knattspyrnan skipar vissulega mjög veglegan sess í sjónvarpinu um þessar mundir og flestir ánægðir með það, hygg ég. Þó heyrast auðvitað óánægjuraddir og ekki við öðru að búast, svo sem. Sjálfur til- heyri ég þeim fjölmenna hópi sem helst má ekki missa af einum einasta leik. Það var því sjálfgefið, þegar ég fór um helgina með fjölskyldu og vinafólki að dveljast í orlofs- húsi í Munaðarnesi, að sjónvarpið var þá tekið með. Annars hefði maður jú ekki far- ið... Kvikmyndin um kjarnorkuslysið — China syndrome — hafði ég séð áður og ekkert nema gott um þá mynd að segja í sjálfu sér, þótt hún væri melódramatísk um of á köflum. Eftir að hafa rifjað upp fegurð Borgarfjarðarhéraðs og fyllst bjartsýni var þó ekki nema mátulegt á mann að hugur og sjón beindust að þeim voða sem felst í kjarnorkuverum, að ekki sé talað um kjarnorkuvopnin. Ekki var það verra að hverfa 40—45 ár aftur í tímann og sjá þýsku kvikmyndina Taglhnýtinga (Die Mitláufer) á mánudags- kvöldið. Þar var leitast við að „skýra það hvernig venjulegt fólk varð samdauna" ástandinu í Þýskalandi Hitlers. Ætli það sé ekki jafn auðvelt að dáleiða fólk nú til dags ef rétti maðurinn mætir og ákveðið ástand skapast? Hefur maður þá kynnst atburðum úr stríði sem endaði með fyrstu kjarnorku- sprengingunni, kynnst þeim voða sem felst innan veggja kjarnorkuvera og kynnst þeirri kjarnorku sem býr hið innra með knattspyrnuköppum danska landsliðsins. Ekki lítill skammtur á örfáum dögum! Ég sé það á dagskránni að Hótel þáttur- inn í gærkvöldi hafi verið sá sautjándi í röð- inni af tuttugu og tveimur, þannig að brátt sér fyrir endann á þessum ósóma. Ég hygg að ég hafi séð þrjá eða fjóra af þessum þátt- um og alltaf versna þeir. Ég hlakka til þegar þeir hverfa af skjánum, því slíkir þættir eru forheimskandi og eru þar með af mér flokkaðir með válegum atuburðum á borð við kjarnorkuslys. . . 38 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.