Helgarpósturinn - 03.07.1986, Blaðsíða 5
Vandaðar ódýrar veggskápasamstæður
frá Finnlandi
Maghoni með 2 glerskápum kr. 38.900.-
Bæsuð eik með barsk. + glersk. kr. 41.800.-
Bæsuð eik með 2 glerskápum kr. 43.800.-
Bæsuð eik með glerskáp og barskáp kr. 29.800.-
HUSGÖGN OG
INMRETTINGAR
.SUOURL ANDSBRAUT 18
Hamborg' er stærsta borg í
Vestur-Þýskalandi og hefur
allt frá dögum Hansa-kaup-
manna verið ein helsta versl-
unarmiðstöð landsins. Hún
er líka einstaklega skemmti-
leg heim að sækja fyrir ferða-
menn. Hamborg er oft kölluð
borgin græna, því skemmti-
garðar eru þar fleiri og stærri
en í öðrum borgum og laða
til sín þúsundir gesta á góð-
um dögum.
Eiginlega má segja að lífið
í borginni færist út á götur,
torg og garða á sumrin, því
þá líður varla svo dagur að
ekki sé einhvers konar uppá-
koma einhvers staðar.
Tónlistarunnendur geta til
dæmis hlýtt á Níundu sinfón-
íu Beethovens á Ráðhústorg-
inu eða fræga rokkhljóm-
svelt í einhverjum skemmti-
garðanna.
Afkomendur víkinga vilja
kannski ýta úr vör. Það er
hægt á Alster-vatni, sem er í
miðri borginni. Um það sigla
bátar með ferðamenn, en
það er líka hægt að fá leigða
farkosti fyrir þá sem sjálfir
vilja vera skipstjórar.
Þú getur leigt þér bát og siglt á Alster vatni.
I Hamtxxg eru niu yfirbyggóar göngugötur. þar sem
hver verslunin er vtö aðra.
Fhig
sm
Skemmtanalífíð í Ham-
borg er svo alveg kapítuli út
af fyrir sig. St. Pauli er líklega
eitt frægasta lastabæli í heim-
inum, en það er líka fleira í
boði. í borginni eru Qölmargir
bjórkjallarar þar sem menn
skemmta sér á bavariska vísu,
með söng og dansi. Þar er
líka nóg af diskótekum og
næturklúbbum fyrir þá sem
vilja.
Það getur verið talsverður
vandi að fara út að borða í
Hamborg því þar er um að
velja eina 800 matstaði frá
40 þjóðlöndum. í grennd við
Hamborg eru líka margir
staðir sem gaman er að
heimsækja, svo sem gamlir
kastalar og lítil sveitaþorp.
Þaðan er líka stutt til ann-
arra skemmtilegra borga eins
og t.d. Berlínar og Kaup-
mannahafnar. Það verður
enginn svikinn af heimsókn
til Hambórgar.
HELGARPÓSTURINN 5