Helgarpósturinn - 03.07.1986, Side 28
Thorsarar, Thorsteinssonar, Johnsonar, Briemarar, Engeyingar o.s.frv.:
! *§
1).
r
íft-
— Helgarpósturinn
kannar krókaleiðir
ætta, valda og
viðskipta
Ife
Björgólfur Guðmundsson, fv. forstjóri
Hafskips, er einn af mörgum nafntoguð-
um tengdasonum barna Thors Jensen,
höfuðs Thors-ættarinnar. Aðrir slíkir
tengdasynir eru t.d. Stefán Hilmarsson,
bankastjóri Búnaðarbankans, Stefán
Sturla Stefánsson, fv. bankastjóri Út-
vegsbankans, og Sverrir Norland, stjórn-
arformaður Verslunarbankans.
Jónas Haralz er ættstór maður. Mágar
hans eru Sveinn M. Sveinsson f Völundi
og Bjarni Rafnar yfirlæknir, en bróðir
Bjarna, Jónas Rafnar, er stjórnarformaður
Seðlabankans.
,,Ætla má ad regluveldiseinkenni
geti átt erfitt uppdráttar í íslensku
þjódfélagi vegna ríkra frumhópa-
tengsla og þeirrar nándar sem ein-
kennir fámennid. Þótt erfitt sé um
alhæfingar t þessum efnum þá er
fullvíst ad oft á betur vid hér aö tala
um klíku en regluveldi. Menn fá
starf í gegnum klíku, þeir fá banka-
lán í gegnum klíku; þeir fá meö öör-
um oröum hin margvíslegustu
hlunnindi og fyrirgreiöslu í gegnurn
klíku. Klíka í þessari merkingu hef-
ur ótvírœöan neikvœöan blœ. Oröa-
sambandiö aö gera eöa fá eitthvaö
,,gegnum klíku" merkir nánast aö
afla sér í krafti persónulegra tengsla
einhverra gœöa eöa verömœta sem
viökomandi einstaklingur á ekki til-
kall til og mundi þá vœntanlega
ekki öölast ef regluveldisaöferöir
vœru í heiöri haföar".
Tilvitnunin hér að ofan er fræði-
lega viðurkennd lýsing á íslenskum
raunveruleika og þá um leið lýsing
sem þúsundir íslenskra mennta-
skóla- og háskólastúdenta hafa til-
einkað sér, væntanlega mótþróa-
laust. Enda altöluð sannindi i okkar
fámenna þjóðfélagi, þegar þjóðfé-
lagsstiginn er klifinn, að sterk ættar-
tengsl, kunningsskapur og rétt
flokksskírteini geti verið hraðvirk-
ari hjálpartæki við klifrið en t.d.
menntunin ein út af fyrir sig.
Ættir í brennidepli
I þessari grein er ætlunin að fjalla
nokkuð um völundarhús ættar-
tengslanna, og þá einkum á sviði
viðskiptalífsins; við munum lita á
leiðandi menn í stærstu einkafyrir-
tækjum landsins, ekki í því skyni að
draga fram mynd af klíkusamfélagi,
heldur til að fá innsýn í það, í hve
miklum mæli leiðandi viðskipta-
menn eru beinir arftakar þeirra sem
voru í fararbroddi þegar nútíma-
þjóðfélagið var að byggjast upp.
Alltaf gerist það annað slagið að
einhver tiltekin ætt kemst í sviðs-
ljósið. Nú síðast var það Thors-ættin
vegna útburðar bónda nokkurs af
jörð þeirra við Haffjarðará í Dölum.
Þetta eru afkomendur Thors Jen-
sens, eins umsvifamesta kaupsýslu-
manns landsins fyrr og síðar.
Þá var Engeyjar-ættin nýverið í
fréttum vegna kaupa borgarinnar á
landi Ölfusvatns. Davíö Oddsson
borgarstjóri beitti sér fyrir kaupum
á þessu landi fyrir Hitaveitu Reykja-
víkur, en seljendur voru afkomend-
ur og fjölskylda Sveins Benedikts-
sonar útgerðarmanns. Hitaveitu-
stjórinn Jóhannes Zoéga blandaðist
inn í umræðuna, en mál þetta varð
að kosningamáli, þar eð andstæð-
ingarnir töldu kaupin vera vinar-
greiða við téða ætt. Hitaveitustjór-
inn er nefnilega kvæntur systur
Sveins, og það þótti auðvitað tor-
tryggilegt...
Það skal strax tekið fram, áður en
lengra er haldið, að úr miklu upplýs-
ingasafni er að moða og möguleik-
inn á villum næsta mikill.
Vandað til
makavals
Thors-ættin er sennilega nafntog-
aðasta og valdamesta ætt þessarar
aldar. Hér er átt við afkomendur
Thors Jensens útgerðarmanns, sem
varð auðugasti maður landsins áður
en yfir lauk. Hann setti á fót útgerð-
arfyrirtækið Kveldúlf og var með-
stofnandi að fjölmörgum öðrum fyr-
irtækjum og má t.d. nefna Eimskipa-
félagið. Börn Thors urðu mörg og
áhrifamikil. Sonurinn Richard
Thors varð framkvæmdastjóri
Kveldúlfs og Sölusambands ís-
lenskra fiskframleiðenda og hann
sat meðal annars í stjórn Eimskipa-
félagsins. Sonurinn Kjartan Thors
varð meðal annars formaður Vinnu-
veitendasambands lslands. Sonur-
inn Ólafur Thors fór út í pólitíkina
og gerðist áhrifamesti stjórnmála-
maður landsins um árabil. Sonurinn
Haukur Thors varð einnig fram-
kvæmdastjóri Kveldúlfs og var
tengdasonur Hannesar ráöherra
Hafstein. Dóttirin Kristín Thors gift-
ist Guömundi Vilhjálmssyni, for-
stjóra Eimskipafélagsins og stjórn-
arformanni Flugfélags íslands. Dótt-
irin Margrét Þorbjörg Thors giftist
Hallgrími Fr. Hallgrímssyni, for-
stjóra Olíufélagsins Skeljungs. Son-
urinn Thor Thors varð alþingismað-
ur og síðar sendiherra.
Thors-ættin hefur greinilega lagt
mjög mikla áherslu á að vel tækist
til með hjónaböndin. í þessu sam-
bandi er athyglisvert hvernig þessi
ætt tengdist sterkum böndum ann-
arri áhrifamikilli ætt, Thorsteins-
son-ættinni, einkum þó fjölskyldu
Péturs Jens Thorsteinssonar, kaup-
manns og stórútgerðarmanns.
Pétur og Thor Jensen voru á stund-
um keppinautar og jafn oft samherj-
ar í viðskiptunum. Dóttursonur Pét-
urs, Pétur O. Johnson, kvæntist
Margréti Hallgrímsson, dótturdóttir
Thors. Örn Ó. Johnson, dóttursonur
Péturs, kvæntist Margréti Thors,
sonardóttur Thors. Elísabet Ólafs-
dóttir, dótturdóttir Péturs, giftist
Hilmari Thors, syni Thors, og Gyöa
Jónsdóttir, dótturdóttir Péturs, gift-
ist Lorentz Thors, syni Thors.
Nafntogaðir
tengdasynir
Þannig samtvinnuðust tvær um-
svifamiklar ættir og sér þess merki
enn í dag. Rétt makaval hélt greini-
lega áfram að vera Thors-ættinni
keppikefli. Til merkis um þetta er
eftirfarandi listi yfir nokkra tengda-
syni afkomenda Thors Jensens:
Sigurgeir Jónsson hæstaréttar-
dómari, Stefán Hilmarsson, banka-
stjóri Búnaðarbankans, Þorsteinn
Gíslason, fv. forstjóri Coldwater Sea-
food, Jóhann Hafstein, fyrrverandi
forsætisráðherra, Stefán Sturla
Stefánsson, fv. bankastjóri Útvegs-
bankans, Magnús Magnússon verk-
fræðiprófessor, Sverrir Norland, for-
stjóri og stjórnarformaður Ver;:lun-
arbankans, og Björgólfur Guö-
mundsson, fv. forstjóri Hafskips.
Þessu til viðbótar má nefria að
sonarsonur Thors Jensens, Richard
Thors læknir, er svili Björns Hall-
grímssonar, forstjóra H. Ben. og
bróður Geirs Hallgrímssonar og Ott-
ars Möllers, fv. forstjóra Eimskipa-
félagsins, og að sonur Thors, Thor
Thors, var tengdasonur Ingólfs
Gíslasonar læknis, en bróður Garö-
ars stórkaupmanns Gíslasonar.
Tengdasonur Garðars er síðan Hall-
dór H. Jónsson, stjórnarformaður
Eimskipafélagsins, Islenska álfé-
lagsins og stjórnarmaður í fjölda
annarra fyrirtækja.
Samtvinnunar Thorsara og Thor-
steinssona og svo Engeyjar-ættar-
innar gætir greinilega meðal þeirra
sem stýra nokkrum af stærstu fyrir-
tækjum landsins, en önnur ættar-
tengsl koma auðvitað til. Lítum á
nokkur dæmi.
Frá Sigurði til
Þorsteins
Siguröur Helgason, stjórnarfor-
maður Flugleiða, er sonur Helga
Hallgrímssonar. Systkinabörn eru
Helgi, Sveinn Valfells eldri, fv. for-
stjóri Steypustöðvarinnar, Baldvin
Dungal, forstjóri Pennans, Sigríöur
Hallgrímsdóttir, tengdamóðir Ein-
ars Arnasonar, sem á sæti í stjórn
Flugleiða, og Soffía Haraldsdóttir,
eiginkona Sveins M. Sveinssonar,
forstjóra Völundar. Synir Sveins Val-
fells eru Sveinn yngri Valfells, nú-
verandi forstjóri Steypustöðvarinn-
ar og stjórnarmaður í Iðnaðarbanka
íslands, og Ágúst Valfells, verkfræð-
ingur, stjórnarformaður Steypu-
stöðvarinnar og stjórnarmaður í
Hagtryggingu og Félagi íslenskra
iðnrekenda, með meiru.
Synir Sveins M. Sveinssonar eru
Sveinn, núverandi forstjóri Völund-
ar Sveinsson, Haraldur Sveinsson,
stjórnarformaður Völundar og
framkvæmdastjóri Árvakurs, út-
gáfufélags Morgunblaðsins, og Leif-
ur Sveinsson, sem einnig á sæti í
stjórn Árvakurs og Völundar. Þá má
geta þess að systir Soffíu Haralds-
dóttur áðurnefndrar er Elín Haralz,
eiginkona Erlings Ellingsens, fyrr-
verandi forstjóra Tryggingar hf.,
bróðir þeirra er Jónas Haralz,
bankastjóri Landsbankans og önnur
systir er Bergljót Haralz, en hún gift-
ist Bjarna Rafnar yfirlækni. Bjarni
er bróðir Jónasar G. Rafnar, sem nú
er stjórnarformaður Seðlabankans.
Jónas hefur um árabil verið mjög
áhrifamikill á fjármálasviðinu.
Hann er tengdafaðir Þorsteins Páls-
sonar, fjármálaráðherra og fyrrum
framkvæmdastjóra Vinnuveit-
endasambandsins.
Frá Halldóri til
Ragnhildar
Halldór H. Jónsson hefur verið
nefndur áður. Hann hefur verið kall-
aður Islandsmeistari í stjórnarsetu,
er stjórnarformaður Eimskipafé
lagsins og íslenska álfélagsins og
meðal mýmargra stjórna annarra,
sem hann hefur átt sæti í, eru: ís-
lensk kaupskip hf., Borgarvirki hf.,
Garðar Gíslason hf., Steypustöðin
hf., Islenskir aðalverktakar sf.,
Áburðarverksmiðja ríkisins, Olíufé-
lagið Skeljungur hf., Flugleiðir hf.
og Bændahöllin. Halldór er, sem
fyrr segir, tengdasonur Garðars
Gíslasonar stórkaupmanns, eins
umsvifamesta kaupsýslumanns
landsins um árabil. Sonur Garðars
er Bergur G. Gíslason, núverandi
framkvæmdastjóri G. Gíslason hf.,
en hann var lengi stjórnarformaður
Flugfélags íslands og í stjórn Flug-
leiða og situr í stjórn Árvakurs. Ann-
ar sonur Garðars, og um leið mágur
Halldórs, er Kristján G. Gíslason (K.
Gíslason og co.), sem lengi var
stjórnarformaður Verslunarráðs Is-
lands. Systir Garðars Gíslasonar var
Auöur Gísladóttir, en hún giftist séra
Árna Jónssyni alþingismanni. Dótt-
ursonur þeirra er Armann Kristins-
son sakadómari en sonarsynir Arni
Gunnarsson ráðuneytisstjóri og
Stefán Gunnarsson bankastjóri.
Mágur þeirra er Haraldur Ólafsson,
alþingismaður og stjórnarmaður
Seðlabankans. Dóttir Auðar og
Árna, Inga, var kona Vilhjálms Þ.
Gíslasonar útvarpsstjóra, en þeirra
sonur er Vilhjálmur Þór hæstarétt-
ardómari, eiginmaður Ragnhildar
Helgadóttur ráðherra.
H. Ben.
Thorsteinsson Thors
Johnson!
Stjórnarformaður Olíufélagsins
Skeljungs er áðurnefndur Björn
Hallgrímsson, sonur Hallgríms
Benediktssonar í H. Ben. og Áslaug-
ar Geirsdóttur Zoéga. Björn er nú-
verandi forstjóri H. Ben. og á eða
hefur átt sæti í stjórnum fjölmargra
fyrirtækja, en meðal þeirra eru Nói-
Síríus, Hreinn, Steypustöðin, Ræsir,
Byggingariðjan og Sjóvá. Hann hef-
ur auk þess átt sæti í stjórnun Versl-
unarráðs Islands og Félags íslenskra
stórkaupmanna. Björn er bróðir
l. eftir Friðrik Þór Guðmundsson
myndir Jim Smart
28 HELGARPÓSTURINN