Helgarpósturinn - 03.07.1986, Blaðsíða 31
FRÉTTAPÓSTUR
Allt í eitt hús
Kraumar undir í Hafskipsmálinu
Kröfur um afsagnir Alberts Guðmundssonar og Guðmund-
ar J. Guðmundssonar verða æ háværari. Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra hefur sagt að væri hann í spor-
um Alberts myndi hann víkja úr stjórninni, Páll Pétursson,
formaður þingflokks Framsóknarflokksins, hefur lýst þvi
yfir, að væri Albert ráðherra Pramsóknar myndi Páll kalla
saman þingflokksfund og gera tillögu um að Albert viki úr
sæti. Guðmundur Einarsson hefur sakað forsætisráðherra
um tvískinnungshátt og itrekað kröfu sína um að Alberti
verði vikið úr ráðherraembætti. Albert er með öllu hættur
að ræða við fjölmiðla. Þegar Albert gaf Rannsóknarlögreglu
rikisins skýrslu um sinn þátt í Hafskipsmálinu í síðustu
viku var hann mættur sem grunaður maður en ekki sem
vitni. Aðalfundur Alþýðubandalagsins á Akureyri hefur
samþykkt og sent Guðmundi J. Guðmundssyni skeyti með
kröfu um að hann segi af sér öllum trúnaðarstörfum fyrir
flokkinn þegar i stað. Útvegsbankanum hefur verið gert að
afhenda RLR öll skjöl er varða Hafskip. Kjartan Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, hefur lýst því
yfir að haustið 1983 hafi flokkurinn fengið fjárstyrk frá
Hafskip upp á tæplega 100 þúsund krónur, en að ekki hafi
verið vitað annað en að um eðlilegar greiðslur hafi verið að
ræða. Fram hefur komið að greiðslur þessar hafi komið af
s.k. leynireikningum Hafskipsmanna.
Hallvarður ríkissaksóknari og kona i Hæstarétt
Guðrún Erlendsdóttir hefur verið skipuð í embætti dómara
við Hæstarétt íslands, fyrst kvenna. Aðrir umsækjendur
voru Benedikt Blöndal hæstaréttarlögmaður, Gunnlaugur
Briem yfirsakadómari, Hrafn Bragason borgardómari og
Jón A. Ólafsson sakadómari. Þá hefur Hallvarður Einvarðs-
son rannsóknarlögreglustjóri verið skipaður ríkissakókn-
ari og tók 1. júlí við af Þórði Björnssyni. Aðrir umsækjendur
voru Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari og Jónatan
Sveinsson saksóknari. í embætti rannsóknarlögreglustjóra
hefur um sinn veirð settur Þórir Oddsson vararannsóknar-
lögreglustjóri, en embættið hefur verið auglýst laust til um-
sóknar og rennur frestur út um næstu mánaðamót.
Hraðfrystistöðinni lokað
Hraðfrystistöðin í Reykjavík hefur sagt upp 80 starfsmönn-
um sínum vegna fyrirsjáanlegrar rekstrarstöðvunar eftir 3
mánuði. Ágúst Einarsson, framkvæmdastjóri stöðvarinn-
ar, segir f járhagsstöðuna mjög erfiða og áframhaldandi tap-
rekstur útilokaðan. Viðkomandi verkalýðsfélög hafa lýst
þungri ábyrgð á hendur ríkisstjórninni. Þótt frystingu
stöðvarinnar verði hætt mun útgerð skipa hennar halda
áfram.
Sigrar í skattsvikastríðinu
Á fyrstu fimm mánuðum þessa árs hefur starfsemi embætt-
is skattrannsóknastjóra leitt til hækkana opinberra gjalda
að upphæð rúmlega 83 milljóna króna. Sambærileg tala fyrir
allt árið í fyrra nam tæpum 23 milljónum króna. Þrátt fyrir
verulega aukinn rekstrarkostnað í kjölfar aukinna umsvifa
hefur hlutfall hans af heildarárangri lækkað á tveimur ár-
um úr 27% í 9%. Það má því með sanni segja að i þessu til-
felli hafi hin auknu umsvif reynst góð fjárfesting!
Ríkið út úr Álafossi og Norðurstjörnunni
Stjórn Framkvæmdasjóðs íslands hefur ákveðið að selja
eignarhluta sina (rikisins) í fyrirtækjunum Álafossi og
Norðurstjörnunni. Ríkisfulltrúinn og stjórnarformaður-
inn Friðjón Þórðarson hefur lýst því yfir að ríkið sé ekki
rétti aðilinn til að standa i slikum rekstri. Sjóðurinn á 98%
af hlutafé Álafoss og 60—70% af hlutafé Norðurstjörnunn-
ar.
Fréttapunktar
• Það sem af er þessu ári hefur bifreiðaeign landsmanna
aukist frá í fyrra um 3.4% eða úr 115.072 bifreiðum í
H9.063. Nýskráningar bifreiða urðu á fyrra helmingi þessa
árs 7.236, en um 8.000 allt árið í fyrra.
• H% samdráttur varð i sölu kindakjöts hér á landi á fyrra
helmingi þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Birgðir eru
nú um fjórðungi meiri en þá.
• í borgarstjórn hafa Alþýðubandalagið, Kvennalistinn og
Alþýðuflokkurinn lagt fram tillögu þess efnis að lágmarks-
laun borgarstarfsmanna verði 27 þúsund krónur á mánuði
frá 1. júní og 30 þúsund krónur frá 1. september.
• 351 kandídat var brautskráður frá Háskóla íslands sl.
laugardag. Flestir voru brautskráðir úr læknadeild, 60, og
55 með B.S. próf í hjúkrunarfræði.
• Nýja bíó er ekki lengur til á korti borgarbúa, því nú hefur
Árni Samúelsson í Bíóhöllinni tekið við rekstrinum og gert
á húsinu gagngerar breytingar. Hann hefur endurnefnt
kvikmyndahúsið Bióhúsið.
• Á þriðjudag voru liðin eitt hundrað ár frá stofnun Lands-
banka íslands og í tilefni þess var meðal annars opnuð sýn-
ing í nýja Seðlabankahúsinu, sem á að sýna sögu „banka
allra landsmanna" og svo voru veislur haldnar í afgreiðslu-
stöðum bankans um land allt og talið að þær hafi sótt tugir
þúsunda manna.
#0g hann Steingrímur ætlar að skreppa dulítið rhaust.
Hann hefur þegið boð ríkisstjórnar Kínverska alþýðulýð-
veldisins um að koma í opinbera heimsókn til Kína. Er ráð-
gert að Steingrímur fari austureftir í október.
— eða næstum því...
í einu föstu tilboði!
Eldhúsinnréttingar_______
Innihurðir — Útihurðir
Loftplötur — Klæðningar
Handrið — Stigar
Bílskúrshurðir
Baðherbergi
INNRÉTTINGA
BCÍÐIN
ÁRMÚLA 17A -
® 84585 & 84461
SEKVERSLUN
MTm SPENNANDI
IVS r #1 NÁTT- OG UNDIR-
llLLiAJ FATNAÐ
LADY OF PARIS
laugavegi 84 (2. hœö) - Sími 1 28 58
HELGARPÖSTURINN 31