Helgarpósturinn - 05.02.1987, Blaðsíða 44

Helgarpósturinn - 05.02.1987, Blaðsíða 44
baöherbergis^_ /g flísarogJ^Z- ’Z^hTbíöndánar- fœrdþ^Z- réttingar. Einn Záyíííéroy°g tœki frauron^---^ Útvegam Geram érðuapPsetta ídhústækja171 á okkur línuna í AIVEG EIMSTÖK o g enn fækkar hja sjonvarp- inu. Nú hefur Elín Þóra Friðfinns- dóttir sagt starfi sínu sem upptöku- stjóri lausu, en Elín Þóra hefur starf- að um nokkurra ára bil hjá sjónvarp- inu. Er nú heldur betur farið að þynnast í röðum hinna vönu manna hjá stofnuninni. Eftir því, sem HP veit best hyggst Elín Þóra starfa sjálfstætt. . . ■ ræðslustjóramálið kann að taka nýja stefnu í dag. Á lokuðum fundi á Ákureyri sl. föstudag gaf fræðslu- ráðið Sverri Hermannssyni, menntamálaráðherra, frest til að endurskoða ákvarðanir sínar. Sá frestur rann út á hádegi í gær. Hafði þá borist skeyti til formanns fræðsluráðs, Þráins Þórissonar, frá menntamálaráðherra um að bréf væri á leiðinni norður. Viðbrögð norðanmanna við skeyti Sverris voru þau að strax var sent skeyti til Ingvars Gíslasonar, fyrrum menntamálaráðherra, og hann beð- inn að leggja fram frumvarp um skipan rannsóknarnefndar í fræðslustjóramálinu. Ingvar Gísla- son, sem er gjörkunnugur vanda norðanmanna mun að öllum líkind- um leggja frumvarpið fram í dag, fimmtudag. Er talið líklegt, að Steingrímur Sigfússon, Kristín Halldórsdóttir og Jóhanna Sig- urðardóttir muni verða meðflutn- ingsmenn Ingvars á þessu frum- varpi. . . "kiptar skoðanir munu vera á því innan þingflokks Framsóknar- flokks að leggja fram frumvarp gegn menntamálaráðherra, eins og það sem Ingvar Gíslason hefur til- búið. Og á þingflökksfundi Fram- sóknarflokks sl. mánudag mun hafa komið til snarpra orðaskipta á milli Ingvars og forsætisráðherra, Stein- gríms Hermannssonar, vegna fyrirætlana Ingvars. I þessu sam- bandi má benda á að líklegt þykir að Stefán Valgeirsson muni styðja Ingvar í máli þessu, ekki er talið ólíklegt að Ólafur Þ. Þórðarson styðji frumvarpið, og það sem e.t.v. skiptir mestu máli í þingflokki Fram- sóknarflokksins, Guðmundur Bjarnason lýsti stuðningi við rann- sóknarnefnd á fundi í Mývatnssveit sl. sunnudag. Það gæti því farið að hitna undir Sverri. . . fyrri viku fór fram í borgardómi Reykjavíkur málflutningur í máli Hannesar Kr. Davíðssonar arki- tekts gegn Reykjavíkurborg vegna áður fyrirhugaðra breytinga á lofti Kjarvalsstaða. Deilur hafa staðið um loft þetta og hefur t.d. Einar Hákonarson myndlistarmaður sagt, að lýsing í lofti Kjarvalsstaða sé til lýta á myndlistarsýningum. Deilan blossaði upp síðast, þegar Jacqueline Picasso kom hingað á’ Listahátíð i fyrra. Alls tók málflutn- ingur heila þrjá daga og var réttar- haldið vel sótt af ýmsum áhuga- mönnum, s.s. ljósameisturum, arki- tektum, verkfræðingum o.s.frv. Lög- maður Hannesar er Ragnar Aðal- steinsson hrl. en Magnús Óskars- son borgarlögmaður ver borgina. Við málflutninginn var m.a. sýnt myndband af ekkju Picassos og Vig- dísi Finnbogadóttur forseta, þar sem þær gengu um sali Kjarvals- staða, en í þessum þætti, sem sýnd- ur var í sjónvarpinu fór Jacqueline lofsamlegum orðum um loftið fræga. Mikill hiti er í mönnum- vegna þessa máls og skoðanir skipt- ar. Þrír menn skipa dóminn, en dómforseti er Steingrímur Gautur Kristjánsson. . . LA DRAUN}'NN W4S fTOfÆTT 3SAMBANDS BURÐARGJALD GREITT ÍSLAND Leyfi nr. 77 44 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.