Helgarpósturinn - 05.02.1987, Blaðsíða 23
Þú getur komið þeim á þing: Svanfríður Jónasdóttir Dalvík. Margrét Frímannsdóttir Stokkseyri, Ólöf Hildur Jónsdóttir Grundarfirði, Unnur Sólrún
Bragadóttir Fáskrúðsfirði, Jóhanna Axelsdóttir Hafnarfirði, Bjargey Einarsdóttir Keflavík, Álfheiður Ingadóttir Reykjavtk, Olga Guðrún Árnadóttir
Reykjavík, Ásdts Skúladóttir Kópavogi, Guðrún Helgadóttir Reykjavík, Unnur Kristjánsdóttir Húnavöllum.
ALÞÝÐUBANDALÁXGIÐ
KONURI
BARÁTTUSÆTUM
Alþýðubandalagið er síður en svo á móti körlum, en það treystir jafnframt konum
til að berjast fyrir málefnum sínum og fólksins í landinu í kosningabaráttu og á Al-
þingi. Konur eru nú í efstu sætum á G-listum í öllum kjördæmum. 1 Reykjavík er
Guðrún Helgadóttir í öðru sæti, Álfheiður Ingadóttir í fjórða sæti og Olga Guðrún
Árnadóttir í fimmta sæti. Á Reykjanesi er Ásdís Skúladóttir í þriðja sæti og Bjargey
Einarsdóttir í fjórða sæti. Á Vesturlandi er Óiöf Hildur Jónsdóttir í þriðja sæti. Á
Vestfjörðum er Þóra Þórðardóttir í þriðja sæti. Á Norðurlandi vestra er Unnur
Kristjánsdóttir í þriðja sæti. Á Norðurlandi eystra er Svanfríður Jónasdóttir í öðru
sæti og Sigríður Stefánsdóttir í þriðja sæti. Á Austurlandi er Unnur Sólrún Braga-
dóttir í öðru sæti. Á Suðurlandi er Margrét Frímannsdóttir í fyrsta sæti G-listans.
*
I kosningum
er barist um fólk og um flokka, en
það er líka barist um málefni, um til-
lögur, um lausnir, um stefnu. Bráðum
fara framboðslistarnir að flagga andlit-
um, en það er líka gott að leggja við
eyrun. Hvað hefur gerst á þessu kjör-
tímabili? Hvað vilja menn gera á
næsta kjörtímabili? Hvað segja flokk-
arnir til dæmis um nidurskurd í
menntamálum? Um byggðaflóttann?
Um „ frelsi“ peninganna og frjálst
okur? Um kjaraskerðingarnar? Um
Hafskip og Útvegsbankann? Um
niðurníðsluna í landbúnaðí? Um kjör
öryrkja og aldraðra? Um stóraukna
hernaðarútþenslu? Um lokað og
ábyrgðarlaust stjórnkerfi? Um órétt-
láta skatta?
í kosningabaráttunni ætlar Alþýðu-
bandalagið að tala um stjórnmál, og
það ætlar sér að knýja hina flokkana
til að taka þátt í þeim umræðum.
Landsstjórnin kemur öllum við.
Kynntu þér afstöðu Alþýðubandalags-
ins, taktu þátt í kosningabaráttunni.
Er þú ert yfir
með þessa ríkisstjórn — þá skaltu
kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða Fram-
sóknarflokkinri. Ef þú vilt fá aðra
alveg eins skaltu kjósa Alþýðuflokk-
inn.
Ef þú vilt öðruvísi ríkisstjórn,
stjórn sem af alefli hellir sér út í ný-
þig ánœgður
sköpun í atvinnulífi, stjórn sem
berst fyrir efnahagslegu sjálfstæði
og sýnir íslenskt frumkvæði í heims-
málum, stjórn sem mótast af hug-
sjónum um félagslegan jöfnuð og
samvinnu, ef þú vilt jafnaðarstjórn
— þá vill Alþýðubandalagið vinna
með þér.
listar
eru komnir fram í öllum kjördæmum, og
Alþýðubandalagið er fyrst flokka til að
ganga að fullu frá framboðum sínum. Þessa
dagana er verið að opna kosningaskrifstofur
um allt land, kosningabarátta Alþýðubanda-
iagsins er hafin. Fáið frambjóðendur Alþýðu-
bandalagsins á fund eða í spjall, og hringið í
höfuðstöðvarnar á Hverfisgötu 105, Reykja-
vík, sími:
91-17500
HELGARPÓSTURIIMN 23