Helgarpósturinn - 05.02.1987, Blaðsíða 17

Helgarpósturinn - 05.02.1987, Blaðsíða 17
„Algert kaos. Hann hræddist her- inn og þess vegna var hann lagður niður og hans eigin menn settir í staðinn. Munurinn var bara sá að þeir, verðir byltingarinnar eins og þeir voru kallaðir, voru ekki her- menn. Þetta voru bara menn eins og ég og þú, jafn hræddir og ég og þú, en tilbúnir að heyja heilagt strið og deyja fyrir guð. Þeir gengu inn af götunni, fengu byssu og voru settir á vakt. Síðan skutu þeir á allt sem hreyfðist. Sagan segir að þeir hafi líka heimsótt fólk og skotið það í dyrunum heima hjá því. Undir lok keisaratímans voru hermennirnir farnir á taugum og voru orðnir byssuglaðir en ekkert í líkingu við verði byltingarinnar." SKUTU ÞÁ FYRST f FÆTURNA. . . — Hvernig var að vera á götunni? „Það var bannað að fara út eftir sjö á kvöldin. Enginn gerði það nema til að láta drepa sig. Ég sótti yngri systur mína í skólann, að öðru leyti fór ég ekkert út. Menn gengu með alvæpni, skriðdrekar á götun- um, þetta var ekkert annað en borg- arastyrjöld." — Maöur heyrði að Khomeini hafi látið drepa ógnarlegan fjölda al fólki? „Já, það voru margar sögur í gangi, einhverstaðar heyrði ég 500 þúsund en ég trúi því ekki, kannski 50—100 þúsund. Þeir tóku alla þá sem höfðu verið háttsettir hjá keis- aranum af lífi, skutu þá fyrst í fæt- urna og svo rólega uppúr. Undirtyll- urnar voru settar í fangelsi og að- standendur gátu síðan fengið þá lausa með því að borga skattinn sinn til hreyfingarinnar. Að öllu jöfnu borgar fólk '/3 af tekjum sínum til trúmála á hverju ári. Hinsvegar sá ég aldrei neinar aftökur og auð- vitað var ekkert um þetta í blöðun- um, valdhafar hvers tíma hafa alltaf haft þau í vasanum." — Hvernig var þetta með föður þinn? Nú var hann háttsettur í hern- um, slapp hann við Khomeini og hans menn? „Hann var nýhættur í hernum vegna aldurs þegar þetta gerðist. Annars væri hann örugglega dauð- ur. Það er með hann eins og með margt annað menntað fólk í íran, það kýs frekar að þegja en deyja. Hinir ómenntuðu halda valdahlut- föllunum óbreyttum. Þeir trúa á Khomeini og jafnvel þó hann sendi 10 ára drengi í stríðið við Iraka með lykil um hálsinn og loforð um að þeir komist til himna þegar þeir deyja. Khomeini lifir í fornöldinni, hann svífst einskis til að ná fram markmiðum sínum. Hann veit ekk- ert um samtímann og undir hans stjórn staðnar allt, allar framfarir sem þó urðu undir keisaranum eru horfnar. Fáfræðin ræður aftur ríkj- um.“ HEILAGT STRÍÐ — Pannig að stjórn keisarans hef- SÍMI 74477 , HEIMSENDINGARÞJONUSTAN Opið virka daga kl. 10 f.h. til 02 eftir miðnætti, helgar kl. 10 f.h. til 05 eftir miðnætti Ágætl viðsklptavlnur Helmsendlngarþjónustan hefur nú haflð starfseml sina. Okkar markmið er að þjóna yður með nýbreytni. Yður gefst nú kostur á að versla með vörur án þess að fara ut úr húsi. Hugmyndln er að þér getið notið þjónustu okkar við margvfsleg tækifæri, s.s.: • Gott í sjónvarpinu, nennir ekki út? Hefur lokið innkaupum en svo vantar? • Starfsfólk fyrirtækja i kaffl og matartímum. • Vaktmenn dags og nætur. • Gleöskapur en vantar gos og ýmislegt (tilvalið)! Vlð höfum lausnina. Þér hringlð i síma 74477 og við sendum vöruna eins fljótt og unnt er til yðar. í sambandi viö sendingarkostnað höfum við talið bestu aöferðina við að halda honum niðri vera þá að hafa lágmarksvörukaup kr. 250. Meö þvi getum við látlö bílinn kosta aðeins kr. 70,-. Heimsendingarþjónustan, sími 74477. ur að einhverju leyti verið betri en núverandi valdhafar? „Já það var allt frjálsara, meira í átt að Evrópu. Khomeini stoppaði það allt. Hjá keisaranum fékk mað- ur þó að ráða hverju maður klædd- ist og hvernig maður bar fötin. Keis- arinn reyndi líka að mennta hina ómenntuðu en það tekur langan tíma og er þolinmæðisvinna. Khomeini er bara í stríði og skipar öllum að deyja fyrir guð. Hann ætlar alla leið til Jerúsalem og leggja ísra- el undir sig —jDetta er heilagt stríð." — En íran-lrak stríðið. Um hvað snýst það? „Um þessar þrjár eyjar á Persa- flóa. Þegar Khomeini var í útlegð var hann lengst af í írak, hann fór ekki til Frakklands fyrr en síðar. Þegar hann var í írak sagði hann írökum að þeir mættu eiga eyjarnar þegar trúarleiðtogarnir kæmust aft- ur til valda. Þetta er dæmi um fá- fræði hans, þegar hann svo kom til írans var honum sagt að þeir sem ættu þessar eyjar gætu ráðið Persa- flóa. Þá neitaði hann að láta þær af hendi til íraka. Þannig byrjaði þetta." ÍRAN ER MÉR LOKAÐ LAND — Hvernig hafa samskipti þín ver- ið við fjölskyldu þtna eftir að þú fórst frá íran? „Mjög lítil, ég veit nánast ekkert um hvað er að gerast í landinu núna. Ég má ekki spyrja um það hvorki í bréfum né í símanum. Símtölin eru hleruð og pósturinn er opnaður. Foreldrar mínir reyna ekki einusinni að segja mér hvað er að gerast því þeirra bréf eru líka opnuð og lesin. Þetta er mér algerlega lokað land. Móðir mín hefur hug á að koma og heimsækja mig en faðir minn má ekki fara úr landi, ef hann fær að fara þá má mamma ekki fara með honum." — Hvað heldur þú að muni gerast ef þú ferð aftur til írans? „Ég veit það ekki, ég hugsa að tvennt komi til greina, annað hvort verð ég skotinn eða sendur í herinn sem er jafnslæmt. Það myndu örugglega ekki líða margir dagar áður en ég dræpist þar." — íranskir flóttamenn eru hrœdd- ir um að þeir verði skotnir ef þeir verða sendir til baka. „Maður veit ekkert með vissu, fjölskylda mín segir mér að ég muni ekki verða það en þau ráða engu svo áhættan við að fara þangað aft- ur er stór. Það versta er að maður getur aldrei verið viss um hvað muni gerast eða ekki gerast." — Ottast þú um líf þitt núna? „Já og nei. íranskir flóttamenn hafa verið myrtir erlendis. Ég óttast meira afdrif fjölskyldu minnar. Ef ég segi of mikið þá eru allt eins líkur á að henni verði gert mein. Þess- vegna segi ég þér ekki allt sem mig langar að segja. Það er allt í lagi að segja frá í fámennum hópi því sem manni finnst, en ekki í blaði. Þú veist aldrei hver les það." Bók um mann sem þorir að skora á hið óþekkta. Yfirnátt- úrulegir hlutir gerast. Óvenjuleg og stórbrotin lífsreynsla. Hann ferðaðist inn og út úr kommúnistaríkjum, framhjá landamæra- vörðum og smyglar Biblíum. Chris Panos er raunverulegur njósnari, njósnari Guðs. VerA: kr. 960,- Bókapöntun sendist til: Vegurinn — kristið samféiag. Pósthólf 1473 - 121 Reykjavík. Sími 91-73742. Sendu okkur miðann eða hringdu og við sendum bókina í póstkröfu, eða nýttu þér greiðslukortaþjónustuna. Ég óska eftir að fá sent-eintak. Póstnr. Klippid á vírinn HELGARPÓSTURINN 17

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.