Helgarpósturinn - 09.07.1987, Page 35
FRÉTTAPÓSTUR
Ný ríkisstjórn mynduð
Eftir tveggja mánaða þref og stífar samningaviðræður
tókst loks að berja saman ríkisstjórn í landinu. Hún verður
undir forsæti Þorsteins Pálssonar, formanns Sjálfstæðis-
flokksins en að auki eiga að henni aðild Framsóknar- og Al-
þýðuflokkur. Lengi vel var óvíst hverjir myndu skiþa ráð-
herraemhætti Sjálfstæðisflokksins og voru uþpi deildar
meiningar um það innan flokksins, eftir því sem fregnir
herma. Niðurstaðan var síðan sú að auk formannsins verða
ráðherrar þeir Friðrik Sophusson , varaformaður, sem verð-
ur iðnaðarráðherra, Birgir ísleifur Gunnarsson sem verður
menntamálaráðherra og Matthías Á. Mathiesen sem verður
samgönguráðherra. Þar með tókst Þorsteini ekki að fylgja
því eftir að hreinsa alla gömlu ráðherrana úr valdastólum,
því Matthías situr þar enn þrátt fyrir að flestir hafi talið að
þeir Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokksins og Hall-
dór Blöndal, NE, væru líklegri til að setjast í ráðherrastóla.
Það vekur einnig athygli að Birgir ísleifur, lengi helsti tals-
maður flokksins í iðnaðar- og stóriðjumálum skuli veljast í
menntamálin og Friðrik sem verið hefur atkvæðamikill í
menntamálum, skuli taka að sér iðnaðarmálin. Aðrir ráð-
herrar rikisstjórnarinnar eru þau Jón Baldvin, Jón Sig-
urðsson og Jóhanna Sigurðardóttir frá Alþýðuflokknum og
Steingrímur Hermannsson, Halldór Asgrímsson, Jón
Helgason og Guðmundur Bjarnason frá Framsóknar-
flokknum.
Allt eru þetta valinkunnir menn og konur, mikið sóma-
fólk, en sumum leikur forvitni á að vita hvað það er að gera
í pólitík og þá ekki síður af hverju það hefur náð því að verða
ráðherrar. Það er einkum stjórnarandstaðan sem sett hefur
fram slíkar kenningar og reyndar má segja að allir þeir sem
sagt hafa sitt álit á þessari nýju stjórn hafi verið neikvæðir
í hennar garð og ekki talið að lífslíkur hennar séu miklar.
Þegar eru farin að heyrast mótmæli frá hinum ýmsu stofn-
unum og samtökum i þjóðfélaginu, með ýmislegt sem
stjórnin hyggst taka sér fyrir hendur. Þannig hefur komið
frá bæði ASÍ og BSRB andstaða við að skattleggja matvæli
frekar en orðið er og ýmsir fleiri hafa látið í sér heyra vegna
áætlana hinnar nýju stjórnar.
Kynferðisafbrot
Starfsmaður við framköllun komst að því fyrir skömmu'
að viðskiptavinir hans höfðu ekki hreint mjöl í pokahorn-
inu. Hann var að framkalla myndir af tveimur stúlkum á
barnsaldri og þótti myndirnar ganga langt út yfir allt vel-
sæmi. Svo langt, að hann hafði samband við lögreglu vegna
málsins og gekk hún í að rannsaka hvað þarna var á ferð-
inni. í ljós kom að eigendur filmunnar fyrrnefndu höfðu
sumarlangt rekið sumarbúðir fyrir börn, en hér er um að
ræða karl og konu. í þessum sumarbúðum höfðu þau mis-
notað stúlkurnar sem myndirnar voru af og eru af þeim at-
burðum ófagrar lýsingar sem ekki eru prenthæfar. Eftir að
þetta komst í hámæli hafa stúlkurnar tvær getað létt á hjört-
um sínum um málið og í framhaldi af frásögnum þeirra hef-
ur maðurinn verið hnepptur í gæsluvarðhald og gert að sæta
geðheilbrigðisrannsókn. Stúlkurnar eru níu og tólf ára
gamlar.
Frjálst fiskverð
Upp hafa risið nokkrar deilur og umræður í kjölfar þess
að fiskverð var gefið frjálst um síðustu áramót. Sjómenn á
Vestfjörðum hafa verið afar óánægðir með sinn hlut, en þar
hækkuðu útgerðarmenn fiskverðið um 10% einhliða og
gátu sjómenn ekki við það unað. Töldu þeir að annarstaðar
á landinu hefði verðið til sjómanna hækkað mun meira, m.a.
í Reykjavík og á Akureyri og Sauðárkróki. Hafa menn í
framhaldi af þessu sett spurningarmerki við þá ákvörðun
að gefa fiskverðið frjálst og ekki talið að það skilaði þvi sem
það átti í upphafi að gera. Sjómenn á Rauðanúpi ÞH 160, sem
gerður er út frá Raufarhöfn, hafa t.d. sagt upp störfum
vegna óánægju með fiskverð og frá Vestmannaeyjum berast
þær fregnir að þar hafi fiskverðið ekki hækkað nema um
13—14% frá því það var gefið frjálst.
Fréttapunktar
• Dönsk stúlka, sem verið hefur á upptökuheimilinu í
Kópavogi, strauk þaðan fyrir nokkru og telja menn að hún
hafi reynt að flýja land, enda mun vilji hennar hafa staðið
til þess að komast af landi brott fyrr en síðar. í fyrstu var tal-
ið aö hún hefði gerst laumufarþegi með þýsku vöruflutn-
ingaskipi en seinna komust menn að því að svo var ekki. Þá
var talið að hún hefði tekið sér far með Flugleiðum, undir
fölsku nafni og ætlað sér til Noregs þar sem hún á ættingja.
Síðast þegar fréttist hafði stúlkan ekki komið í leitirnar.
• Eldeyjarsvæðið, eitt gjöfulasta rækjusvæði landans um
áraraðir, gefur ekki það sem það áður gaf. Veiði þar hefur
svo til engin verið, þrátt fyrir annars góðar gæftir. Sjómenn
vilja kenna um ofveiði en fiskifræðingar eru þess ekki full-
vissir að sú sé skýringin á því hversu dræmt hefur aflast.
• íslenska A-landsliðið í handknattleik náði stórgóðum
árangri á gifurlega sterku alþjóðlegu móti sem haldið var í
Júgóslavíu. Á mótinu voru margar af sterkustu þjóðum
heims, en íslenska liðið náði þar þriðja sæti, sigraði m.a.
heims- og ólympíumeistara Jugóslaviu og hina firnsterku
A-Þjóðverja. Einar Vilhjálmsson setti nú nýlega íslandsmet
í spjótkasti, bætti um leið eigið met þegar hann kastaði
spjótinu 82,10 metra á frjálsíþróttamóti í Laugardal. Einar
bætti metið um tæpa tvo metra. Erlingur Jóhannsson setti
met í 800 metra hlaupi á Bislet-mótinu í Osló, hann bætti
nokkurra ára gamalt met Jóns Diðrikssonar um 4/10 úr
sek. Róbert Harðarson, skákmaður, sigraði í sínum flokki á
World Open mótinu, sem haldið var í Filadelfíu i Bandaríkj-
unum. Róbert fékk í aðra hönd um 170.000 krónur fyrir sig-
urinn. Eftir að Valur og KR gerðu jafntefli í toppleik fyrstu
deildar heldur Valur enn forystunni í mótinu.
• Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs varð veltuaukning í bíla-
sölu yfir 90%.
• Pyrirhugað er að fleygja alls 177 tonnum af kindakjöti á
haugana og er talið að þetta kosti ríkið um 36 milljónir
króna.
Tökum hunda ígœslu
til lengri eða
skemmri dvalar
Hundagæsluheimili
Hundavinafélags íslands og
Hundaræktarfélags íslands
Arnarstööum, Hraungerðishreppi
801 Selfoss - Símar: 99-1031 og 99-1030
Sækjum og sendum
Greiöslukorta
Langholtsvegi 109 þjónusta
(í Fóstbræöraheimilinu) Sími 688177
KARAKTER
SPORT
SPORTFATNAÐUR -SUMARFATNAÐUR
KARAKTER SPŒtT -VESTURGATA 4 - SÍMI 19260
WELGARPÓSTUfilNN 35