Helgarpósturinn - 09.07.1987, Síða 36

Helgarpósturinn - 09.07.1987, Síða 36
c C^Pá hluti stjórnarmyndunarvið- ræðnanna sem er hvaö erfiðastur innan flokkanna snýst um að koma þeim þingmönnum í virðuleg emb- ætti, sem ekki hljóta ráðherratign, en telja sig fullfæra um það sjálfir að gegna þeim embættum. Alþýðu- flokkur er talinn munu leysa málin svona: Sighvatur Björgvinsson er fyrrum fjármálaráðherra Alþýðu- flokks og fyrrverandi formaður þingflokks. Talið er að hann hafi í hinum óopinberu stjórnarmyndun- arviðræðum fengið formannsemb- ættið í fjárveitinganefnd. Eiður Guðnason verður að öllum líkind- um formaður þingflokks Alþýðu- flokksins áfram. Víst þykir að Karl Steinar Guðnason verði einn af forsetum þingsins, en lítið hefur frést af því hvaða embætti Kjartan Jóhannsson, fyrrverandi formað- ur Alþýðuflokksins, hreppir. Ólík- legt er að það verði innan veggja Alþingis og beinast því augu manna að lausum bankastjórastólum. Heimildir HP í stjórnarheiminum útiloka ekki að Kjartan muni hverfa af þingi á hausti komandi. Það gæti þýtt að hann settist í bankastjórastól einhvers ríkisbankans, t.d. Búnaðar- banka. . . að er talið næstum fullvíst að Ólafur Ragnar Grímsson bjóði sig fram til formanns Alþýðubandalags- ins á landsfundi flokksins í haust — hvort sem það verður á móti Svavari Gestssyni eður ei. Eðli- lega eru menn farnir áð velta því fyrir sér hvort og hvaða stuðning Olafur muni fá hjá landsfundarfull- trúum. Það er talið næsta víst að nær enginn þingmaður flokksins styðji Ólaf og verður þá staða hans varla mjög glæsileg úti á lands- byggðinni; Skúli Alexandersson muni beita sér gegn honum á Vest- urlandi, Ragnar Arnalds á Norð- urlandi vestra, Steingrímur Sig- fússon á Norðurlandi eystra, Hjör- leifur Guttormsson á Austurlandi, Margrét Frímannsdóttir á Suður- landi. Efsti maður á lista allaballa á Vestfjörðum, Kristinn Gunnars- son, er enginn Ólafsmaður heldur. Því bendir flest til þess að Ólafur þurfi að reiða sig á stopulan stuðn- ing af landsbyggðinni og stuðning „lýðræðiskynslóðarinnar" og Guðrúnar Helgadóttur i Reykja- vík. Svo er það spurning hversu mikils fylgis Ólafur nýtur í sínu eigin kjördæmi, Reykjanesi, en þar situr sem fastast Geir Gunnarsson álit- inn traustur liðsmaður „flokkseig- endafélagsins"... Góða helgi! Þú átt þaö skiliö H Landslíðíð í kartöflurækt leíkur undír merki Þykkvabaefar! 36 HELGARPÓSTURINN Þykkvabæjarkartöflur - eíns og þú vílt hafa þær! Pökkun og dreífing: rfPyWWI Þykkvabæjarkartöflur hf., Gílsbúð 5, Garðabæ

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.