Alþýðublaðið - 04.03.1938, Page 1
Það kostar fé
að auglýsa, |>ó er það
beinn gróðavegur,pvi að
Það kemur aftur
i auknum viðsklftum.
XIX. ARGANGUR
FÖSTUDAGUB 4. MARZ 1938.
54. TÖLUBLAÐ
Rfi'STJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
OTGEFANDI: ALÞYÐUFLOKKURINN
Það kostar meir
að auglýsa ekki, pví að
pað er
að borga fyrir aðra
sem auglýsa og draga
að sér viðskiftin.
Bæjarstjðrnln ræðir um
framkvæmdlr hafnarinnar.
---- ■ ---
Byggingu Ægisgarðs er að verða lokið
og ef ekki verður ráðist í nýjar nauð-
synlegar framkvæmdir missir fjöldi
verkamanna atvinnu.
A LLMIKLAR umræður
urðu á bæjarstjórnar-
fundi í gær um höfnina og
framkvæmdir hennar.
Hóf Jón A. Pétursson um-
ræður um málið og flutti eftir-
farandi tillögu:
,Þar sem það er upplýst, að
ráðgerðar framkvæmdir við
höfnina á þessu ári, svo sem
uppfylling og bryggjubygging,
geta því að eins hafist, að tekið
verði lán til þeirra fram-
kvæmda, og enn fremur að
fækka verður verkamönnum í
þjónustu hafnarinnar ef þær
framkvæmdir ekki eru hafnar,
þá samþykkir bæjarstjórn:
1. Að fella niður skilyrði þau,
sem sett voru við afgreiðslu
fjárliagsáætlunar Reykjavík-
urhafnar viðvíkjandi lán-
töku, að því leyti, sem til
uppfyllingar og hryggju-
gerðar tekur.
2. Að fela hafnarstjórn með til-
liti til atvinnuleysisins að
flýta framkvæmd þessara
mála svo sem auðið er, þann-
ig að vinna við þær geti haf-
ist hið fyrsta.“
J. A. P. sýndi fram á það, að
þeim framkvæmdum, sem aðal-
lega hafa verið unnar við höfn-
ina undanfarið, bygging Ægis-
gárðs o. fl., væri um það bil lok-
ið. Þar með væri óhjákvæmi-
legt að segja upp fjölda verka-
tnanna, og þó væri mikið af
framkvæmdum, sem biði.
Hins vegar hefði það ákvæði
fylgt fjárhagsáætlun hafnar-
ihnár frá bæjarstjórn, að höfnin
naætti ekki ráðast í framkvæmd
ir eða lántökur nema bæjar-
stjóm væri aðspurð. Hins vfgar
vaéri á fjárhagsáætluninni gert
ráð fyrir 550 þúsund króna lán-
töku til nauðsynlegra fram-
kvæmda við höfnina, aðallega
til hinnar nýju uppfyllingar
framundan Verkamannaskýl-
inu.
En til þess að hægt væri að
gera þetta sagði J. A. P. að
nauðsynlegt væri að bæjar-
stjórn feldi niður skilyrði sitt
fyrir lántökunni.
Jafnframt skýrði J, A. P. frá
Brotist inn í tvo
gejfmsluskúra i nótt.
VÖ innbrot voru framin í
nótt í geymsluskúra, en
litlu var stolið.
Brotist var inn í geymslu-
skúr bak við Lindargötu 41.
Hafði verið brotist þar inn
um glugga og stolið samfesting
og fleira smávegis.
Þá var brotist inn í geymslu-
skúr hjá Arnarhvoli á þann
hátt, að hespa hafði verið dreg-
in út. Var þar stolið einni kan-
ínu.
því, að nokkuð hefði verið leit-
að fyrir sér um lánsfé, en ekki
af þeirri alvöru, sem nauðsyn-
leg væri vegna skilyrðis bæjar-
stjórnar.
Eftir allmiklar umræður var
fyrri tillögunni vísað til bæjar-
ráðs, en þeirri síðari til hafnar-
stjórnar.
Ægisgarður, sem nú er verið
að ljúka við, er mikið mann-
virki og hefir vinna við hann
staðið mjög lengi. Enn er aðeins
eftir að setja efsta lagið á garð-
inn. En næstu fyrirhuguðu
framkvæmdirnar við höfnina
eru uppfylling við Verkamanna
skýlið, sem er mikið verk,
bryggj ugerðin við Ægisgarð og
stækkun hafnarhússins.
Þetta eru alt saman mjög
nauðsynlegar framkvæmdir, og
myndu skapa mikla atvinnu.
Talið er að um 50 verkamenn
missi atvinnu sína, ef höfnin
hefur ekki nýjar framkvæmdir
nú þegar.
FRÉTTIR hafa verið að ber-
ast í gærkveldi og í morg-
un til Vestmannaeyja gegn um
talstöðvar skipa, sem úti eru, af
sköðum, sem orðið hafa á fær-
eyiskum veiðiskipum hér við
land í ofviðrinu seinnihluta
dagsins í gær og í nótt.
í gærkveldi heyrðist gegnum
talstöð í Vestmannaeyjum, að
eitt af stærstu veiðiskipum Fær
eyinga, Marite, sem var á leið-
inni hingað til lands, hefði feng
ið á sig stórsjó og brotnað mikið
ofan þilja. Brotnaði stýrishús
skipsins og tók það og skipstjór-
ann, sem var í því, fyrir borð.-
Skipstjórinn bjargaðist þó
nauðulega, með þeim hætti, að
hann náði í lausan enda og
tókst skipverjum að ná honum
inn aftur. í morgun heyrðist,
að þetta skip mundi hafa snúið
við aítur til Færeyja og væri
mikið brotið.
Stórt færeyskt veiðiskip,
skútan „Vesturfariim“, kom
til Vestmannaeyja lun kl. 10 í
morgun með 4 menn stórslas-
aða. Er skipið alt brotið ofan
þilja. Var verið að flytja menn-
ina í land á sjúkrahús, er Al-
þýðublaðið átti tal við fréttarit-
ara sinn í Eyjum í rnorgun, og
var þá ekki kunnugt um meiðsli
mannanna, en þau voru sögð
mjög mikil, beinbrot og önnur
meiðsl, og mennirnir allþungt
haldnir.
Bæjarráði falið
aðviona að iausn
togaradeilninar.
Ætlar meirihlutinn loks
að ganga inná tíllðgor
Alhýðnflohhsins nm
stuðning við útgerðina?
JÓN AXEL PÉTURSSON
flutti á bæjarstjórnarfundi
í gær tillögu þess efnis, að bæj-
arstjórn fæli forseta bæjar-
stjórnar að gera tilraunir til að
leysa deiluna milli sjómanna og
útgerðarmanna. Guðm. Ás-
björnsson, sem er forseti bæjar-
stjórnarinnar, mæltist undan
þessu, þar sem hann væri að
nokkru leyti aðili í deilunni.
Gek J. A. P. inn á að breyta
tillögu sinni þannig, að bæjar-
ráði væri falið að hafa afskifti
af málinu til að leysa það sem
fyrsí.
Bjarni Benediktsson skýrði írá
því á fundinum, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði undanfarið
verið að athuga möguleikana
fyrir því að hafa áhrif á lausn
deilunnar, og var helzt á hon-
um að skilja, að bæjarstjórn
myndi verða látin taka afstöðu
til tillagna frá meiri hlutanum
þessu viðvíkjandi. (Frh. á 4. s.)
Heyrst hefir í morgun til
fleiri færeyskra skipa, sem hafa
orðið fyrir meiri og minni áföll-
um í veðrinu, en í sumum, sem
vitað er um að voru á veiðum
nálægt landi, hefir ekkert
heyrst. Búast menn við að tal-
stöðvar þeirra hafi bilað í veðr-
inu.
Yflr ellefn vind-
stig í gærkveldi
Bilanir f útvarpi og
rafmagni.
—0—
OFSAVEÐUR skall skyndilega
á í gærkveldi hér í bænunr,
og komst veðurhæðin upp í rúm-
lega 11 vindstig kl. 5Va—7. en
þá fór veðrinu að slota.
Rafmagnið bilaði enn einu
sinni.en Elliðaárstöðin tókvið, svo
að ekki urðu óþægindi af, nema
fyrir verksmiðjur, er vinna méð
rafmagni. Þær stöðvuðaist í hálf-
an tfjna.
Aðalleiðslan frá útvrarpsstöðinjni
í Vatn&endahlíð biláði um kl. 6
og var því ekkiert útvairp i gær-
kvéldi fyr en tekist hafði að gera'
við bilunina, en því var lokið kl.
jlO í gærkveldi og var þá lesið
mokkuð af fréttum, en fáiir munu
Jiafa hlustað á það.
Færeyskum veiðisklpom
Uekkist á f oMðrinu i nétt
-- ■■ "■ .
Marglr menn hafa slasast og
sklp brotnað ofan pilja.
Nazistastjörnin hefír í hyggjn
að senda Hieiðller i fangabniir!
—--- o ---
Hún lét taka hann fastan á ný, af því að hann
vildi ekki lofa, að minnast ekki á stjórnmál.
LONDON í morgun. FÚ.
P MBÆTTISMAÐUR í
nazistaflokknum í Ber-
lín sagði fréttaritara Reuters
í gær, að Niemöller prestur
væri nú í fangelsi í Berlín,
en að hann myndi að líkind-
um verða sendur í fanga-
búðir.
Það er upplýst, að leynilög-
reglan tók Niemöller fastan
eftir að dómur hafði verið feld-
ur í máli hans, vegna þess að
hann vildi ekki gefa loforð um
að minnast ekki á stjórnmál eða
félagsmál í stólnum, en halda
sig algerlega að trúfræðilegum
atriðum.
Leynilögreglan ber enga á-
byrgð gerða sinna gagnvart
dómstólunum, en aðeins gagn-
vart foringja leynilögreglunn-
ar, Himmler. Þess vegna er
hægt að halda manni í varð-
haldi um óákveðinn tíma án
þess að mál hans komi fyrir
rétt.
VfirvSldin sðgðust gnrfa
að vernda Nlemðller fyrir
reiði fólkslns!
LONDON I gærkveldi. FO.
Niemöller prestur var hand-
tekinn á ný i gærkveldi,
er hann kom út úr réttarsalnuim,
eftir að dómur hafði verið feldur
í máli hans.
Yfirvöldin skýra frá þvi, að
þau hafi slegið verndarhendi
sinni yfir Niemöller nm stundar-
sakir, þar sem að allur almenn-
ingur sé óánægður vegna þess,
hve dómiurinn var vægur, og að
. búast mátti við, aíð gerður yrði
aðsúgur að Niemöller, er hann
væri látinn laius.
Þýzkur hermaðnr
strýkur í bíl til
Frakklands.
LONDON i gærkveldi. FO.
‘E' YRIR fáum dögum kom
* þýzkur hermaður akandi í
bifreið inn, yfir laindajnærin milli
Þýzkaíands og Fraikklian.ds, og er
hajnn, var komiinin þrjár míiur inn
í Frakkiand bað hann um að sér
yrði vísaið tii næstu lðgreglu-
stöðvar. Kvaðst hann hafa strokið
úr þýzkai hernum og bað um
inntöku í frauska málaliðið.
Bifreíðin hefir verið send til
baka, en það hefir verið tekið
við mann,inum, og gera frönslt
yfirvöld ekkert með þá tilgátu,
sem frann hefir komið, að her-
maður þessi Ixafi verið sendur
sem njósn,a!ri frá Þýzkalandi til
þess að kynna sér Maginotlíniuna
svo nefndu, en það eni virki, sem
Frakkar hafa gert við austur-
laindamærin.
NIEMÖLLER.
Þatu halda því fram, að hann
hefði þá ekki stöðvaíð bifreið
sína fyr en hann kom að Magi-
xxotlínunni, en hún var 6 míium
innan við landamerkjalínuna.
Nordal
heiðursdoktor há-
skólans i Oslo.
KAUPM.HÖFN í gærkv. FU.
ÞANN 10. þ. m. vexi&ur pró-
fessor Sigurður Nordal lcjör-
ínxt heiðairsdoktor af háskólanum
5 Oslo.
Fara þá fram hátíðahöld víð
háskólamn, þar &em þeir mfenn
verða' kjörnir doktorar, er varið
hafa doktorsritgerðix við ekólann
siðaist liðin fimm ár, o*g þeir
kjörnir til þess að taka þess>a
niaffnbót, er háskólinn vill veita
haina. Var þassi siður upp tekian
fyrir fiinrn árum, og er þettai því
í annað sinn, sem slík athöfn
fer fraim.
Háskólinn i Osló hefir boðið
prófessor Sigurði Nordal að vreara
viðstaddur þessa athöfn, en hainn
hefir ekki getað þegið boðið, að
því er hann hermir fréttastofunn.:.
ScbBdodoi neitar ai stai-
festa samkomnlag Seyss-
Inqnarts við nazistana.
—--- •’—+---
Héraðsstjórinn í Steiermark segir af sér.
LONDON í morgun. FÚ. ♦
DR. STIPPER, héraösstjór-
inn í Steiermark í Aust-
urríki, hefir sagt af sér. Telja
bæði nazistar í Steiermark og
andstæðingar þeirra þetta sig-
ur fyrir sig, hvorir í sínu lagi. í
stað hans hefir kaþólskur mað-
ur verið skipaður í emhættið,
og er hann öflugur stuðniugs-
maður Schuschniggs.
Austurríska ráðuneytið hefir
neitað að staðfesta ráðstafaniir
þær, er dr. Seyss-Inquart inn-
anríkisráðherra gerði í Steier-
mark, er hann í málamiðlunar-
skyni leyfði nazistum að bera
flokksmerki sín og heilsa með
nazistakveð j unni.
Siglt á Goðafoss
Skemdtr nrðu litlar.
GOÐAFOSS varð fyrir á-
siglingu í fyrri nótt, er
hann var á leið frá Hamborg
til Kaupmannahafnar.
Ásiglingin varð í Kielar-
skurði, og var skipið, sem sigldi
á Goðafoss, frá Lithauen.
Goðafoss hélt áfram ferð
sinni, og mun ekki um alvar-
legar skemdir að ræða.
Játninpm rignlr við
réttariiöidin i Moskva
LONDON í morgun. FÚ.
17IÐ RÉTTARHÖLDIN í
® Moskva sagði einn hinna
ákærðu frá því í gær, að hann
hefði staðið í sambandi við
ensku leynilögregluna og látið
Englendinga fá upplýsingar,
sem gætu verið gagnlegar ef til
ófriðar kæmi gegn Rússum.
Hann sagði, að sér hefði verið
fyrirskipað að koma sér í mjúk-
inn hjá millistéttunum í Eng-
landi, og hefði hann því séð um
að Bretar gætu fengið trjávið
frá Sovét-Rússlandi fyrir afar-
lágt verð.
Skákkeppni milli Taflfélags
alþýðu og Taflfélags Hafnar-
. fjarðar.
¥ FYRRADAG fór fram
skákkeppni milli Taflfé-
lags alþýðu og Taflfélags Hafn-
arfjarðar.
Teflt var á 12 borðum og
fóru leikar svo að Hafnfirðing-
ar fengu vinning en Reyk-
víkingar 3Mí.