Alþýðublaðið - 14.03.1939, Blaðsíða 4
ÞRI0JUDAGINN 14. marz. 1939.
V
f DAG.
■GAMLA bio ■
Topper
(Afturgöngurnar)
Sprenghlægileg og mein-
fyndin amerísk gamanmynd
um andatrú og draugagang.
Aðalhlutverkin „afturgöng-
umar" leika:
Constance Bennet og
Cary Grant
og standa pau fyrir hinum
furðulegum atburðum er
pessi frumlega mynd sýnir.
Beykjavíkurannáll h.f.
Revyan
Fornar ðjrggðir
Model 1939.
Næst sfðasta sinn
í kvöld kl. 8
Siðasta sinn
annað kvöld
M. Sm
Aðgöngumiðar að peirrisýn
ingu seldir i dag kl. 4—7
og eftir kl .1 á morgun.
VENJULEGT LEIKHÚS-
VERÐ EFTIR KLUKKAN 3.
ÚTGERÐARMANNAFUNDUR-
INN 1 GÆR.
(Frh, af 1. síðu.)
að hugsa þessi mál til enda.
Gengislækkunin og þjóðstjórn-
in út af fyrir sig nægðu ekki,
það yrði að slaka á innflutn-
ingshöftunum, ákveða kaup
verkamanna og sjómanna með
lögum og koma á öflugu ríkis-
valdi til þess að berja niður
allar þær klær, sem hafðar yrðu
úti til þess að hindra það, að
ráðstafanir væntanlegrar stjórn
ar til viðreisnar sjávarútvegin-
um næðu fram að ganga.
Gísli Jónsson tók þá til máls
á ný og sagði að það væri engin
trygging fyrir því, að Sjálf-
stæðisflokkurinn yrði ekki bor-
inn ofurliði í þjóðstjórn. Komst
Gísli ekki lengra, því þá gerðist
mikill kurr í salnum, stóð mik-
ill hluti fundarmanna upp og
gekk út.
Var þá umræðum hætt og
gengið til atkvæða um tillög-
umar og þær samþykktar með
svo að segja öllum greiddum
atkvæðum.
Samtjfktirnar.
1. , ,Landssambandið skorar á
Alþingi, að hraða löggjöf til
efnda gefnum fyrirheitum
um verulegar kjarabætur
útvegnum til handa.
2. Landssambandið vekur at-
hygli á því, að tap togara-
rekstursins á undanförnum
árum sé raunverulega mikið
meira en haft er eftir milli-
þinganefnd í útvegsmálum,
og vísar í því sambandi til
skýrslna togaraútgerðar-
manna frá í fyrra. Hitt er
og vitað, að stórfeld töp
hafa einnig orðið á rekstri
bátaútvegsins undanfarin
ár.
Að því er togarana snert-
ir þykir rétt að geta þess,
að það, sem af er þessu ári,
er meðaltap á skip orðið
meira en dæmi eru til und-
anfarin ár, og aflahorfur
þeirra ískyggilegar, en sölu-
horfur sjávarafurða yfirleitt
miklu lakari en í fyrra, þótt
lélegar væru þá.
3. Landssambandið lýsir þeirri
skoðun sinni, að einasta leið-
in til framkvæmda gefnum
fyrirheitum um kjarabætur
sé að viðurkenna a. m. k. að
nokkru leyti verðfall ísl.
krónunnar, og telur að í
þeim efnum sé eigi rétt að
ganga skemur en að 30 ísl.
krónur jafngildi sterlings-
pundi.
4. Landssmbandið telur nauð-
synlegt að .halda kaupgjaldi
óbreyttu, enda séu gerðar
öflugar ráðstafanir til þess
að hindra aukna dýrtíð og
auka atvinnu almennings.
Sú hætta er þegar yfirvof-
andi, ef ekki verður að gert,
að fiskiveiðar dragist mjög
saman eða jafnvel stöðvist
á miðri vertíð.
5. Landssambandið skorar á
valdhafana, að stefna beint
að afnámi haftanna, en gefa
nú þegar svo mikið frjálst
af innflutningnum, sem
frekast er auðið, til þess að
draga úr dýrtíðinni í land-
inu.
6. Landsambandið leggur
höfuðáherzlu á, að löggjöf
þetta varðandi verði hraðað,
og undir öllum kringum-
stæðum lögfest á því Al-
þingi, er nú situr. Ef það er
talið nauðsynlegt, að að-
alflokkar Alþingis taki
höndum saman um stjóm-
armyndun, til þess að koma
málum þessum fram á Al-
þingi og standa að fram-
kvæmd þeirra, þá skorar
Landssambandið á þing-
flokkana að láta ekki
stranda á því. Loks lýsa út-
vegsmenn því yfir, að þeir
telji skjóta og góða lausn
þessa máls beinlínis lífsskil-
yrði fyrir útveginn, og af-
komu allrar þjóðarinnar.
Enn fremur var gerð eftirfar-
andi samþykkt gegn því að
þeim yrði hin svokallaða
styrkjaleið til styrktar sjávar-
útveginum í stað gengislækkun-
arinnar.
,,Að gefnu tilefni vill Lands-
sambandið lýsa yfir því, er hér
segir:
Ýmsar uppástungur hafa
komið fram um „hjálp“ til út-
vegsins, svo sem með skattaá-
lagningu 10—20% á allar inn-
fluttar vörur, sem síðan sé út-
hlutað sem jafnri verðuppbót á
allar útfluttar vörur.
Vegna þessa vill Landssam-
bandið taka það skýrt fram, að
útvegsmenn biðja ekki um aðra
„hjálp“ en þá, að hætt sé að
taka af þeim gjaldeyri þann,
sem fæst fyrir framleiðsluvör-
urnar fyrir verð, sem er langt
neðan við sannvirði.
í þessu sambandi má geta
þess, að það er á allra vitorði,
að ísl. krónan er stórfallin í
verði utan lands og innan frá
hinni opinberu skráningu bank.
anna.
Það er fjarri allri skynsemi,
og leiðir augljóslega í ógöngur,
að sá atvinnurekstur, sem þjóð-
in verður aðallega að hafa sér
til lífsframdráttar, sé rekinn
með opinberri hjálp, auk þess
sem framkvæmd slíkrar hjálp-
ar opnar leið til ranglætis og
margs konar spillingar.
Þó segja megi að styrkveit-
ingaleiðin kunni að hafa ein-
hverja kosti í för með sér fyrir
þá, sem peninga eiga, þá má
fullyrða, að fyrir almenning
hefir hún í sér fólgna alla ó-
kosti gengislækkunarinnar og
ýmsa fleiri til viðbótar.
Landssapnbandið vill leggja
sérstaka áherzlu á það, að rétt-
lát skráning krónunnar myndi
auka þátttöku í allri fram-
leiðslu landsmanna, og gera út-
vegsmönnum fært að lengja út-
haldstíma skipanna verulega,
en þetta hefði í för með sér
aukna atvinnu á sjó og landi
og myndi færa þjóðinni aukinn
gjaldeyri fyrir útflutningsvör-
iit* li
TÉKKÓSLÓVAKIA.
Frh. af 1. síðu.
matische Korrespondenz“ fer
einna vægast í sakir, en telur
þó, að tékkneska stjórnin hafi
lítið lært af Mánchensáttmál-
anuni og enga alvarlega tilraun
gert til þess að lifa samkvæmt
hinu nýja skipulagi.
Útbreiðið Alþýðublaðið!
AFLINN I VERSTÖÐVUNUM.
(Frh. af 1. síðu.)
sem leið. Afli var alls 1,200 skip-
pund, eba 52 skippund að meðal-
tali á bát. A fimtudag reru fjór-
ir bátar og öfluðu sama og ekk
ert, eða alt niður í fjóra fiska
hver, og höfðu þó beitt nýrri
loðnu. Loðna gengur nú um all-
an sjó. Á miðvikudag lagði línu-
veiðarinn ólafur Bjarnason á
land á Akranesi um 150 skippund
af saltfiski og á föstudag lagði
togarinn Sindri þar á land 86
smálestir af ufsa.
Keflavíb: Héðan var róið þrjá
daga vikunnar. Afli var mjög
tregur, eða 8—12 skippund ábát
í róðri. Mikil loðnuganga er á
miðunum, og fiskur er talinn vera
ofarlega í sjó. Nokkrir bátarbú-
ast á netaveiðar.
Sandgerði: Héðan var róið tvo
daga síðustu viku. Afli var minni
en þekzt hefir hér áður á miðri
vertíð —■ eða niður í 6—7 fiska.
Stormar og ógæftir hafa verið
síðustu daga.
Höfn I Hornafírði: Héðan var
róið fjóra fyrstu daga vikunnar.
Á mánudag var afli sæmilegur
— 4—9 skippund á bát — en
aðra daga mjög tregur. 1 gær
voru áðeins heimabátar á sjó.
Afli var lítili.
ísafjörður: Samvinnubátarnir
sjö stunda veiðar við Faxaflóa
og flytja aflann til Isafjarðar.
Hefir hann verið sæmilegur und-
anfarið, eða frá 18—25 smálest-
ir í 6 legum. Bátarnir hafa veitt
Ioðnu út af Garðsskaga til beitu.
Minni bátum hefir allan síðasta
mánuð og það sem af er þessum
mánuði ekki gefið lengra en út í
Djúpmynni. Afli hefir verið treg-
ur.
Þingeyri: Línuveiðararnir los-
uðu afla sinn þann 11. þ. m.,
Venus 123 skp. og Fjölnir 143
skp. Farmskipið Anna losaði 214
smálestir af salti 10. þ. m., en
lestabi aftur 109 smálestir af
hvalkjöti til Oslo. Kjötið er fyrra
árs framleiðsla, og hefir verið
geymt í íshúsi á Þingeyri í vet-
ur.
Eskifjörður: Hér inni í firöin-
um hefir veiðst talsvert af smá-
fiski undanfarið, en það er ó-
vanalegt á þessum tíma vetrar.
Vestmannaeyjar: Afli var hér
mjög tregur tvo síðustu daga vik-
unnar, en fyrri hluta vikunnar
var afli dágóður í net, en þó
mjög misjáfn. 1 dag voru á sjó
allir, sem lagt hafa net. Afli var
tregur hjá þeim, sem komnir
voru að um kl. 16, en þó höfðu
einstaka aflað um 1,000 þorska.
Netatjón varð talsvert eftir veðr-
ið í gær, en ekki er þó vitað
hve mikið það hafi orðið. Óttast
er um, að nokkuð af netjum
hafi rekið upp á Landeyjasand,
en þar leggja flestir net sín. —
Tólf færeyskar skútur verða gerð-
ar út frá Vestmannaeyjum á ver-
tíðinni, og eru sumar þeirra þeg-
ar komnar þangað. Auk þess
verða tvær skútur gerðar út af
Færeyingum með net. Loðna veið
ist enn í Vestmannaeyjum.
Grindavík: Fyrstu þrjá daga
síðustu viku reru flestir bátar,
þótt sjóveður væru slæm, og
veiddu þeir nokkuð í þorskanet.
Síðan hefir ekki gefið á sjó
vegna brims og hvassviðris, og
eru neíin i hættu og fiskur, sem
í þeim kann að vera, eyðilagður.
Sandur: Héðan gaf á sjó alla
vikuna sem leið nema á fimtu-
daginn og aflaðist sæmilega,
þrátt fyrir óhagstætt sjóveður. í
dag voru allir vélbátar á sjó,
en afli var tregur.
Ólafsvík: Héðan var róið fjóra
fyrstu daga vikunnar, en afli var
misjafn. Einn þilfarsbátur aflaði
12 skp. yfir vikuna. Allir bátar
voru á sjó í dag.
Næturlæknir er i nótt Ófeigur
Ófeigsson, Skólavörðustíg 21A,
sími 2907.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfsapóteki.
OTVARPIÐ:
20,15 Erindi: Berklamál ogberkla
sjúklingar (Andrés Straum-
land).
20,40 Hljómplötur: Létt lög.
20,45 Fræðsluflokkur: Um Sturl-
ungaöld, IV. (Árni Pálsson
próf.).
21,10 Symfóníutónleikar:
a) Tónleikar Tónlistarskólans
21,55 Symfóníutónleikar (plötur):
Symfónía nr. 4, eftir Tschai-
kowsky.
V. K. F. Framsókn
! heldur framhaldsaðalfund í
kvöld kl. 8V2I í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu. Konur f jölmennið og
mætið stundvislega.
Æfing
verður í málfundafélagi Al-
þýðuflokksfélagsins kl. 8V2 í
kvöld i Alþýðuhúsinu. Mætið
stundvislega.
Skíða- og skautafélag Hafnar-
fjarðar
fundur annað kvöld kl. 8V2 á
Biminum. Umræðuefni: Bygging
skíðaskálans.
Skemtifund
heldur Ármann í Oddfellow-
húsinu í kvöld kl. 9. Þorsteinn
Jósefsson rithöfundur flytur er-
indi með skuggamyndum. Einar
Sturlaugsson syngur og ennfrem-
ur verður ýmislegt fleira til
skemtunar. Ármenningar, fjöl-
mennið á skemtifundinn.
Föstumessa
i frikirkjunni annað kvöld kl.
8,15 sr. Árni Sigurðsson.
STALIN OG SÓSIALISMINN
Frh. af 3. síðu.
maður,‘“ segir ennfremur í fyr-
irskipununum, „sem gerir sig
sekan um slíka vanrækslu
þrisvar sinnum á einum mán-
uði eða fjórum sinnum á tveim-
ur mánuðum, verður tafarlaust
rekinn úr vinnunni.“
ÞaS gera ef til vill ekki all-
ir sér það Ijóst, hvað slík á-
kvæði og framkvæmd þeirra
þýðir fyrir verkamanninn á Sov
ét-Rússlandi þar sem ríkisvaldið
sjálft ræður yfir flestiun fyrir-
tækjum. En það er ömurlegur
vottur um niðurlægingu rúss-
nesku verkalýðsfélaganna und-
ir einræðisstjórn Stalins, að
slík lög skuli vera hægt að
setja. Og vissulega hafa félögin
ekki verið spurð um álit sitt á
þeim, enda þótt forseti þeirra
Sjvernik, sem eins og allir
vita ekki er kosinn, heldur
skipaður af Stalin, hafi sett
nafn sitt undir þau með ein-
ræðisherranum.
Þrældómur er alltaf þræl-
dómur, og það alveg eins þótt
reyrit sé að fegra hann eða rétt-
læta með þjóðarheill eða ríkis-
heill. Ófrelsið er á engan hátt
meira aðlaðandi þó að klínt sé
á það nafni sósíalismans og
hann svívirtur þannig með því.
Það sýnir sig á Sovét-Rúss-
landi, að sósíalismi getur
hvorki skapast né lifað án lýð-
ræðis.
BRÉF.
Frh. af 2. síðu.
það eru líklega 3 kjörgengir
menn úr þorpinu, 2 drengir 15,
1 er 16 ára. Þannig hljóða þessi
orð og þau eru sannleikur.
23. febr. ’39
Grindvikingur.
20*30 slllabðrn
óskast til að selja nýtt spenn-
andi blað. Komi kl. 9 á Bergst.
10 í fyrramálið. Há sölulaun og
verðlaun.
Kvennadeild Slysavarnafélags'ns
í Hafnarfirði
heldur skemtifund í kvöld að
Hótel Björninn.
■ NYJA biö
Saga borg-
arættarinnar
Sýnd kl. 9.
Aðgönpmiðar selðlr frá
klubkan 5.
Síðasta sinn.
Jarðarför dóttur okkar og systur
Aðalheiðar Fanneyjar
fer fram miðvikudaginn 15. marz kl. 1,30 frá heimili okkar,
Krosseyrarveg 4, Hafnarfirði.
Guðrún Guðmundsdóttir. Pétur Magnússon og börn.
NÝ BÓK
„UM SVÍÞJÓÐ OG SVÍA“
Stntt en efnisrikt yfirlit yfir npprnna sænsku pjððarinnar
og sðgnleoa prðun, atvinuuvegi og anðlegt lif. Verð br. 3,00
Bókin er prýdd 59 hellsíðu myndnm.
unmmiBB.
;'"V' : Ifw ' ...'. 1.-..
Yegna ónégrar þáfttókn far*
pega, og af ððrum ástæðum,
getur EKKI orðið af pví, að
„Goðafoss*4 farl vesfur tll
Mew-York í vor.
H. F. Eimskipafélag tslands.
Aðalfundur
Starfsstúlknafélagsins Sókn
verður haldinn í Oddfellowhúsinu uppi miðvikudaginn 15.
þ. m. kl. 9 e. h.
FUNDAREFNI: Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.
Sýnið skírteini við innganginn.
Fjölmennið! STJÓRNIN.
M. A. kvartettinn
syngur í Gamla Bíó fimtudaginn 16. marz kl. 7 sd.
Bjarni Þórðarson aðstoðar.
BREYTT SÖNGSKRÁ.
Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar og Bókaverzlun ísafoldarprentsmiðju.
Hin mlkla arfleifð íslands,
hin mjög umtalaða bók eftir Adam Rutherford,
er komin í íslenzkri þýðingu, aukinni og endur-
bættri, kostar 1 krónu, og fæst hjá bóksölum.
Snæbjörn Jónsson.
Hin frægaPáskaræða sfraPáls Signrðssonar
(ný útgáfa) fæst nú hjá bóksölum og kostar 1 krónu.
,._.j . ] ■ Snaabjörn Jónsson.