Haukur - 28.01.1898, Blaðsíða 2

Haukur - 28.01.1898, Blaðsíða 2
IÍAUKUR. I. I I. 12. 42 Svo stóð hún upp og fór þegjandi inn í herbergi Henriks. Miðdegismaturinn var ekki snertur þann daginn. ------------------Henrik gekk fram og aptur um góifið. Mamma hafði farið inn á herbergið okk- ar, og lagt sig fyrir. Jeg sat við sauma mína, og var í þungu skapi. Jeg vildi tala alvarlega við Heniik — segja honum alit, eins og mjer þótti vera; en jeg vissi ekki, hvernig jeg átti að byrja. »En sá hátíðasvipur, sem á ykkur er i dag, mömmu og þjer«. Jeg leit upp. Henrik hafði nú mannað sig upp, og tekið á sig uppgerðar-gleðisvip; hann vildi auðsjá- anlega hugsa sem minnst um heimkomu sína. »Þú gerir alveg út af við mömmu með þessu, Henrik*. »Nei, Ágústa, á jeg að segja þjer nokkuð — þú ert nokkuð bráð og fljótfær, þykir mjer. Gera út af við? Eins 0g það skyldi vera einhver skelfllegur glæpur, að drekka sig fullan einu sinni — já, því svona út úr fullur hefl jeg aldrei orðið áður — Góða Ágústa, ef þú þekktir líflð dálítið betur, en þú gerir, þá myndir þú ekki gera svona mikið veður út af öðru eins lítilrseði, og þessu. — Mestu stillingar- og ráðdeildar menn, eins og t. d. Þórður Jónsson og Guð- mundur Ólafsson og — uss! Maður getur orðið svo gramur og leiður, af því, að hiusta á þennan kvenn- fólksþvætting!« Hann gekk nokkrum sinnum fram 0g aptur um gólfið. Svo settist hann við hliðina á mjer. »Þú veizt það vel, Ágústa, að jeg er ekkert hneigður fyrir áfenga drykki, svo að það er ekkert hætt við því, að jeg verði nokkurn tíma fyllisvín. Hvað kæri jeg mig um toddy og þess konar? Það er allra mesta ótætis skólp, allt saman«. »En góði Henrik! f'yrst þú kærir þig ekki neitt um það, geturðu þá ekki hafnað því algerlega? Gerðu þaö nú, Henrik, — gerðu það fyrir hana mömmu, og — fyrir mig! Við berum það ekki af, að sjá þig í annað skipti til, eins á þig kominn, eins og þú varst í gær«. »Þið skuluð heldur aldrei sjá mig svo hjer eptir — því lofa jeg þjer, Ágústa; en að iáta alveg vera að smakka vín? Veiða Goodtemplar eða bindindis- maður máske, ganga með hnapp eða mislitan borða í hnappagatinu — ha, ha, ha! — Utiiykja mig alveg frá fjelagsskap vina minna og kunningja, eins og kláðasjúka kind, — verða eins og þessir tilgerðar bjánar, sem ekki, mega einu sinni flnna lyktina af á- fengum drykkjum! Nei, jeg þakka auðmjúklega! Jeg hefl fengið meira en nóg af slíku. Jeg þoli ekki, að það sje gert gis að mjer«. »En þú þolir, að horfa á mömmu niðurbeygða og titrandi af hræðslu og kvíða þín vegna--------ó Hen- rik, manst þú, hverju við lofuðum með sjálfum okkur einu sinni? Veslings mamma, hún á engan að, nema þig — engan, sem hún elskar, nema þig — þú verð- ur að vera góður við hana, og reynast henni vel, Henrik!« Jeg lagði frá mjer saumana, og rjetti honm báð- ar hendurnar. »Æ, iáttu nú ekki svona, Ágústa. Jeg get ekki hlustað á allt þetta teprulega viðkvæmnisbull í þjer. Jeg held —« hann hló — »nei, jeg held andskotann ekki------« Jeg kipptist við. »Nei setur hún ekki á sig hátiðlegan sorgarsvip, af því mjer verður það eitt é, að láta saklaust blóts- yrði hrökkva af vörunum! Jeg var að hugsa um, að bjóða þjer að koma með mjer í veizluna hjá Gunnari í kvöld — bara heilaköst, eins og þú getur skilið. Þú hjá Gunnari — —!« h inn hló aptur. — »En þú verður að hugga hana mömmu; þú verður að tala við hana, og fá hana til að vera rólega. Jeg er ekki búinn að jafna mig almennilega enn þá. Eitt skemmti- legt kvöld til þess að hrista af sjer doðann, og svo skal tekið til starfa. Vertu sæl, Ágústa!« Hann tók utan um mig, og ætlaði að kyssa mig; en jeg sneri mjer undan. Ó, Henrik, ef þú heföir vitað það og skilið, að líf og hamingja tveggja manna var í þinni hendi, þá hefðir þú ekki farið til Gunnars þetta kvöld, og öll hin kvöldin — — — — — — Þvi að hann var ekki slæmur í sjer, hann Henrik; en hann var þreklítill. Og Gunnar — hann sem gat biosaö svo vingjarnlega og aðiaðandi — hann hafði hann aigerlega á sínu valdi, og Gunnar var slæmur maður. Eða var hann að eins þreklítili, hann líka? Jeg veit það ekki — jeg veit einungis það, að við Henrik var hann slæmur. Hann hjelt honum föst- um, með því að ráðast æfinlega þar á hann, sem hann var veikastur fyrir — það var hjegómaskapur- inn, fordildin, sem rak Henrik af stað, þvert á móti vilja hans. Það var eins og tiifinningar Henriks fyrir rjettu og röngu dofnuði og sljófguðust meir og meir. Hann hugsaði ekki um neitt annað, en að njóta lífsins un- aðsemda i sem ríkustum mæli, og Gunnar hafði haft lag á, að sannfæra hann um það, að þetta — einmitt þetta væri hinn æðsti unaður líf'sins, og að eins með því, að lifa þessu lífi, gætu mcnn öðlazt þá þekkingu á líflnu, sem væri alveg bráðnauðsynleg f'yrir hvern þann, er ætlaði sjer að verða læknir —• — (Meira.) Suniir vinir likjast farfuglunum; þeir koma og eru oss til ánægju meðan sumarið er, en þegar veturinn og illviðiin koma, þá eru þeir óðara horfnir, og sjást ekki fyr en aptur kemur sólskin og sumarblíða. Það eru smákaflar i æfisögu hvers einasta manns, sem sýnast vera algerlega efnislausir, en sem þrátt fyrir það hafa áhrit' á allan gang sögunnar. Almenningur kýs heldur fullyrðingar, heldur en rök- semdir. Röksemdatærslan gerir hann ruglaðan og hikandi. Hugsanaskipun hans er einföld, og þess vegna skilur hann að eins það, sem einfalt er. Það dugar ekki, aðsegjavið hann: »Þannig« og »þess vegna«, heldur að eins: »Já« og »nei«. Margir menn ganga mest í augun — tilsýndar. Sá, sem breytir illa við vin sinn, hann breytir i raun og veru verst við sjálfan sig. Skoðaðu mennina sem óvini þina, og þá mun ekki liða á löngu, áður en þú átt engan verri óvin, en sjálf- an þig. Et vjer legðum meira kapp á, að verða gagnlegir, heldur en lánsamir, þá yrðu méske brigðulu vonirnar ofurlítið færri í lífi voru. Stjórnmálamaður, þ. e. a. s. prentuð notkunarf'yrirsögn utan um einhverja stefnu. (B. Björnson.) Tækifærið bregzt ekki manninum nálægt því eins opt, eins og maðurinn bregzt tækifærinu. Hver Eden hefir sitt skilningstrje.

x

Haukur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.