Haukur - 29.03.1898, Qupperneq 7

Haukur - 29.03.1898, Qupperneq 7
I. i7-—18. HAUKUR. 71 þegar hann yarð fyrir þvi láni — (ða óláni — að fá ást á ungri stúlku þar í nágrenninu. Stúlkan var af góðum ættum, vel menntuð og vel eínuð. Og nú hugsaði hanu um þessa stúlku á daginn og dreymdi um hana á næturnar. Hann gat varla um annað hugsað, en hana. En svo kom skynsemin, og sagði: »Það er ómogulegt, að þú getir fengið þessa stúlku; hún er svo miklu ríkari, en þú, og margfalt betur menntuð að öllu leyti, heldur en þú. Og hvað átt þú líka að gera við konu, þú, hláfátækur maðurinn«. En það fór hjer, sem optar, að skynsemin varð að lúta í lægra sessi; hún varð að vægja. sReyndu þá«, sagði hún, »að læra mikið, og ávinn þjer virðingu og traust allra vandaðra manna!« Og vonin sagði: »Et' þú gerir þetta, þá er þjer sigur- inn vis«. Hann setti sjer nú það mark og mið, að verða meiri skólabræðium sínum í öllu þvi, er honum væri auðið. Hann las og lærði, hugsaði og ályktaði. Hann kepptist við námið, eins og kraptar hans frekast leyfðu, en honum fannst það samt sem áður ljett. Hugurinn ræður hálfum sigri, og hann þóttist eiga vís launin fyrir kappsemi sina, þau bestu laun, sem nokkur maður getur hlotið — góða og fagra konu. Svo var það eitt vorkvöld, rúmu ári síðar, þá fann hann stúlku þessu á förnum vegi. Leið þeirra iá saman nokkuð langan veg, svo að nú höfðu þau bæði tíma og næði til þess, að ræða um hitt og þetta. Honum virtist hún líta svo hlýlega til sin, og tala svo vingjarnlega við sig, að hann þóttist þess viss, að hún bæri hlýjan hug til sín. Nú var líka hentugt tækifæri til þess, að láta henni í ljósi ást þá, er hann bar til hennar, þar sem þau voru tvö ein, langt frá öllum öðrum mönnum, svo að engin þvættitunga gat þvaðrað neitt um það, sem þau sögðu. Hann heiti þvi upp hugann, og minntist á eiginorð við hana. Hún roðnaði við, en sagði ekki neitt. Svo gengu þau litla stund þegjandi, en um leið og þau skildu, rjetti hún honum hönd sína, og mælti: »Vertu sæll! Jeg skal svara þjer innan íárra daga. Þetta er ofmikið vandamál til þess, að hægt sj9 að svara því án umhugsunar«. Tveim dögum siðar fjekk hann svarið. Hún sagðist elska hann, en samt sem áður ekki vilja heita honum eiginorði, fyr en hann hetði lokið skólanámi sínu. Hann mætti vera óhræddur, hún biði þangað til. Hún elskaði hann, og sín ást myndi ekki breytast á þeim tíma. Nú áleit Hergeir sigurinn unninn og þótti, sem hann hefði himin höndum tekið. Það voru fagrar framtíðar- vonir, sem nú runnu upp í huga hans. Þær fæddust hver af annari, klæddar f'egursta skrautbúningi, svifu fram og aptur, ráku sig hver á aðra, og hurfu út í geim- inn, svo að aðrar nýjar og fegurri huldu þær sjónum. Þannig liðu árin, eins og inndæiasti draumur, þar til hann hafði lokið námi sicu með hezta vitnisburði. Hann hafði náð því takmarki sínu, áð verða meiri, en skóla- bræður hans. Og hann hafði jafnframt áunnið sjertraust og virðingu allra þeirra, er nokkur kynni höfðu af honum. • Þau höfðu opt fundizt á þessu tímabili, Hergeir og stúlkan, og talað hlýlega saman um hitt og þetta og ekki neitt, þegar engir heyrðu til. Skömmu eptir að Hergeir hafði lokið prófi, fundust þau enn þá einu sinni að máli. Það var fagurt vor- kvöld; sólin var að síga til viðar. Þau töluðu um liðna tímann, hversu rólega og þægilega hann hefði liðið, án þess að gera þeim neitt mein. Þau töluðu um það, hversu Hergeir hefði gengið námið vei, hve margar glaðar stund- ir þau hefðu lifað saman o. fl. o. fi., þar til hann að lok- um herti upp hugann, og spurði hana í lágum hijóðum, hvort hún ætlaði nú að lofa sjer því, að verða konan sín. »Nei, það ætla jeg ekki að gera«, svaraði hún. Hann leit framan í hana, lorviða; hann stóð sem högg- dofa at undrun, og gat ekkert sagt. Að lítilli stundu liðinni tók hún aptur til máls. »Jeg hefi aldrei lofað þjer því, að jeg skyldi verða konan þín, og jeg ætla mjer aldrei að lofa því. Jeg elska þig enn þá, eins og jeg hefi gert, en minni ást er eins varið, eins og þegar stúlka elskar stúlku, eða piltur pilt. Jeg ætla mjer aldrei að giptast, og aldrei að eiska öðru yísi, en svona«. »Þú hefir verið að gabba mig«, stundi Hergeir upp. Það var það eina, sem hann gat sagt. »Nei, það hefi jeg ekki gert«, svaraði hún. »Mjer átt þú það að þakka, að þú ert orðinn dugandi maður, og mikiis metinn. Þú hefir gert allt, sem þjer var auðið, til þess, að verða þess maklegur, að þú fengir mig íyrir konu, og þess ertu líka fyrir löngu síðan maklegur orð- inn, en — jeg er þess ekki verð, að þú veljir mig, þótt það hefði verið vilji okkar beggja. Vertu mjer þakklátur fyrir það, að jeg hefi gert þig að meiri manni, og svo getum við verið vinir, eins og áður«. »Já, vinir getum við verið, en ekki eins og áður«, svaraði hann. Svo kvöddu þau hvort annað, og hjeldu sína leiðina hvort. Og hvorugt þeirra var ánægt með málalokin. Hergeir var lengi fálátur eptir þetta. Fegursta von- in haiði brugðizt, hugsjónirnar orðið að reyk, og ástin verið fótum troðin. Eyrst í stað lá við sjálít, að hann hataði þessa stúlku, en svo fór hann að hugsa betur um það, sem þau hötðu talað saman, er þau fundust síðast. Og eptir því sem hann íhugaði orð hennar betur, eptir því sannfærðist hann betur og betur um það, að hún hefði í flestu eða öllu haft rjett fyrir sjer. Hann sá það vel, og kannaðist við það, að hefði vonin ekki lofað honum þessari hnoss, þá hefði hann aidrei notað krapta sína eins vei, aldrei reynt eins kappsamlega, að vinna traust og virðingu ann- ara, og yfir höfuð, aldrei breytteins vel, hvorki við sjálfan sig nje aðra. Hann hlaut að játa, að hann átti henni mikið að þakka, en hann hlaut líka að finna sárt til þess, að þnð var hún, sem hafði lítilsvirt það dýrmætasta, sem hann átti — hina hreinu og saklausu ást. Það eiu liðin mörg ár síðan þetta gerðist. Straumur tímans hefir fyrir löngu fleygt þessu atviki út í haf gleymskunnar, og þar liggur það vel geymt, innan um svo margt fleira af sama tagi. Að eins lifir endurminning- in enn i brjóstum hlutaðeigenda, og sárfáar afleiðingar hefir það lika haft í för með sjer, öðrum til leiðbeiningar eða viðvörunar. En eitt er víst, og það er það, að hann Hergeir hefir aldrei elskað neina stúlku eptir þetta. En ekki vitum vjer, hvort stúlka sú, sem sagan getur um, hefir efnt það loforð sitt, að elska aldrei karlmann, eins og stúlkur eru vanar að elska þá, enda kemur það þessu sögubroti ekkeit við. Stúlkan, hún hveríur eins og hún kom. Hergeir lifir enn þá, og þykir í hvívetna nýtur mað- ur og góður drengur. Hann komst í góða stöðu, og fjekk að því leyti til makleg laun kappsemi sinnar. Hann hefir látið sjer mjög annt um það, að hvetja menn til framtakssemi, dugnaðar og þolgæðis; og enn má opt heyra hann segja við meðhræður sína: »Setjið takmarkið hátt, því að þá munuð þið betur nota kraptana! Kljúfið þrítugan hamarinn, til þess að ná takmarkinu! Þótt þið aldrei náið takmarkinu, sem auðveldlega getur komið fyrir, þá komizt þið þó lengra áleiðis samt, ef takmarkið er hátt. Sleppið aldrei voninni, og traustinu á ókomna tímanum, því ef þið gerið það, þá er mjög hætt við því, að þið leggið árar í bát«. Þessi heilræði gefur Hergeir öðrum, og eptir þeim breytir hann líka sjálfur. En þegar sólin er að ganga til viðar, og hann situr einn úti í kvöldkyrrðinni, og horfir á hina síðustu kvöldgeisla sólarinnar iærast upp eptir fjallatoppunum, eyðast og deyja, þá grúfir sig stundum svartleitt sorgar- ský yfir sálu hans. Þessir kvöidgeislar minna hann svo sterktega á kvöld það, sem vonir hans, fegurstu framtíðarvonir hans, hnigu til viðar. Þær hurfu bak við

x

Haukur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.