Alþýðublaðið - 15.06.1939, Page 1
17. júni
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
kemur út árdegis
laugardaginn 17. júní.
SUTSTJéBl: F. K. VALDKMARSSON
ÚTGEFAMRl: AUÝBfWUMOECIHSðSf
FIMTUDAG 15. JÚNÍ 1939
134. TÖLUBLAÐ
Auglýsingar
sem koma eiga í blaðinu
17. júní þurfa að koma til
afgreiðslunnar fyrir kl. 7
annað kvöld, föstudag.
Alþýðan í Reykjavík
bfiður ef tir byggingu
iiinna ný|n bústaða.
■ ■ ■ ■■ ■ ♦--—
Pað er ekki hœgt að bfiða lengur
eftir því að framkvæmdir hefjist.
»
EINS og að líkindum lætur, birtir blað kommúnista
í dag tómar blekkingar og rangfærslur um afstöðu
Byggingarfélags alþýðu til bráðabirgðalaganna. Eftir fund
íélagsins í fyrrakvöld standa málin þannig, að félagið hefir
breytt samþykktum sínum að nokkru leyti til samræmis við
bráðabirgðalögin, en látið fylgja því skilyrði, sem að sjálf-
sögðu ekki kemur til mála að hafi gildi.
Þá er stjórnarkosning su, sem
Héðinn Valdimarsson lét fram
fara í félaginu, hrein og bein
markleysa.
Það mun reyna á það næstu
daga, hvort sú klíka innan fé-
lagsins. sem Héðinn Valdimars-
son hindrar það með ofbeldi
að félagið fái þau réttindi, sem
það þarf að hafa til þess að
vera löglegt og geta byggt
verkamannabústaði.
Allar líkur benda til þess, að
Héðinn Valdimarsson láti skap
sitt og hégómagirnd ráða meira
hér um en hagsmuni Bygging-
arfélags alþýðu.
En hvað sem hann gerir, mun
honum ekki takast að hindra
það, að hafist verði handa um
byggingu verkamannabústaða
í Reykjavík á þessu ári.
Engin lögmæt stjórn er nú í
Byggingarfélagi alþýðu, nema
hin stjórnskipaði formaður þess,
sem Héðinn Valdimarsson neit-
aði á fundinum í fyrrakvöld
um að taka við starfi sínu.
Það væri illt, ef Byggingar-
félag alþýðu hætti að geta bygt
Prh. á 4. slðu.
ðafmagn kækkar
frá áflúst-aflestri
Bæjarstjórnar-
FUNDUR verður
haldinn í dag kl. 5 í Kaup-
þingssalnum,
Aðalmálið á dagskrá
fundarins eru tillögur um
um hækkun rafmagns-
gjalda í bænum um allt að
10%.
Er þessi hækkun talin
nauðsynleg vegna hækk-
andi afborgana og vaxta
af láninu til Sogsvirkjun-
ariunar og annars erlends
láns, sem Rafmangsveitan
hefir. Talið er víst, að bæj-
arstjórn Reykjavíkur sam-
þykki þessa hækkun — og
að hún komi til fram-
kvæmda við aflestur I ág-
ústmánuði. Um leið verða
samrýmdir taxtar og
hækka þeir ekki allir jafn-
mikið.
Sklpstjórar úr Reykjavik
eg Hafnarfirði í reynsln-
för neð Hýja botnvörpu.
• ■ ' '■»..
Venus trá HafnarHrði leggnr át
f kvðld kl. 7.
-...... ■» .........
FLESTIR skipstjórar úr Reykjavík og Hafnarfirði reyna
nýja botnvörpu í nótt á togaranum Venusi, sem legg-
ur út frá Hafnarfirði um kl. 7 í kvöld. Þessi nýja botn-
varpa e>: franskt patent á vegum V. D. Ldt. í London, en
sérfræðingur firmans Mr. Hymus Jones kom hingað með
hina nýju botnvörpu með Lyru síðast.
Alþýðublaðið hefir áður skýrt
frá þessari nýju botnvörpu, en
hún er hingað komin að til-
hlutun Fiskimálanefndar og
Félags íslenzkra botnvörpu-
skipaeigenda.
Varpan hefir verið reynd og
notuð á frönskum og enskum
togurum síðasta ár og þykir
hafa gefist mjög vel.
Ýmsir hafa haldið því fram,
að botnvarpa sú, sem hér hefir
verið notuð, sé ekki sem heppi-
legust og að af því stafi
meðal annars hinn litli afli tog-
aranna. Má vera, að með hinni
nýju vörpu batni tæki hinna ís-
lenzku togara til fiskveiða, sem
geri aflann drýgri og meiri. —
Með Mr. Jones er enskur togara-
skipstjóri, sem verður með í
reynsluför Venusar í kvöld og
er þess að vænta, að förin takist
hið bezta.
Hvernig sem tilraunin tekst,
eiga þær stofnanir, sem hafa
gengist fyrir henni þakkir
skyldar fyrir að hafa hafið
þessa tilraun. Því að fyrsta skil-
B®h. i 4. sNta.
Brezkir hermenn á verði í brynvörðum bifreiðum
KORT AF KÍNA OG JAPAN.
Ofarlega á myndinni til vinstri sést milljónaborgin Tientsin,
sem nú er svo mikið umtöluð.
Tékkar fiýja Dnnvðrpnm yf-
ir landamæri Péllands.
---——♦-----
FlugmennirHÍr flýja í flugvélum sínum til
að þurfa ekki að afhenda þær Þjöðverjum
--- ». , —
LONDON í morgun. FÚ. --------
LONDON í morgun. FÚ.
JAPÖNSK yfirvöld í Tien-
tsin hafa lýst fljótið
undan borginni í hernaðará-
stand, og gera leit í öllum
skipum, sem um það fara.
Hefir því ræðismaður Breta
>ar í borginni ráðlagt brezk-
um skipum að halda sig ut-
an þessa svæðis.
Japanir hafa dregið að sér
mikið lið og eru allir her-
mannaskálar þeirra í nánd
við alþjóðahverfið fullir af
hermönnum.
Brezkir hermenn eru á
verði í alþjóðahverfinu og
fara um í brynvörðum bif-
reiðum. Fjöldi fólks bíður
við alþjóðahverfið fullir af
Einn Breti látinn ians,
annar handtekinn.
Law, brezki yfirforinginn, sem
Japanir handtóku í gær fyrir ó-
leyfilega ljósmyndatöku, hefir nú
verið látinn laus, en annar brezk-
ur maður, sem tekur fréttamynd-
ir, hefir verið handtekinn. Hann
heitir Eric Mail og var á amer-
íska fallbyssubátnum „Panay",
sem Japanir söktu.
UtanríkismálaráÖherra Kína
jsagði í gær í ræðu, að hin raun-
vemlega stefna Japana í Kína
væri sú að bola öðmm erlendum
ríkjum frá viðskiftum og öllum
áhrifum í Kína.
Cordell Hull, utanríkismálaráð-
herra Bandaríkjanna, hefir lýst
yfir því, að hann muni gera alt,
sém auðið er, til þess að liðka
málið, og sendiherra Bandaríkj-
anna í Tokio stendur í stöðugu
sambandi við hann og Roosevelt
forseta vegna þessa máls.
Kéttarhðld ðt at morð-
inn i Sinslair.
Réttarhöld em hafin út af frá-
falli biezka verkstjórans Sincla-
irs ,sem sætti hroðalegri meðferð
af japönskum sjöliðum; en hann
lézt í sjúkrahúsi í Shanghai, án
þess að brezkir sendisveitarstarfs
menn fengju leyfi til að tala við
hann. Japanir réttlættu meðferð-
ina með því, að hann hefði skotið
á sjóliðana.
Eitt vitni hefir borið, að Sin-
clair hafi skotið í jörðina fyrir
framan fætur sér, sjóliðunum til
viðvömnar.
Reykjaborg ð salt-
fiskveiðar.
Togarinn Reykjaborg er að búa
sig á saltfiskveiðar og fer að öll-
Um líkindum í kvöld. Skipið ætl-
ar að vinna úr karfanUm um
borð, en það hefir eins og kunn-
ugt er fiskimjölsvélar.
IFREGNUM frá Varsjá í
gærkveldi er skýrt frá því,
að 100 flóttamenn frá Bæheimi
og Mæri hafi komið til Póllands
í gær, og því er bætt við, að
tala flóttamannanna þar fari
vaxandi með hverjum degi.
Enn fremur er skýrt frá því,
að þýzk yfirvöld hafi látið alla
tékkneska lögreglumenn hætta
gæzlustörfum við landamærin
vegna þess. að þeir hafi verið
flóttamönnunum hjálplegir við
að komast yfir landamærin.
Flóttamenn frá Slóvakíu
koma einnig í stórum hópum til
Póllands.
Flugmennirnir þrír frá Slóva-
kíu, sem lentu í Póllandi fyrir
nokkrum dögum, segjast hafa
flogið þangað af því, að þeir
vildu ekki afhenda flugvélar
sínar Þjóðverjum.
Tuttugu slóvakiskir flugmenn
komu til Marseille í Frakklandi
í gær. Þeim var veitt viðtaka af
yfirmönnum frönsku útlendinga-
herdeildarinnar, og líklegt er, að
þessir flugmenn verði innritaðir í
einhverja flugsveit franska flug-
hersins.
Stefán Guðmundsson
óperusöngvari syngur í Gamla
Bíó í kvöld kl. 7,15. Seldust allir
aðgöngumiðar upp I gær eins
og að fyrri söngskemtun hans.
Slys á mótorhjóli
í gærkveldi.
T GÆRKVELDI veldi það slys
A til á Holtaveginum, að mó-
torhjól með 3 unglingum á datt
í tvent á fullri ferð. Slösuðust
allir, og liggur ökumaðurinn
enn meðvitundarlaus í Lantísspít-
alanum. Hann hefir að öllum
líkindum fengið heilahristing.
Um þetta leyti árs taka mótor-
hjólaeigendurnir venjulega út
hjólin og fara að þjóta um göt-
urnar. Er akstur þeirra oft mjög
ógætilegur, og er ekki ótítt að
siá tvo eða fleiri í kappakstri í
m'iðjum bænum. Er slíkur akstur
vitanlega mjög hættulegur bæði
þeim sem aka og öðrum sem um
göturnar fara. Eru ökumennirnir
allflestir unglingar og lítt vanir
öfium akstri, og ber því lögregl-
unni að vera vel á verði um að
þeir aki ekki ógætilega.
Kappleikur
verður í kvöld háður á milli
meistaraliða K .R. og Víkings.
Buchloh, annar frægasti mark-
maður Þjóðverja, verður mark-
maður Víkings á kappleiknum.
Mun eflaust mörgum leika for-
vitni á að sjá þennan fræga
markmann í kvöld.
f
Síldarsala til Þýzka
lands og ámerlfeu
Verðið ei heldur hærra
eo i (yrra.
ENDIMENN Síldarút-
vegsnefndar, alþingis-
mennirnir Erlendur Þor-
steinsson og Jóhann Þ.
Jósefsson hafa nýlega und-
irritað samninga í Þýzka-
landi um sölu á 37.400
tunnum matjessíldar og
500 tunnum Faxasíldar.
Verðið er svipað og í
fyrra á síld til Þýzkalands
og þó lítið eitt hærra. Þá
er Vilhjálmur Þór banka-
stjóri að ganga frá samn-
ingum í New York á sölu
á 22.500 tunnum matjes-
síldar til Ameríku, en það
er sama síldarmagn og selt
var til Ameríku í fyrra, og
auk þess á 7500 tunnur af
Faxasíld.
Verðið er svipað og í
fyrra. Yfirleitt gengur nú
vel um síldarsölu fyrfcp-
fram. Engin síldveiði er
fyrir norðan enn sem kom
ið er.
ðýzbi ræðismaðntlitR
I Liverpool oppvis
að njðSBBffl.
Brezka stjórnln heimtar
LONDON í gærkveldí. FÚ.
12 REZKA stjórnin hefir farið
*■“* fram á það við þý*ku
stjórnina, að hún kalli heim
ræðismann sinn í Liverpooi.
Hefir maður að nafni Kelly ver-
ið sekur fundinn um að selja
Þjóðverjum hernaðarleg leynd-
armál, og hafði hann komist í
kynni við þá, er kaupin gerðu,
fyrir milligöngu ræðismannsins.
Chamberlain sag&i í neðri mál-
stofunni í dag, að stjómin hefði
komist að þeirri niðurstöðu, að
ræðismaöurinn hefði verið við
málið riðinn, og því óskað eflir,
að hann væri kvaddur heim.
--------- 5
5000 fflaflBs hafa
sótt sjðmeflflska-
sýniflflnna.
Vaxandf aðsðkn.
PIMM ÞÚSUNDIR manna hafa
nú sótt sjómenskusýninguna
í Markaðsskálanum og er aðsókn-
in að sýningunni stöðugt vax-
andi. Nú fer að verða hver síð-
astur að sjá þessa stórmerkilegu
sýningu, því að innan fárra daga
verður henni lokað.
Allir, sem hafa séð þessa sýn-
ingu, hafa lokið á hana miklu
lofsorði, — enda er þetta ein-
hver glæsilegasta og fróðlegasta
sýning, sem hér hefir verið
haldin.