Alþýðublaðið - 15.07.1939, Side 3
LAUGARDAGINN 15. JÚLI 1939.
ALÞVPUBLAÐIO
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
RITSTJÓRI:
F. R. VALDEMARSSON.
í fjarveru hsrna:
STBFÁN PÉTURSSON.
AFGREIÐSLA:
ALÞÝÐUHÚSINU
(Inngangur frá Hverfisgötu).
SÍMAR:
4900: Afgreiðsla, auglýsingar.
4901: Ritstjórn (innl. fréttir).
4902: Ritstjóri.
t$03: V. S. Vilhjálms (heima).
4905: Alþýðuprentsmiðjan.
4Ö06: Afgreiðsla.
ÁLÞÝÐUPRENTSMIÐJAN
Sjálfstæðisblððin
við ganla hey-
garðslwrnið.
ÞAÐ þarf ótrúlega pólitíska'
þröngsýni til þess að geta
ekki viðurkennt þær stórkost-
legu framkvæmdir, sem ríkið
hefir ráðizt í hér á landi síðast-
liðinn áratug til þess að skapa
síldarútveginum svo öruggan
grundvöll, sem hægt er af
manna höndum, af því einu, að
það hafa verið Alþýðuflokkur-
inn og Framsóknarflokkurinn,
sem hafa haft frumkvæðið og
forystuna á höndum í þessari
verklegu og skipulagslegu við-
reisn síldarútvegsins.
Það varpar alls engri rýrð á
verk þessara flokka á sviði.síld-
arútvegsins, þótt síldarútgerðin
hafi á grundvelli þessara fram-
kvæmda farið svo ört vaxandi,
að nauðsynlegt hafi reynzt að
fjölga síldarverksmiðjum ríkis-
ins eða auka afkastagetu þeirra
svo að segja ár frá ári. En það
er einkennandi fyrir hinn póli-
tíska naglaskap sumra þeirra
manna, sem í Morgunblaðinu og
Vísi tala máli Sjálfstæðisflokks-
ins, að þó að þeir hafi, svo að
ségja í hverju spori, þvælzt fyrir
þfeim framkvæmdum, sem ríkið
hefir ráðizt 1 til viðreisnar síldar-
útveginum fyrir frumkvæði og
samvinnu Alþýðuflokksins og
Ffamsóknarflokksins, þá hafa
þeir aldrei látið neitt tækifæri
óhotað til þess að núa þessum
flokkum því um nasir, að ekki
hafi verið gert meira, þegar það
hefir komið í ljós, að verksmiðj-
urnar önnuðu ekki að taka. á
móti því vaxandi síldarmagni,
sem á land hefir borizt. Og það
er alveg sérstaklega Finnur Jóns
son, sá maðurinn, sem sennilega
framar öllum hefir beitt sér fyrir
hinu stórkostlega framtaki rík-
isins á sviði síldarútvegsins,
bæði í verklegum og skipulags-
legum efnum, sem Morgunblað-
ið og Vísir hafa á heilanum, þeg_
ar um vandamál þessa atvinnu-
vegar er rætt.
Þetta er því einkennilegri fram
koma af hálfu Morgunblaðsins
og Vísis, sem vitað er, að í stjórn
síldarverksmiðja ríkisins, þar
sem ekki að eins Finnur Jónsson,
heldur og tveir Sjálfstæðismenn
og tveir Framsóknarmenn eiga
sæti, er unnið mikið og óeigin-
gjarnt starf, laust við þann póli-
tíska krít, sem blöð Sjálfstæðis-
flokksins eru stöðugt að reyna
að ala á í málefnum síldarút-
vegsins. Það getur að sjálfsögðu
oi|ðið meiningamunur í stjórn
ríkisverksmiðjanna, einnig
vegna mismunandi sjónarmiða
og markmiða þéirra flokka, sem
fulltrúa eiga í henni. En það
er að minnsta kosti ekki sjáan-
legt, að þar ráði neinar tilhneig-
ingar til þess að gera velferðar-
mál síldarútvegsins, sem jafn-
framt eru ein stænrstu velferðar-
mál þj óðarheiLdarinnar, að
neinum póíitískum togstreitu-
málum, eins og gert er svo að
segja við hvert tækifæri bæði
í MorgunbLáðinu og Vísi.
Nú hefir hin mikla auknihg
síldarflotans í ár samfara óvenju
legum afla í nokkra daga um
síðustu helgi enn einu sinni leitt
nauðsyn þess 1 ljós, að auka af-
kastagetu síldarverksmiðjanna,
til þess að þær geti tekið á móti
því vaxandi síldarmagni, sem
að landi berst. Og það gildir ekki
aðeins síldarverksrniðjurnar á
Siglufirði, heldur og síldarverk-
smiðjuna á Raufarhöfn, þar sem
í ráði hefir verið að reisa nýja
ríkisverksmiðju og stjóm ríkis-
verksmiðjanna beútt sér sterk-
lega fyrir því, þótt framkvæmd-
ir hafi dregizt af hendi ríkis-
stjórnarinnar af því, að fé hefir
hingað til vantað til þeirra.
Þetta tækifæri hafa nú bæði
Morgunblaðið og Vísir, að göml-
um vana, gripið til þess að reyna
að breiða út þau ósannindi, að
Finnur Jónsson hafi verið þeim
framkvæmdum mótfallinn á
Raufarhöfn, sem nauðsynlegar
hafi verið. Það er sami andinn,
sem lýst hefir verið hér á undan,
sama flokksofstækið gagnvart
Finni Jónssyni. Að vísu varð
Morgunblaðið strax daginn eft-
ir, að það fór með þetta fleipur,
að éta það aftur ofan í sig í leið-
réttingu, sem það vaxð að birta
frá Sveini Benediktssyni, þess
efnis, að »011 verksmiðjustjórnin
stæði einhuga um nýju verk-
smiðjuna á Raufarhöfn og þá
afkastagetu, sem henni hefði
verið fyrirhuguð. En hneysa
Morgunblaðsins af þessu síðasta
frumhlaupi sínu var þó þar með
ekki á enda, því að samdægurs
neyddist einnig hinn Sjálf-
stæðismaðurinn í verksmiðju-
stjórninni til þess að láta, ásamt
Finni Jónssyni, bóka á fundi
hennar afdráttarlausa yfirlýs.
ingu á móti þessum pólitíska
rógburði flokksblaðs síns um
fulltrúa Alþýðuflokksins í verk-
smið j ust j órninni.
Það er mjög ólíkt, sem
Sjálfstæðisblöðin og Finnur
Jónsson hafast að í málum síld-
arútvegsins. Fyrir þau eru við-
fangsefni hans fyrst og fremst
tækifæri t-il þess að ráðast á
pólitískan andstæðing. Fyrir
Finn »Jónsson eru þessi við-
fangsefni vandamál, sem þarf
að leysa í verki til þess að
tryggja framtíð síldarútvegsins
og allra þeirra, sem eiga af-
komu sína undir honum, eins
og hann hefir enn á ný sýnt
með hinum ákveðnu tillögum
um stækkun síldarverksmiðj-
anna, sem hann ásamt Jóni
Þórðarsyni hefir nú lagt fram í
stjórn ríkisverksmiðjanna.
Bínhemileg sam-
gykht.
MORGUNBLAÐIÐ flutti þá
frétt í gær, að málfundafé-
lagið Óðinn hefði á nýafstöðnum
„mjög fjölmennum“ fundi, gert
samþykkt um byggingamál
verkamanna, þar sem félags-
málaráðherra hefði í sambandi
við stofnun hins nýja Bygging-
arfélags verkamanna verið vítt-
ur fyrir ‘„tilraun til að gera
byggingasamtök verkamanna að
pólitískum leikvelli ævintýra-
manna,“ ef blaðið fer rétt með
samþykktina, og jafnframt fyrir
það, að snúa sér ekki til hins
svonefnda Byggingarfélags
sjálfstæðra verkamanna í stað
þess að stofna nýtt félag.
Það er ótrúlegt, að slík sam-
þykkt hafi verið gerð á fjöl-
mennum fundi, jafnvel þótt
F,Ég vlldl ekki taka að
mér að stjórna IslandlM.
Við lifum of dýru Ififi í okk-
ar stóra og fámenna landi.
+
Ummæli Norðmannsíns dr. Axel
Somme f viötall við Alþýðublaðið
„E
G myndi ekki vilja
taka að mér að stjórna
íslandi, og stýra því á næstu
árum gegn um fjárhagslega
og atvinnulega örðugleika,“
sagði dr. Axel Sömme,
prófessor í landfræðilegri
hagfræði við verzlunarhá-
skólann í Björgvin við tíð-
indamann Alþýðublaðsins í
fyrradag. Kunnastur er dr.
Sömme fyrir rit sín um rík-
isbúskap Norðmanna, kosn-
ingastefnuskrá norska Al-
þýðuflokksins og fleiri slík
rit.
Dr. Sömme kom hingað með
þátttakendunum í norræna
mótinu á Laugarvatni, en síð-
an því lauk, hefir hann ferðast
um Norðurland og komið víða
við á Suðvesturlandi. Þá hefir
hann talað við fjölda kunnra
manna í atvinnumálum og
stjórnmálum íslands og kynnzt
vel ástandi atvinnuveganna.
Mörgum lesendum Alþýðu-
blaðsins mun hann vera kunnur
af kaflanum um Norðurlönd í
bók MFA, „Lönd og ríki.“ Hann
er sniðinn eftir tilsvarandi kafla
eftir dr. Sömme í hinni norsku
útgáfu þeirrar bókar.
—; Hvers vegna vilt þú ekki
taka þetta að þér?
,,Ég veit ekki, hvernig þið ís-
lendingar takið slíkum ummæl-
um ókunnugra manna, en ég
verð að segja það, að ég óttast,
að mér myndi ekki takast að
kenna ykkur meiri sparnað. Þið
eyðið geysimiklu, miklu meiru
en þið þurfið ög þið hafið ráð á.
Þið hafið allt of marga bíla,
klæðizt of dýrum fötum, sér-
staklega þó kvenfólkið, þið
byggið of dýr hús. Þið hafið
ekki ráð á því, að hafa stærri í-
búðir en þið þurfið að nota, en
það hafið þið margir. Reykjavík
er allt of stór, verzlanir of
margar og á mörgum öðrum
sviðum lifið þið .yfir efni fram.“
— En gerið þið Norðmenn
ekki þetta líka?
„Það má ef til vill segja það.
En landið okkar er ríkara og
við erum svo margfalt fleiri.
einhver kunni að hafa verið svo
glórulaus að gefa henni at-
kvæði sitt. Það mætti sjálfsagt
með sanni segja, að bæði Bygg-
ingarfélag alþýðu, sem er undir
óstjórn kommúnista og Bygg-
ingarfélag sjálfstæðra verka-
manna, sem eingöngu er skipað
Sjálfstæðismönnum, séu póli-
tískur leikvöllur ævintýra-
manna. En um hið nýja Bygg-
ingarfélag verkamanna er slík
staðhæfing blátt áfram hlægi-
leg.' — í því eru verka-
menn að minnsta kosti af þrem-
ur flokkum og stjórn þess skip-
uð mönnum úr þeim öllum. Og
þar sem það byggingarfélag
eitt uppfyllti skilyrði laganna
um verkamannabústaði með á
orðnum breytingum, gat vitan-
lega ekki komið til mála að
veita neinu öðru félagi þau rétt-
indi, sem Byggingarfélag al-
þýðu hafði glatað fyrir lög-
leysur kommúnista.
DR. AXEL SÖMME.
Þið megið aldrei gleyma því, ís-
lendingar, að þið byggið stórt og
erfitt land, og eruð svo fáir.
Þess vegna þurfið þið að leggja
svo miklu meira fram, miðað
við hvern einstakling, til þess
að ;gera landið ykkur undir-
gefið, en aðrar þjóðir. Þetta
finnst mér einmitt vera höfuð-
atriðið í því, hvernig þið eigið
að lifa í ykkar fagra landi. At-
vinnuvegir ykkar eru einskorð-
aðir, og ég get ekki séð, að til
dæmis landbúnaður ykkar eigi
mikla vaxtarmöguleika, hins
vegar er það ekki vansalaust af
ykkur, að kaupa kartöflur frá
útlöndum. þær getið þið frám-
leitt sjálfir nægilegar handa
ykkur. Mér finnst, við fljótlegt
yfirlit, að atvinnuvegir ykkar
séu svo mikið happdrætti. Ef
vel gengur með þá, eru erfið-
leikarnir viðráðanlQgir — og;
vel það, en ef illa fer, afli bregzt
til dæmis, er stór hætta á ferð-
um, og maður verður allt af að
gera ráð fyrir slíku. Þið hafið
líka reynslu, og hana dýr-
keypta, af togaraútgerðinni. Af
því að ekki var hugsað fyrir
erfiðu árunum, meðan allt lék
í lyndi, verða erfiðleikarnir ó-
viðráðanlegir, þegar þeir koma,
og nú verðið þið að súpa seyðið
af ráðsmennsku fyrri ára. Hins
vegar hefi ég sannfærzt um
það, að íslendingar eru fram-
úrskarandi duglegir, og ég
treysti þeim manna bezt til að
mæta erfiðum tímum, en þarna
eru þó takmörk, og ef ég væri
alls ráðandi hér til lands og
sjávar, þá myndi ég reyna að
taka fyrir eyðslu þjóðarinnar í
ýmsum greinum. Atvinnuveg-
irnir eru undirstaða alls, og allt
líf þjóðarinnar verður að miðast
við þá.“
— Þú hefir heimsótt marga
alþýðuskóla. Eru þeir ekki of
stórir og of dýrir líka?
„Nei, það finnst mér ekki.
Þetta eru fyrirmyndarskólar.
Ég skal segja þér, hvers vegna
ég tel, að þar séuð þið á réttri
leið: Ég er nefnilega sannfærð
ur um, að ísland getur haft
mjög miklar tekjur af erlend-
um ferðamönnum. Þið getið ekki
fengið hingað erlenda eyðslu-
seggi, værukæra letimaga, sem
verða að hafa lúxus allt í kring
um sig. Þið getið fengið mikið
af ferðamönnum til að ganga á
fjoll og jökla, fara ríðandi um
landið o. s. frv. Skólamir ykkar
geta orðið miðstöðvar fyrir
slíka ferðamenn. Þið eigið að
skipuleggja slíkar hópferðir á
hverju sumri og auglýsa um
allan heim. Þið eigið að taka
alla farkosti í þjónustu ykkar í
slíkum ferðalögum, til þess að
skapa fjölbreytni. Þúsundir og
tugir þúsunda koma árlega
heim til Noregs til að klífa fjöll-
in okkar, og við rökum saman
fé af þessu fólki, en ég fullvissa
þig um, að ykkar fjöll eru betri
•— ykkar -náttúra æfintýralegri.
Þarna er áreiðanlega möguleiki
til að skapa nýjan, góðan at-
vinnuveg. Og ég veit, að dugn-
aður íslendinga getur skapað
þennan nýja atvinnuveg.“
— Hvers vegna getum við
ekki náð í letimagana?
,,Þið hafið ekki gistihús fyrir
þá, þið eigið ekki nægileg þæg-
indi, eða lúxus, og hafið ekki
ráð á því fýrst um sinn. Slíkur
lúxus væri og ekki i samræmi
við náttúru landsins. Haldið
ykkur að hinum, unga og kraft-
mikla fólkinu, sem vill sækja
eftir stórfeldri náttúru og rann-
sókn hennar. Slíka náttúru eig-
ið þið.“
—» Segðu eitthvað fleirra gdtt,
„Finnst þér ekki nóg komið,
Það má vera, að einhverjura ís-
lendingi þyki þetta, sera ég hefi
sagt, of raikil bersögli, en ég
get ekki verið að segja annað
en ég meina, og ég býst við,
að nóé af faguryrðum klyngi
í eyrum ykkar íslendinga dags
daglega frá útlendingum.“
Póstferðir 18. júlí.
Frá Reykjavík: Mosfellssveitar-,
Kjalamess-, Kjósar-, Ölfuss- og
Flóapóstar, Þingvellir, Laugar-
vatn, Þrastaíundur, Hafnarfjörð-
ur, Biskupstungnapóstur, Borgar-
nes, Akranes, Norðanpóstur,
Dalasýslupóstur, Barðastrandar-
póstur, Snæfellsnesspóstur, Með-
allands- og Kirkjubæjarklausturs-
póstur, Grímsnesspóstur. — Til
Reykjavíkur: Mosfeilssveitar-,
Kja arness-, Kjósar-, Reykjaness-,
Ölfuss- og Flóa-póstar, Þingvell-
ir, Laugarvatn, Þrastalundur,
Hafnarfjörður, Fljótshlíðarpóstur,
Austanpóstur, Borgarnes, Akra-
r.es, Norðanpóstur, Stykkishólms-
póstur. Dettifoss frá Hull og
Hamborg.
■pimiH
■ Blömabúðin
Austurstræti 10.
Sími 2567.|
iíniuaniHiii
i
Næsta hraðferð
til Akureyrar
er á Mánudag
1580 SíeiDdór.
Mlkll verðlækkun á
Tómötum.
Fást í öllum matvöruverzlunum.
Orðsendmg
til kaupenda út um land.
Munið að Alþýðublaðið á að greiðast fyrirfram
ársfjórðungslega. — Sendið greiðslur yðar á
réttum gjalddögum, svo sending blaðsins trufl-
ist ekki vegna greiðslufalis.
Þeir, sem óska, geta fengið blaðverðið krafifi
með póstkröfu.
RIDER HAGGARD:
KYNJALANDIÐ
Spennandi frá upphafi til enda, 528 bls. í stóru breti.
KOSTAR AÐEINS KR. 3,00.
Rider Haggard er heimsfrægur fyrir Afríkusögur sínar.
Margir kannast við Náma Salómons og Hvítramannaland,
sem báðar hafa komið út á íslenzku. Kynjalandið er em af
beatu sögum Rrder Haggards.
Fæst í afgreiðslu Alþýðublaðsins, Hverfisgötu 8, Rvfk.