Alþýðublaðið - 24.07.1939, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 24.07.1939, Blaðsíða 3
MÁNUDAG 25. JÚLÍ 1939 ALÞYÐUBLAÐIÐ ng er f baráttn alpýðnnnar. ----..... Ræða Magnus Nilssen f Rauðhólum í gær —---+■--- TJ'* INING alþýðunnar er lífsskilyrði hennar. Hún hefir ekki ráð á því að láta aukaatriði, smávægilegar erj- ur eða mismunandi skoðanir í einstökum atriðum tvístra sér. Við Norðmenn getum talað af reynslu um þetta, því að óeining og sundrung hefir óvíða herjað samtök alþýðunn- ar eins miskunnarlaust og í Noregi. Með látlausri, markvissri baráttu verður alþýðan smátt og smátt að byggja samtök sín, skapa þeim fyrst grundvöll og sækja síðan fram. í hvert sinn, sem sigur hefir unnizt á, jafnvel hversu smávægilegt sem það er, verður að styrkja það og undirbyggja, með því — og með því einu. er hægt að komast að markinu: frjálsu verkafólki, heilsteyptu og heilbrigðu þjóðfélagi, þar sem allir lifa jafn réttháir og frjálsir í andlegum og atvinnulegum skilningi.“ Iijúkrunarkonurnar á Þingvöllum í fyrradag. Pálmi Hannes- son skýrir á Lögbergi sögustaðinn fyrir hinum erlendu gestum. Hátiðleg setotog hjákrnn- arkvennamðtsins i gær. .....------- Salurinn í Gamla Bió skreyttur blóm- um og fánum allra Morðurlandaþjóðanna «-------------------------1 ALÞÝÐUBLAÐIÐ RITSTJÓRI: F. R. VALBEMARSSON. í fjarveru hana: STEFÁN PÉTURSSON. AFGREIÐSLA: ALÞÝÐUHÚSINU (Inngangur frá Hverfisgötu). SÍMAR: 4900: Afgreiðsla, auglýsingar. 4901: Ritstjórn (innl. fréttir). 4902: Ritstjóri. 4903: V. S. Vilhjálms (heima). 4905: Alþýðuprentsmiðjan. 4906: Afgreiðsla. 5021: Stefén Pétursson (heima). ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN ♦-------------------------♦ Norræn verka- lýðshrevfíng. TLS" EIMSÓKN nokkurra þekkt- ustu forvígismanna AlþýÖu- flokkanna og verkalý'öshreyfing- arinnar á Norðurlöndum, siem ikomu hingað í gærkveldi tii þess að sitja hér fulltrúafund nor- rænna alþýðusamtaka, þann fyrsta, sem haldinn er hér á landi, er þýðingarmikill viðburð- ur í sögu íslenzku verkalýðs- hreýfingarinnar. Meðal Alþýðuflokkanna og verkalýðssamtakanna annars stað- ar á Norðurlöndum hafa slíkar heimsóknir o,g slíkir fundir um langt skeið verið árlegir viðburð- ir úg átt mjiöig verulegan þátt í því að skapa og móta það, sem um allan heim er viðurkennt iog virt í dag sem norræn verka- lýðshreyfing. Nú heimsækja nokkrir þekktustu fulltrúar henn- ar í fyrsta sinn Alþýðuflokkinn og verkalýðssamtökin hér á landi til sameiginlegs fullti'úa- fundar. Með því er undirstrikað sterkara en nokkru sinni áður, að einnig íslenzki Alþýðuflokkur- inn og íslenzku verkalýðssamtök- in tilheyra hinni norrænu verka- lýðshreýfingu. Og þó að þar með sé ekki annað viðurkennt en það, sem Alþýðuflokkurinn og verkalýðs- hreyfingin hér á landi hafa- frá upphafi verið sér meðvitandi, þá fögnum við þessari heimsókn og þeirri viðurkenningu, sem í henni felst. Pví að tilheyra hinni norrænu verkalýðshreyfingu er aðalsmark á okkar tímurn. Hvergi í heiminum stendur verkalýðs- hreyfingin í dag eins föstum .fót- Um og á Norðurlöndum, ’ og livergi hefir hún unnið stærri sigra í baráttunni fyrir bættufn kjörum hins vinnandi fólks. Á þeim alvarlegu oig órólegu tím- um, sem yfir heiminn hafa geng- ið síðustu áratugi og í ýmsum löndum hafa leitt til þess, að verkalýðshreyfingin hefir í bráð verið bæid niður af blóðugu ein- ræði og ofbeldi, hafa Alþýðu- flokkarnir og verkalýðssamtökin á Norðurlöndum staðið af sér allar öfgar og starfað svo mark- visst að friðsamlegum umbótum á lífskjörum alls hins vinnandi fólks, að einræði og ofbeldi, hvort heldur í mynd nazismans eða kommúnismans, hefir engar rætur náð iað festa í löndum þeirra. Pað er ekkert skrum, heldur sannieikur, sem viður- kenndur er af öllum, sem fylgzt hafa með þjóöíélagsþróuninni úti um heim hina síðustu áratugi, að það er fyrst og fremst hinni norrænu verkalýðshreyfingu að þakka, að friður, frelsi og lýð- ræði á sér öruggara heimkynni á Norðurlöndum í dag, en nokk- urs staðar annars í heiminum. Alþýðuflokkurinn og verkalýðs- samtökin eru yngri og óreynd- ari á íslandi en í Danmörku, Þetta var höfuðinntakið í ræðu Magnus Nilssen Stórþings- forseta og varaforséta norska Alþýðuflokksins í Rauðhólum í gær. Þegar hann kom þangað, ásamt Stefáni Jóh. Stefánssyni frá Þingvöllum; þar voru hinir norrænu gestir í gær, var hon- um vel fagnað. Áður en Magnus Nilssen tók til máls, kynnti St. J. St. hann fyrir fólkinu, en síðan hóf hann ræðu sína. Stóð í-æðan í tæpa hálfa klukkustund. Veður var hið bezta meðan ræð- an var flutt, og fólk lá allt í kring um ræðupallinn. Við voinm fðir »g smðir. Magnus Nilssen hóf ræðu sína með því að biðjá afsökunar á því, að hann skyldi ekki geta flutt ræðu sína á íslenzku, en sér væri hins vegar huggun í því, að íslendingar, margir að minnsta kosti, myndu skilja sig. Hann lýsti nokkuð sögu norska Al- þýðuflokksins. „Fyrst vorum við aðeins lítill hópur manna, sem börðumst fyrir hugsjónum jafn- aðarstefnunnar. Og við máttum sannarlega þola ofsóknir, háð, spé og svik. En það fékk ekki á okkur. Fyrsta verkalýðsfélagið í Noregi var stofnað 1874 og fyrsta flokksfélagið 1884. Á þessum tímum var verkalýðurinn að öllu ofurseldur atvinnurekandan- um, sem boðaði og bauð, en verkamannsins skylda var að hlýöa möglunarlaust, eða þolaf það að verða kastað út. Smátt og smátt óx hreyfingin Noregi og Svíþjóð. Þa,ð er af þeirri ástæðu, að þau hafa hér orðið fyrir alvarlegri áföllum af völdum þeirra öfga, sem borizt hafa utan úr heimi undanfarna tvo áratugi, en ekki af hinu, að stefnan sé ekki sú sama og ann- ars staðar á Norðurlöndum. Al- þýðuflokkurinn hér á iandi hefir frá upphafi tekið sér bræðra- flokkan-a þar til fyrirmyndar og starfað á lýðræðisgrundvelli eins og þeir, að friðsamlegum umbót- um á stjórnarfari, atvinnuháttum og öllum lífskjörum hins vinn- andi fólks. Hann á að sjálfsögðu aldurs síns vegna mikið eftir ó- unnið af því, sem Alþýðuflokk- arnir í Danmörku, Noregi og Svíþjóð hafa þegar gert. En hann stendur eftir þá storma, sem yfir hann hafa gengið, í dag meira einhuga um stefnu hinnar nor- rænu verkalýöshreyfingar en nokkru sinni áður í fullri vissu þess, að hún muni í framtíðinni einnig bera þann árangur fyrir lalþýðuna hér á landi, í baráttu hennar fyrir frelsi, lýðræði, jöfn- uði og bættum lífskjörum, sem liún hefir þegar borið meðal frændþjóða okkar á Norður- löndum. og efldist; hún varð að þola maiiga ósigra, en þeir stæltu okk- ur, Qg sundrungin kenndi okkur betur en margt annað, þó að erfitt væri að berjast á þeim ár- um, þegar jafnvel þrír flokkar voru til í Noregi, sem töldu sig verkalýðsflokka. f dag eflagasti flokkur landsins. Nú er þetta allt gjörbi"eytt. Verkalýðurinn á svo að segja, einhuga samtök, því að klofn- ingsmenn heyrast ekki í okkar röðum. Alþýðuflokkurinn er öfl- ugasti flokkur landsins, hefir 70 þngmenn af 150 og fer með völd- in. Verkamaðurinn er orðinn jafn rétthár og atvinnurekandinn; nú sitja þeir við sama borð og semjá um sín mál. Með löggjöf og verkalýðsbaráttu hefir flokkurinn og Alþýðusambandið skapað þessi straumhvörf. Aðalbaráttumál okkar er að vernda lýðræðið og alþýðustjórn- ina. Þetta er eðlilegt, þegar menn hafa í huga þá tírna, sem við lif- um á, þegar einræði og ofbeldi brýtur réttindi fólksins og sjálfs- forræbi og einræðisstefnur vaða um löndin eins og eyðandi plág- ur. Við skiljum það, norskir Al- þýðuflokksmenn, sem nú berum fulla ábyrgð á landi og þjóð, að þetta verður að vera okkar höfuðviðfangsefni, hvað sem öðru líður. En jafnframt sækjum við fram að því marki að auka velmegun alþýðunnar. Alþýðan, hið vinn- andi fólk, er framleiðslustéttin, sem allt þjóðfélagið byggist á. Þess vegna störfum við fyrst og fremst að því, að bæta þjóðfé- lagslega aðstöðu þess. Það ger- um við með margs konar trygg- ingarlöggjöf. Við tryggjum þeim, sem slitið hafa kröftum sínum í þágu framleiðslunnar, þolanlegt líf á ævikvöldinu, við tryggjum verkamanninn, sjómanninrt og verkakonuna gegn slysum, við tryggjum alla þjóðina gegn sjúk- dómum. Þannig aukum við sam- ábyrgð allra þjóðfélagsþegnanna, kennum þeim samstarf og sam- hjálp, sönnum, að allir eru bræður og að hver á að hjálpa öðrum. Við berjumst af oddi og egg gegn einu mesta böli nútímans: atvinnuleysinu. Af 600 milljónum, sem fjárlög okkar hljóða upp á, eyðum við 200 milljónum til at- vinnu og framkvæmda. Við höf- um á þessu 41/2 ári, sem Alþýðu- flokksstjórnin hefir farið með völd, getað minnkað atvinnuleys- ið um helming, en það var á- kaflega mikið hjá okkur.“ Að lokum sagði Magnus Nils- sen: „íslenzk alþýðuhreyfing er sú yngsta á Norðurlöndum; þó veit ég það, að hún hefir unnið stærri sigra en okkur tókst á jafn iöngum tíma í upphafi. Mitt hlutverk hér er að bera íslenzk- um verikalýð og samtökum hans bróðurkveðju norska verkalýðs- ins. Ég geri það hér með með þeirri ósk, að innan skamms tíma verði íslenzk alþýðuhreyfing voldug og sterk, sem ég er og sannfærður um að hún verður, þegar henni vex aldur. Á öllum Norðurlöndum á stefna Alþýðu- flokkanna nú vaxandi fylgi að fagna. Alþýðuflokkurinn hér á -Islandi hefir' nú þegar mikil á- hrif, og stefiva hans er sú sama, sem við aðrir Alþýðuflokksmenn á Norðurlöndum fylgjum.“ Eftir ræðuna var leikinn norski þjóðsöngurinn; þá sa,gði St. J. St- nokkur orð, og hrópaði mann- fjöldinn ferfalt húrra fyrir Magnus Nilssen og norsika Al- þýðuflokknum, en síðan voru leiknir þjóðsöngvar Danmerkur, Svíþjóðar og íslands og loks al- þjóðasöngur jafnaðarmanna. Sicemmtunin í Rauðhólum var vel sótt. Veður var ágætt, en við og við komu smáskúrir. Odd- ur Óiafsson, formaður Rauðhóla- nefndar, setti skemmtunina, en síðan talaði Haraldur Guðmunds- son. Lúðrasveit Reykjavíkur lék álltaf við og við. Þegar líða tók á daginn hófust ýmsar smá- skemmtanir, og í gærkveldi var dansað. Afmælismót K. R. er í kvöld. IKVÖLD fer fram á íþrótta- vellinum merkilegt íþrótta- mót, sem K. R. heldur í sam- bandi við 40 ára afmæli sitt. Verður keppt í þessurn greinum: 800 m. hlaupi, langstökki, kúlu- varpi, stangarstökki, sleggju- kasti, 200 m. hlaupi ög 300 m. hlaupi. Verða keppendur 28 tals- ins og þar á meðal flestir beztu íþróttamenn landsins. í 800 m. hiaupinu eru mikiar líkur á því, að Sigurgeir bæti hið gamla met Geirs Gígju, og er það ein trygg- ing þess, að margt skemmtilegt verður að sjá, því að 800 m. hlaup er einhver sú allra skemmtilegasta íþrótt, sem til er. í iangstökkinu verður án efa hörÖ keppni milli þeirra níu þátttak- enda, sem skráðir eru, og hver veit, nema Kristján ryöji metinu í kúluvarpinu, þegar hann kernur í keppnina við Sigurð Finnsson. Stangarstökkið verður einvígi milli Þorsteins Magnússonar og Hallsteins Hinrikssonar, og í sleggjukasti mætast þrír góðir menn. í hiaupunum tveim má bú- ast við góðum tímum af mörgum mönnum. Allt þetta sýnir, að yiargt verður athugavert að sjá, og ættu bæjarbúar að fjölmenna á mótið. Það hefst kl. 8V2. Otiíþróttamót hér á landi hafa haft illt orð á sér fyrir það, hve mikill snigilsgangur væri á þeim. Nú hafa íþróttamenn á- kveðið, að hrista þetta óorð af sér, og má telja víst, að á rnánu- daginn muni allt ganga vel og skipulega. IVf ÓT norrænna hjúkrun- T arkvenna, það 6. í röð- inni, hófst í gær með guðs- þjónustu í dómkirkjunni, og messaði Sigurgeir Sigurðs- son biskup. Úr kirkjunni gengu hjúkrunarkonurnar fylktu liði í Gamla Bíó, þar sem mótið var hátíðlega sett. Bar salurinn í Gamla Bíó — og þó sérstaklega sviðið, greinileg merki þeirrar há- tíðar, sem þarna átti fram að fara. Fánar allra Norður- landaþjóðanna hengu þar hlið við hlið, danski, sænski, íslenzki, norski og finnski — en fremst var allt blómum skrýtt. Uppi á sviðinu sátu formenn allra hjúkrunar- kvennafélaganna og nokkrar aðrar hjúkrunarkonur, er gegna trúnaðarstörfum fyrir stétt sína. Gestir voru margir, þ. á. m. forsætisráðherra, horgarstjóri, biskup, sendiherrar Norður- landanna, að þeim sænska und- anteknum, sem nú dvelur á Siglufirði, og nokkrir læknar og prestar. Setniogarræða og ávörp. Setningarhátíðin hófst með því, að hljómsveit, undir stjóm V. von Urbantschitsch lék há- tíðahljómleika. Að því loknu bauð varaformaður Félags ís- lenzkra hjúkrunarkvenna, — Kristín Thoroddsen, gestina velkomna til þessa 6. móts norrænna hjúkrunarkvenna, með þeirri ósk, að þetta mót mætti .verða þeim ánægjulegt og gagnlegt, því að ,,það hefir lengi verið von okkar á Islandi — að geta boðið til hjúkrunar- kvennamóts hér, til þess að þakka fyrir alla þá gestrisni og velvild, sem okkur hefir verið sýnd, þegar við höfum heim- sótt bræðraþjóðirnar.“, Pétur Halldórsson borgar- stjóri bauð hinar erlendu hjúkr. unarkonur velkomnar, með þeirri ósk, að hver einstök hjúkrunarkona mætti minnast dvalarinnar hér á Islandi með hlýjum hug, og að þessi heim- sókn þeirra mætti verða til þess að tengja bræðraböndin enn fastar milli Norðurlandaþjóð- anna. Þá setti Sigríður Eiríksdóttir, formaður „Samvinnu hjúkrun- arkvenna á Norðurlöndum,“ mótið með stuttri setningar- ræðu, þar sem hún sagði m. a.: „Við höfum freistað gæfunnar og tekið að okkur að halda hjúkrunarkvennamótið hjá okk- ur að þessu sinni, og við vonum að það megi verða okkur öllum til mikils gagns og ánægju. Lýsi ég því 6. mót „Samvinnu hjúkrunarkvenna á Norður- löndum“ sett.“ Að því loknu hófust ávörp formanna hjúkrunarkvennafé- laganna, og talaði fyrst frá Danmörku: Elisabeth With. Frá Finnlandi: Maj-Lis Juslin. Frá Noregi: Bertha Helgestad. Frá Svíþjóð: Elisabeth Lind. Þökk- uðu þær allar hinum íslenzku stéttasystrum sínum fyrir að hafa boðið þeim hingað til ís- lands, og lauk sú síðasta ávarpi sínu með því að segja, að „við höfum allt frá því, að ákveðið var að halda hjúkrunarkvenna- mót á íslandi, hlakkað til þeirr- ar stundar að það yrði, og nú, þegar við höfum komið hingað og dvalið aðeins einn dag, þá erum við þegar farnar að hlakka til að heimsækja ísland aftur.“ Að hverju ávarpj loknu lék hljómsveit þjóðlög viðkomandi lands, og risu þær tæplega 600 hjúkrunarkonur, sem þarna voru saman komnar, úr sætum sínum og sungu með. Setningar- hátíðinni lauk með því, að þjóð- söngur íslands var leikinn og sunginn. Brindi fiutt i gær. Fundur hófst á ný með því, að sýnd var Íslandskvikmyndin eftir Dam sjóliðsforingja, og að henni lokinni voru lesnar skýrslur frá ritara og gjaldkera hjúkrunarkvennasambandsins. „Kröfur þjóðfélagsins til h júkr unark venna“ var fyrsta mál á dagskrá fundarins kl. 3V2 og hafði framsögu í því ung- frú Marie Madsen frá Dan- mörku. Sagði hún m. a.: „Þjóð- félagið gerir miklar kröfur til okkar, og á líka að gera það, því við kynnumst kostum þess og þá ekki síðum göllum, betur en margar aðrar stéttir, og því verðum við að finna til þeirrar ábyrgðar, sem á okkur hvílir. Það er þjóðfélagið, sem trúir okkur fyrir umsjá hinna sjúku, og felur okkur einnig að kenna okkar ungu stúlkum hjúkrun, og ríður ekki hvað sízt á því, að það sé vel gert, að okkur takist að vinna traust nemend- anna til okkar, og að þær kunni að treysta sjálfum sér. Við verð- um fyrst og fremst að komast í samband við þá, sem við eigum Frh. á 4. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.