Alþýðublaðið - 26.07.1939, Síða 1
ALÞTÐUBUÐIÐ
BITSTJÓEÍ: F. R. VALDRMARSSON
ÚTGEFAMOI: ALÞÝMJFLOSMmtMM
XX. Axgangur
5MIÐVIKUDAGINN 26. júlí 1939
169. TÖLUBLAÐ
Þúsundir Reykvikinga hlustuðu á full
trúa norrænu Alþýðuflokkanna tala.
--«--
Hedtoft-Hansen: Alþýðnflokkar allra Norð-
urlanda hafa sðmu stefnu og starfsaðferðlr.
ÚSUNDIR Reykvíkinga
voru á Arnarhóli í gær-
kveldi á fundi þeim, sem Al-
þýðuflokkurinn boðaði til
þar. Veður var eins gott og
frekast varð ákosið blæja
logn og hiti. Þegar kl. tæp-
lega 8 byrjaði fólk að
streyma á fundarstaðinn, og
var túnið orðið fullskipað
fólki Hverfisgötu- og Kalk-
ofnsvegar-megin, er fundur-
inn hófst. Hlustaði hinn mikli
mannfjöldi af lifandi athygli
á alla ræðumennina.
Fundarstaðurinn var
skreyttur með fánum allra
Norðurlandaþjóðanna auk
flokksfána. En ungir Alþýðu-
flokksmenn stóðu heiðurs-
vörð við ræðustólinn.
Stefán Jóh. Stefánsson setti
fundinn, en áður hafði Lúðra-
sveit Reykjavíkur leikið nokkur
lög. St. J. St. kynnti hina er-
lendu gesti fyrir mannfjöldan-
um og skýrði frá erindi þeirra
hingað, að sitja fund hinnar
norrænu samvinnunefndar Al-
þýðuflokkanna og Alþýðusam-
bandanna. Hann fagnaði komu
þeirra hingað og benti á það, að
íslenzk verkalýðshreyfing gæti
margt lært af þessum kunnu
forvígismönnum alþýðunnar á
Norðurlöndum, sem hefir skap-
að sér öflugri samtök, fagleg og
stjórnmálaleg, en nokkur dæmi
eru til annars staðar.
St. J. St. tilkynnti einnig, að
fulltrúi norska Alþýðuflokksins,
Magnus Nilssen, gæti ekki mætt
á fundinum. Magnus Nilssen
stjórnaði á sama tíma boði full-
trúanna á fundi norrænu félag-
anna, sem haldið var um borð í
Stavangerfjord.
Hedtoft-Hansen, formaður
danska Alþýðuflokksins, talaði
fyrstur hinna erlendu fulltrúa.
Stóð ræða hans yfir i tæþan Vá
tíma. Ræða hans og annarra er-
lendra ræðumanna á fundinum
verður birt hér í blaðinu á
morgun og næstu daga. Hed-
toft-Hansen er afburða ræðu-
maður, einhver málsnjallasti
maður, sem heyrzt hefir til hér á
opinberum fundi. Hann talaði
um stefnu Alþýðuflokkanna,
baráttu þeirra fyrir lýðfrelsi og
menningu. Hann réðist gegn
einræðisstefnunum, fasisma og
kommúnisma. Hann minntist
Jóns Baldvinssonar sem for-
ingja íslenzkrar alþýðu, og
kvað íslenzkan verkalýð hafa
verið hamingjusaman að hafa
eignazt slíkan foringja. Hann
lauk orðum sínum með því að
segja, að allir Alþýðuflokkarnir
á Norð.urlöndum, á íslandi, í
Danmörku, Noregi, Svíþjóð og
Finnlandi hefðu sömu stefnu,
störfuðu á líkum grundvelli og
með líkum aðferðum og að þeir
sköpuðu með starfsemi sinni
þau Norðurlönd, sem í dag er
horft til af öllum beztu mönn-
ÍL« I
Mannfjöldinn á Arnarhólstúni.
um mannkynsins sem fyrir-
myndar um mwmingu og lýð-
ræði.
Að ræðu Hedtoft-Hansens
lokinni kvað við dynjandi lófa-
klapp frá hinum mikla mann-
fjölda, Þá söng karlakórinn
Fóstbræður þjóðsöng Dana,
„Det er et yndigt Land.“
Axel Strand, aðalgjaldkeri
sænska Alþýðusambandsins, tal-
aði næstur. Hann talaði um
sköpun alþýðusamtakanna í
Svíþjóð, baráttu þeirra fyrir
réttindum verkalýðsins og þann
árangur, sem verkafólkið hefði
náð með þessari baráttu. Hann
varaði við þeim, „sem taka þátt
í þessari baráttu aðeins vegna
baráttunnar sjálfrar og hvatti
íslenzkan verkalýð til að standa
einhuga saman um réttindi sín
og þjóðfélagslegt hlutverk.
Hann skýrði frá því, hvernig
sænskur verkalýður hefði lært
að meta starf Alþýðuflokksins
og hvernig honum hefði tekizt
að losa samtök sín við hættu-
lega ævintýramenn. í lok ræðu
sinnar færði Axel Strand ís-
lenzkum verkalýð bróðurkveðj-
ur sænskrar alþýðu.
Eftir að mannfjöldinn hafði
þakkað Axel Strand fyrir ræð-
una, söng karlakórinn Fóst-
bræður þjóðsöngva Svíþjóðar,
Finnlands og Noregs.
Þá talaði Ernst Berg, ritari
danska Alþýðusambandsins.
Hann talaði um samtök verka-
lýðsins á faglegu og pólitísku
sviði. Hann sagði, að hin faglega
barátta verkalýðsins næði ekki
nægilegum árangri, ef þau
sköpuðu sér ekki einnig stjórn-
málaleg samtök, sem gætu varið
verkalýðinn og sótt fram einnig
á því sviði. Samvinna verka-
lýðssambandanna og Alþýðu-
flokkanna er knýjandi nauðsyn
og danskur verkalýður skilur
þetta mæta vel. Hann hefir
fengið þá reynslu, að án Al-
þýðuflokksins hefði aðstaða
hans orðið önnur í þjóðfélaginu
en hún er nú.
Haraldur Guðmundsson tal-
aði síðastur. Hann þakkaði hin-
um erlendu flokksbræðrum fyr-
ir komuna á þennan fund og
hinar glæsilegu ræður þeirra.
Hann dró upp mynd af ástand-
inu í heiminum í dag. Sýndi
fram á, hvernig heilar þjóðir
lifa í angist hvern dag af ótta
við stríð og eyðileggingu og það
væri sannarlega lærdómsríkt
fyrir okkur Norðurlandabúa að
litast um í heiminum á þessum
tímum. Við sjáum, hvernig
stefna Alþýðuflokkanna á
Norðurlöndum hefir fært Norð-
uriandaþjóðunum frið, atvinnu
og framfarir, meðan aðrar þjóð-
ir stynja undir vígbúnaði og
stríðsbrjálæði.
Að ræðu Haralds lokinni söng
karlakórinn Fóstbræður „Ó,
guð vors lands“, en síðan lék
Lúðrasveit Reykjavíkur Al-
þjóðasöng jafnaðarmanna. Þar
með var þessum glæsilega fundi
lokið.
Stjórn Hins íslenzka prent-
arafélags hafði boð inni á skrif-
stofu sinni í gærkveldi fyrir
hina erlendu gesti og nokkra
fleiri að fundinum loknum, Var
tekið á móti gestunum af mik-
illi rausn, og stýrði formaður
Prentarafélagsins, Magnús H.
Jónsson, hófinu. Ræður fluttu
við þetta tækifæri Magnús H.
Jónsson, Ernst Berg, Hallbjörn
Halldórsson og Hedtoft-Hansen.
Var þetta skemmtilegt samsæti.
Ræða Th. Staunings í sam-
sæti Alþýðuflokksins í gær
A LÞÝÐUFLOKKURINN bauft
** hinum norrænu fulltrúum
á fundi samvinnunefndar Alþýðu-
flokkanna til hádegisveizlu að
Hótel Borg í gær.
forsætisrá'ðherra,
iandshöfðingja í
Bramsnæs aðal-
Elldin forseta
verkamanna í
Stauning
Wennerström
Vermalandi,
bankastjóra og
fræðslusambands
Svíþjóð var ásamt nokkrum Al-
þýðuflokksmönnum einnig boðið
til veizlunnar, og tóku alls um
30 manns þátt í henni.
Voru þarna margar ræbur
fluttar, en Stefán Jóh. Stefáns-
son, forseti Alþýðusambands is-
lands, stýrði samsætinu. Bauð
hann hina norrænu gesti vel-
komna með þeirri ósk, að þessi
heimsókn þeirra mætti verða
upphafið að enn meiri og öflugri
samvinnu en hingað til hefði
verið. Enn fremur sagði Stefán
Jóh. m. a.: „Það er stórviðburður
í sögu íslenzku alþýðuhreyfing-
arinnar, að við nú í fyrsta skipti
í sögu okkar höfum hér á meðal
okkar ýmsa af helztu forvígis-
mönnum alþýðusamtakanna á
Noröurlöndum og þ. á. m. höfð-
ingja danska Alþýðuflokksins,
Stauning forsætisráðherra, og
brautryðjandann norska, Magnus
Nilssen, jafnframt því sem við
höfum fulltrúa yngri kynslóðar-
innar og þá, sem veita flokkun-
um nýtt og aukið afl, hér á
meðal okkar.“
Þá talaði Th. Stauning forsæt-
isráðherra, og sagði hann m. a.:
„Kæru flokksbræður og vinir! Ég
þakka ykkur hjartanlega fyrir
það, að þið skylduð bjóða okkur
norrænu gestunum hingað til
Reykjavíknr. Það eru nú 15 ár
síðan ég kom hingað til Islands
fyrst, og ég mun alltaf minnast
þeirrar gestrisni og þeirrar alúð-
legu móttöku, sem ég fékk þá,
og björtustu endurminningar
mínar eru tengdar þeim móttök-
um, senr ég fékk þá hjá flokks-
bræðrum mínum.
Ég minnist Magnuss Nilssen,
þegar hann í Noregi hélt einn
uppi merkjum Alþýðuflokksins
og flokksbræður hans yfirgáfu
hann og fóru til Moskva. Magnus
hefir alla tíð verið hreinn og ó-
skiptur lýðræðissinni og Al-
þýðuflokksmaður, og það fór
líka svo, að þegar þeir, sem frá
honum fóru, höfðu kynnzt starfs-
aðferðunum og stefnu Moskva-
kommúnistanna til hlítar, þá
koníu þeir aftur til Magnuss, og
það er mín bjargfasta trú, að
eins muni fara hér. Hinir glöt-
uðu rnunu aftur leita til flokks
Stefárrs Jóhanns.
'Það hefir alltaf verið svo, að
sannleikurinn sigrar að lokurp**
og við emm fullvissir þess',
að svo muni einnig fara hér.“
Enn fremur töluðu þarna
Magnus Nilssen stórþingsforseti
og einn af aðalbrautryðjendum
norska Alþýðuflokksins, og flutti
hann kveðjur norska Alþýðu-
flokksins til flokksbræðranna hér.
Þá töluðu: Wennerström lands-
höfðingi í Vermalandi, Jón Axel
Pétursson, Haraldur Guðmunds-
son og Steindór Steindórsson
menntaskólakennari frá Akur-
eyri.
Lauk þessu samsæti um kl. 4
í gær, en þá fóru margir af
fulltrúunum til Alþýðuhússins
og skoðuðu það.
Stefán Jóh. Stefánsson setur fundinn á Arnarhóli.
Samheldnin milli þjóðanna
er trygging fyrir frelsinu.
---------
RæHa J. L. Mowitackels i sam«
sæti norvœna félagsins í gær.
landanna er bvðingar- .. . .» v . ri
Nóti hjHbrunar-
kvennafélag-
anna slitið ann
aðMd.
AMHELDNI milli ♦
landanna er þýðingar-
mesta atriðið til að halda
frelsinu.“
Þetta sagði Mowinckel fyrr-
verandi forsætisráðherra Noregs
i ræðu, er hann hélt í skilnaðar-
samsæti Norrænu félaganna um
þorð í „Stavangerfjord" í gær-
kveldi. En fulltrúafundi félag-
anna lauk þá, og halda fulltrúar
Norðurlandanna heimleiðis í
kvöld með „Stavangerfjord".
Vom í lokasamsætinu margar
ræður fluttar, og tók Mowinckel
fyrstur til máls, og talaði hann
aðallega um frelsi einstaklinga
og þjóða. Sagði hann, að hinn
rétti skilningur á orðinu frelsi
væri ekki fenginn fyrr en fólk
gréti, þegar það heyrði orðið
nefnt, eins og þær þúsundir
flóttamanna, sem nú hafa hvergi
höfði sínu að að halia og hafa
glatað föðurlandi sínu og frelsi.
Þá talaði Wennerström lands-
höfðingi, Stefán Jóh. Stefánsson,
formaður Islandsdeildar Norræna
félagsins, Magnús Sigurðsson
bankastjóri, Guðmundur Finn-
bogason landsbókavörður, Antell
frá Finnlandi, skipstjórinn á
Stavangerfjord og að lokum
þakkaði Guðlaugur Rósinkranz,
ritari Norræna félagsins, fyrir
hönd gestanna fyrir hinar ágætu
móttökur, sem þeir hefðu feng-
ið þarna.
Fyrirlestur Mowinc-
kels í kvðld i Iðnð.
í kvöld klukkan 6,15 flytur
Mowinckel, fyrrverandi forsæt-
isráðherra Norðmanna, fyrir-
lestur í Iðnó, sem hann kallar
„Þróun stjórnmálanna frá Ver-
salasamningunum til Miin-
chensáttmálans,
Má telja vist, að margir munu
nota þetta /einstaka tækifæri,
sem þarna býðst, til þess að
kynnast hinum pólitísku átök-
um Evrópuþjóðanna á undan-
förnum árum, og afstöðu smá-
þjóðanna til þeirra, því að Mo-
winckel er manna færastur til
þess að halda fróðlegt erindi um
þessi mál, vegna hinnar póli-
tísku þátttöku sinnar í Noregi
og á alþjóðlegum yettvangi.
1V| ÓTI norrænu hjúkrun-
arkvennanna verður
slitið annaðkvöld um borð í
„Stavangerfjord“, sem þá
verður komið til Akureyrar.
Hefir þetta fyrsta mót nor-
rænna hjúkrunarkvenna á ís
landi staðið yfir í 5 daga, og
hafa á mótinu verið rædd
ýms merk mál, er miklu
varða fyrir stéttarsamtök
hjúkrunarkvenna og einnig
frá almennu sjónarmiði séð.
I gær voru fundarhöld allan
daginn, og voru öll þau mál, er
Alþýbublaðið skýrði frá í gær,
rædd mjög ítarlega, en engar á-
lyktanir verða gerðar, fyrr en á
morgun á lokafundinum, sem
haldinn verður um borð í Stav-
angerfjord, og verður þá jafn-
framt ákveðib, hvar næsta rhót
'skuli haldið.
I gærkveldi hélt ríkisstjórn og
bæjarstjórn hjúkmnarkonunum
veizlu á Hótel Borg og í Odd-
fellowhúsinu, og var hátölurum
komið fyrir í báðum húsunum,
og gátu því þeir tæplega 600
gestir, sem þar voru, fylgzt með
öllu því, er gerðist. Voru margar
ræður fluttar, og töluðu m. a.
Th. Stauning, forsætisráðherra
Dana, Hermann Jónasson forsæt-
isráðherra, Pétur Halldórsson
borgarstjóri og fulltrúar hjúkr-
unarkvennafélaganna.
Frá Fimleikafélagi Hafnarfjaröar.
Eins og áður hefir verið aug-
lýst, verður, með leyfi dómsmála-
ráðuneytisins, frestað drætti í
happdrætti félagsins til 1. maí
næst komandi.
Gullfoss
fer annað kvöld til Breiða-
fjarðar og Vestfjarða.