Alþýðublaðið - 17.08.1939, Qupperneq 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. ÁRGANGUR FIMMTUDAGUR 17. ÁG. 1939 187. TÖLUBLAÐ
| Danzigborprar
daeidir til dauða
i Beriia!
SAMKVÆMT frétt frá
Varsjá, sem birt var
í erlendum blöðum fyrir
stuttu, hefir lögregl-
an í Danzig látið flytja
ýmsa af þeim mönnimi,
sem þar hafa verið teknir
fastir fyrir pólitískar sakir,
til Berlínar.
Þrír af þessum mönnum
liaía síðan verið dæmdir
til dauða af nazistadómstól
í Berlín, þar á meðal
verkamannaforinginn Otto
Stiller frá Danzig.
Hér er um algert brot á
alþjóðalögum að ræða.
Ekkert samkomulag á kostn
að Póllands, segja Bretar.
Svar EBfifflaBisls vlð baktjaldamakkl mbndul veldanna
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins, LONDON í morgun.
NGIN ORÐ fá framar breytt þeirri einföldu en geysi-
lega alvarlegu staðreynd, að England er staðráðið í
því að grípa tafarlaust til vopna ásamt bandamönnum sín-
um, ef Þýzkaland ræðst á sjálfstæði Póllands, hvernig svo
sem reynt yrði að breiða yfir slíka árás með hártogunum í
einstökum atriðum deilunnar um Danzig.
Þessi orð stóðu. í ritstjórnargrein blaðsins „Times“ í
gær og eru almennt tekin sem svar brezku stjórnarinnar
við bollaleggingum möndulveldanna, Þýzkalands og Italíu,
sem síast hafa út frá fundum þeirra Ribbentrops og Ciano
greifa í Salzburg og Hitlers og Burckhardts í Berchtesgaden,
um að semja íum friðsamlega lausn Danzigdeilunnar á
kostnað Póllands.
Svipaðnr f jðldi erlenðra
ferðamanna og i fyrrasnmar
----- -4---
Samtals komu 6432 útlendingar með
skemmtiferðaskipunum, en 6176 í fyrra.
T GÆR kom síðasta
skemmtiferðaskipið
hingað, Arandorra Star, og
hafa þá komið hingað á þessu
sumri samtals 12 skemmti-
ferðaskip með 6432 farþega.
Eru það nokkru fleiri ferða-
menn en komu hingað með
skemmtiferðaskipunum í
fyrra, en þá voru þau 16 að
tölu, en farþegarnir ekki
nema 6176.
Skip Eimskipafélagsins hafa
yfir sumarmánuðina maí, júní
og júlí flutt 1305 farþega á milli
landa, og er það svipaður far-
þegafjöldi og var í fyrra sumar,
og sama er að segja urn far-
þegaflutninga Bergenska gufu-
skipafélagsins, en með „Dron-
ning Alexandrine“ komu um
300 erlendir farþegar, sem er
heldur meira en í fyrra sumar.
Flestir farþegar hafa komið
frá Englandi, eða, samkvæmt
skýrslu útlendingaeftirlitsins,
2028, en frá Norðurlöndum hafa
flestir komið frá Svíþjóð, eða
850.
Ástæðan til þess, að ekki hafa
komið fleiri skemmtiferðaskip í
sumar, er fyrst og fremst talin
vera hin aukna ófriðarhættá í
álfunni, og er sérstaklega áber-
andi, hvað miklu færri Þjóð-
verjar hafa komið í sumar en í
fyrasumar.
Skemmtiferðafólkið, sem
hingað hefir komið, er frá 33
löndum, og skiptist fjöldi ferða-
fólksins þannig á lönd-
in: England 2028, Banda-
ríkin 11900, Þýzkaland 1107,
Svíþjóð 850, Frakkland 446,
Danmörk 292, Sviss 84,
Belgía 68, Noregur 68, Ítalía 60,
Finnland 46, Kanada 40, Hol-
land 23, Rúmenía 19, Ungverja-
land 19, Argentína 11, Búlgaría
9, lönd undir þýzkri vernd
(Tékkía) 8, Danzig 6, Grikk-
land 6, Mexíkó 6, Ástralía 5,
Júgóslavía 5, Portúgal 4,
Egyptaland 3, Suður-Afríka 3,
Brasilía 2, Japan 2, Luxemburg
2, Lettland 1, Spánn 1, Tyrk-
land 1 og Uruguay 1, en óvíst
er um þjóðerni 5 manna.
Allflestir þessara farþega
hafa aðeins dvalið hér í einn
eða tvo daga, aðeins 29 urðu
hér eftir til lengri dvalar, en í
fyrra voru þeir 22, sem voru
eftir af skemmtiferðaskipunum.
Oft hefir verið um það rætt,
á hvern hátt væri hægt að fá
ferðafólkið til að dvelja lengur
hér við land en verið hefir, og
hafa margar nýtilegar tillögur
um það efni komið fram, en þó
hlýtur eitt aðalskilyrðið til þess
að vera það, að skemmtiferða-
fólkið geti ferðazt og gist sem
ódýrast hér á landi, eða að
minsta kosti, að þeim sé ekki
selt dýrara en öðrum, og hefir
Frh. á 4. siSu.
„Times“ bætir því við þessa
yfirlýsingu sína, að það sé ekki
hægt að gera sér vonir um neinn
árangur af samkomulagsumleit-
unum nema því aðeins, að vopn-
in verði slíðruð, kröfur nazista
um það, sem þeir kalla „lífs-
rúm“ fyrir Þýzkaland, verði
látnar niður falla, og Tékkar fái
aftur fullkomið frelsi til þess að
stjórna sér sjálfir.
Lord Halifax er aftur farinn
til Yorkshire til þess að njóta
þar sumarleyfis síns, og þykir
það benda til þess, að ástandið
hafi að minnsta kosti ekki
versnað þessa síðustu daga,
sem hann hefir verið í Lond-
on, en það er þó eftir sem áð-
ur talið mjög alvarlegt, og
því er lýst yfir, að Lord Hali-
fax muni koma til London aftur
um næstu helgi, og Chamberlain
einnig, sem nú er í sumarleyfi
norður ‘á Skotlandi.
MacBride (Daily Herald).
SamninoamaKkið i Salz-
bnro oo Berchtesoaden.
LONDON í morgun. FÚ.
Brezku og frönsku blöðin eru
nú þeirrar skoðunar, að gert
hafi verið alltof mikið úr mik-
ilvægi heimsóknar Burckhardts
— þjjóðabandalágsfulltílúans í
Frh. á 4. síðu.
Dönsku blaðamennirnir
hrifnir af nerðurfðrinni.
----»----
Þeir voru í glampandi sólskini á Ak-
ureyri í gær, eti í dag au&tur við Mývatn.
KUREYRARBÆR tók á
***■ móti dönsku og ís-
lenzku blaðamönnunum í
gær kl. 4Ú2 í glampandi sól-
skini og hita eftir kalda,
dynjandi skúr, og sama góða
veðrið hélzt allt kvöldið.
Blaðamennirnir komu til
Blönduóss í fyrrakvöld kl. 7 á
ferð sinni frá Borgarnesi. Þeir
höfðu þennan dag, eftir fremur
hryssingslega sjóferð, borðað
við Hvítárbrú hjá Theódóru
Sveinsdóttur. Þoka var á fjöll-
um og útsýni lítið, en rigning-
una stytti upp um nón, og bjart
veður var á Holtavörðuheiði.
í Vatnsdalshólum var stað-
næmzt um stund. Þar var skýrt
frá þeim skoðunum, sem fram
hafa komið um myndun hól-
anna og margar myndir teknar.
Þar var fagurt veður og hélzt
það, það sem eftir var dagsins.
Að Blönduósi var snæddur
kvöldverður í Kennaraskólan-
um. Kvöldverðinn sátu Guð
brandur ísberg sýslumaður,
Páll Kolka læknir og sóknar-
presturinn.
Páll Kolka læknir sagði nokk-
Jkk, á á. *t»U.
Bær siðan á 14.
ðld grafinn npp
í Diórsárdal!
ÞEIR Aage Roussell og
Kristján Eldjárn hafa gert
rannsóknir að Stöng í Þjórsár-
dal, þar sem Gaukur Trandils-
son bjó. Stöng er austan megin
dalnum, undir vesturhlíð
Stangarfjalls, skammt frá
Rauðá, þar sem hún kemur fram
úr Gjánni.
Bærinn hefir orpizt vikri og
mold svo mjög, að ekki sá móta
fyrir tóftum á yfirborði. Fjós-
rúst var örfoka að nokkru. Sá-
ust þar stórar báshellur, og
leiddi það til þess. að hinn gamli
bær fannst.
Rannsóknunum er ekki lokið,
en nokkrar stofur eru þegar
komnar í ljós. Merkust er setu-
stofa, fjórum sinnum átta metr-
ar, með veggjum úr torfi og
grjóti. Standa veggir því sem
næst í fullri hæð.
Meðfram langhliðum eru set
upphækkuð, sem hafa forðum
verið gerð af timbri. Sér enn
holur eftir stoðir þær, er fest
hafa setbekkinn í gólfið. Einn-
ig sér steina þá, er borið hafa
setstokkinn. Á miðju gólfi hefir
brunnið eldur — eins konar
langeldur — en umhverfis stór-
ar hellur, reistar á rönd, og hefir
eldstæðið verið eins og stór fer-
hyrndur aflangur kassi að lög-
un, niðurgrafið í gólfið. Úr stofu
þessari liggja dyr inn í skála
stóran, er var ekki grafinn út til
fullnustu síðast er fréttist. Ann-
að rúm er þegar rannsakað. Er
það fremur lítið bakrúm með
inngangi frá skála. Tvær djúp-
ar steinrennur liggja þar með-
fram báðum langhliðum, og opn-
ast báðar út gegnum útveggina,
niður að bæjarlæknum. í renn-
um þessum er beinarusl, aska og
kol, og bendir margt til þess, að
alls konar sorpi hafi verið kast-
að þangað. Stofa lík þessari hef-
ir aldrei fundizt á landi hér fyrr.
Geta fornfræðingarnir þess til,
að hér sé um að ræða baðstofu
í fornum stíl.
í bæjarrústum á Stöng hafa
fundizt nokkrir smáhlutir, með-
al annars greiða og greiðubrot
haglega gert.
Það mun vera sjaldgæft eða
dæmalaust á landi sér, að
hægt sé að grafa upp bæ, sem
eins og þessi stendur svo að
segja með kyrrum kjörum síð-
an á 14. öld.
Væri full ástæða til, að athug-
aðir væru möguleikar þess, að
rústir þessar væru gerðar svo
úr garði, að hægt væri að skoða
þær lengur en rétt á meðan á
rannsóknunum stendur, t. d.
með því að skýla þeim með
járnþaki, svo að endurbygging
sé ekki nefnd. (FÚ.)
Stórkostlegar heræfingar fara nú fram samtímis á Þýzkalandi
og Ítalíu. Á efri myndinni sést ítalskt riddaralið á leiðinni yfir
ána Pó við heræfingarnar á Norður-Ítalíu. Á neðri myndinni
þýzk hersveit með loftvarnabyssu við æfingar loftflotans hjá
Oldenburg. Hermennirnir breiða hey yfir loftvarnabyssuna, til
þess að hún skuli síður sjást úr flugvélum.
Tveir póiskir landamæra-
ver ðlr drepnir af ÞJóð veijnm
Stöðugir árekstrar
LONDON í morgun. FÚ.
T ANDAMÆRAVÖRÐUR
frá Danzig skaut til
bana kl. 3 í fyrrinótt pólskan
landamæravörð. í tilkynn-
ingu um þetta segir, að
landamæravörðurinn hafi
verið 15 metra innan landa-
mæranna Danzigmegin, en
nánari upplýsingar um þetta
er enn ekki unnt að fá í Var-
sjá.
Pólverjar hafa lokað landa-
mærum efri Schlesiu gegnt
Þýzkalandi og handtekið Weis-
ner, leiðtoga ungmennaflokksins
þýzka í þessu landamærahéraði,
og er hann sakaður um undir-
róður og njósnir.
Þessi hluti landamæra Pól-
lands og Þýzkalands er syðri
hluti landamæranna, sem Þjóð-
verjar lokuðu í gær, og fyrir
norðan landamæri Póllands og
Slóvakíu.
í Varsjáfregninni segir, að
þessi hluti landamæranna verði
lokaður áfram, þar til Þjóðverj-
ar geri fullnægjandi grein fyr-
ir, hvers vegna þeir hafi lokað
hluta af landamærum Póllands
og Þýzkalands, eða opni þau á
ný til umferðar.
í hálfopinberri fregn frá Var-
sjá segir, að handtaka Weisners
og 60 fylgismanna hans hafi
verið ákveðin vegna þess, sem
kom i ljós við rannsókn á tveim-
ur atburðum:
Síðastliðinn fimmtudag iserð-
við landamærm.
ist pólskur landamæravörður,
en s.l. mánudag var pólskur lög-
reglumaður drepinn, og gerðist
hvort tveggja atburðurinn á
þessum slóðum. Maðurinn, sem
myrti lögreglumanninn, er tal-
inn í flokki þeirra, sem hand-
teknir hafa verið. Rannsóknirn-
ar hafa einnig leitt í ljós, segir
Varsjáfregnin, að þarna var
starfandi njósnarafélag, sem m.
a. hafði að verkefni að aðstoða
við árásir á pólska landamæra-
verði.
í annarri fregn segir, að í
gærkveldi hafi verið þóf mikið
í borg nokkurri í Schlesiu milli
nazistiskra stormsveitarmanna
og pólskra löggæzlumanna og
kom til nokkurra átaka, en eng-
inn meiddist eða særðist alvar-
lega.
í Danzigfregn er þess getið,
að pólskir landamæraverðir
hafi skotið á nokkra þýzka
blaðamenn á Danzigsvæðinu,
en engan þeirra hitt.
Fiskafli í salt
nam 31. júlí síðastlfðinn 35215
þurmm tonnum. Á sama tíma í
fyrra nam hann 33 205 þurrurn
tonnum.
Fiskbirgðir
á öllu landinu námu 31. júlí
síðastliðinn 25 622 þurmm tonn
um tonnum. Á sama tírpa í fyrra
námu þær 15082 þurrum tonnúm.