Alþýðublaðið - 29.08.1939, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. ÁRGANGUR
ÞRIÐJUDAGUR 29. AGCST 1939
197. TÖLUBLAÐ.
[Jrslltastimdin er að aálgast.
..
Báðír aðilar hafa nú búið allt undir stríi, og sam-
giepr mega feeita hættar við Þýzkaland síðan í gær
..4---
Cliamberlaln blrtlr orðsendlngarnar, sem farið hafa milli
hans og Hitlers, á fundi enska þlngsins klnkkan 2 í dag.
Þýzkir hermenn á verði við Rín. Hinum megin við ána er Frakkland.
O ÍKISSTJÓRNIN sendi
konungi í gær bráða-
birgðalög um bann við út-
flutningi margra vöruteg-
unda, sem við þurfum að
vera birgir af, ef til ófriðar
dregur.
Meðal þessara vöruteg-
unda eru hvalaolía, þorska-
lýsi, fóðurmjöl, húðir og
fleira. Þá er og bannað að
fiyíja út allar erlendar inn-
fluttar vörur, sem telja verð-
ur til nauðsynja.
Þá hefir ríkisstjórnin heim-
ild, samkvæmt þessum bráða-
birgðalögum, til að afturkalla
gefin útflutningsleyfi.
Það mun rétt vera, að ekki
eru miklár vörubirgðir til í
landinu, en ríkisstjórnin hefir
ekki séð sér fært að kaupa vör-
ur í stórum stíl vegna fjárhags-
ástandsins. Hins vegar verður
að telja líklegt, að ríkisstjórnin
fyrirskipi, ef ófriður brýzt út,
skömmtun á helztu nauðsynjum
til fólks, svo að eitt gangi yfir
alla.
Ríkisstjórnin hefir haft þessi
mál til athugunar undanfarna
daga, og mun hún gefa út til-
kynningu sína undir eins og á-
standið breytist til hins verra.
Það er nauðsynlegt fyrir okk-
ur íslendinga að vera rólega og
taka því, sem að höndum ber.
Við erum illa undir það búnir
að taka á móti samgönguerfið-
leikum, en þó að land okkar sé
fátækt, þá eru þó ekki miklar
líkur til þess, að við þurfum að
líða skort, ef við aðeins lærum
að nota þau gæði, sem við eig-
um sjálfir.
Bráðabirgðalðg um viðtæk-
ar helmildir fyrlr riklsstjóra
ina vepa ófriðarhættunnar
kennarar byrja að
kenna svifflug
Getur svttHug al vetri
tll begpt við skíðin?
IFYRRAKVÖLD voru merk
tímamót í sögu íslenzkra
svifflugmála, Þá hélt Svifflug-
félag íslands hinum þýzka
kennara sínum, Fritz Schauerte,
kveðjusamsæti, en við kennsl-
unni taka 3 íslenzkir svifflug-
Frh. á i. siðu.
Þýzkalaud lofar að virða
hlatleysi Danmerhar f striði
«-----—
Allt loftvarnarlið Danmerkur kallað tll jjðnustu.
KHÖFN í morgun. FÚ.
LOFTVARNALIÐ Danmerk-
ur, samtals 20 000 manns,
hefir verið kvatt til þjónustu.
Það hafði vakið talsverðan
ugg í Danmörku meðal almenn-
ings, að í yfirlýsingu, sem þýzka
stjórnin hafði gefið út um það,
að hún skyldi virða hlutleysi
nokkurra smáríkja, þar á með-
al Hollands og Belgíu, var Dan-
merkur ekki getið, og voru
menn að skýra það fyrir sér á
þá leið, að þess myndi ekki
þykja þörf að gefa slíka yfir-
lýsingu til handa Danmörku,
þar sem Þýzkaland og Danmörk
hefðu nýlega gert með sér ekki-
árásarsamning.
Nú hefir þó þýzka stjórnin
gefið út yfirlýsingu um, að hún
muni virða hlutleysi Danmerk-
ur og ekki ráðast inn yfir landa-
mæri hennar, að því tilskildu,
að Danmörk gæti strangasta
hlutleysis í hvívetna.
Sænska herstjómin er nú í óða
önn að gera ýmsar varúðarráð-
stafanir með það fyrir augum,
að til sjóorustu geti komið í iná-
mumda við strendur landsins.
Frb. á 4. síðu.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun.
A STANDIÐ í EVRÓPU er nú orðið svo alvarlegt, að það
virðist ekki geta oltið á nema örfáum klukkustund-
um, að úrslitin falli um það, hvort friðinum verði bjargað
áð minnsta kosti í bráð, eða blóðug styrjöld hefst.
Brezka stjórnin hefir nú svarað orðsendingu Hitlers.
Ilenderson, sendiherra hennar í Berlín, kom þangað með
svarið loftleiðis frá London klukkan hálf átta í gærkveldi
(eftir íslenzkum tíma) og afhenti Hitler það í ríkiskanzl-
arahöllinni klukkutíma síðar. Að því loknu símaði hann
tafarlaust til enska utanríkismálaráðuneytisins, en Hitler
kallaði á sinn fund alla helztu ráðunauta sína í nazista-
flokknum, þar á meðpl Göring, Hess og Ribbentrop. Enska
stjórnin telur víst, að Hitler muni senda gagnsvar, áður
en til alvarlegri viðburða komi.
Allur heimurinn bíður nú milli vonar og ótta eftir yf-
irlýsingu Chamberlains í enska þinginu í dag, en það hefir
verið kallað saman klukkan tæplega tvö (eftir íslenzkum
tíma). Er búizt við því, að hann muni þá birta orðsend-
ingar þær, sem farið hafa á milli brezku stjórnarinnar og
Hitlers og sýnt verði af þeim, hvað verða vill.
Stríðsundirbúningnum virð
ist nú að mestu lokið um alla
Evrópu, og járnbrautarsam-
göngum hefir þegar verið
slitið við Þýzkaland af flest-
um nágrannalöndum þess.
Landamærum Frakklands og
Þýzkalands var lokað í gær-
kveldi og engar samgöngur
eru milli landanna síðan.
Skeytaskoðun hefir verið
komið á á Frakklandi og
Póllandi. Brezka flotamála-
ráðuneytið hefir kallað öll
ensk kaupskip í Eystrasalti
heim, bannað öllum enskum
skipum að sigla inn í Mið-
jarðarhaf og kallað þau, sem
enn eru í ítölskum höfnum,
heim þaðan.
Fréttir hafa borizt um það,
að brezki flotinn sé að undir-
búa að loka sjóleiðunum milli
Noregs og Danmerkur fyrir
öllum siglingum inn í Eystra-
salt eða út úr því.
Ameríkskum skipum var í
gær bannað að sigla til
Þýzkalands.
Hervæðing var fyrirskipuð í
Tyrklandi í dag, og nær hún til
800 000 til einnar milljón
manna.
Innlimon Danzlg vænt-
anleg pá »g pegar.
Síðan í gærkveldi eru menn
við því búnir, að innlimun Dan-
zig í Þýzkaland verði tilkynnt
á hverri stundu,
Konur og hörn hafa verið
flutt úr borginni til Austur-
Prússlands og hinum vopnuðu
varðsveitum nazista verið fylkt
við landamæri fríríkisins. Allar
samgöngur milli Póllands og
horgarinnar eru hættar, en
járnbrautirnar milli Þýzkalands
og Austur-Prússlands yfir
pólska hliðið halda áfram og
er fullyrt, að ógrynni herliðs
hafi verið flutt með þeim til
Austur-Prússlands í gær.
Fregnir hárust í gærkveldi
um blóðuga árekstra milli naz-
ista og andstæðinga þeirra inni
í Danzig, og er talið, að þrír
menn liafi fallið af hvorum í
vopnaviðskiptum, sem þar urðu.
Frh. á 4. síðu.
Islenzku togararnir
bætta við að sigla
til Dýzkalaids.
Snáa til Englands oi
selja aflann par.
r VEIR íslenzkir togarar, sem
voru á leiðinni til Þýzka-
lands með fullfermi af fiski,
Júpíter og Geir, hættu við að
fara þangað og sneru til Eng-
lands. Seldi Júpíter þar í gær
2047 vættir fyrir 1057 sterlings-
pund, en Geir selur í dag.
Söluleyfi til Þýzkalands hafa
verið hækkuð um 180 þúsund
ríkismörk, og það samsvarar
um 10 veiðiferðum.
Þrátt fyrir þetta eru tveir
togarar, Karlsefni og Max Pem-
berton, hér í höfninni og fara
ekki út vegna hins ískyggilega
ófriðarútlits.
Djéðverjar fá olia og
benzin frá Rássnm!
LONDON í gærkveldi. FÚ.
Það er nú orðið kunnugt, að
vörur þær, sem Sovét-Rússland
lætur Þýzkaland fá samkvæmt
hinum nýgerðu viðskiptasamn-
ingum, eru landbúnaðarvörur
ýmsar og matvæli, trjáviðar-
vörur alls konar og auk þess
ýms dýrmæt hráefni til hernað-
arþarfa, svo sem olía og benzín.
Þing Sovét-Rússlands kemur
saman í kvöld, og munu báðar
deildir eiga fund sameiginlega,
Meðal þess, sem um verður
rætt, er fullnaðarsamþykkt og’
lögfesting þýzk-rússneska sátt-
málans. Gert er ráð fyrir, að
Molotov muni gera þinginu
grein fyrir hinni nýju utanrík-
ismálastefnu stjórnarinnar.
Allt að fytlast á Ranfarbðfn
20 skip eru á leiðinni til Siglu*
fjarðar með fullfermi af síld.
-----------
Hjalteyri fær mikla síld í dag.
lty| IKIL síldveiði var í gær
og í nótt austarlega á
veiðisvæðinu, og sagði frétta-
ritari Alþýðublaðsins á
Siglufirði í morgun, að allt
væri orðið fullt hjá verk-
smiðjunni á Raufarhöfn.
Lítil síld barst þó til Siglu-
fjarðar í gærkveldi og í nótt.
Aðeins var saltað í 3000 tunnur
þar í gærkveldi. Þessi skip voru
hæst: Stella 154 tunnur, Ágústa
170, Arthur & Fanney 212,
Snorri 557, Ársæll 155, en önn-
ur minna.
Þá skýrði fréttaritarinn svo
frá, að um 20 skip væru nú á
leiðinni til Sigluf jarðar að aust-
an, og væru þau öll með full-
fermi.
í morgun var allt að fyllast á
Raufarhöfn af síld, og beið þar
fjöldi skipa eftir afgreiðslu. Þá
hafði Alþýðublaðið í morgun
tal af fréttaritara sínum á
Hjalteyri. Þá voru þrír togar-
anna komnir þangað með full-
fermi, eða samtals um 5400 mál.
Þetta voru togararnir Óli Garða,
Egill Skallagrímsson og Skutull.
Höfðu þeir allir um 1800 mál
hver,
Þá höfðu borizt fréttir af
þeim togurum, sem enn voru ó-
komnir, um að þeir hefðu allir
allmikið af síld. Höfðu sérstak-
lega Snorri goði og Skallagrím-
ur góðan afla.
Veður var mjög gott fyrir
öllu Norðurlandi í dag.
Þorsteinn Gíslason
frá Garði, sem datt niður í
hver i Hverager&i um daginn,
andaöist fyrir helgi af brunasár-
um þeim, er hiann fékk.
Drottningin
fer frá Kaupmannahöfn kl. 10
í fyrramálið.