Alþýðublaðið - 29.08.1939, Page 3
Í»RIÐJUDAGUH 29. ÁGÚST 1939
•--------------------------.6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MTSTJÓRI:
F. R. VALBMÍARSSON.
I fjarveru hans:
STMTÁN PÉTURSSON.
AFSREHISLA:
AL>ÝBUHÚSINU
(Inngaiigur frá Hverfisgiitu).
SÍMAR:
49öi: Afgreiðsla, auglýsingar.
49*1: Ritstjórn (innl. fréttir).
4962: Ritstjóri.
4983: V. S. Vilhjálms (heima).
4985: Alþýðuprentsmiðjan.
4986: Afgreiðsla.
5021 Stefán Péturssan (heima).
ALI»Ý»UPRBNTSMi®JAN
*------------------—-------♦
Annar eins maðnr
os ðliver Lodge fer
ekhi með neina irgi.
HIN sí'ðustu og verstu tíðindi
frá Rússlandi hafa valdið
mlkilli ringulreið og fáti í her-
búðum kommúnista.
„Ribbentnop í Moskva“ og
„Flugvöllurinn í Moskva skreyttur
hakakrossfánum". Þetta eru at-
burðir, sem hljóta að koma á ó-
vart öllum þeim, sem lagt höfðu
trúnað á heilindi Stalins og tekið
alvarlega fullyrðingar kommún-
ista um, að Sovétlýðveldin væru
sverð og skjöldur allra mannrétt-
inda og hinn öruggasti varnar-
múr gegn „stríði og fasisma11.
En svo þegar þessir margróm-
uðu forverðir friðar og frelsis
laustur í Moskva fallast í faðma
við helztu forvigismenn stríðs og
fasisma, hvað er þá hægt að
segja af skynsemi til varnar hin-
um fyrri fullyrðingum?
Til vamar verður ekkert sagt.
Og af skynsemi verður ekki ann-
annað urn þær sagt en að þær
hafi verið hin hróplegasta lygi
og hatramasta blekking.
Kommúnistar munu spyrja sig:
„Hvar er hin marxistiska túlkun
a þessum atburðum?“ í Þjóðvilj-
anum eru kornnar jafnmargar
„marxistiskar“ túlkanir á þeim og
dagarnir eru margir, síðan at-
burðirnirgerðust. En súeina sanna
kommúnistiska túlkun á þessum
málum hefir ekki komið fram í
Þjóðviljanum. Hún er ekki eftir
neinn hálærðan „marxista", held-
ur orð einfaldrar, trúaðrar og
einlægrar sálar. „Úr því að þess-
ir menn gera það, hlýtur það
að vera rétt“, þetta varð einni
heittrúaðri kommúnistafrú að
orði, þegar hún heyrði um þessi
mál. Það er eins og andatrúar-
manninum varð að orði forðum,
þegar hann var kominn í rök-
þrot: „Annar eins maður og 01-
iver Lodge fer ekki með neina
iygi“-
„Guðs vegir eru órannsakanleg
ir,“ segir trúaða fólkið,þegar það
getur ekki komið þeirri kenn-
ingu, að algóður guðsvilji standi
að baki allri tilverunni, heim við
þá staðreynd, að margt gerist
illt og andstyggilegt í hinni sömu
tilveru- Slíkir hlutir verða ekki
skýrðir af skynsemi. Það er eins
um kenningar kommúnista, þær
stangast á viÖ veruleikann. Fram
að þessu hefir þeim þó tekizt
að telja ýmsu fólki trú urn rétt-
mæti kenniniga sinna, en hér eftir
mun verða torsóttur róðurinn
meðal fólks, sem hugsar ein-
hverja agnarvitund.
Ýmsir fyrrverandi franskir
kommúnistar, sem eru þess al-
búnir að ganga frarn á vigvöll-
inn til varnar gegn ofbeldi fas-
ismans, skilja nú, að þeir hafa
verið beittir blekkingum og svik-
um og þeir sætta sig ekki við
svikin, jafnvel þótt — „þessir
menn" hafi framið þau.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Fram til starfa Aibýðnf fokksmen!
Stjórn Alkýðnflekksfél. Reykjtvfk-
nr undirbýr vetrarstarf félaysins.
—-----»
H4USTIÐ NÁLGAST, jafnframt hefst vetrarstarf hinna
ýmsu samtaka hér í bænum. Þetta sumar hefir
verið merkilegt fyrir margra hluta sakir fyrir Alþýðu-
flokkinn, þær heimsóknir erlendra félagsbræðra, sem hann
hefir fengið, hafa slegið því föstu, gegn staðhæfingum
líommúnista, að Alþýðuflokkurinn starfar á sama grund-
velli og Alþýðuflokkarnir annars staðar á Norðurlöndum,
þó að vitanlega skapi hinn íslenzki jarðvegur sérkenni Al-
þýðuflokksins íslenzka. Það er vitað mál, að þó að Alþýðu-
fiokkarnir á Norðurlöndum hafi gott samstarf sín á milli,
þá markast stefna þeirra af viðfangsefnum hvers lands
fyrir sig. Þá hefir sumarið styrkt mjög stefnu Alþýðu-
flokksins og að sama skapi hefir mönnum orðið ljósara
stefnuleysi kommúnista og undirlægjuháttur hins svokall-
aða ,,Sameiningarflokks“ við Moskva. Hefir þetta ekki sízt
komið í ljós núna síðustu daga við samninga Stalins við
Hitler, sem þessi flokkur og blað hans ver með klóm og
kjafti, alveg eins og vináttusamningur Hitlersfasismans og
Moskvakommúnismans væri hans eigið stefnuskráratriði.
stjórnin boða til fundar 1 félag-
inu. Sat stjórn félagsins á fundi
í gærkvéldi og ræddi þessi mál.
Það er ekki nema ár síðan
Innan verkalýðsfélaganna 1
landinu hefir straumurinn leg-
ið frá kommúnistum og til Al-
þýðuflokksins. Þau verkalýðs-
félög, sem kommúnistar náðu
tangarhaldi á, hafa verið alger-
lega aðgerðalaus, og í skjóli
hinna kommúnistisku stjórna á
þessum félögum hafa viðgeng-
izt taxtabrot og ýmsar aðrar
réttindaskerðingar á verkalýðn-
um, án þess að þessar stjórnir
hafi lireyft sig. Er dæmið hér
hjá Dagsbrún um kaffitíma
verkamannanna á ýmsum
vinnustöðvum gleggsta dæmið.
Verkamenn hafa því í sumar,
jafnvel betur en áður, séð hvert
það leiðir samtökin að fela
kommúnistum stjórn þeirra.
Selkomnir i flekkinn
aftur.
Með haustinu og vetrinum
hefst starf Alþýðuflokksins að
nýju hér í bænum og um allt
land, því að yfir sumartímann
liggja venjulega niðri funda-
höld hjá öllum flokkum, og það
eina, sem gert er 1 þá átt, eru
útisamkomur. Alþýðuflokksfé-
lag Reykjavíkur mun innan
skamms hefja undirbúning
undir vetrarstarfið, og þegar
línurnar hafa í stórum dráttum
verið lagðar fyrir það, mun
liðhlauparnir úr Alþýðuflokkn-
um gengu Moskvakommúnist-
um á hönd. Fjöldi manna, sem
fylgdi þessum mönnum út úr
flokknum, hefir þegar séð eftir
því, og vitanlega stendur Al-
þýðuflokkurinn því fólki opinn,
sem er hæft til góðra starfa fyr-
ir flokkinn og stefnu hans, þó
að þaö hafi á tímabili kosið að
standa utan hans.
Fyrir Alþýðuflokknum liggur
á næstunni geysimikið starf.
Fyrst og fremst þarf að skapa
flokknum fast og ákveðið skipu-
lag að innan, svo að baráttu
hans fyrir stefnu sinni fylgi á-
kveðnari kraftur en áður hefir
verið. Þetta hefir að vísu breytzt
mikið á síðastliðnu ári, en vit-
anlega nær slíkt skipulag ekki
fullkomnun á skömmum tíma.
Fundastarfsemi Alþýðuflokks-
félags Reykjavíkur síðastliðinn
vetur þótti mjög góð; á fundum
félagsins voru fluttir fjölda
margir fyrirlestrar um helztu
málefnin og um þau mál, sem
efst voru á baugi, var rætt, og
tóku fleiri og fleiri félagar þátt í
þeim umræðum. — í vetur mun
fundastarfinu verða hagað með
líkum hætti, þó að starfsemin
verði að ýmsu öðru leyti gerð
nokkuð fjölbreyttari.
Allir góðir félagar eru beðnir
að búa sig nú þegar undir það
að taka öflugan þátt í starfi Al-
þýðuflokksfélagsins í vetur og
efla félagið á allan hátt.
OHStBrlziarskðliiR.
Börn á aldrinum 7-10 ára (fædd 1929-1032), sem
eíga að sækja Austurbæjarshólann í september
n. b, mætí tíl víðtals míðvíhudagínn 30, ágúst
(á morgun) sem hér segír:
KL 9: Börn fædd 1929 (10 ára behhír)
Kl. 10: Börn fædd 1930 (9 ára behhír)
Kl, 11: Börn fædd 1931 (8 ára behhír)
Kl. 14: Börn fædd 1932 (7 ára behhír )
Shólashyld börn (fædd 1929 —1932), sem ehhí
mæta í september, eíga það á hættu að sítja eftír
i behh.
Undirrítaður verður fyrst um sínn tíl viðtals i
shrífstofu shólans hl. 10—11. f. h.
Shéiaitjórini.
Hrópyrði kimmðn-
ista ft af byggiagn
verkamannnbtstaða.
Mr n reiðlr jflr pvi
að ByggiBoarfélag verba
manna neitaði svakk-
anum í Norðarmfri.
ITOMMÚNISTAR eru við
og við að reyna að not-
færa sér þann leiðinlega
drátt, sem orðið hefir á því
að bygging verkamannabú-
staða hæfist. Engum þykir
það þó jafnleitt og stjórn fé-
lagsins, að ekki skuli enn
vera byrjað á framkvæmd-
um, en hún hefir undanfarið
unnið af öllum mætti að því
að hraða því, að þær ákvarð-
anir yrðu teknar, sem geta
leyst málið á viðunandi hátt,
svo að hægt væri að minnsta
kosti að byrja á undirbún-
ingsvinnunni.
Mönnum er kunnugt um, að
það, sem hefir valdið því að
byggingin er enn ekki byrjuð,
er dálítill skoðanamunur um
það, hvar byggingarnar skuli
standa. Er náttúrlega eðlilegt,
að einhvers skoðanamunar
kenni um þetta, því að yfirleitt
er alltaf lengi deilt um það,
hvar stórbyggingum skuli
markaður staður, áður en hægt
er að gera það.
Miklar vonir eru um það, að
þetta mál verði leyst nú í vik-
unni, sem er að líða, og að lausn
þess verði á þá leið, að flestir
eða allir félagar Byggingarfé-
lags verkamanna geti verið á-
nægðir — og fyrst ekki var
hægt fyrir stífni og ábyrgðar-
leysi Héðins Valdimarssonar og
hinna kommúnistisku skósveina
hans að byrja á byggingunum
þegar í vor, þá eru ekki nein ó-
sköp töpuð, þótt þessi dráttur
hafi orðið, þó að hann sé hins
vegar slæmur.
Aðalatriðið er það, að sá stað-
ur, sem verkamannabústöðun-
um verður ætlaður, verði á
fögrum og hentugum stað, að
garðarnir verði góðir og stað-
urinn verði til frambúðar — og
undir öllum kringumstæðum
verður hægt að byrja á bygg-
ingunum á þessu sumri.
Kommúnistum ferst ekki að
tala neitt um þetta mál. Þeir
ætluðu sér að kúldra bústöðun-
um niður í svakkanum 1 Norð-
urmýri. Þar höfðu þeir rúm
fyrir 50 íbúðir í þriggja hæða
húsum. Þetta gerði hið nýja
byggingarfélag sig ekki ánægt
með fyrir hönd væntanlegra í-
búðaeigenda, og stjórn félags-
ins nýtur fyrir þá afstöðu sína
trausts hvers einasta félaga.
Sfldarafllnn.
H'
EILDARAFLI síldveiðanna var síðastliðinn laugardag, sam-
kvæmt skýrslu Fiskifélagsins, 916 443 hektólítrar í bræðslu
og 186 727 tunnur í salt, Á sama tíma í fyrra var heildaraflinn
1 416 654 hl. í bræðslu og 242 260 tunnur í salt, en i hitt eð fyrra
var aflinn 2 004 023 hl. og 189 937 tunnur.
Fimm aflahæstu skipin í flotanum eru nú togaramir Skalla-
grímur með 166 tunnur og 10 330 mál, Skutull 1 123 tn. og 9 370
rnál, Garðar með 984 tn. og 9 457 mál, línuveiðarinn Jökull með
1 398 tn. og 8 371 mál og vélbáturinn Dagný með 1 570 tn. og
7 900 mál.
Bræðslusíldaraflinn skiptist þannig niður á verksmiðjurnar,
mælt í hektólítrum, (tölurnar í aftari dálkinum frá í fyrra, en
þær fyrri tölur aflans nú):
Akranessverksmiðjan 7 202 724
Sólbakkaverksmiðjan 3 935 7 039
Hesteyrarverksmiðjan 47 813
Hjúpuvíkurverksmiðjan 102 226 182 227
Ríkisverksm., Siglufirði 300 650 516 476
„Rauðka“, Siglufirði 29 347 61 560
,,Grána“, Siglufirði 10 237 15 917
Dagverðareyrarverksmiðjan 44 870 74 991
Hjalteyrarverksmiðjan 191 026 295 898
Krossanessverksmiðjan 83 818 141 683
Húsavíkurverksmiðjan 13 972 11 982
Raufarhafnarverksmiðjan 67 355 39 691
Seyðisfjarðarverksmiðjan 35 377 10 434
Norðfjarðarverksmiðjan 26 428 10 219
Saltsíldaraflinn skiptist þannig á milli hinna einstöku
landshluta
Vestfirðir og Strandir .......................... 27 051
Sigluf jörður, Skagaströnd, Sauðárkrókur, Hofsós 139 203
Eyjafjörður, Húsavílc, Raufarhöfn................ 20 183
Sunnlendingafjórðungur ......................... 290
Síldaraflinn skiptist þannig
milli skipanna, (fyrri talan þýð-
ir tunnur í salt en hin síðari
mál í bræðslu):
TOGARARNIR:
Arinbjöm hersir 164 8294, Bald-
ur 945 5129, Belgaum 602 7116,
Egill Skallagrímsson 121 6107,
Garðar 984 9457, Gulltoppur
8204, Gyllir 8194, Hafstein 390
4295, Haukanes 5058, Hilmir 837
5137, Jón Ólafsson 583 6146, Júni
727 6428, Kári 775 6462, Maí 491
5389, Óli Garða 380 6219, Rán
470 5337, Sindri 158 5311, Skalla
grímur 166 10330, Skutull 1123
9370, Snorri goði 4845, Surprise
597 5839, Sviði 380 5153, Tryggvi
gamli 1473 6839, Þorfinnur 923
6044, Þórólfur 257 7820.
LÍNUVEIÐARARNIR:
Andey Hrísey 678 2530, Aldan
Ak. 647 1342, Alden Stykkish.
961 2737, Ármann Re- 1314 4796,
Bjarki Sigl. 1124 4777, Bjarnarey
Hf. 849 4186, Bjöm austræni
Sigl. 294 3515, Fjölnir Þing. 816
3044, Freyja Re. 1980 3130, Fróði
Þing. 1112 4580, Gullfoss Re.
730 1468, Hringur Sigl- 1018 2395,
Huginn Re. 864 3621, Hvassafell
Ak. 1053 6113, Isleifur Akr. 1746,
2675, Jarlinn Ak. 605 3195, Jök-
ull Hf. 1398 8371, Málmey Hf.
877 3469, Ólaf Ak. 965 1179, Ól-
afur Bjamason Akr. 1314 6015,
Pétursey Súg. 1066 1982, Rifsnes
Re. 1495 4530, Rúna Ak. 729
1752, Sigríður Re. 994 2347, Skag-
firðingur Sauð. 877 3504, Sverrir
Ak. 1410 3516, Sæborg Hrísey
1701 2566, Sæfari Re. 401 2688,
Venus Þing. 1204 3648 M. s. Eld-
borg Boig. 2159 4382, V. s. Þór
Re. 1511 4370.
VÉLBÁTAR:
Aage Sigl- 534 1204, Ágústa
Ve. 605 1196, Árni Árnason Gerð-
um 624 2278, Ársæll Ve. 674 812,
Arthur & Fanney Ak. 1195 2243,
Ásbjöm ís. 1047 1480, Auðbjörn
ís. 1263 1733, Baldur Ve. 498
1378, Bangsi Akr. 876 1152, Bára
Ak. 498 1658, Birkir Esk. 914
1639, Björgvin Ve. 1374 3192,
Bj<öm Ak. 1241 2234, Bris Ak.
518 1936, Dagný Sigl. 1570 7900,
Dóra Fáskr. 1110 3734, Drífa
Nesk. 792 2784, Ema Ak. 570
1885, Freyja Súg. 388 1225, Frigg
Akr. 1421 517, Fylkir Akr. 1141
3613, Garðar Ve. 1744 3965, Gaut-
ur Re. 358 1301, Geir Sigl. 474
3580, Geir goði Re. 1555 2948,
Glaður Hnífsdal 624 1423, Gloria
Hólmav. 888 4168, Gotta Ve. 491
982, Grótta Ak. 418 2430, Gylfi
Rauðuvík 909 568, Gulltoppur
Hólmav. 1297 2260, Gunnbjörn ís.
677 1708, Gunnvör Sigl- 1119 4897
Gyllir Vestmannaeyj'Um 810 924,
Haraldur Akranesi 751 2136,
Heimir Ve. 298 2981, Helga Hjalt.
1026 2494, Hermóður Akr. 983
2091, Hermóður Re. 808 1604,
Hilmir Ve. 598 1861, Hjalteyrin
Ak. 749 2013, Hrafnkell goði Ve.
1015 1021, Hrefna Akr. 2101,
Hrönn Ak. 949 2051, Huginn I.
ís. 1405 2895, Huginn II. Is. 1406
3583, Huginn III. ís. 1192 4089,
Hvítingur Sigl. 150 2060, Höfr-
tvngur Re. 505 1223, Höskuldur
Sigl. 556 1938, Helgi Ve. 933 675,
Isbjörn ls. 898 3098, Jón Þorláks-
son Re. 1128 3039, Kári Ak. 1115
,1099, Keilir Sandg. 722 1800, Kol-
brún Ak. 820 2635, Kristján Ak.
858 1851, Leo Ve. 885 3037, Liv
Ak. 1131, Már Re. 2000 3416, Marz
Hjalt. 632 1552, Minnie Ak. 989
<2919, Nanna Ak. 2501, Njáll Hf.
824 1709, Olivette Stykkish. 370
1272, Pílot Innri-Njarðv. 717 884,
Rafn Siglufirði 1080 2932,
Síldin Hf. 1109 3508. Sjöfn Akr.
1318 2212, Sjöstjaman Ak. 964
Skúli fógeti II. Ve. 101 450,
Sleipnir Nesk. 1189 4519, Snorri
Sigl. 1256 2323, Stathav Sigl. 204
567, Stella Neskaupstað 743 4037,
Stuðlafoss Reyð. 475 860, Súlan
Ak. 2184 5574, Sæbjöm ís. 818
3611, Sæfinnur Nesk. 1092 5082,
’Sæhrímnir Þing. 715 2499, Sæunn
Ak. 1003 1518, Unnur Ak. 425
1347, Valbjörn ís. 1572 3871, Val-
ur Akr. 1038 1074, Vébjöm Is.
1032 2750, Vestri ís. 2397, Víðir
Reykjavík 83 801, Vöggur
Njarðvík 866 502, Þingey Ak-
ureyri 700 435, Þorgeir goðí
Ve. 480 2024, Þórir Re. 852 958,
Þorsteinn Re- 1085 2987.
VÉLBÁTAR TVEIR UM NÖT:
Alda / Hannes Hafstein Dalvik
103 550, Alda/Hrönn Fáskr. 1350,
Frh. á 4. síðu. ,