Alþýðublaðið - 02.09.1939, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 2. SEPT. 1939
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
RITSTJÓRÍ:
F. R. VALDEMARSSON.
í fjarveru hans:
STEFÁN PÉTURSSON.
AFGREIÐSLA:
ALÞÝÐUHÚSINU
(Inngangur frá Hverfisgötu).
SÍMAR:
4900: Afgreiðsla, auglýsingar.
4901: Ritstjórn (innl. fréttir).
4902: Ritstjóri.
4903: V. S. Vilhjálras (heima).
4905: Alþýðuprentsmiðjan.
4906: Afgreiðsla.
5021 Stefán Pétursson (heima).
ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN
loskTasamninonr-
inn i framkvæmd.
¥IÐ UPPHAF þess blóðuga
hildarleiks, sem nú er
hafinn í Evrópu, stendur hinn
svonefndi „ekkiárásarsamning-
ur“ Hitlers og Stalins í Mosk-
va. Það er staðreynd, sem ekki
verður lengur í móti mælt af
neinum öðrum en vísvitandi ó-
sannindamönnum eða staur-
blindum, andlegum aumingjum.
Aldrei hefir með kaldrifjaðri
klækjum verið stefnt að því að
steypa heiminum út í styrjöld
en með því laumuspili rúss-
nesku sovétstjórnarinnar og
þýzku nazistastjórnarinnar, sem
leiddi til þessarar samnings-
gerðar í Moskva. Því að í henni
er það aðeins yfirvarp, að Hitl-
er-Þýzkaland og Sovét-Rússland
skuldbinda sig til þess að ráð-
ast ekki hvort á annað. Hvorugt
þeirra þurfti að óttast nokkra
árás. Hitt er aðalatriðið, að
Sovét-Rússland lofar því að
véra ekki með í neinum samtök-
um, né neinu bandalagi á móti
Hitler-Þýzkalandi og gefur því
þar með frjálsar hendur til
þess að ráðast á Pólland og
stofna til blóðugrar styrjaldar
vestur í Evrópu, þegar vitað
var, að friðurinn beinlínis valt
á því, að Þýzkaland ætti ekki
aðeins Englandi og Frakklandi,
heldur einnig Sovét-Rússlandi
að mæta, ef til styrjaldar yrði
stofnað.
Það er enn á huldu, hvað Stal-
in hefir áskilið sér fyrir svikin.
En það mun varla vera fjarri
sanni, sem haldið hefir verið
fram, meðal annars af hinu
gætna enska stórblaði „Man-
chester Guardian“, að á bak við
samninginn í Moskva, sem birt-
ur hefir verið, búi annar, þar
sem færri orðum er farið um
hlutleysi, en þeim mun fleiri um
skiptingu ránsfengsins að blóðs-
úthellingum loknum. Það myndi
að minnsta kosti af lærisvein-
um Stalins úti um heim ekki
hafa verið kallað hlutleysi, ef
eitthvert annað ríki hefði skuld-
bundið sig til þess að selja Hit-
ler í stórum stíl olíu, benzín og
önnur hráefni til þess, að geta
haldið morðtólunum í gangi,
eins og Sovét-Rússland gerði í
viðskiptasamningi þeim, sem
undirritaður var í Moskva af
því og Þýzkalandi tveimur dög-
um á undan hinum svokallaða
„ekkiárásarsamningi“, og er að-
éins hluti af honum.
Rás viðburðanna vikuna, sem
liðin er, síðan samningurinn í
Moskva var undirritaður, hefir
nú tekið af öll tvímæli um það,
hvað hann þýðir. Stríðið með
ölíum þeim ógurlegu hörmung-
um, sem því fylgja — það er
Moskvasamningurinn í fram-
kvæmd. Það er „gleðiefnið”,
sem kommúnistablaðið hér,
Þjóðviljinn, talaði um miðviku-
I
I
Ragiar E. Kvara
Ragnar e. kvaran
landkynnir og forstjóri
Ferðaskrifstofu ríkisins er bor-
inn til grafar í dag. Með honum
hverfur einn af glæsilegustu
yngri mönnum íslenzku þjóð-
arinnar.
Ég kynntist Ragnari E.
Kvaran ekki fyrr en árið 1930,
er hann var hér heima með
Vestur-íslendingum á alþingis-
hátíðinni. En eftir það voru
kynni okkar jafnan nokkur, og
tel ég Ragnar Kvaran hispurs-
laust hafa verið í röð hinna fjöl-
hæfustu gáfumanna, sem ég
hefi þekkt. Hann var ágætlega
ritfær maður og áræðinn í hugs-
un, hafði yndi af að gera sér
grein fyrir ýmsum vandamál-
um menningarlegum og félags-
legum frá nýjum og óvæntum
sjónarmiðum. Liggja eftir hann
margar merkar ritgerðir á því
sviði, og þó í rauninni minna
heldur en maður hefði getað bú-
izt við af manni, sem svo létt
var um að hugsa og rita. En
þetta lá í hinu fjölhæfa gáfna-
fari Ragnars Kvaran. Hann var
maður, sem bjó yfir svo óvenju-
lega fjölbreyttum hæfileikum,
að hann átti síður á hættu en
margur annar að verða þræll
sinna eigin áhugamála. Hann
var í rauninni listamaður í
skapi og lund, og það mótaði
alla persónu hans. Fyrir því
var það einnig, að Ragnar
Kvaran lagði gjörva hönd á
miklu fleiri viðfangsefni en títt
er um íslenzka menntamenn.
Hann var góður predikari, góð-
ur rithöfundur, góður leikari og
góður félagsmaður hvar sem
hann var. Og ef til vill átti
þetta allt rót sína að rekja til
þess, að hann vaf ekki einungis
gáfaður maður, heldur einnig
góður maður.
Ragnar E. Kvaran kunni eina
íþrótt betur en ef til vill þorr-
inn allur af núlifandi íslend-
ingum, og kannske bezt alls
þess, er honum var vel gefið.
Hann var snillingur í viðræðu.
Hann kunni að taka þannig á
málum í viðræðu, að saman fór
gamansemi, glettni, djúp íhug-
un og skarpur skilningur. Þess
vegna var oft meira gaman að
ræða við hann stundarkorn, þó
að ekki væri nema þar sem
maður hitti hann á götu úti,
heldur en flesta menn aðra.
Með Ragnari E. Kvaran er til
moldar genginn einn af glæsi-
legustu gáfumönnum okkar fá-
mennu þjóðar, og það er hverj-
um kunningja hans og öllum
vinum mikil harmsögn, að hon-
um skuli hafa verið á brottu
daginn í síðastliðinni viku, þeg-
ar fregnin barst um það, að
þessi samningur stæði fyrir dyr-
um — „gleðiefnið öllum þeim,
sem óska friðar og frelsis“, og
„árangurinn, sem hefir náðst
vegna hinnar óhvikulu friðar-
stefnu Sovétríkjanna, er hrakið
hefir til baka allar árásir fas-
istaríkjanna“(!) eins og Þjóð-
viljinn hafði eftir einum flokks-
bróður sínum á Frakklandi.
Frönsku, pólsku og ensku
verkamennirnir, sem nú verða
að fara út í opinn dauðann til
þess að berjast gegn hinu blóð-
uga ofbeldi þýzka fasismans,
eru nú að fá reynslu fyrir því,
hvernig Sovét-Rússland hefir
tryggt „frið og frelsi“ og „hrak-
ið til baka allar árásir fasista-
ríkjanna“!
kippt á bezta aldri, einmitt með-
an hann er önnum kafinn við
að vinna merkilegt brautryðj-
andastarf í kynningu landsins
út á við.
Sigurður Einarsson.
*
Ragnar E. Kvaran vár sonur
skáldsins Einars Hjörleifssonar
Kvaran og konu hans, Gíslínu
Gísladóttur. Hann fæddist í
Winnipeg í Kanada 22. febrúar
1894, en þá var faðir hans rit-
stjóri eins af blöðum íslendinga
þar.
Eftir að Einar Kvaran flutt-
ist heim til íslands með fjöl-
skyldu sína, gekk Ragnar í
Menntaskólann og útskrifaðist
þaðan með ágætri einkunn
1913. Embættispróf í guðfræði
tók hann 1917 og 1922 fór hann
vestur til Kanada og gerðist
prestur við fyrsta sambands-
söfnuð íslendinga í Winnipeg.
Meðan hann dvaldi vestra, afl
aði hann sér afarmikilla vin-
sælda og gegndi mörgum trún-
aðarstöðum. Var hann til dæm-
is forseti Þjóðræknisfélags
íslendinga í Vesturheimi næst-
um allan tímann, sem hann var
vestra, eða til ársins 1933.
Ragnar E. Kvaran.
Það ár kom hann aftur heim
til íslands. Fyrst eftir heimkom-
una flutti hann fjölda fyrir-
lestra í Ríkisútvarpið og víðar
og vann sér geysimiklar vin-
sældir fyrir. Síðan var hann ráð-
inn skrifstofustjóri Skipulags-
nefndar í atvinnumálum, er
hún var stofnuð 1934. Eftir að
lögin um Ferðaskrifstofu ríkis-
ins voru samþykkt 1935, var
hann ráðinn landkynnir, og
þegar Eggert P. Briem lét af
störfum sem forstjóri Ferða-
skrifstofunnar, tók Ragnar
Kvaran við því starfi og gegndi
því til dauðadags. -— Ýms rit-
verk liggja eftir Ragnar Kvar-
an. Skrifaði hann fjölda bæk-
linga á ensku og Norðurlanda-
málum um land og þjóð, sem
síðan hefir verið dreift út um
allan heim. Þá flutti hann og
fyrirlestra í brezka og danska
útvarpið um ísland. Tvær þýð-
ingar liggja og eftir hann á bók-
um eftir Upton Sinclair, Smið-
ur er ég nefndur og Jimmie Hig-
gins. Báðar þessar skáldsögur
þýddi hann fyrir Alþýðublaðið
meðan hann dvaldist vestra.
Ragnar E. Kvaran var glæsi-
legur skapgerðarleikari og hafði
á hendi fjöldamörg hlutverk,
bæði hjá leikfélagi íslendinga í
Winnipeg og eins hér hjá Leik-
félagi Reykjavíkur. Var hann
og leiðbeinandi og’ stjórnandi
við fjöldamargar leiksýningar.
Formaður Leikfélags Reykja-
víkur var Ragnar Kvaran frá
árinu 1936 og til dauðadags.
Árið 1919 giftist Ragnar
Kvaran Þórunni Hafstein, dótt-
ur Hannesar Hafstein, og lifir
hún mann sinn ásamt 4 börnum.
Ragnar Kvaran hafði verið
lengi sjúkur undanfarið. Var
hann skorinn upp í vetur við
botnlangabólgu — og aftur nú
við magasári, en hann lézt af
afleiðingum þess uppskurðar.
Útbreiðið Alþýðublaðið!
samkvæmt heimild í lögum nr.
37, 12, júní 1939, birtist hér með
öllum þeim, er hlut eiga að máli.
í ríkisstjórn islands, 1, sept, 1939,
Eysteinn Jónsson.
Ólafur Thors, j
Jakob Möller,
Hermann Jónasson,
Ríkisstjórnin getnr ðt bráðablrgðareglu-
gerð nm sölu og dreiflngn nanðsynjavara
----«,--
Hún undirbýr matvælaskömtun i landinu
Ð íKISSTJÓRNIN gaf í
gærkveldi út reglugerð
til bráðabirgða, sem er raun-
verulega undirbúningur á
matvælaskömmtun í landinu.
Fjallar þessi reglugerð um
sölu og dreifingu nokkurra
nauðsynjavara.
I ráði mun vera að setja á
stofn skrifstofu, sem annist
mat vælaskömmtunina.
Ríkisstjórnin sat á fundi
lengi síðdegis í ígær og ræddi
um ýmis mál, sem snerta að-
stöðu okkar í styrjöld.
Reglugerð sú, sem hún gaf út
að fundinum loknum, er svo-
hljóðandi:
1. gr.
Unz til fullnaðar verður geng-
ið frá ákvæðum um sölu og út-
hlutun á ýmsum vörum á ófrið-
artimum, eru hérmeð settar eft-
irfarandi reglur um sölu og út-
hlutun á eftirfarandi vöruteg-
undum: 1) rúg og rúgmjöli, 2)
hveiti og hveitimjöli, 3) hafra-
grjónum, 4) hrísgrjónum, 5)
matbaunum, 6) sykri, 7) kaffi,
8) kolum til húsa.
2. gr.
Heildvöruverzlunum er bannað
að afgreiða vörur beint til neyt-
enda, og brauðgerðarhúsum að
selja efni til bökunar, óunnið.
Er heildsöluverzlunum eigi
heimilt að afgreiða vörur þær,
sem taldar eru hér að framan,
til annarra en þeirra kaup-
manna, kaupfélaga eða iðnfyrir-
tækja, sem áður hafa keypt sömu
vörur hjá þeim að staðaldri,
nema meö sérstöku leyfi við-
skiptamálaráðuneytisins. Eigi
má afgreiða \ meira i einu en
vikubirgðir, ef um innanbæjar-
sölu er að ræða, allt miðað við
fyrri yenjuleg viöskipti.
3. gr.
Smásöluverzlunum (kaup-
mönnum og kaupfélögum) er ó-
heimilt að afgreiða meira magn
af vörum þeim, sem taldar voru
hér að framan, til hvers einstaks
kaupanda, en venjulegt er, sbr.
þó 4. gr., og ennfremur varast að
selja vörur þær, er hér um ræðir
öðrum en þeim, er venjulega
skipta við þá.
4. gr.
Einstaklingum er bannað, að
viðlagðri refsiábyrgð, að kaupa
meira af matvörum þeim sem
taldar eru í 1. gr. á hverri viku
en hann notar á vikutíma. Kol
er þó hinsvegar heimilt að kaupa
á sama hátt til mánaöartíma. Á-
kvæði þessarar málsgreinar fell-
ur úr gildi 15. sept. n. k.
5. gr.
Kaupmenn og kaupfélög skulu
halda skrá um viðskiptamenn
sína og sölu sína til þeirra á
vörum þeim, er reglugerð þessi
nær til, þannig að séð verði hve
mikið magn hver einstakur ein-
staklingur hefir fengið.
6. gr.
Allir þeir, sem hafa birgðir af
vörum þeim, sem taldar voru hér
að framan og ætlaðar eru til sölu
eða vinnslu, skulu nú þegar gera
skrá um birgðir sínar. Skrá þessi,
ásamt skýrslu um innkaup sín
frá þeim tima er hún var gerð,
og söluskýrslu til viðskipta-
manna samkv. 5. gr. skulu þeir
senda viðskiptamálaráðuneyt-
inu, eða stofnun er það kynni að
fela eftirlit með sölu og dreif-
ingu nauðsynjavara, þegar kraf-
izt verður.
7. gr.
Brot á reglugerð þessari varöa
sektum allt að 10.000 kr. og skal
með mál út af þeim farið sem
almenn lögreglumál.
8. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar
gildi.
Reglugerö þessi, sem sett er
tthlutnn námsstyrkja til
íslenzhra stáðenta.
UTHLUTUN námsstyrkja úr
Snorrasjóði 1930 hefir nn
farið frarn í níunda sinn. Alls
bárust ráðuneytinu 20 styrkum-
sóknir. Námsstyrk hlutu þessir:
Gunnar H. Ólafsson. stúdent
frá ísafirði, til náms í húsagerð-
arlist við háskólann í Þránd-
heimi, framhaldsstyrkur kr.
800,00.
Jóhann Jónasson, stúdent frá
Öxney, til landbúnaðarnáms í
Noregi, framhaldsstyrkur kr.
600,00.
Bjarni Fannberg, búfræðing-
ur frá Stokkahlöðum í Eyjafirði,
til búnaðarnáms í Noregi, fram-
haldsstyrkur kr. 450,00.
Edwald B. Malmquist, frá
Stuðlum í Reyðarfirði, til land-
búnaðarnáms í Noregi, fram-
haldsstyrkur kr. 450,00.
Baldur Bjarnason, stúdent,
Reykjavík, til sögu og landa-
fræðináms við háskólann í Qs-
ló, framhaldsstyrkur kr. 500,00.
Rögnvaldur Þorláksson, stúd-
ent, til náms í byggingarfræði
við háskólann í Þrándheimi,
framhaldsstyrkur kr. 800,00.
Svanborg Sæmundsdóttir frá
Aratungu í Steingrímsfirði, til
vefnaðarnáms í Noregi kr.
300,00.
Margrét Bjarnadóttir, Kvenna
skólanum, Blönduósi, til fram-
haldsnáms og kennaraprófs í
vefnaði í Noregi kr. 350,00.
Jónína Guðmundsdóttir, til
náms í húsmæðraskóla í Nor-
egi kr. 350,00.
Páll Hafstað, frá Vík, til land-
búnaðarnáms í Noregi kr.
350,00.
Dr. Einar Ól. Sveinsson,
Reykjavík, til vísindaiðkana í
Noregi, til að afla gagna í rit
um ísl. þjóðsögur kr. 750,00.
Úr Kanadasjóði.
Þá hefir farið fram úthlutun
styrkja úr Kanadasjóði. Bárust
ráðuneytinu 6 styrkumsóknir.
Námsstyrk hlutu:
Jakob Sigurðsson, stúdent
Frh. á 4. síðu.
Allt á sama stai
Hefi opnað fyrsta flokks hús fyrir bílasmurnihgu.
Allar tegundir bíla smurðar.
Allt á sama stað.
H.F. Eglll Ftlhlálmsson,
Laugavegi 118. Sími 1717,
Htnar vinsæln hraðferðlr
Steindórs
tll ákureyrar um Akraues erui
Frá Reykjavík: Alla mánudaga miivikudaga
föstudaga og sunnudaga.
Frá Akureyri: Alla mánudaga, fimtudaga
Jaugardaga og sunnudaga.
Afgreiðsla okkar á Aknreyri er á bff«
reiðastðð Odeleyrar,
M.s. Fagranes annast sjdleidlna.
Nýjar uppMtaðar bifreiðar með útvarpi.
Allar okkar hraðfeiðir eru um Akranes.
Steindér,