Alþýðublaðið - 04.09.1939, Side 4
MÁNUDAGUK 4. SEPT. 1939
SsEGAMLA BÍ6
Adólf sem
I
Framúrskarandi fjörug og
fyndin sænsk söng- og
gamanmynd, gerð undir
stjóm hins vinsæla og
brá'ðskemmtilega Svía
ADOLF JAHR,
er sjálfur leikur aðalhlut-
verkið óviðjafnanlega.
!• 6» T.
ST. VERÐANDI nr. 9. Fundur
annað kvöld kl. 8. I. Inntaka
nýrra félaga. II. FræÖi- og
skemmtiatriði annast frú Þor-
valdína Ölafsdóttir, frú Þór-
anna Símonardóttir og hr. Is-
leifur Jónsson.
Ný hlatleysisyfirlýs-
ing Islanis.
RÍKISSTJÓRNIN gaf í gær
út eftirfarandi hlutleysis-
yfirlýsingu til viðbótar við þá,
sem áður var út gefin:
Ríkisstjórn íslands hefir í
samræmi við áður gefna yfirlýs-
ingu um ævarandi hlutleysi á-
kveðið að gæta fullkomins hlut-
leysis á meðan stendur yfir ó-
friður sá, sem nú er kominn
milli Stóra-Bretlands og Þýzka-
lands og Frakklands og Þýzka-
lands. Um hlutleysi íslands
skulu gilda ákvæði þau, sem sett
hafa verið með konunglegri til-
skipun 14. júní 1938 í samhandi
við yfirlýsingu milli íslands,
Danmerkur, Finnlands, Noregs
og Svíþjóðar frá 27. maí 1938
um ákveðin hlutleysisákvæði.
Hlutleysisyfirlýsingin hefir
verði tilkynnt öllum ríkisstjórn-
um.
Engin taœtta er á mat«
vælaskorti hér á landi.
Ummæli wlðsldpf anaálaráðlBerpa í
viðtalt við Alpýðiiblaiið f m@rgim.
A LÞÝÐUBLAÐIÐ hafði í
morgun viðtal við Ey-
stein Jónsson viðskiptamála-
ráðherra og spurði hann,
hvaða augum hann liti á að-
stöðu okkar með matvæli og
aðrar nauðsynjar á þessum
tímum.
Hann sagði meðal annars:
„Ríkisstjórnin sat á fundum
næstum allan laugardaginn og í
gær. Hún verður einnig á fund-
um í dag. Ófriðurinn og aðstaða
okkar íslendinga er svo að segja
eina viðfangsefni þessara funda.
Mér er óhætt að fullyrða, að eng
in rökstudd ástæða er til að
ætla, að skortur verði á matvör-
urn hér í landinu, svo að fólk
þarf ekki að óttast. Allt veltur
hins vegar á því, að landsmenn
sýni fullkominn þegnskap í
þessum málum, því að þó að við
tökum engan beinan þátt í styrj-
öldinni, þá má samt segja, að
við eigum í styrjöld við alla þá
erfiðleika, sem að okkar litla
og afskekkta landi steðja á svona
tímum. Ríkisstjórnin mun ásamt
þjóðinni í heild geta leyst
vandamálin, en hitt er vitað
mál, og nauðsynlegt, að þjóðin
öll geri sér það ljóst, að ein-
stakir menn geta aukið erfið-
leikana um allan helming. Það
má enginn gera tilraun til að
birgja sig upp af vörum, enda
hafa nú verið settar skorður fyr
ir því — og þær verða strang-
ari. Allar ráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar miða að því, að
enginn líði skort, að allir fái svo
mikið, að það nægi, að eitt gangi
yfir alla. Aðalatriðið er líka að
ná því takmarki, að birgðirnar,
og það sem við fáum síðar, nái
saman, en það tekst ekki, ef
einstakir menn reyna að viða að
sér á kostnað annarra. Öll þjóðin
verða að vera sem samstillt
heild og menn mega ekki gleyma
því, að það er einskisvirði fyrir
einstaklinginn að eiga birgðir
ef aðra við hlið þeirra vantar
nauðsynjar.“
Alþýðublaðið vill taka undir
þessi varnarorð ráðherrans, enda
eru ummæli hans skoðun allrar
ríkisstjórnarinnar og mælt fyrir
hennar munn.
Það er sjálfsagt fyrir alla að
spara nú vörur meira en nokkru
•áinni áður og framar öllu að
draga sem mest má verða úr
neyzlu allra erlendra vöruteg-
unda, en auka neyzlu innlendra
matvara.
íslendingum hefir oft riðið á
því að standa vel saman, en
aldrei eins og nú.
Eimskipafélags-
skípin kema með
fniiíermi heim.
Gifurleg eftirspnrn eftir
lariegartni kæil I Dai-
rnðrkn oy Englandi.
*
Eimskipafélagsskipin Brúar-
foss, Selfoss og Dettifoss dvelja
nú á erlendum höfnum.
Brúarfoss á að fara frá Kaup-
mannahöfn annað kvöld og er
liann hlaðinn nauðsynjavörum
til landsins frá Danmörku. Gíf-
urleg eftirsókn hefir verið eftir
farþegarúmi með skipinu, og
segir í skeyti til Eimskipafélags-
ins, að það séu stór vandræði
með að koma öllum þeim heim,
sem beðið hafa um rúm. Brúar-
foss á ekki að koma við í Eng-
landi. Með skipinu kemur Stef-
án Jóh. Stefánsson félagsmála-
ráðherra, en hann hefir undan-
farna daga unnið margs konar
störf fyrir landið ytra.
Selfoss er í Englandi og hleð-
ur þar nauðsynjavörur. Mun
hann taka eins mikið og hann
getur borið. Einnig í Englandi
er gífurleg eftirspurn eftir far-
þegarúmi, en Selfoss getur ekki
tekið nema svo lítið af farþega-
um. — Dettifoss á að hlaða í
Englandi í vikulokin og tekur
fullfermi af nauðsynjum til
landsins. Mun hann og hafa
þegar meira en öll farþegarúm
full.
Engar fréttir höfðu borizt í
morgun kl. 11 til Eimskipafé-
lagsins um það, að búið sé að
loka dönsku sundunum. En
Bretar munu þó vera búnir að
leggja tundurdufl sums staðar
við strendur Danmerkur.
Lyra
kemur kl. 7 í kvöld.
Strlðsvátrygg-
ing islenzkra
skipa.
Sjémenn vetða að fá
áhættupeninoa fyrir að
sigla á striðssvæðinn.
SJÓMANNAFÉLAG
Reykjavíkur skrifaði
fyrir viku öllum útgerðar-
félögum farþega- og vöru-
flutningaskipa og óskaði
eftir því, að þegar í stað
yrðu skipin sett í stríðsvá-
tryggingu. — Hvað togar-
ana snertir er þetta bundið
samningum milli sjó-
mannafélaganna og Félags
íslenzkra botnvörpuskipa-
eigenda.
Félög stýrimanna, vél-
stjóra, loftskeytamanna og
matsveina og veitinga-
þjóna hafa gert þessa sömu
kröfu, og vinna öll félögin
saman að þessu. Kl. 2 í
dag var fundur meðal út-
gerðarmanna til að hrinda
þes'su máli í framkvæmd.
Um leið hafa félögin far-
ið fram á, að sjómenn fái
áhættupeninga fyrir að
sigla á stríðssvæðinu, eftir
sömu reglum og gilda með-
al annarra Norðurlanda-
þjóða.
ÁSTRALÍA OG NÝJA ’SJÁLAND
Frh. af 1. síðu.
um sama efni var kunngerð í
skeyti frá ríkisstjórninni til
stjórnarinnar í London, einnig
í gær.
Brezka stjórnin hefir ákveðið
að halda kyrru fyrir í London
— hvað, sem á dynur.
Winston Churchill sagði í
ræðu á þingi í gær, að það ætti
ekki að vera Bretum og Frökk-
um ofurefli að sigra í þessari
styrjöld, en bað menn að hafa
hugfast, að erfiðleikarnir væru
margir fram undan og enginn
vissi hversu lengi stýrjöldin
stæði.
Enska herskipið „Warwick“
tók þýzka hafskipið „Bremen“
í dag á opnu hafi, eftir að stríði
var lýst yfir milli Þýzkalands
og Bretlands, og færði það til
brezkrar hafnar. Hafði herskip-
ið fylgt því eftir alla leið frá
Ameríku.
Dronning Alexandrine
fcom frá Kaupmannahöfn kl.
um 9 í morgun.
1 DA6
Næturlæknir er Halldór Stef-
ánsson, Ránargötu 12, sími 2234.
Næturvörður er i Reykjavíkur-
og Iðunnar-apóteki.
OTVARPIÐ:
19,00 Síldveiðiskýrsla Fiskifél.
19,45 Fréttir.
20,10 Veðurfregnir.
20,20 Hljémplötur: Göngulög.
20,30 Sumarþættir (V. Þ. G.)
20.50 Hljómplötur: a) Islenzk
lög. b) 21,05 Ensk alþýðu-
lög. c) Tónverk eftir Bach
og Haydn.
21.50 Fréttaágrip. Dagskrárlok.
ROSSUM FAGNAÐ í BERLIN
Frh. af 1. síðu.
komuna í Berlín með haka-
krossfánum og rauðum fánum
með hamri og sigð. Horst
Wesselsöngurinn og Internati-
onale voru leikin af hljómsveit
hvort á eftir öðru.
Pðlverjar verjast vel
innrás Þjéðverja.
Pólski sendiherrann í London
tilkynnir, að Þjóðverjar geri loft-
árásir á óvíggirtar borgir og bæi
og varpi niöur gassprengjum.
11 pólskar flugvélar voru
skotnar niður 1 gæx og 64 þýzkar.
Hersveitum þeim, sem sækja
fram í pólska hliðinu vestanverðu
frá Þýzkalandi, hefir orðið lítið
ágenigt, en þeim frá Austur-
Prússlandi betur. Þær eru komn-
ar að Weichselánni. Á vígstöðv-
unum við iandamæri Slóvakíu
hefir ekki orðið mikil breyting.
Miklir bardagar hafa verið í
Slesíu, aðallega í nánd við bæinn
Czestochotwa, rúma 20 km frá
landamæmnum. Pólverjar til-
fíynntu í morigun, að þeir hefðu
neyðzt til að yfirgefa borgina.
1500 manns biðu banaígær og
fyrradag í loftárásum Þjóðverja
á pólskar borgir, sem flestar eru
óvíggirtar.
Þýzkar fregnir segja,* að Pól-
verjar hafi tekið aftur borgirnar
Pukk og OIovo, og berjast Pól-
verjar nú á þýzkri grand. I Efri-
Slesíu era ákafir bardagar. Sam-
kvæmt þýzkri fregn fór Hitler í
gær frá Berlin til austurvígstöðv-
mna. Sagði hann í ávarpi, að
stríðið að austanverðu myndi að-
éins standa yfir í nokkra mánuði.
I gær komst upp, að 3 stutt-
bylgjustöðvar era byrjaðar að
tiarfa í Þýzkalandi, sem útvarpa
áróðri gegn Hitler og stjóm hans.
Stjórnir Rúmeníu, Júgóslavíu
og Búlgaríu hafa enn fest sam-
fök sm um það að halda uppi
strangasta hlutleysi í Evrópu-
styrjöld, og var í gærkveldi gert
nýtt samkomulag um þetta efni.
fiott verð.
Súputarinur 5,00
Áleggsföt 0,50
Desertdiskar 0,35
Ávaxtadiskar 0,35
Ávaxtaskálar 2.00
Ávaxtastell 6 m. 4,50
Smurbrauðsdiskar 0,50
Vínglös 0,50
ísglös 1,00
Sítrónupressur 0,75
Veggskildir 1,00
Kartöfluföt með loki 2,75
Matskeiðar 0,25
Matgafflar 0,25
K. Einamon & Bjðrnsson
Bankastræti 11.
Kaupum tuskur og strigapoka.
Húsgagnaviiumstofan "^l
Baldursgötu 30. Sími 4166.
3 NÝJA BIÓ 3
IVictoríamiklaEng-
landsdrottning
Söguleg stórinynd, sem er
mikilfengleg lýsing á hinni
löngu og viðburðaríku
stjórnaræfi Victoríu
drottningar og jafnframt
lýsir hún einhverri aðdá-
unarverðustu ástarsögu
Veraldarinnar.
1 Aðalhlutverkin leika:
Anna Neagle og
Anton Walbrook.
Roosevelt lýstl yfir hlit-
ieysi Bandarihjanna i nott.
LONDON í morgun. FÚ.
ROOSEVELT Bandaríkjaforseti ávarpaði þjóð sína í útvarpi
síðastliðna nótt.
Hann sagði, að þegar styrjöld væri á annað borð skollin á,
væri friðurinn hvarvetna í hættu. En Bandaríkin lýsa yfir því,
að þau ætli að vera hlutlaus, sagði forsetinn. Hann minntist á
þær getgátur, sem fram hefðu komið í útvarpi ýmissa landa, að
Bandaríkin myndu lenda í styrjöldinni og senda herlið til Ev-
rópu. Bandaríkjamönnum finnst nógu dapurlegt að þurfa að lifa
á tímum styrjaldar, þó að þeir þurfi ekki einnig að heyra getgátur
um það, að þeir muni senda syni sína til vígvallanna.
Roosevelt sagði enn fremur, að ríkisstjórnin myndi heita allri
orku til að koma í veg fyrir, að Bandaríkin taki þátt í styrjöldinni.
DRENGJAFÖT.
Klæðið drenginn
smekklegum fötum frá
Sparta, Laugavegi 10.
Jarðarför móður okkar,
Guðlaugar Sigurðardóttur,
fer fram frá Þjóðkirkjunni miðvikudaginn 6. sept. 1939, og hefst
með bæn á heimili hennar Óðinsgötu 21 kl. 1 e. h,
Guðný Guðmundsdóttir. Októvía Guðmundsdóttir.
Jóel Guðmundsson, Þorlákur Guðmundsson.
Skrifstofur
Stjórnarráðsins
S|úkraanáladeild ogf Hrkamla, seaaa
verið taafa i Austurstræti 14, eru
tluttar á Frfkirkjuveu 11.
Fra nkisstjorniiHi.
Viðtalstími ráðherranna verður fyrst um sinn
á miðvikudögum Idukkan 10—12 fyrir hádegi.