Alþýðublaðið - 06.09.1939, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPT. 1939
WBt GAMLA BIO
Adólf sem
Framúrskarandi fjörug og
fyndin sænsk söng- og
gamanmynd, gerð undir
stjórn hin’s vinsæla og
brá'ðskcmmtilega Svía
ADOLF JAHR,
er sjálfur leikur aðalhlut-
verkið óviðjafnanlega.
ST. FRÖN nr. 227. Fundur ann-
að kvöld kl. 8. Dagskrá: 1.
Upptaka nýrra félaga. 2. Ýms
mál. — Hagskrá: a) Próf. Guð-
brandur Jónsson: erindi. b)
Guðmundur Kr. Guðmundsson
ikaupm.: upplestur. c) ? — AÖ
loknum fundi verður dans stig-
inn og leikur hljómsveit undir
dansinum. — Félagar, fjöl-
mennið og mætið annað kvöld
kl. 8 stundvíslega.
Laghent ung stúlka óskast.
Sparta, Laugavegi 10.
ÁVARP FORSÆTISRÁÐHERA
Frh. af 1. síðu.
lausustu þjóð veraldarinnar, er
sýnt hefði drengilegt hlutleysi.
Af þessum ástæðum verður
hver íslendingur að hafa það í
huga, að hlutleysið er fjöregg
þjóðarinnar, sem skylt er að
varðveita og standa vörð um
eítir megni að aðrir grandi ekki.
Með því að gera það, er hlut-
leysi okkur sterkari vörn en
jafnvel hervarnir eru öðrum
þjóðum.
En þótt við sleppum við hinar
sáru ógnir ófriðarins, hlýtur
heimsstyrjöldin að baka þjóðinni
margs konar óþægindi, sem
sumpart eru fyrirsjáanleg, en
einnig ófyrirsjáanleg. Aðal erf-
iðleikarnir munu verða í sam-
bandi við siglingateppu og
hömlun á vöruflutningum til
landsins. Enn er ekkert um það
vitað, hve stórfelld siglinga-
teppan kann að verða, en fyrir
íslenzku þjóðina er einmitt þetta
atriði mjög mikilsvert, vegna
þess, hve mikið við þurfum að
flytja að og frá landinu,- Það
má benda á það 1 þessu sam-
bandi, að þótt svo fari, að sigl-
ingar til Evrópu stöðvist að
verulegu leyti, þá erum við þó
betur stödd um siglingar til
vesturálfu en í síðasta stríði, og
undirbúningur undir verzlunar-
viðskipti meiri en þá var vegna
þess, sem unnið hefir verið að
þeim málum undanfarin ár.
Það er þess vegna engin á-
stæða tii þess að ætla, að is-
lenzka þjóðin geti ekki flutt að
sér mestu lífsnauðsynjar meðan á
ófriði stendur, en að sjálfsögðu
verður þjóðin þó að neita sér
um margt, sem áður hefir verið
fiutt til landsins og talið nauð-
synlegt.
En þegar talað er um erlendan
varning má á það minna, að við
höfum á undanförnum árum not-
að hér margs konar erlendan ó-
þarfa, sem við höfum eytt í
miklu fé, en hefir verið heilsu
og velferð þjóðarinnar til ógagns.
Við eigum nú að mynda sterk
samtök um þaö að neita okkur
um margt af þessum varningi,
og munum þá komast að raun
um það innan skamms, að við
söknum ekki neins, en það er
bæði fjármunum okkar og heilsu
til gagns.
Erfiðleikar hafa verið hér og
eiu miklir, — en þó ber á það
að líta, að nú, þegar ófriðurinn
brýzt út, erum við íslendingar á
marga lund betur undir það á-
stand búnir nú en áður, sem
skapast hlýtur.
Framleiðsla ýmissa landbúnað-
arafurða hefír, vegna hinna stór-
stígu framfara í landinu síðast-
liðin ár, aukizt, þrátt fyrir fólks-
fækkun í sveitunum. Framfarir í
garðræktarmálum hafa verið
miklar hér á seinni árunr og
sennilega aldrei meiri en í ár.
Árferði til landsins hefir verið
sérstaklega hagstætt í sumar. Allt
kemur þetta íslenzku þjóðinni í
góðar þarfir.
Við höfum nokkra von til þess,
þótt ekki sé það vissa, að geta
jafnvel þótt styrjöldin yrði all-
fangvinn, stundað sjóinn með
sömu eða svipuðum tækjum og
gert er nú. Og fiskimiðin okkar
og íslenzka moldin em mlklir
matargjafar.
Ýmisskonar iðnaður (þótt sunrt
af honum eigi á venjulegum tím-
um vafac,aman rétt á sér) hefir
b.ómgazt mjfög, og er nú svo
la-ngt á veg kominn og svo um-
fangs- og afkastamikiil, að hann
mun reynast landsmönnum hinn
mesti styrkur um styrjaldartím-
ann. Ef til vill verður erfitt að
afla hráefna til sumra tegunda
iðnaðarins, en þær greinar hans,
sem eru stærstar og jafnframt
nauðsynlegastar, svo sem skó-
gerð, dúkagerð, prjónavörur o. s.
frv-, vinna aðallega úr íslenzk-
um hráefnum.
En þótt þannig sé háttað mál-
um, eru þó margar ráðstafanir,
sem gera þarf, og það skiptir
miklu máli, að þjóðin starfi að
því einhuga að búa sig undir
að lifa sem mest af afurðum
landsins sjálfs, og að því mún
kröftum þjóðarinnar verða ein-
beitt.
1 þeim efnurn rísa mörg við-
fangsefni, sem nokkuð hafa veriö
rannsökuð og eru mörg til at-
hugunar. Ég fer ekki inn á þessi
viðfangsefni nú f þessum al-
mennu orðum, er ég tala til ykk-
ai að þessu sinni. Pað er unnið
að þeim sleitulaust og verður í
b’öðum og útvarpi rætt um þau
mál við þjóðina jafnóðum og við
sjáum hverju fram vindur, undir-
búningi iokið og ákvarðanir
teknar.
Og þótt þetta styrjaldartímabii,
þrátt fyrir það, sem hér er talið,
muni snerta okkur meira eða
minna óbeint, þá skulum við þó
jafnan minnast þess, að óþægindi
oikkar eru ekki nema sáralítið
bibt af því, sem gengur yfir þær
þjóðir, sem berast á banaspjót-
um.
En við íslendingar þurfum
jáfnframt að sýna samheldni í
því, og fyrir því mun ríkisstjórn-
in beita sér, að eitt gangi yfir
okkur öll í þessu iandi. Ög þess
vegna skiptir það miklu rnáíí,
að aliir islendingar geri sitt ítr-
asta til þess að sjá um, að lög-
um og fyrirmælum, er stjórnin
jgefur út í þessu og öðru skyni,
sé framfylgt undandráttarlaust.
Ríkisstjórnin væntir þess, að
enginn íslendingur sýni þá vönt-
un á þegnskap að reyna að safna
að sér birgðum af vörum, meðan
f e>;if ís endingar kunna að þurfa
neita sér um margt. Ög það er
lítt skiljanlegt, að nokkur Íslend-
ingur uni sér vel í þannig fengn-
um allsnægtum. Það má a. m. k.
vænta þess, að þeir islendingar
Þýzkt stórskip
kom í Horpn.
Á því eru ÞjAðverjar og
Bretar, um fiO manns.
IDAG kl. tæplega 10 sást
stórt skip vera á leiðinni
hingað inn. Virtist sigling þess
ekki örugg við innsiglinguna.
Hafnsöigumenn fóru um borð í
skipið og lögðu því á ytri höfn-
ina.
Skipið er þýzkt, eign Hamborg-
ar-Ameríkulínunnar. Það er 10
þúsund smálestir að stærð og á
því eru 60 manns, bæði Þjóðverj-
ar og brezkir þegnar. Það heitir
„Haram" og var á leiðinni til
Ástralíu frá Las Palmas á Kana-
rísku eyjununr, þegar það fékk
skipun um að leita hlutlausrar
hafnar.
Skipstjóri mun hafa gengiö á
land fyrir hádegi — og mun
verða ákveðið í dag, hvort því
verður lagt inn á Eiðsvík eins
og hinum þýzku skipunum
tveimur.
Kl. 11,30 í dag sendi norskt
skip, senr var statt undan Sand-
gerði, beiðni unr leiðsögn þaðan
til Reykjavíkur, vegna þess, að
það hafði ekkart kort.
Pétnr G. Gnðmnndsson
sextninr i ðao.
IDAG er Pétur G. Guð-
mundsson fjölritari sex-
tugur. Á fyrstu árum verkalýðs-
hreyfingarinnar átti hann mik-
inn þátt í störfum hennar og
allt fram til þess er sundrung-
in fór að skipta mönnum innan
hreyfingarinnar. Hann var rit-
stjóri fyrsta Alþýðublaðsins,
sem út kom. Pétur G. Guð-
mundsson er fróður maður og
víðlesinn og hefir áhuga á f jölda
mörgum málum.
í kvöld halda vinir hans og
kunningjar honum samsæti í
Oddfellowhúsinu.
séu ekki margir, sem þannig eru
innrættir.
Við islendingar getum einnig á
þessum tímum glaðzt yfir því,
að hafa fyrir nokkru lagt niður
harövítugar innanlandsdeilur og
í þess stað hafið samstarf. Það
dr mikils virði á þeim tímum,
senr nú ganga yfir heiminn, að
þjóðin sé einhuga og samhent.
Og því má ekki gleyrna, að mál-
gögn flokkanna hafa átt mikinn
(þátt í því, ekki sízt síðustu vik-
urnar, að styðja. að samheldni
og eindrægni. Ríkisstjórnin mun
gera sér far urn að standa í sem
nánustu sambandi við þjóðina
um þær ráðstafanir, sem gera
þarf á þessum óvenjulegu tím-
um, og hún telur sig geta vænzt
öruggs stuðnings yfirgnæfandi
meirihluta þjóðarinnar í störfum
sínum.
Állar þjóðir líta á núverandi
ástand með bölsýni og kvíða,
og það gerum við islendingar
vissulega einnig. En ef við stönd-
um saman og sýnum gætni og
þrautseigju, munuin við, þótt við
séum fáir og smáir, geta mætt
því, sem koma skal með minni
kvíða og bölsýni en margar og
jafnvel flestar aðrar þjóðir.
Verið þið sæl!
I DAG
Næturlæknir er Axel Blöndal,
Eiríksgötu 31, sími 3951..
Næturvörður er í Reykjavíkur-
og Iðunnar-apóteki.
ÚTVARPIÐ:
19.30 Hljómplötur: Létt lög.
19,40 Auglýsingar.
20,10 Veðurfregnir.
20,20 Hljómplötur: Földesy leik-
ur á celló.
20.30 Otvarpssagan.
21,00 Orgelleikur í dómkirkjiunni
(Páll isólfsson).
21.30 Tónverk eftir Ravel.
21,50 Fréttaágrip. Dagskrárlok.
Engin pjóðsíjórn
í Danmorku.
Vinstri flokkurinnneitaði
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins.
KHÖFN í morgun.
TAUNING hefir ekki tekizt
að mynda þjóðstjórn í Dan-
mörku, enda þótt íhaldsflokkur-
inn (hægri flokkurinn) væri
reiðubúinn til þess að taka sæti
í henni.
Það hafði verið svo til ætlazt
af stjórnarflokkunum, að bæta
við í ráðuneytið fjórum ráð-
herrum án sérstakrar stjórnar-
deildar, tveimur úr hægri
flokknum og tveimur úr vinstri
flokknum. En vinstri flokkur-
inn neitaði að eiga nokkra full-
trúa í stjórninni nema því að-
eins, að 'þeir fengju ákveðnar
stjórnardeildir til umráða.
Þýzkir jafnaðarmenn
skora á þjóð sina
að steypa Hitler.
Avarp, sem dreift er i
milljónaupplagi úr flug-
vélum vfir Þýzkaland.
ÝZKI jafnaðarmannaflokk-
urinn, sem nú hefir aðal-
bækistöð sína í París og stjórn-
ar þaðan hinu leynilega flokks-
starfi á Þýzkalandi, hefir birt
ávarp undirritað af Otto Wels,
hinum gamla foringja flokksins,
og Hans Vogel, þar sem skorað
er á þýzku þjóðina að steypa
Hitler og endurreisa þýzka lýð-
veldið á fullkomnum lýðræðis-
grundvelli,
Ávarp þetta hefir vakið mikla
eftirtekt um allan heim. Það
hefir verið tilkynnt, að því hafi
þegar verið dreift í milljóna-
upplagi úr flugvélum víðs veg-
ar um Þýzkaland.
Leiðrétting.
í grein Stefáns Jóh. Stefáns-
sonar um Johan Nygaardsvoid á
þrfðju siðu blaðsins í dag hefir
slæðzt inn sú prentvilla, að
fyrsti forsætisráðherra Alþýðu-
£lokksins í Noregi (árið 1928) er
kallaður Hornsund, en átti vitan-
lega að vera Hornsrud.
Togararnir.
Þorfinnur kom í morgun af
síldveiðum.
Heildsala-Smásala
Ný verðlækkun
Kaupfélag
Borgfirðinga
Qími 1^11
BBH NÝJA B§ð S®.-
Victerfa nfkla Eng-
lanðsdrottnino
Söguleg stórmynd, sem er
mikilfengleg lýsing á hinni
löngu og viðburðaríku
stjórnaræfi Victoríu
drottningar og jafnframt
lýsir hún einhverri aðdá-
unarverðustu ástarsögu
Veraldarinnar.
| Aðalhiutverkin leika:
Anna Neagle og
Anton Walbrook.
Auglýsið í Alþýðublaðinu!
Útbreiðið Alþýðublaðið!
Innilegar þakkir mínar, barna minna og annarra aðstandenda
fvrir samúð og hluttekningu í tilefni af fráfalli og jarðarför
mannsins míns,
RAGNARS E. KVARAN, landkynnis.
Þórunn Kvaran.
kynni
frá rikisstjórnimi.
Samkvæmt tilkynningu frá brezka aðalkonslat-
inu, verður krafist upprunaskírteina, og skír-
teina um hverjir hafi hagsmuna að gæta, vegna
allra vara, sem fluttar eru til Stóra-Bretlands
eða til umskipunar paðan frá öllum hlutlaus-
um löndum.
Verið er nú að prenta hin nauðsynlegu eyðu-
blöð, og verður pessu fyrirkomulagi komið á
jafnskjótt og þau erú tilbúin.
Forsætisrððnneytið, ntanribismáladeiM,
6. september 1939.
lesin upp á þýzku og skyldmehn-
Um hermannanna öorin kveðja
frá þeim og sagt að óttast ekki
um þá.
Þýzkir hermenn, klæddir pólsk-
um einkennisbúningum, sem
kasta sér niður í fallhlífum úr
flugvélum, til þess að komast
að baki póiska hemura og vinna
S'kemmdarverk, eru leiddir fyrir
herrétt og skotnir.
Frh. af 1. síðu.
BANDARÍKIN-
arins. Með fyrri tilskipuninni er
sala á vopnum og hergögnum
bönnuð.
Roosevelt lýsti einnig yfir því
í gær, að ráðstafanir myndu
verða gerðar til þess í Bandaríkj-
umum að banna fasistiskan og
nazistiskan áróður, og að skip-
um, sem flyttu Bandaríkjamenn
vestur um haf, myndi ekki fyrst
um sinn verða veitt herskipa-
vernd.
Síldveiðin í Keílavík
hefir verið afarmisjöfn undan-
farið. Sumir bátar hafa fengið
ágælan afla, en aðrir mjög lítinn.
FÚ.
STRÍÐIÐ 1 PÓLLANDI
Frh. af 1. síðu.
heilu og höldnu. En þýzka út-
varpið ber á móti því, að þessi
fregn sé sönn.
Miklar orustur standa
nð yfir á Pðllanði.
Miklar orustur standa yfir í
Slesíu, og segjast Þjóðverja.
sækja fram til Kraká. F á
Þýzkalandi kemur einnig tll-
kynning um, að þeir hafi tekið
Mlava, rétt við landamæri
Austur-Prússlands að sunnan,
en Pólverjar segja, að engin
stórtíðindi hafi gerzt á þeim
vígstöðvum.
Samkvæmt þýzkum fréttum
hafa Pólverjar nú orðið að yfir-
gefa horgina Graudenz við
Weichsel.
Pólska setuliðið í Gdynia hefir
gert skyndiárás inn í Danzig-
hérað, tekið fallbyssu, nokkrar
vélbyssur og 12 fanga.
I pólska útvarpinu er fariö að
lesa upp nöfn og heimilisfang
þýzkra hermanna, sem Pólverjar
hafa tekið til fanga. Eru nöfnin
Aðelns 4 sglndagar eftir,
HAPPDEKÆTTIÐ