Alþýðublaðið - 15.09.1939, Blaðsíða 1
AIÞÝÐUBLADIÐ
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
UTGEFANDI: ALÞYÐUFLOKKURINN
KX. ÁRGANGUR
FÖSTUDAGUR 15. SEPT. 1939.
212. TÖLUBLAÐ.
nssnesb árás á Pólland í aðsigi ?
Rússnesku blöðin bera Pólverj-'
nm þjóðerniskúgun á brýn og
boða sundurlimun landsins!
morgun.
rússneska
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. Kaupmannahöfn í
MOSKVABLAÐIÐ „PRAVDA," aðalblað
kommúnistaflokksins, flutti í gær svæsna árásar-
grein á Pólland, þar sem Pólverjum er borið á brýn, að þeir
beiti þjóðernisminnihlutana í pólska 'Hvíta-Rússlandi og
pólsku Ukraine hinni mestu kúgun. Segir blaðið, að full-
komin óstjórn ríki nú á Póllandi og þess muni skammt að
bíða, að pólska ríkið verði limað sundur og leyst upp.
Þá var í mörgum rússneskum blöðum í gær ráðizt
heiftarlega á Pólverja fyrir það, að pólskir flugmenn hafi
flogið inn yfir rússnesku landamærin, og er það tilkynnt,
að nokkrir þeirra hafi verið neyddir til að lenda og teknir
fastir.
Úti um heim óttast menn, að þessar rússnesku blaðaárásir
á Pólverja, sem minna mjög á þýzku blaðaárásirnar á þá undan-
farna mánuði, séu fyrirboði þess, að Rússar ráðist fyrr en varir
inn í Pólland að austan og leggi undir sig þau héruð, sem talað
er um í blöðum þeirra.
Kort af Póllandi.
Þiððverjar tófen
Gdpiajpr.
Samkvæmt tilkynningu frá
þýzku herstjórninni í gær, gafst
pólska setuliðið í hafnarborg-
inni Gdynia upp í gærmorgun,
en það hefir varizt þar fræki-
lega síðan í stríðsbyrjun.
Þýzku hersveitirnar fóru inn
í borgina klukkan rúmlega tíu
í gærmorguh. En viðurkennt er
í tilkynningu Þjóðverja, að enn
sé barizt fyrir norðan borgina.
Varsjá er eftir sem áðiur á
valdi Pólverja, en í þýzkum
fréttum er því haldið fram, að
þýzku hersveitirnar séu í þann
veginn að umkringja hana. Þó
er viðurkennt, að þær hafi ekki
náð saman fyrir austan borg-
ina, þar sem 30 km vegalengd
sé enn á milli þeirra.
Aðalsókn Þjóðverja er enn
Samkomalag milli sjó
manna og titgerðar-
manna í Noregi er
farið ní nm pnfnr.
i
OSLO í moigun F.Ú.
SAMKOMULAG það, er ná&-
ist á döjguwum milli norskra
útgerðarmanna og sjómanna, er
þegar fari'ð út um þúfur, vegna
þess að sjiómannafélögin áliita
hættusvæði það, sem tiltekið er
i samkomulagimi, alltof takmark-
að, þar sem fleiri sambandsveldi
Bretlands séu nú komin í stríðið
en þegar samkomulagið vargert.
Fundir hafa verið haldnir hjá
sáttasemjara ríkisins, en þeirhafa
engan árangurboriðogerþeim nú
slltiÖ. Samkomulaginú frá 7. sept.
er því sagt upp frá 20. sept.
Einnig hafa stýrimenn og vél-
stjórar sagt upp sínum samn'ing-
um.
— eins og síðustu dagana, í
Suður-Póllandi, þar sem þeir
eru nú á næstu grösum við Lub-
lin og Lemberg, en hafa þó
hvorugri þeirri borg náð, enda
þótt þeir héldu því fram í gær,
að þeir hefðu þá þegar tekið
Lemberg.
Tilgangur þýzku sóknarinn-
ar á Suður-Póllandi virðist
fyrst og fremst vera sá, að loka
öllum samgönguleiðum Pól-
lands til Rúmeníu.
Sókn Þjóðverja suður á Pól-
landi gengur öll miklu erfið-
legar nú en í vikunni, sem
leið, og kenna Þjóðverjar. óhag-
stæðum veðurskilyrðum um.
Það hefir rignt mikið og vegirn-
ir eru mjög torfærir yfirferðar.
í fréttum blaðamanna að aust-
an er sagt, að „leðja hershöfð-
ingi" hafi skorizt í leikinn!
Pólska fréttastofan birti í
gærkveldi ákveðna tilkynningu
um endurtöku Lodz, og segir í
tilkynningunni, að Þjóðverjar
hafi skilið þar eftir vopn, skot-
færi og önnur hernaðartæki.
Endurtaka Lodz er sögð hafa
haft mjög hvetjandi áhrif á
pólska herinn, og Varsjá er var-
in endurvöktu kappi og áhuga.
í Hava9-fregn frá Zúrich
segir, að manntjón sé mikið í
liði Þjóðverja. Engar tolur hafa
verið birtar, en fullyrt er, að
sjúkrahús í Berlín og Wien séu
full af særðum hermönnum.
Frakkar m é 135 km.
svæði á pýzkri grund.
Þýzku skipin hér vilja fá
að leggjast inn I Hvalfjorí!
iEá!_?!™?555í
AHar verzlanir verða lik-
aðar allan lorgnndaginn.
Afhending matvælaseðla hefst
á morgun kl. lO fyrir hádegi.
" .-------------- ?-------!----^----------- .
Rikisstjórnin gaf M i gær reglugerð um sðlu koia.
-------------------?-------------------
j\ LLAR verzlanir í Reykja-
í morgun. FÚ.
tilkynningu
LONDON
í seinustu
frönsku hermálastjórnarinnar
segir, að haldið sé áfram sókn-
inni á Saarvígstöðvuhum og
háfi Frakkar tekið marga þýzka
fanga.
í fregnum frá Brussel er get-
ið um skyndiárás, sem franskar
skriðdrekasveitir gerðu nálægt
landamærum Luxemburg. Áð-
Frb. i 4. síöu.
CKIPSTJÓRAR þýzku
^ flutningaskipanna, sem
hér liggja nú á ytri höfninni,
hafa sótt um leyfi til hafnar-
skrifstofunnar að fá að
leggja skipum sínum við
festar inni í Hvalfirði.
Er pessi beibni skipstjóranna
inú í athiugun hjá hafnaryfirvöld-
unum, og verður tekin ákvörðun
am þab nú næstudaga, hvaðgera
skuli við skipin. Hefir m- a.
véri& um það rætt, að þau legð-
ust beldur inn'í Skerjafjörð, í
stað þess að leyfa þeim að leggj-
ast inn í Hvalfjörð, því bæöi er,
að það er erfiðara með allt eftirlit
með þeim og eins verður ómögu-
legt áö hafa nauðsynlegt eftirlit
með skipshöfnunum.
Einnig hafa Sikipstjórarnír far-
ið fram á, að þeir fengi ao kynda
undir öðrum eimkatlinum, og'
hvort það verður leyft er einnig
í athugun.
En eitt er þegar víst, að af
ytrí höfninni verða skipin að fara,
vegna þess að þau eru þar að
nokkru leyti í siglingaleið, og
inn í sund komast ekki nema
paii tvö, sem þar eru nú.
Það yrði að teljast að minnsta
kosti mjög varhugavert að þau
erlendú skip sem hér eru verði
flutt á þá staði, þar sem ekki er
hægt að hafa fullkomið eftirlit
með þeim, en það væri vitanlega
ekki hægt að hafa, ef þau væru
uppi í Hvaifirði.
I þessu sambandi er rétt að
minna á það, að nýlega komu
f regnir um það, að Englendingar
teldu nokkra hættu á þvi að
Þjóðverjar reyndu að koma sér
upp bækistöðvum fyrir kafbáta
við strendur hlutlausra landa í
Suður- og Mið-Amerilku og það
yæri ekki nema eðlilegt, að Eng-
lendingar litu það mjög grun-
samlegum auigum, ef hin þýzku
skip, sem hér eru nú með tölu-
verðan forða af margs konar vör-
ttm fengju að leggjasít inn í Hval-
fjörð, þar sem ómögulegt er að
hafa eftirlit með þeim.
Þjóðverjar að senda út
níian kafbátaflota?
Enska blaðið ,,Daily Ex-
press" þykist hafa heimildir
fyrir því, að Þjóðverjar séu nú
að senda út annan kafbáta-
flota til þess að leysa þá af
hólmi, er úti hafa: verið síðan
styrjöldin hófst.
vík og Hafnarfirði, yfir-
leitt allar verzlanir á landinu,
verða lokaðar allan daginn á
morgun. Er þetta gert vegna
birgðatalningar, en verzlanir
eiga að gefa skömmtunarskrif-
stofu ríkisihs nákvæmar skýrsl-
ur yfir birgðir sínar núná um
helgina. Mjólkur- og brauða-
búðir og fisk- og lyfjabúðir
verða þó opnar.
Er fólk aðvarað um að gera
innkaup sín í dag, en búðir
verða opnar til kl, 8 í kvöld. Á
morgun hefst afhending
ðkömmtunarseðlai í öllum
barnaskólum borgarinnar, og
fer hún einnig fram á sunnu-
dag. Er fólk beðið að athuga
vandlega auglýsingu hér í
blaðinu í dag frá matvæla-
skömmtunarnefnd bæjarins um
afhendingu seðlanna.
Er fólk alvarlega áminnt um
að sækja ' skömmtunarseðla
sína og afhenda birgðaskýrslu.
í gærkveldi gaf ríkisstjórnin
út reglugerð um kolasölu og
kolanotkun. Er reglugerðin svo-
hljóðandi:
1. gr. Kolaverzlanir mega
ekki selja meira magn af kol-
um til húsa (hitunar eða mat-
argerðar) en sem svarar til mán
aðarnotkunar, og eigi til ann-
arra en þeirra, er venjulega
skipta við þær. Hafi kolaverzl-
unin engin kol handa viðskipta-
mönnum sínum, en önnur kola-
verzlun er á staðnum, gefur sú
fyrrnefnda viðskiptamanni sín-
um vottorð um, að hann sé
hennar venjulegur viðskipta-
Tékkar hafa pegar mynd-
að sér rikisstjórn erlendis.
Tékkneskur her á að berjast við hlið
Breta og Frakka á vesturvígstöðvunum.
LONDON í gærkveldi. FÚ.
CAMKVÆMT upplýsing-
^ um frá helztu mönnum
Tékka í París, hafa ríkis-
stjórnir Bretlands og Frakk-
lands til íhugunar að viður-
kenna bráðabirgða ríkis-
stjórn fyrir Tékkóslóvakíu.
Útlægir Tékkar hafa þeg-
ar valið menn í þessa stjórn,
og er þeirra meðal Benes rík
isforseti og Osusky, sendi-
herra Tékka í París.
Þá er tilkynnt, að tékkneski
herinn, sem verið er að mynda
í Frakklandi, muni berjast sem
viðurkenndur bandamannaher
Breta og Frakka, en ekki sem
útlendingaherdeild eða sjálf-
boðaher.
Herinn hefir sína eigin her-
foringja og aðalbækistöð, en
Lögreglueftirlit hert
um allt Wzkaland.
LONDON í morgun. FÚ.
Þýzka lögreglan og S.S.-liðið
svokallaða hefir verið samein-
að.
Þetta er fyrsta verk Himm-
lersj yfirmanns leynilögregl-
unnar, sem fulltrúa Fricks inn-
anríkismálaráðherra með ótak-
mörkuðu umboði. Hann hefir
einnig skipt Þýzkalandi í 15
svæði, og er S.S-.maður settur
yfir hvert þeirra.
maður og tilgreinir mánaðar-
notkun hans. Er öðrum kola-
verzlunum heimilt að afgreiða
kol gegn afhendingu þessa vott-
orðs.
2. gr. Einstaklingum og stofn-
unum er bannað að kaupa kol
nema fyrri birgðir séu þrotn-
ar og þá eigi meir en svo, að
birgðir séu til eins mánaðar.
3. gr. Allir þeir, er verzla
með kol, skulu 16.^—17. sept.
1939 senda skömmtunarskrif-
stofu ríkisins skýrslu um birgð-
ir sínar.
4. gr. Á öllum þeim stöðum,
sem verzlað er með kol, skal
hlutaðeigandi dómari tilnefna
einn mann til þess að vera eft-
irlitsmann með kolaverzlunum
á staðnum. Getur hann veitt
undanþágu frá ákvæðum 1. og
2. gr. reglugerðar þessarar, t. d.
þar sem staðhættir eru þannig,
að erfitt er með aðdrætti mán-
aðarlega. Ef tirlitsmaður skal
halda gerðabók, þar sem skráð-
ar eru allar þær undanþágur,
sem gefnar verða. Áfrýja má
ákvörðunum hans til skömmt-*
unarskrifstofu ríkisins.
5. gr. Hreppsnefndum og
bæjarstjórnum er skylt að að-
stoða eftirlitsmanninn eftir
því, sem þörf gerist um upp-
lýsingar um kolaþörf, kola-
birgðir o. s. frv.
6. gr. Þóknun eftirlitsmanns-
ins ákveður hlutaðeigandi bæj-
arstjórn eða sýslunefnd og
greiðist hún úr hlutaðeigandi
bæjarsjóði eða sýslusjóði.
7. gr. Brot á reglugerð þess-
ari varða sektum allt að kr. 10-
000,00, og skal farið með mál út
af þeim sem almenn lögreglu-
mál,
8. gr. Reglugerð þessi öðlast
þegar gildi.
Benes.
yfirstjórn verður í höndum
franska yfirherforingjans.
Því er neitað í Berlín í dag,
að 400 Tékkar hafi verið hand-
Frh. á 4. síðu.
20kannmenn handtekn-
ir i París iviir síriös-
okur.
' LONDON í morgun. FÚ.
Um 20 menn hafa verið
handteknir í París fyrir stríðs-
okur. Þeir voru allir kaupmenn
og eru sakaðir um að hafa
hækkað verðlag meira en hóf-
legt var.
Flestir þeirra höfðu selt gas-
grímur og rafmagnsvasaljós og
slíkt.