Alþýðublaðið - 04.11.1939, Qupperneq 1
Munið
dansleik FRAM og
K. R. að HÓTEL
BORG í kvöld kl. 10
ALÞTÐUBLA
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
UTGEFANDI: ALÞYÐUFLOKKURINN
XX. ÁRGANGUR
LAUGARDAGUR 4. NÖV. 1939.
258. TÖLUBLAÐ
Hvsð skeður
á dansleiknunuað
HOTEL BORG
í kvöld.
??????
© © © 9 © ©
wmm segja bú að Flnaa
!ovét»Rússlaadi raeð styrjðld!
------
Fáránlegar ásakanir í garð Finna og Svía í aðalblaði
rússneska kommúnistaflokksins Pravda í Moskva í gær.
Verkamenn á Eyrarbahka
visnön klðfnlngssanbandi
kommúnista á bng i gær.
----4----
HkoruHiiá verkamenn annarsatað
nr á landinu að gera pað sama.
¥ FYRRAKVÖLD var hald-
■“■inn fundur í Verkamanna-
féiaginu „Báran“ á Eyrarbakka
og var þar til umræðu og at-
kvæoagreiðslu erindi frá hinu
svokallaða „Bandalagi stéttar-
£élaganna“ um það, að félagið
segði sig úr Alþýðusambandi ís-
lands og gengi í hið óháða!!
samband þeirra bandamanna,
kommúnista og íhalds.
Til þessa fundar var vel
smalíið af þeim kommúnistum,
en séra Gunnar Benediktsson er
þeirra aðalforingi þar eystra,
enda hafði hann aðallega fyrir
þeim orð þar.
Urðu um þetta mál allharðar
umiæður, en að þeim loknum
var samþykkt svohljóðandi til-
laga frá stjórn félagsins:
„Fjölmennur fimdur í Vkmf.
„Báran“ á Eyrarbakka, haldinn
2, nóv. 1939, lýsir megnri and-
úð sinni á tilraunum þeim, er
gerðar hafa verið af kommún-
istum til sundrungar innan
verknlýðssamtakanna. Lítur
Vaiaadi gjaldeyris-
skortur í Dannðrbu.
KHÖFN' í gærkveldi. FO.
GJALDEYRISÁSTÆÐUR
danska pjóðbankans eru nú
þannig, að allar gjaldeyrisbirgðir
eru i * ú uppnotaðar, og bankinn
er kominn í 22 millj. króna gjald-
eyrisshuld við útlönd.
Til þess að forða hruni í gjald-
eyrismáJum landsins, er helzt í
ráði, fið draga enn til muna úr
hinuin frjálsa innfiutningi.
Vfsikonsill Dana
á
ÐANSKA forsætisráðuneyt-
ið hefir þ. 20. okt. s.l. skip-
að IiUdvig Storr, stórkaupmann
í Reykjavík, til þess að vera
vísikonsúll við sendiráð Dan-
merkur í Reykjavík.
Vísikonsúll Storr er til við-
ræðis um ræðismannsmálefni í
skrifstoiu sinni Laugavegi 15,
helzt milli 10—12 f.h.
fundurinn svo á, að bréf stjórn-
ar hins svokallaða Bandalags
stéttarfélaganna sé frekleg
móðgun við félagið, þar sem
farið er fram á, að það segi sig
úr Alþýðusambandinu og ger-
ist stofnandi að hinu fyrirhug-
aða landssambandi.
Telur fundurinn, að stofnun
slíks sambands, sem getið er í
nefndu bréfi, mundi einungis
leiða til sundrungar innan verka
lýðssamtakanna, þar sem víst er
að meginið af þeim félögum,
sem eru í Alþýðusambandinu.
verða þar áfram, og samþykkir
því fundurinn að félagið standi
áfram sem hingað til innan Al-
þýðusambandsins og skorar á
önnur verkalýðsfélög að gera
hið sama.
Jafnframt skorar fundurinn á
félög þau, sem nú þegar hafa
ákveðið að gerast stofnendur
að ráðgerðu samhandi, að taka
þá ákvörðun sína til baka, svo
framarlega, sem þeirn er eins
annt um einingu innan vterka-
lýðssamtakanna og þau vilja
vera láta.“
Tillaga þessi var samþykkt
með yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða, þrátt fyrir samfylkingu í-
halds og komnrn á fundinum, en
hún var pað náin, að Jóhann ól-
afsson, — en hann er formaður
Sjálfstæðisflokksfélagsins á staðn-
um, — sótti um inngöngu í fé-
lagið á fundinum, sýnilega í
þeim eina tilgangi, að gneiða at-
kvæði með þeim kommúnistum.
í það minnsta hvarf hann fljótt
af fundi, þegar atkvæðagreiðslu
var lokið um þetta mál, þótt
eftir væri að ræða ýms fleiri
hagsmunamál verkamanna.
1 fundarlok var samþykkt á-
skorun á alþingi það, sem nú
situr, að breyta lögum um geng-
isskráningu á þann hátt, að allt
kaupgjald hækki hlutfallslega
jafn mikið og dýrtíðaraukningu
nemur.
Fundurinn var mjög vel sótt-
ur og sýndi greinilega, að fylgi
kommúnista hefir mjög hrakað,
þar sem þeir fengu flest 14 atkv.
um tillögur þær, sem atkvæða-
greiðsla fór fram um, en þeir
hafa oft áður fengið um 25—30
atkvæði á fundum í félaginu.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun.
"C* 1 RAMKOMA RÚSSA í samningunum við Finna verð-
■*■ ur nú með degi hverjum einkennilegri.
í gær var bæði í kommúnistablaðinu „Pravda“ í Mosk-
va og í rússneska útvarpinu ráðizt með hlægilegum ásök-
unum á Finna, þess efnis, að Finnar sýndu Sovét-Rússlandi
fjandskap og að Erkko, utanríkismálaráðherra þeirra, væri
beinlínis að egna upp til stríðs gegn Rússum. Sagði „Prav-
da“, að Erkko leyfði sér að tala á sama hátt við Sovét-Rúss-
land eins og Beck utanríkismálaráðherra Pólverja hefði
talað við Þýzkaland, áður en stríðið hófst í Póllandi!
Þá réðst „Pravda“ einnig með svæsnum orðum á Svía
og sakaði þá um, að æsa Finna upp til andstöðu við kröf-
ur Rússa. Telur blaðið Svía vera með því að reka erindi
stórveldanna í Vestur-Evrópu, Englands og Frakklands, en
segir að Rússar muni fara sínu fram. Taflið við samninga-
borðið sé á enda, og nú verði gengið hreint til verks.
Þessar hótanir hafa sem vonlegt er vakið mikinn kvíða
í Helsingfors og eru menn nú þar búnir við því versta.
Erkko sagði í ræðu í Helsingfors í gærkveldi, að í svari
Finna væru kröfur Rússa uppfylltar að þremur fjórðu hlut-
um, og ef stjórnin hefði látið meira undan, gæti Finnland
ekki lengur talizt sjálfstætt ríki. .
STALIN
MOLOTOV
Norðmenn náðn Gity of Flint
ðr hðndnm kjððverja í gær.
—, . .. ■ .—
Skipið kom til Haugasunds og Þjóðverj-
arnirvoru kyrrsettir, en skipið látið laust
SÖR3H afiferðirnar og
við PóUand.
Hinar fjarstæðu árásir rúss-
neska kommúnistablaðsins og
rússneska útvarpsins á Finna
og Svía vekja hina mestu furðu
og fyrirlitningu úti um allan
heim.
Sérstaklega blöskrar mönn-
um sú tilraun, sem gerð er til
þess að kenna Pólverjum og þá
helzt utanríkismálaráðherra
þeirra Beck um árás Þýzka-
lands á Pólland. En það þykir
sýnilegt, að Sovét-Rússland
ætli sér að hafa sömu aðíterð-
irnar við Finnland og Hitler-
Þýzkaland hafði við Pólland. og
reyna á sama hátt að réttlæta
ofbeldisverkið og Hitler gerði,
áður en hann sendi her' sinn
inn í Pólland.
Þá vekja ummælin um af-
stöðu Svía ekki minni furðu,
því þar er Sovét-Rússland bein-
línis afsakað með skírskotun til
keisarastjórnarinnar á Rúss-
landi áður fyrr. Gerir „Pravda“
sérstaklega að umtalsefni þau
ummæli sænskra blaða, að rúss
nesk flotastöð á Finnlandi væri
ógnun við sjálfstæði Norður-
landa.
í því sambandi her nú rúss-
n'eska kommúnistablaðið hina
gömlu keisarastjórn á Rúss-
landi fyrir sig og segir, að hún
hafi átt allt Finnland án þess
að Norðurlöndum hafi stafað
nokkur hætta af. Fylgir þessum
ummælum blaðsins sú hótun,
að Svíþjóð hafi í þessu máli
sett á rangan reit.
Samningarnír halda áfram
ondir hótnnum Rússlands.
• 4 --
Stalin var fjarverandi I gærdacf.
Þrátt fyrir hinar gegnsæju
tilraunir Rússa til þess að koma
sökinni á Finna, ef samning-
arnir stranda, og skapa sér á-
tyllu til árásar á Finnland, voru
samningaumleitanirnar teknar
upp í Moskva á ný, seinnipart-
inn 1 gær.
í það sinn mættu fyrir
Rússa hönd Molotov og Potem-
kin aðstoðarutanríkismálaráð-
herra. Stalin lét ekki sjá sig.
Fyrir Finna mættu Paasikivi
og Tanner.
Molotov er talinn þekktur að
því, að vera laus við alla lip-
urð í samningum, enda þykir
nú sýnilegt, að eftir þetta verði
ekki um neinar raunverulegar
samningaumleitanir að ræða,
heldur aðeins tilraunir til þess
að hræða Finna með hótunum
til þess að ganga að öllum kröf-
um Rússa.
Samningafundurinn stóð í
eina klukkustund, en þá fóru
þeir Paasikivi og Tanner heim
til finnska sendiherrabústaðar-
ins til þess að athuga það, sem
fram hafði komið á fundinum
og ráða ráðum sínum.
Það er nú talið, að finnska
stjórnin sé hætt við að birta
svar sitt fyrr en sýnt þyki, að
samningarnir séu strandaðir
fyrir fullt og allt.
AMERÍSKA skipið „City
of Flint“ hefir verið
látið laust, segir í fregn frá
Noregi, og hin þýzka skips-
höfn verið kyrrsett þar. Hef-
ir norska flotamálaráðuneyt-
ið birt tilkynningu um þetta.
Skipið kom til Hauga-
sunds í gær og varpaði akk-
erum án leyfis, svo að norsk
yfirvöld fóru út í það, kyrr-
settu hina þýzku áhöfn, og
létu síðan skipið laust.
Samkvæmt skeyti frá Ðergen
fór „City of Flint“ fram hjá
flotastöðinni við Bergen snemma
í gærmorgun. Þrjú morsk herskip
fylgdu því eftir þangað til það
fór inn til Haugasunds.
Fyrsta kvðldvaka
Biaðamaonaf éla gs-
FYRSTA kvöldvaka Blaða-
mannafélags íslands á
Hótel Borg í gærkveldi tókst
ágætlega.
Var svo mikil aðsóknin, að
margir urðu frá að hverfa. Luku
allir upp einum munni um
það, að betri og fjölbreyttari
skemmtun hefði ekki verið hér
í bæ um lengri tíma.
Var og vandað til allra
skemmtiliða, eins og, föng
voru á.
Hjónaband.
I dag verða gefin saman í
hjónaband af séra Bjama Jóns-
syni Guðfinna Bjamadóttir,
bankastjóra frá Akureyri, og
Björn Ólafs cand. jur. frá Mýrar-
húsurn.
Dansleik
heldur skemmtifélagið „Gömlu
dansarnir" í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu í kvöld.
Dánarfregn.
Þann 3. þ. m. andaðist eftir
stutta legu frú Halla Jóhannes-
dóttir að Laugavegi 49, næstum
84 ára aÖ aldri.
f DAG
Næturlæknir er Axel Blöndal,
Eiriksgötu 31, sími 3951.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
og Iðunnar-apóteki.
OTVARPIÐ:
20,15 Thor Thors minnist 60 ára
afmæiis Vilhjálnrs Stefánssonar.
20,25 Leikrit: „Víkingamir á Há-
logalandi", eftir Ibsen (Haraldur
Björnsson, Anna Guðmundsdóttir,
Gestúr Pálsson, Soffía Guðlaugs-
dóttir, Síefán Haraldsson, Valdi-
mar Helgason, Þorsteinn ö. Ste-
phensen). 22,15 Fréttir. 22,25
Danslög. 24,00 Dagskrárlok.
Á MORGUN:
Helgidagslæknir er Halldór
Stefánsson, RánargÖtu 12, sími
2234.
Næturlæknir er Þór. Sveins-
son, Ásvallagötu 5, sínri 2714.
OTVARPIÐ:
9,45 Morguntónleikar (plötur):
a) Beethoven: Sónata í f-moll
(appassionata). b) Brahms: Són-
ata fyrir lágfiðlu, f-moll, Op. 120,
Ljóskastarakvöld
verður í SundhÖllinni í kvöld
kl. 5—7 fyrir börn og kl. 8—10
fyrir fullorðna,
Félag slökkviliðsmanna í Rvk
heldur fyrsta fund sinn á
vetrinum á morgun kl. 2 e. h.
að Hótel Borg.
Skrifstofa
Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur
er í Alþýðuhúsinu við Hverfis-
götu, 6 .hæð, sími 5020. Skrif-
stofan er opin daglega kl. 5,15
til 7,15. Þar er tekið á móti
árstillögum; enn fremur geta nýir
félagar snúið sér þangað með
inntökubeiðnir sínar. Hverfisstjór-
aii Komið á skrifstofuna og gefið
skýrslu um störf ykkar.
M. A.-kvaríetíinn
syngur á morgun k!l- 3 í fGamla
Bíó. Vinsældir þessa ágæta kvart-
etts em alltaf að aukast, og
verður vafalaust húsfyllir á
morgun, ef að vanda lætur.