Alþýðublaðið - 06.11.1939, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 06.11.1939, Blaðsíða 4
MÁNUÐAGUR 6. NÖV. 1939 iB GAÍVSLA Blð 133 Melstarafijólarinn Arséne Lapin. Afir spennandi leynilög- reglumynd, tekin af Metro- Goldwyn-Mayer-félaginu. Aðalhlutverkin eru framúr- skarandi skennntilega leikin af: IMelwyn Douglas, Virginia Bmce og Warren Wllliara. Börn fá ekki aðgang. DiENGJAFÖT. Kleeðið drenginn smekklegum fötum frá Sími 3094. Sparta, Laugavegi 10. „CITY OF FLINT.“ Frh. á 4. síðu. Sendiherra Bandarihj- anna i Osló lætnr i Ijós ánægju stna. LONDON í gærkveldi. FÚ. Frú Harriman, sendiherra Bandaríkjanna í Noregi, sagði í dag, að fregnin um, að skipið hefði verið látið laust, myndi vekja hina mestu ánægju í Bandaríkjunum. í fregn frá Washington segir, að fyrirliði þýzku sjóliðanna hafi beðið um leyfi til þess að setja veikan mann á land, en að norski læknirinn, sem stund- aði hann, hafi ekki talið veikindi hans svo alvarleg, að það rétt- lætti, að skipið legðist fyrir akk- eri. Þrátt fyrir, að þýzku sjó- liðunum væri þetta kunnugt, hefði skipið varpað akkerum. I hinni amerísku tilkynningu segir, að framkoma Norðmanna sé algerlega 1 samræmi við al- þjóðalög. Útbreiðið Alþýðublaðið. ST. VÍKINGUR nr .104. Fundur í kvöld. Inntaka nýrra félaga Innsetning embættismanna skip- un fastra nefnda. Að fundi lokn um vér'ður sp.Ia'ð. Félagarhafi með sér spil - Fjölsækið stund- víslega. — Æ.t. ST; VERÐANDI nr. 9. Fundur annað kvöld kl. 8. 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Skýrslur nefnda. 3. Vígsla embættis- manna. 4. Fræði- og skemmti- atriði annast hr. Bsnjamín Ein- ■ arsson og hr. Guðm. Karlsson. 5. Fiðlusóló. Sauma og set upp púða, bý til ottomanpúllur, sauma í mis- lit borðstofudúkasett, sauma smábarnasvefnkjóla, skírnarföt o. fl. Ólafía Sigurðardóttir, Grettisgötu 53 A. KEAFA UM AÐ BANNA BÓK. Frh. á 4. síðu. nefnd, er eins og áður er sagt, skrifuð af þýzkum leikara og rithöfund, sem var handtekinn af þýzkum nazistum og varpað í fangabúðir rétt eftir að naz- istar brutust til valda á Þýzka- landi 1933. Er í bókinni ná- kvæm lýsing á meðferð þeirra manna, sem voru 1 fangabúð- unum og þarf ekki að skýra nánar frá þeirri lýsingu, enda hafa kaflar úr bókinni birzt í Alþýðublaðinu. Bók þessi hefir komið út á fjölda tungumála, m. a. um öll Norðurlönd, og hefir henni alls staðar verið vel tekið. Sagði t. d. bókmennta- gagnrýnandi danska blaðsins . „Politiken,“ þegar bókin kom út á dönsku, að hún væri lista- verk. Höfundurinn Langhoff, slapp úr fangabúðunum og komst til Sviss, þar sem hann var mjög fljótlega ráðinn við aðalleikhúsið í Zurich, þar sem hann skrifaði bók sína. Flér á landi á að vera fullk. prentfrelsi, og er það óskiljan- legt, að bókin skuli hafa verið stöðvuð, enda þótt það hafi ekki mikla þýðingu, þar sem aðeins um lítinn afgang er að ræða af stóru upplagi, fjölda rnargir eiga bókina og allir hafa tækifæri til að lesa hana í bókasöfnum landsins. Brezka orustuskipið ,,Royal Oak“, sem sökkt var fyrir nokkru af þýzkum kafbát inni á sjálfri herskipahöfn Breta í Scapa Flow við Orkneyjar. Það er enn óupplýst, hvernig kafbáturinn komst þangað inn og út aftur. „Royal Oak“ var 29 000 smálestir að stærð og með 1200 manna áhöfn. Þar af fórust um 800. f DAfl Svelnafélag bólstr- ara feilir að ganga kommúDistum ð hönd. SSVEINAFÉLAG húsgagna- bólstrara er eitt af yngri félögunum í Alþý’ðusambandi Is- laids, enda stofnað fyrir fáum ámm, eins og mörg smærri iðn- aðarmannafélög. Þetta félag er þó að ýmsu leyti vel skipulagt og starfar vel, enda nýtur það forystu ágæts manns, Sigvalda Jónsson- ar. Sveinafélag húsgagnabólstrara lét fara fram allsherjaratkvæða greiðslu á föstudag og laugar- dag um hvort félagið skyldi iganga í klofningssamband komm- únista og var það felt. Verður félagið því áfram í Alþýöusam- bandi Islands. Stærsta miliilanda- skip Dana sokkið. AkiIaiBii var bjargað. BERLÍN í gærkveldi. FÚ. ANSKA skipið „Canada“, sem rakst á tundurdufl í gær og sökk, var stærsta milli- landaskip Dána og fulikomn- ast að öllu leyti, aðeins fjögra ára gamalt og 10 800 smálestir að stærð. Áhöfnin, 67 menn, bjargaðist. í London hafa komist á kreik fregnir um, að þýzkur kafbátur hafi grandað skipinu, en í Ber- lín eru þessar fregnir lýstar staðlaus ósannindi. RAssar friðmælast við Japani. BERLIN í gærkv. F.O. Hinn nýskipaði sendiherra Rússa í TO'kio, Smctanin, hefir látið svo ummælt, að engin þau deilumál séu uppi milli Rússa og Japana, sem ekki sé unnt að leysa með friðsamlegum samn- ingum. Kva'ð hann það fásinnu af þessum löndum að vera að ey'ða kröftum sínum í fjíandsam- Iega baráttu. Þá lagði hann á- herzlu á nauðsyn þess, að hin tvö lönd gerðu með sér nýjan vi'ðskiptasáttmála. Bjónabar.d. Á laugardaginn voru gefin sam jan í hjónaband Ársæll Kjartans- '«n harmonikuleikari og Svava Péíursdóttir. Heimili ungu hjón- anna er á Hrefnugötu 6. Hjónaband. Síðastliðinn laugardag voru gef in saman í hjónaband af séra Árna Sigurðssyni ungfrú Magnús- ína Guðmundsdóttir og Gunnar Eysteinssion verzlunarmaður. Heimili ungu hjónanna er á Víði- mel 5ö. Ferðafélag fslands heldur skemmtifund að Hótel Borg þri'ðjudagskvöldið þ. 7. nóv. n. k. Húsið opnað ki. 8V2. Biskup dr. Jón Helgason flytur erindi me'ð skuggamyndum, sem hann nefnir skemmtiganigur um Rvík fyrir 70 árurn. Dans til kl. 1. Aðgöngumiðar seldiír í bókaverzl- unum Sigfúsar Eymundssonar og Isafoldarprentsmiðju á þriðjudag- inn tii kl. 6. Skógarraenn K. F. U. M. 10 ára heitir nýútkomið rit. Er það afmælisrit. , Næturlæknir er Karl S. Jónas- son, Sóleyjargötu 13, sími 3925. Næturvörður er í Laugavegs- og Ingólfsapóteki. OTVARPIÐ: 19,20 Þingfréttir. 19.50 Fréttir. 20,15 Um daginn og veginn (Sig- fús Halldórsson frá Höfn- um). 20.35 Hljómplötur: Létt lög. 20,40 Kvennaþáttur: Sjónarmið sveitakonunnar (húsfrú Guðlaug Narfadóttir, Dal- bæ í Flóa). 21,00 Otvarpshljómsveitin: Syrpa af dönskum alþýðu- lögum. Einsöngur (Ævar R. Kvar- an): a) Karl Runólfsson: 1 'fjar' lægð. b) Grieg: 1. Jeg elsker dig. 2. En sommernat. c) Gylfi Þ. Gíslason: Vögguvísa. . d) Schubert: Ungeduld- 21.35 Hljómplötur: Lyrisk svíta eftir Grieg. 21.50 Fréttir. Dagskrárlok. F. U. J. Talkórsæfing verður í afgr. Alþýðublaðsins í kvöld kl. 9. Þar sem þetta verður næstsíðasta æf- ing fyrir afmælishátíðina verða allir að mæta. Leikritið Á heimleið, sem Leikfélagið er að sýna núna, er nýkomið út í bókarformi. Dagskrá efri deildar alþingis í dag kl. 11/2 miðdegis. Frv. til 1. umbreyt. á 1. nr. 7 11. marz 1930 (Otvegs- bankinn). 1. umr. Neðri deild. 1. Frv. til 1. um skattfrelsi h.f. Eimskipafélags Islands vegna fyr- irhugaðs farþega- og farmsskips. 1. umr. 2. Frv til 1. um breyt. á 1. um gengisskráningu og ráð- .stafanir 1 því sambandi. 1. umr. Aðalfundur knattspyrnufélagsins „Fram“ var haldinn í kaupþingssalnum í gærkvöldi. 1 stjóm vom kosnir: Ragnar Lárusson, form. og með- stjórnendur Júlíus Pálsson, Sæ- mundur Gíslason, Ólafur Halldórs son og Gunnar Nielsen. Endur- skoðendur Guðm. Halldórsson og Matthías Gu'ðmundsson. Sjóorustan við Naranja, heitir ensk stórmynd, sem Nýja Bíó sýnir núna. Gerist hún meðal uppreisnarmanna í Suður-Amer- íku. A'ðalhlutverkin leika H. B. Warner, Hazel Terry, Noah Bee- ry o. fl. Skýrsla gagnfræðaskólans i Reykjavík er nýkomin út. Nær hún yfir skólaáríð 1938—39. Á fundi í Sveinafélagi múrara sem haldinn var 23. okt. 1939, var eftirfarandi tillaga samþykkt með samhljóða atkvæðum: „Sök- um þess, að verð á nauðsynjum almennings hefir nú þegar hækk- að mjög, og útlit er fyrir enn ímeiri verðhækkun í náinni fram- tíð, stoorar Sveinafélag múrara á ríkisstjórnina að sjá um að af- numin verði þegar i stað þau á- Ikvæði í gildandi lögum, er banna verkalýðsfélögum að hækka kaupgjald meðlima sinna í ifiuliu samræmi við aukna og vaxandi dýrtíð.“ — Þess skal getið, að fundurinn var mjög vel söttur og pijög almenn þátttaka í atkvæða- greiðslunni. Útbreiðið Alþýðublaðið. Baroasokkar allar stæriir Inniskór kvenna og barna. Verðið lágt. SB NÝJA BBO B3 Sjóorustan við 1 Naranja. Ævintýrarík og spennandi |j ensk stórmynd, er. gerist 1 meðal uppreisuarmanna í Suður-Ameríku og sýnir hún stórfenglegri sjóorustu nieð öllum nútímans hemaðar- tækjum, en nokkru sinni áð- ur hefir verið kvikmynduð. Abalhlutverkin leika: BEEKKA Ásvallagötu 1. Sími 1678. H. B. Warner, Hazel Terry Noah Beery o. fl. Böm fá ekki aðgang. Hérmeð tilkynnist vinumí og vandamönnum, að konan mín, móðir og tengdamóðir okkar, Signý Þorsteinsdóttir, andaðist á Landsspítalanum að kvöldi þess fjórða þessa mánaðar. Lúðvíh Jakobsson. Ólafur Lúðvíksson. Kristín Lúðvíksdóttir. Ársæll Jónsson. Helga Gissurardóttir. Vilhjálmur Lúðvíksson. SJÓMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR heldur FUND þriðjudaginn 7. nóv. 1939 kl. 8 ¥2 sd.. í Alþýðuhúsinu við Hverfisg. Dagskrá: 1. Félagsmál. Nefndarkosningar o. fl. 2. Krafa sjómanna um uppbót á síldarverðinu í sumar. 3. Dýrtíðin og gengislögin. Félagsmenn mæti réttstundis og sýni skírteini sín. — Fund- urinn er aðeins fyrir félagsmenn. STJÓRNIN. í. S. í. S. R. R. Sundmót verður haldið í Sundhöll Reykjavíkur 7. des. n.k., sjá frá- sögn í blaðinu. Þátttaka tilkynnist undirrituðum fyrir 1. des. SUNDRÁÐ REYKJAVÍKUR. Box 546. Verzlnn min er flutt á Grettisgötu 2. Jafnhliða TÓBAKS- OG SÆLGÆTISVERZLUN minni sel ég nú einnig ýmsar GÓÐAR OG ÓDÝRAR BÆKUR. Ég vænti þess, að mínir gömlu og góðu viðskiptavinir, og aðrir nýir, geri svo vel að líta inn. GUNNAR JÓNSSON frá Fossvöllum. § syngur í GAMLA BÍÓ miðvikudaginn 8. þ. m, kí. 7 síðdegis. BjaFni Þórðarson aðstoðar. Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlun ísafoldar Bóká- verzlun Sigfúsar Eymundssonar. SiBsasfa mmmi Póstferðir 7. nóv. 1939. Frá Reykjavík: Mosfellssveitar-, Kjalarness-, ölfuss- og Flóapóst- ar, Þingvellir, Hafnarfjörður, Borgarness-, Akraness-, Norðan- póstar, Dalasýslupóstur, Stranda- sýslupÓ8tur, Barðaatrandarsýslu- póstur. — Til Reykjavíkur: Mos- fellssveitar-, Kjalarness-, Reykja- ness-, ölfuss- og Flóapóstar, Þingvellir, Laugarvatn, Hafnar- fjörður, Austanpóstur, Borgar- ness-, Akraness-, Norðanpóstar, fitykkish ólmsp óstur.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.