Alþýðublaðið - 10.11.1939, Page 2
FÖSTUDAGUR 10. NOV. 1939.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
síenáif fistua féíui
ifaupstaf Iðiiúnistu.
---;-4—-----
Þó að öll þau félög, sem kommunistar telja sér,
færu úr sambandinu, myndi meðlimataia verka- Mða“ Verk8lýðsamba“ds Nor5
lýðsfélaganna i þvi ekkl lækka nema um 11,4°|0
AMORGUN hafa sundrungarmemiimir í alþýSusam-
iökunum boSaS ti! stofnunar svokaliaðs „Landssam-
bands stéttarfélaganna“. Er þetta önnur tilraun þeirra
ti! að sprengja allsherjarsamtök alþýðunnar og leggja þau
í rústir, hin fyrri var stofnun Verkalýðssambands Norður-
lands, sem ná er dautt í höndum þeirra sjálfra.
Að þessari nýju sambandssíofnun. hefir verið unnið
með ölíum mögulegum ráðum um langan tíma og í því
eíai m. a. vérið leitað stuðnings atvinnurekenda og hann
fengist á einstaka stað.
Si
Af þessu tilefni hafði Al-
þýðublaðið í morgun tal af
framkvæmdastjóra Alþýðu-
sambandsins, Óskari Sæ-
mundssyni, og spurði hann
hvernig klofningsstarf kom-
múnista hefði verkað á Al-
þýðusambandið undanfarið
iVz ár, en klofningsstarfið
hefir einmitt verið háð af
mestri grimmd á þessum
tíma.
Svar Óskars Sæmundssonar
fer hér á eftir:
„Samkvæmt skýrslu ritara
AlþýSusambandsins á síðasta
reglulega sambandsþingi 22.
okt. 1938, voru þá 1 sambandinu
semtals 100 stéttarfélög með
13470 meðlimum, síðan hafa 3
félög, Verkakvennafélag Siglu-
fjarðar, Bænda- og verka-
mannafélag Reykdæla og At-
vinnufélag Hafnarverkalýðs, —
lagst niður. Höfðu þau samtals
171 meðlim. Eitt félag, Dags-
brún, hefir sagt sig úr samband-
inu, þremur félögum, Freyju,
A S.B., og Verkalýðsfélagi Norð-
fjarðar, hefir verið vikið úr
sambandinu vegna margra ára
skulda, og einu, Hlíf í Hafnar-
firði, vegna brota á sínum eigin
lögum og lögum Alþýðusam-
bandsins. Höfðu þessi fimm fé-
lög samtals 2504 meðlimi og
hafa þannig horfið úr samband-
inu 8 félög með samtals 2675
Óskar Sæmundsson.
meðlimum.
Af stéttarfélögum þeim, sem
voru í sambandinu 22. okt.
1938 eru enn starfandi 92 fé-
lög, sem höfðu þá 10795 með-
limi. í 82 þessara félaga hefir
fjölgað um 1651 meðlim, þann-
ig, að þau hafa nú samtals
12446 meðlimi. Þá hafa þrjú
stéttarfélög gengið í sambandið
með samtals 284 meðlimi, þann-
ig, að nú eru alls 95 stéttarfé-
lög með 12730 meðlimi í Al-
þýðusambandinu. Hefir því tala
meðlima í stéttarfélögum innan
Alþýðusambandsins aðeins
lækkað um 5Vá%.
Auðvitað munu kommúnistar
halda því fram, að þessar tölur
séu ekki réttar og munu þá
benda á þau 10 félög, sem enn
eru í Alþýðusambandinu, en
sem þeir telja einnig í sínu sam-
bandi. Þessi félög hafa samtals
nálega 800 meðlimi, og ef svo
skyldi fara, að þau, raunar öll
með minnihlutasamþykktum á
klíkufundum, þar sem dagskrá
hefir ekki verið auglýst fyrir-
fram, færu úr Alþýðusam-
bandinu, þá eru samt eftir 85
stéttarféíög með 11930 með-
limiun.
En ef svo færi, að framan-
greind 10 félög færu úr Al-
þýðusambandinu, þá hefði tala
meðlima stéttarfélaga innan Al-
þýðusambandsins lækkað um
11,4%, og er naumast hægt að
hugsa sér öllu lélegri árangur
eftir áratugsbaráttu kommún-
ista fyrir því að leggja Alþýðu-
sambandið í rústir, sérstaklega
þegar þess er gætt, hvern liðs-
auka þeir fengu, þegar undan-
villingunum úr Alþýðuflokkn-
um með Héðin Valdimarsson í
broddi fylkingar tókst að véla
Dagsbrún, stærsta verkamanna-
félag landsins, burt úr sam-
bandinu.
í þessu sambandi er rétt að
geta þess, að árið 1930, þegar
kommúnistar hófu klofnings-
starf sitt með stofmm hins „ó-
urlands, voru í Alþýðusam-
bandinu 30 stéttarfélög með
5620 meðlimum og að árið
1937, þegar Héðinn Valdimars-
son hóf klíkustarf sitt innan Al-
þýðusamtakanna voru í sam-
bandinu 76 stéttarfélög með
11520 meölimum og hefir því
meðlimum stéttarfélaga innan
sambandsins fjölgað um 1210
síðustu 2 árin.“
— Sundrungartilraunirnar
hafa því ekki borði mikinn ár-
angur?
„Nei, og kommúnistar eiga
eftir að fara enn meiri hrakför.
Sambandsstofnun þeirra er frá
upphafi dauðadæmd. Verkalýð-
urinn þolir ekki til lengdar
starfsaðferðir kommúnista. Þeir
geta ef til vill blásið upp til
andúðar um sinn, þegar tím-
arnir eru heppilegir til slíks, en
slíkt sendur ekki lengi. Alþýðu-
sambandið stendur óhaggað eft-
ir öll áhlaupin og mun standa.“
Fagféllg f iypýHusamlfcandl Is^
laods ©n maOIImafala pelrra.
1. Sjómannafélag Reykjavíkur, Reykjavík................. 1399
2. Verkakvennafélagið Framsókn, Rvk...................... 806
3. Hið íslenzka prentarafélag, Rvk...................... 152
4. Bakarasveinafélag íslands, Rvk. ....................... 48
5. Matsveina- og veitingaþjónafélag ísl,, Rvk............. 58
6. Stýrimannafélág íslands, Rvk........................... 64
7. Sendisveinafélag Reykjavíkur, Rvk..................... 110
8. Bókbindarafélag Reykjavíkur, Rvk...................... 50
9. Bifreiðastjórafélagið Hreyfill, Rvk................... 245
10. Iðja, félag verksmiðjufólks, Rvk....................... 570
11. Starfsstúlknafélagið Sókn, Rvk......................... 141
12. Félag íslenzkra hljóðfæraleikara ....................... 36
13. Verzlunarmannafélagiö, Rvk. ......................... 163
14. Starfsmannafélagið Þór, Rvk.......................... 32
15. Lyffræðingafélag íslands, Rvk........................... 19
16. Sveinafélag húsgagnabólstrara, Rvk.................... 18
17. Klæðskerafélagið Skjaldborg, Rvk. ..................... 107
18. Nót, félag netavinnufólks, Rvk.......................... 20
19. Verkamannafélag Hafnarfjarðar, Hf. .................... 217
20. Verkakvennafélagið Framtíðin, Hf....................... 425
21. Sjómannafélag Hafnarfjarðar, Hf........................ 214
22. Bakarasveinafélag Hafnarfjarðar, Hf..................... 1Ö
23. Kennarafélag Hafnarfjarðar, Hf........................ 10
24. Verkalýðsfélagið Baldur, ís.......................... 480
25. Sjómannafélag ísfirðinga, ís........................... 240
26. Vélstjórafélag ísafjarðar .............................. 45
27. Verzlunarmannafélagið, ísaf............................. 32
28. Losunar- og lestunarfélag Siglufj., Sg................. 15
29. Verkalýðsfélag Akureyrar, Akureyri, .................. 214
30. Bílstjórafélag Akureyrar, Akureyri,................... 102
31. Iðja, félag verksmiðjufólks, Akureyri, ............... 102
32. Starfsstúlknafélagið Sókn, Akureyri, .................. 52
33. Vélstjórafélag Akureyrar, Akureyri, ................... 72
34. Verkamannafélagið Fram, Seyðisfirði, ................ 145
35. Verkakvennafélagið Brynja, Seyðisf..................... 61
36. Sjómannafélagið Jötunn, Vestmannaeyjum, .............. 308
37. Verkamannafélagið Drífandi, Vestmannaeyjum ........... 106
38. Verkalýðs- og sjómannafél. Keflavíkur, ............... 281
39. Verkalýðsfélag Grindavíkur, Grindavík, ................ 71
40. Verkal.- og sjómannafélag Gerðahrepps, ................ 35
41. Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis, ............... 30
42. Verkalýðsfélag Akraness, Akranesi, ................... 520
43. Verkalýðsfélagið Aftureldingin, Sandi, ................ 44
44. Verkalýðsfélag Stykkishólms, Stykkish................. 153
45. Verkalýðs- og smábændafélag Hnappdælinga, ........... . 27
46. Verkalýðsfélagið Jökull, Ólafsvík ..................... 38
47. Verkamannafélagið Valur, Búðardal, .................... 41
48. Verkalýðsfélag Patreksfjarðar, ....................... 176
49. Verkalýðsfélagið Vörn, Bíldudal, ..................... 144
50. Verkalýðsfélag Flateyjar, Flatey, ..................... 28
51. Sjómannafélag Patreksfjarðar, Patreksf................. 55
52. Verkalýðsfélagið Brynja, Þingeyri, ................... 210
53. Verkalýðsfélag Hnífsdælinga, Hnífsdal, .............. . 92
54. Verkalýðsfélag Álftfirðinga, Súðavík, .............. 106
55. Verkalýðsfélag Sléttuhrepps, Hesteyri.............. 73
56. Verkalýðsfélag Bolungavíkur, Bolungavík, ........... 247
57. Verkalýðsfélagið Súgandi, Súgandafirði, ............ 101
58. Verkalýðsfélagið Skjöldur, Flateyri, ............... 169
59. Verkalýðsfélag Hólmavíkur, Hólmavík, ............... 143
60. Verkalýðsfélag Árneshrepps, Djúpuvík ............ 70
61. Verkalýðsfélag Kaldrananeshr., Drangsn.............. 97
62. Verkamannafélagið Hvöt, Hvammstanga, ................. 105
63. Verkalýðsfélag A.-Húnvetninga, Blönduós, ........... 90
64. Verkalýðsfélag Skagastrandar, Skagastr................ 114
65. Verkamannafélagið Ægir, Þverárhreppi, ................. 27
66. Verkalýðsfélagið Víðdælingur, Þorkelsh................. 37
67. Verkamannafélagið Fram, Sauðárkrók, .................. 132
68. Bifreiðastjórafélagið Fálkinn, Sauðárkrók, ............ 17
69. Verkalýðsfélag Dalvíkur, Dalvík, ..................... 123
70. Verkamannafélag Glæsibæjarhrepps, Glerárþ............. 116
71. Verkalýðsfélag Hríseyjar, Hrísey, ..................... 87
72. Verkalýðsfélag Ólafsfjarðar, Ólafsfirði................ 81
73. Verkamannafélag Arnarneshrepps, Eyjaf.................. 47
74. Verkamannafélag Húsavíkur, Húsavík, .................. 193
75. Verkalýðsfélag Þórshafnar, Þórshöfn, .................. 71
76. Verkamannafélag Raufarhafnar, Raufarhöfn, ............. 68
77. Verkalýðsfélag Öxarfjarðarhrepps, Kópask............... 24
78. Verkamannafélag Reyðarfjarðarhrepps, ................. 74
79. Verkamannafélag Vopnafjarðar, Vopnafirði, ............. 77
80. Verkalýðsfélag Fáskrúðsfjarðar, Fáskrúðsfirði, ...... 151
81. Verkalýðsfélag Djúpavogs, Djúpavogi, .................. 54
82. Verkalýðsfélagið Víkingur, Vík í Mýrdal, ............. 121
83. Verkamannafélagið Báran, Eyrarbakka, ................. 138
84. Verkalýðsfélagið Bjarmi, Stokkseyri, ................. 115
85. Smábænda- og verkalýðsfélag Ölfushrepps, .............. 30
Samtals 11.930
Auk þess 10 félög, sem enn eru í Alþýðusambandinu, en
kommúnistar telja sem stofnendur að sínu sambandi, en
þau eru: Félag járniðnaðarmanna, Sveinafélag húsgagna-
smiða, Félag bifvélavirkja, Sveinafélag skipasmiða, Félag
blikksmiða, Verkamannafélögin Þróttur og Árvakur, Verka-
lýðsfélögin í Borgarnesi og Tálknafirði og Verkakvenna-
félagið Snót, en meðlimatala allra þessara félaga er sam-
tals um ............................................. 800
Meðlimir stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins eru því
alls um ............................................. 12730
CHARLES NORDHOFF og JAMES NQRMAN HALL:
Uppreisnin á Bountjr.
115 Karl ísfeld íslenzkaði.
naumast greint andlit komumanna. Liðþjálfinn hafði skjal í
hendinni. Hann bar skjalið upp að birtunni og las:
— Thomas Burkitt — John Millward -— Thomas Ellison!
— Fangarnir, sem nafngreindir voru, gangi fram! skipaði
liðsforinginn.
Fangarnir þrír gengu fram og námu staðar á miðju gólfinu.
Það voru sett á þá handjárn, og fjórir menn stóðu fyrir framan
þá og fjórir fyrir aftan.
— Gangið áfram!
Eftir andartak voru þeir horfnir, án þess að fá tíma til að
kveðja. Við Muspratt, Morrison og ég, stóðum í sömu sporum
grafkyrrir. Dyrunum var læst. Þegar við skömmu seinna gægð-
urnst út um kýraugað, sáum við einum skipsbátnum frá Hect-
or róið frá skipinu. í skímu haustkvöldsins sáum við hina dauða-
dæmdu fanga sitja hlekkjaða á afturþóftunni. Um fjögur hundr-
uð metra frá Hector lá skip Hans Hátignar Brunswick við akk-
eri. Við sáum bátinn hverfa við skipssíðuna.
Mig hryllir ennþá við því, þegar ég hugsa til næturinnar,
sem fór í hönd. Við Muspratt og Morrison reyndum ekki að
sofa. Við sátum við kýraugað og horfðum út í náttmyrkrið.
Við horfðum í áttinu til Brunswick, sem sást nú ekki lengur.
Við vissum mæta vel, að þetta var síðasta nóttin, sem félög-
um okkar yrði leyft að lifa. Það, að við vorum ekki kallaðir
með þeim, gaf okkur veika von um það, að okkur væru ekki
fyrirhuguð sömu örlög. Ég hafði mikla samúð með veslings
Muspratt, sem leið ógurlegar þjáningar. Jafnvel núna þorðí
ég ekki að segja honum frá því, sem Sir Joseph hafði sagt
mér um hann, en mér þótti vænt um, að Morrison talaði kjark
í hann.
— Mál yðar hefir verið rannsakað að nýju, Muspratt, sagði
hann, — það er ég sannfærður um. Ég hefi aldrei efast um, að
svo færi. Það að við erum hér eftir, sýnir, að með því að ein-
hver tilgangur.
— Hvað álítið þér, Byam? spurði Muspratt.
— Morrison hefir á réttu að standa, svaraði ég. — Hann
fékk meðmæli til þess að sækja um konungsnáðun. Þessa náðun
hefir hann bersýnilega fengið. Við erum líka skildir eftir.
Það hlýtur að vera af sömu ástæðu. Ef þeir hefðu ætlað að
hengja okkur, hefðu þeir sent okkur til Brunswick ásamt hin-
tím.
— En ef til vill ætla þeir að hengja þá fyrst? Eða þeir ætla
sér að hengja okkur hér á Hector?
Þannig töluðum við alla nóttina. Og guð veit, að sú nótt var
löng. Við reyndum að finna einhverja hugsanlega ástæðu fyrir
því, að við vorum skildir eftir. Að lokum varð náttmyrkrið að
flýja fyrir grárri skímu morgunsins. Nú sáum við Brunnswick.
Klukkan 9 leit Morrison út um kýraugað. Allt í einu sagði
hann: Þeir hafa dregið upp aftökufánann á Brunswick.
Um þetta leyti fóru allar refsingar á brezkum skipum fram
klukkan 11 fyrir hádegi. Við vissum, að Ellison, Burkitt og
Millward áttu ekki eftir ólifaða nema tvo klukkutíma.
Klukkan hálf ellefu sáum við einum bátnum af Hector róið
til Brunnswick. Á eftir þeim var róið bátum frá hinum skip-
unum. Við vissum, að mennirnir voru sendir, til þess að vera
viðstaddir aftökuna. Muspratt stóð við kýraugað og starði án
afláts. Við Morrison gengum um gólf og töluðum saman á tah-
itisku um Teina, Itea og aðra vini okkar á Tahiti. Stundum
itisku um Teina, Itea og aðra vini okkar á Tahiti. Stundin
nálgaðist, Þá kom Montague skipstjóri inn og með honum liðs-
foringinn, sem komið hafði kvöldið áður. Á svip skipstjórans
sáum við allt, sem við vildum fá að vita, og hefðum við verið í
nokkrum vafa, þá kom vissan, þegar liðsforinginn gaf varð-
mönnunum skipun um að fara. Varðmennirnir brostu til okkar
um leið og þeir fóru. Montague skipstjóri braut sundur blað,
sem hann hafði í hendinni.
— James Morrison — William Muspratt, sagði hann hátt.
Þeir gengu fram. Montague skipstjóri leit blíðlega á þá. Svo
las hann hátíðlega: — Vegna beiðni frá Hood lávaröi, forseta
réttarins, sem hefir dæmt ykkur til dauða fyrir uppreisn, um
náðun ykkur til handa, hefir konungurinn veitt ykkur báðum
fullkomna fyrirgefningu.
— Roger Byam!
Ég gekk fram og nam staðar við hlið félaga minna.
Nefnd skipuð af flotamálaráðuneytinu hefir hlýtt á eiðfest-
an framburð Roberts Tinkler, fyrrum liðsforingjaefnis á
Bounty og er sannfærð um, að þér séuð algerlega saklaus af
því áð hafa tekið þátt í og undirbúið uppreisnina, sem þér hafið
verið ákærður og dæmdur til dauða fyrir. Nefndin hnekkir því
dómi réttarins og þér eruð sýknaður.
Því nsest gekk Montague skipstjóri til okkar og tók í hendur
okkar.
— Ég er ekki í vafa um það, að í dag hefir þrem löghlýðrir
um þegnum verið gefið frelsi, svo að þeir gætu innt af hendi
þjónustu við konung sinn.
Ég var svo hrærður, að ég gat ekkert sagt. Ég gat aðeins
stamað: — Þakka yður fyrir, skipstjóri. En Morrison hefði
ekki verið Morrison, ef hann hefði ekki verið jafnvel undir
þetta búinn.
— Skipstjóri, sagði hann alvarlegur. — Þegar dómurian
var felldur yfir mér, tók ég honuna með ró, og þótt hann h®fði