Alþýðublaðið - 20.11.1939, Page 1

Alþýðublaðið - 20.11.1939, Page 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XX. ÁRGANGUR MÁNUDAGUR 20. NÓV. 1939. 271. TÖLUBLAÐ Djúpsprengjurnar eru hættulegasta vopnið, sem Bretar hafa í baráttunni við þýzku kafbátana. Myndin er tekin á brezkum tundurspilli, um leið og einni þeirra er skotið af. Er rikisútvarpið í þjón- usto kommnnistaflokksius? Hneykslanlegur fréttaburður þess unt rússnesku skeytasendingarnar hingað. AÐ vakti mikla furðu livernig Ríkisútvarpið skýrði frá skeytasendingun- um frá Rússlandi í fréttatím- anum í gærkveldi. í marga daga hefir útvarp- ið þrjózkast við að skýra frá þessu merkilega máli, enda þótt þetta mál hafi verið að- alumræðueíni bæjarins síð- an um miðja síðustu viku, og nú þegar það loksins tekur sig til og skýrir frá málinu, þá gerir það það á þann hátt, að engu líkara er en að þar hafi kommúnistar verið að verki til þess að velja úr þau atriði, sem fram hafa kómið við umræður um málið, sem bezt falla í þeirra kram. í útvarpsfréttinni var ber- sýnilega höfuðáherzla lögð á það. að reyna að láta líta svo út, sem Alþýðulbaðið hefði gert eitthvað óheiðarlegt með því að birta þá vitneskju, sem því hafði borizt um skeytasending- arnar hingað frá Rússlandi, og draga fjöður yfir hitt, sem er aðalatriði málsins, að Rússar skuli hafa varið 160 þúsundum króna í skeytasendingar til kommúnista hér á landi í und- irróðursskyni síðan 1 ársbyrj- un 1938. Fjasið um það hvernig Alþýðublaðið myndi hafa kom izt yfir þessa frétt tók um einn þriðja hluta tímans, sem fór í alla fréttina, og kvað svo ramt að hlutdrægninni, að þegar les- in var upp greinargerð Jónasar Jónssonar um þetta 1 Tíman- um s-1. laugardag, þá var þess vandlega gætt að hætta lestr- inum þar, sem J. J. lýsti því yfir, að hann yrði að viður- kenna það, að þegar hann las fréttina í Alþýðublaðinu, þá hefði honum fundist, að þjóðin ætti einmitt sérstakan rétt á því að fá að heyra þetta. í út- varpinu er þessari viðurkenn- ingu J. J. stungið undir stól, en í þess stað voru teknar upp svívirðingar úr Þjóðviljanum um Alþýðublaðið, sem ekkert koma þessu máli við, og enginn gat haft neina hvöt til þess að koma á fr" .*'æri í útvarpinu nema kommúnistar sjálfir, eða einhver verkfæri þeirra. Það er ekki í fyrsta skipti sem þessi aðalfréttastofnun þjóðar- innar er notuð til að koma áróðri kommúnista á framfæri, breiða yfir ávirðingar þeirra og bá- súna út það, sem þeim gæti að gagni orðið. Það virðist vera orðin full- komin ástæða til þess að athuga ástandið við útvarpið — og gera a. m- k. ráðstafanir til þess, að þar vaði ekki uppi menn, sem standa í þjónustu kommún- istaflokksins og þar með er- lends stórveldis, sem nú er orðið uppvíst að því að verja stórfé til áróðurs hér á landi. Fjðgnr kaupfðr, þar af prjú Mutlaus taafa rekizt á tundurdufl og farizt vlð Englaudsstrendur siðan á laugard. ----«--- Bretar saka Þjóðverja um að hafa iagt tundur- duflum á siglingaleiðum við Englandsstrendur Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun. TC* 1 JÖGUR kaupför hafa rekizt á tundurdufl á siglinga- leiðum við Englandsstrendur og farizt síðan á laugar- daginn. Eru það hollenzka skipið „Simon Bolivar“, 8000 smálestir að stærð, ítalska skipið „Grazzia,“ 5800 smálestir, sænska skipið „Börjeson,“ 1600 smálestir, og enska skipið „Blackhill,“ 2500 smálestir. Samkvæmt tilkynningum brezka flotamálaráðuneytis- ins fórst hollenzka skipið í Ermarsundi, en hin öll við aust- urströnd Englands. Sakar flotamálaráðuneytið Þjóðverja um að hafa lagt tundurduflum á siglingaleiðum við Eng- land til þess að hindra siglingar þangað. Um mannskaða af þessum slysum er það nú orðið kunn- ugt, að 100 manns hafa farizt af „Simon Bolivar,“ sem hafði 400 manns innanborðs, aðallega hollenzka og enska farþega, 1 maður af „Grazzia,“ 16 manns af skipshöfn þess vantar enn, 6 vantar af „Börjeson,“ en af „Blackhill“ hafa allir þegar hjargast. Af þeim 100 sem fór- ust með „Simon Bolivar“, fer talið, að 44 hafi verið hrezkir- Frásöya farpega á „Slm- on Bolivar". LONDON í gærkveldí. FÚ. Samkvæmt frásögn farþeg- anna á „Simon Bolivar”, sem fórst 1 Ermarsundi á laugardag- inn, urðu tvær sprengingar með stundajrf j órðungs millibili. Margt manna fórst, er fyrri sprengingin varð- Björgunar- bátarnir á stjórnborða voru settir út án þess nokkurt slys yrði, en þegar farið var að setja út björgunarbáta hinum r.aegin á skipinu, er var þá farið að hallast mjög mikið, varð síðari sprengingin, og tvístraði hún einum björgunarbátnum, og fórust flestir, sem í honum voru.. Brezka flotamálaráiðuneytið hefir gefið út tilkynningu, þar sem Þjóðverjar eru taldir á- byrgir fyrir því, að skipið fórst, þar sem skipið rakst á 2 þýzk tundurdufl, sem lögð voru í siglingaleið, án þess kunngert væri neitt um það, og er hér ný sönnun, segir í tilkynning- unni, fyrir virðingarleysi Þjóð- verja fyrir alþjóðalögum. Tundurduflin voru lögð á siglingaleið, sem skip hlut- lausra þjóða nota mikið, og þau voru lögð á þessar slóðir að yf- irlögðu ráði, segir enn fremur í tilkynningunni. Tundurduflin hafa verið lögð á siglingaleið- um milli strandar Bretlands og Belgíu, vafalaust í þeim til- gangi að valda siglingastöðvun, og er leidd athygli að því í brezku tilkynningunni, að lett- neskt flutningaskip hafi einnig farizt í gær nálægt Zeebrugge í Belgíu, og tvö skip hafi skemmzt af völdum tundur- dufla í þann mund, sem „Simon Bolivar“ fórst og þar skammt frá, en þessi skip komust til hafnar. Skipið „Simon Bolivar“ var byggt árið 1927. Fregnin um hann vakti sorg og gremju í Hollandi, en blööin birta aðeins frásagnir af atburðinum enn sem komið er, og að'* sjálfsögðu geta þau hinnar lorezku til- kynningar. Fregnin hefir ein;uig vakið gremju í Danxnörku, en Danir misstu stærsta mótorskip sitt, „Canada“, fyrir nokkru, er það rakst á tundurdufl á siglinga- leið við England skammit und- an landi. Er þetta íslenzk gentlemennska? Fræoasta MSfnðból laids- ins fyrir enska flngnanninn -----♦---- En fangelsi og ófrelsi fyrir óbreytta þýzka sjómenn, sem fiýðu á i&áðir okkar K AÐ þóttu tíðindi, þegar brezka hernaðarflug- vélin strauk frá Raufarhöfn. Menn höfðu að óreyndu ekki búizt við því, að brezkum flugforingja lægi í svo léttu rúmi, hvort hann stæði við drengskaparorð sitt eða ekki. En ýmsir voru á þeirri sltoðun, að það bætti nokkuð þá skerðingu hlutleysis lands vors, sem framin var með lendingu f 1t ngvélarinnar _ FcMi á 4- siðal ^ IsMiáianeíBá! kaspir sMp. Til flatninga á Mraðfrystaffii fiski. Fiskimálanefnd hefir að því er Al- þýðublaðið hefir frétt, fest kaup á skipi til flutn- inga á hraðfrystum fiski á erlenda markaði. Er það þrímöstruð skon- norta með hjálparvél. Það er 6—700 smálestir að stærð. Kælivélar eru í því- Skipið er keypt frá Dan- mörku og má búast við að það hefji fiskflutninga upp úr áramótunum. Munu þessi skipakaup standa í sambandi við stórkostlega aukningu á sölu á hraðfrystum fiski, sem Fiskimálanefnd er að koma í framkvæmd og mun verða til mikillar at- vinnuaukningar í landinu. Wlnston Churchill flotamálaráðherra Breta síöan stríðið hðfst. Raieder aðmíráll, sem stjórnar þýzka flotanum og öllum sjóhemaði Þýzkalands. býzkir stomsveitarmenn meðvélbyssniáverðiiPrag -----$--- 12 aftökur á tveimur sólarhringum og fjöldi tékkneskra stúdenta fluttir i illræmdustu fangabúðir Þýzkalands. LONDON í morgun. FÚ. SAMKVÆMT frcgnum frá hlutlausum fréttariturum í Tékkóslóvakíu eru þýzkir stormsveitarmenn mteð vélbyss- ur á verði á hverju götuhorni í Prag, en fréttaritararnir segja, að íbúar Prag forðist að grípa til nokkurra gagnráðstafana gegn nazistum- Fjölda margir stúdentar, sem handteknir hafa verið, hafa verið, sendir í Buchenwald- fangabúðirnar, sem einna verst orð fer af af öllum fangabúð- um Þýzkalands. Hefndarráðstafanir eru enn gei-ðar* vegna sprengingarinnar i Múnchen, og að því er frétta- ritarar hlutlausra þjóða segja, hafa um 5000 menn verið hand- teknir, en margir teknir af lífi- Fer því fram hreinsun svipuð þeirri, sem gerð var 30. júní 1934, en hrottaskapurinn og harkan enn meiri en þá, segir brezka útvarpið. Mikill fjöldi stormsveitarmanna , er kominn til Tékkóslóvakíu til viðbótar hinu mikla 1-ögregluliði og stormsveitunum, sem fyrir vom. Herlög em gengin í gildi í Prag og þremur öðmm borg- um. Kaffi- og matsölustöðum og öllum skemmtistöðum er lokað kl. 10 og gistihúsum á miðnætti. Hvarvetna er aukinn lögreglu- vörður. Talsímasamband er ekk- ert milli Prag og borga í öðrum Löndum, sem stendur. Alls hafa 12 Tékkar verið tektl- ír af lífi undangengna tvo sólar- hringa. Stormsveitarmienn hafa enn aðsetnr í háskólabyggingUn- um. Meðal hinna mörgu, sem handteknir hafa verið, eru margir tékkneskir háskólakennarar. Hacha fangi bjéðverja. Hacha ríkisforseti hefir hald- ið útvarpsræðu og hvatt Tékka til þess að sætta sig við stjórn Þjóðverja og hætta mótspyrn- unni gegn þeim. Þeir eiga, sagði hann, rétt til alls, sem þeir fara fram á- Hacha talaði af mikilli (Frh. á 4. »íðu.)

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.