Alþýðublaðið - 02.12.1939, Side 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. ÁRGANGUR
LAUGARDAGUR 2. DEZ. 1939.
282. TÖLUBLAÐ
ssar vi
Neita að semfa við stfórn, sem Tanner sé í, og stofna komm«
énistíska leppstjérn i porpi, rétt innanwið finnsku landamærin
—--,---
Hryllileg loftárás á verkamannahverfi i Helsingfors.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. Kaupmannahöfn á hádegi í dag.
OIN NÝJA STJÓRIN! hefir nú verið inynduS á Finnlandi og eiga
1 sæti í henni fuilfrúar frá öElum þjéðlegum fiokkum. • *
Forsætisráélierra hinnar nýju stjérnar er ekki Tanner? eins ©g
húizt var viS, heidur nUTi, aðalhankastjéri Finnlandsbanka. En
er utanríkismálaráöherra. Paasikivi á sæti í stjérniiini
sem ráéherra án sérstakrar stjórnardeiSdar. Tanner lýsti .því
yfir, eftir aé stjérnin hafði verié myndué, að hún vildi gjarnan
froS @g samkomulag við Hússiand, en ekki skiEýrHisSaust. „Tak-
marSc okkar, sagöi Tanner, er að verja sjáifstæéi ©g öryggi iands-
ins<
IVBoiotov utanríkismálaráðherra sovétstjérnarinnar hefir lýst
því yfir, aé þaé komi ekki tiE máia a® Hússar semji vi® finnska
stjérii; sem Tanner eigi sæti íf því að hann hafi verið meéiimur i
hinni fráfarandi sfjérn. .
Samtímis berast fregnir af því að Rússar hafi myndað leppstjórn í þorpinu Terijoki
á Kyrjálanesi, sem þeir hafa tekið, og sé hún skipuð finnskum kommúnistum, sem verið
hafa í þjónustu alþjóðasamhands kommúnista undanfarin ár. Forseti þessarar rússnesku
leppstjórnar er Otto Kuusinen, sem hefir verið starfsmaður alþjóðasambands kommún-
ista austur í Moskva árum saman.
í útvarpinu í Moskva er þannig sagt frá þessari stjórnarmyndun, að finnski verka-
lýðurinn hafi nú myndað sína eigin stjórn og hafi hún beðið Sovét-Rússland um hjálp.
Er hin blóðuga árás Rússa á Finna afsökuð á þennan hátt.
Einn af skriðdrekum Rússa í skóglendinu á Kyrjálantesi.
V
I
Rðssar mæta harðvítugri
mótspyrBu við landamærln.
Sékn peirra allstaðar hrnndíð
af Finnnm laema norðnr víð íshafL
KORT AF FINNLANDI.
Efst á kortinu sést Ptetsamo.
Neðarlega til hægri Kyrjála-
nesið, þ. e. eiðið milli Finnska
flóans og Ladogavatns, en fyrir
norðan vatnið taka við Kyrjál-
ar, þar sem líka er barizt. A
kortinu sjást einnig margar þær
feorgir, sem mest eru néfndar í
fréttunum.
Rússum hefir lítið orðið á-
gengt við landamærin annars
staðar en norður við íshaf. Þar
telja þeir sig hafa tekið fiski-
mannabæinn Fetsamo. En bær-
inn er sagður í rústum og
hafnarmannvirkin hálf eyði-
lögð eftir árás Rússa. Rússnesk-
ar fíugvélar eltu flóttafólkið
frá Petsamo, sem ætlaði að
bjarga sér yfi'r landamæri Norð-
ur-Noreg, og létu skothríðina
dynja á því úr vélbyssum sín-
{ um. • ' r,
Á Kyrjálavígstöðvumun, fyr-
t ir norðan Ladogavatn, og á
Kyrjálanesi, fyrir sunnan vatn-
ið, hafa Finnar enn hrundið
öllum árásum Rússa. Hafa
Rússar orðið fyrir miklu mann-
^LF. NiNGh tjóni í sumum áhlaupunum,
^ því að finnsku hermennirnir
eru húnir hættulegu vopni: —
rifflum, sem hægt er að skjóta
af eins og vélbyssum. Við suo-
jarvi í Kyrjálmn voru tvær
hersVeiíir Rússa strádrepnar af
hinu finnska landvarnarliði,
sem þannig var vopnað.
Skriðdrekar Rússa reynast
ekki vel í áhlaupunum. Þeir
þola illa skothríð. Samkvæmt
tilkynningu finnsku herstjórn-
arinnar hafa 36 rússneskir
skriðdrekar þegar verið eyði-
lagðir þannig í bardögunum á
landamæruniun. En Finnar
hafa einnig tekið á annað þús-
und Rússa til fanga.
Finnar segjast hafa skotið
niður samtals 16 rússeskar
flugvélar síðan vopnaviðskiptin
hyrjuðu. Þar af voru 4 skotnar
niður yfir Helsingfors í gær.
Rússnesk herskip héldu uppi
stórskotahríð á Hangö í gær, en
strandvirki Finna héldu peim í
hiæfilegri fjarlægð og hindruðu
pau í a'ð setja lið á lamd.
Einum rússnesfcum tundurspilli
sem pátt tók í árásinni, var sökt
af fallbyssum Finna.
Herskipaflotí Rússa heldur uppi
látlausri skothrið á eyjuna Hog-
laimd í fimnska flóanum, sem er
ein peirra eyja, sem Rússar
heimtuðu. Mörg bændabýii á eyj-
tunmi sitanda í bjiörtu báli.
fordæidi kommðDlst
Geyslflðlmennur verkalýðsfundur, sem
Alpýðuflokkurinn hélt i Iðnó í gærkveldi
ALÞÝÐUFLOKKURINN hoðaði til almenns fundar
um Finnlandsmálin og kommúnista í Iðnó kl. 8.30.
Varð þetta einhver fjölmennasti fundur, sem haldinn hefir
verið í Iðnó og var þéttskipað í alla sali og ganga og út á
götu.
Mannfjöldinn lýsti hvað
eftir annað samúð sinni og
virðingu fyrir Finnlandi og
finnsku þjóðinni og fyrir-
litningu sinni á hinum rúss-
nesku kúgurum og and-
styggð sinni á kommúnista-
flokknum og stefnu hans.
Öllum ræðumönnum var
tekið með dynjandi lófa-
klappi og fögnuði.
Ræðumenn á fundinum voru:
Spreigikúlir jflr verka-
æannahverfl i Helsingfors.
-- 4------
Og vélbyssuskothríð á kouur og börn
sem flýðu út úr hrynjandi byggingunum.
Rúsisar gerðu tilraun til loft-
árásar á Helsdmgfors strax með
aftureldingu í gærmorgum, en
húin mistókst. Eftir klukkutima
var gefið til kynná, að árásar-
hættan væri liðin hjá, loftvamar-
byssur Finma höfðu hindrað árás-
arfiugvélarnar í að komast inn
|rfir borgina. Kl. II í gærmorg-
Uin var aftur geffn aðvöran um,
að loftárás værí í aðsigi, og var
þeírri aðvöran ekki aflýst fyrr
en kl. 3 e. h. Sprengjufliugvélar
Rússa, sem pá höfðu komist inn
yfir borgina, vörpuðu sprengi-
kúlum yfir verkamannahverfið
Somas.
Frh. á á- sföu.
Ingimar Jónsson, varaformaður
Alþýðuflokksfél. Friðfinnur Ól-
afsson stúdent, Sigurður Einars-
son docent, Guðmundur G.
Hagalín rithöfundur, Finnur
Jónsson, Guðjón B. Baldvinsson
og Jónas Guðmundsson.
Allir ræðumennirnir ræddu
um árás Rússa á Finna og það
hlutverk, sem kommúnistar
vinna fyrir einræðisstjórn
Stalins. í fundarlokin voru sam-
þykktar eftirfarandi ályktanir:
„Fundur haldinn í Iðnó 1.
desember 1939 að tilhlutun Al-
þýðuflokksins lýsir yfir dýpstu
samúð íslenzkrar alþýðu mteð
finnsku þjóðinni, sem nú fórnar
blóði sínu til þess að verja
frelsi sitt.
Öll íslenzk alþýða fordæmir
ofbeldisárás Sovét-Rússlands á
friðsama, saklausa smáþjóð og
væntir þess, að enginn íslend-
ingur verði tíl þess að setja
smánarblett á þjóð sína með því
að mæla slíkum hermdarverk-
um bót.“
Hver einasti fundarmaður
greiddi atkvæði með þessari á-
lyktun, að um 10 undantekn-
um, sem sátu hjá, en það voru
kommúnÍ6tar.
Þá var þessi ályktun sam-
þykkt með öllum atkvæðum
gegn 13 kommúnistum:
„Þar sem það hefir sýnt sig,
að svokallaður Sósíalistaflokkur
fsland hefir þráfaldlega reynt
með ósönnum fréttaburði að
æsa útlend stórveldi gegn ís-
landi, hefir þegið og þiggur
stórfé af erlendu landvinninga-
og ofbteldisríki og loks svívirt í
ræðu og riti saklausar, frið-
samar og frelsisunnandi smá-
þjóðir, sem áðurnefnt landvinn-
ingaríki hefir ráðist á af hinni
mestu grimmd og villimennsku,
skorar fundurinn eindregið á
ríkisstjórnina íslenzku að hafa
hinar ströngustu gætur á allri
starfsemi flokksins, og gera síð-
an, hvenær sem sérstök ástæða
er til, röggsamlegar ráðstafanir,
er komi í veg fyrir frekari þjóð-
skaðlegar aðgerðir af hans
htendi.
Af framangreindum ástæðum
og fyrir þær sakir, að þessi
sami flokkur hefir bæði nú og
meðan hann hét Kommúnista-
flokkur íslands, reynt á allan
hátt að sundra samtökum ís-
lenzkrar alþýðu, skorar fundur-
inn á allt vinnandi fólk í land-
inu að snúa algerlega baki við
flokknum og útiloka hann og
forystumenn hans frá öllum á-
hrifum á mál verkalýðsins.“
Þegar atkvæði voru talin og
Frf». á 4- ciða.