Alþýðublaðið - 13.12.1939, Qupperneq 4
MJÐVIKUDAGUR 13. DEZ. 1939.
■ GAMLA Blð ■
Vlnirnir.
Tiikomumikil og hrífandi
fögur kvikmynd um sanna
vináttu og fórnfúsa ást.
Aðalhlutverkin leika fjórir
heimsfrægir leikarar:
Robert Taylor,
Franchot Tone,
Robert Young og
Margaret Sullivan,
hin glæsilega leikkona, sem
öllum mun ógleymanleg,
er sáu myndina „Aðeins
ein nótt.“
Ns. Helgi
fer frá .Reykjavík til Vest-
mannaeyja næstkomandi laug-
ardag. Flutningi veitt móttaka
til hádegis sama dag.
L O. G. T.
ST. EININGIN nr. 14: Fundur
í kvöld klukkan 8V2. Böggla-
uppboðinu frestað. Skugga-
myndasýning, upplestur og
söngur.
ÆT.
AFMÆLISFAGNAÐUR. St.
FRÓN NR. 2 2 7. — Fundur í
loftsal Góðtemplarahússins
annað kvöld kl. 8. DAG-
SKRÁ: 1. Upptaka nýrra fé-
laga. 2. Reglumál. — Að
loknum fundi, klukkan 9,
hefst í aðalsalnum AFMÆL-
ISFAGNAÐUR stúkunnar,
með kaffisamdrykkju, og
verða skemmtiatriði þessi:
a) Ávarp. b) Karlakórsöngur.
c) Leiksýning. Að þessu loknu
h'efst dans fyrir Reglufélaga
þá og gesti þeirra, sem sitja
afmælisfagnaðinn. — Reglu-
félagar, fjölmennið og mætið
annað kvöld klukkan 8.
Sænski sendikennarinn
flytur í kvöld kl. 8 fyrirlestur í
háskólanum. Fyrirlesturinn fjall-
ar um Eisa Bxándström og starf
hennar meðal herfanganna í Si
beríu í heimisstyrjö Idinni 1914 til
1918 og eftir hana.
Tilkynning nm sinlingahættn.
Samkvæmt tilkynningu frá flotamálaráðuneytinu brezka,
dags. 18. nóvember síðastliðinn, er öllum skipum öðrum en her-
skipum og spítalaskipum algjörlega bannað að viðhafa innan
brezkrar landhelgi bendingar þær með ljósblossum (Flare-up-
Lights), sem fyrirskipaðar eru í alþjóðasiglingareglum og í regl-
um um neyðarbendingar skipa í sjávarháska.
Þar sem margvíslegar hömlur hafa verið lagðar á siglingar
um Ermarsund og strangar reglur settar um siglingar um sund-
ið, eru skipstjórar alvarlega áminntir um, að afla sér rækilegra
upplýsinga um allt, er að þessu lýtur, eigi þeir leið um sundið.
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAGS-
FUNDURINN i GÆR
Frh. af 1. síðu.
nokkrir, sem áður voru í hin-
um svokallaða „Sameiningar-
flokki.“ Ríkti mikill áhugi á
f undinum fyrir framgangi
flokksins.
Fundurinn hófst með erindi
Ólafs Hanssonar sögukennara
við Menntaskólann um sögu
Finna. Þá lék útvarpstríóið
nokkur finnsk lög, en síðan las
Sigurður Einarsson upp kvæði
Runebergs um Döbeln, sem var
ein af frelsishetjum Finna.
Að þessu loknu hófust um-
ræðurnar um þingmál og var
aðallega rætt um höggorms-
frumvarpið.
Fundurinn sýndi Ijóslega hinn
mikla vöxt, sem nú er í Al-
þýðuflokknum. Hafa menn nú
séð hve rétta afstöðu Alþýðu-
flokkurinn hafði, þegar komm-
únistar unnu að því að kljúfa
Alþýðuflokkinn — og hefir það
sín miklu áhrif.
Síefanó Islandi
var einn meðal margra lista-
manna, sem tóku þátt í stórum
hljióniieikum nýlega á ráðhúsinu í
Kaupmannahöfn, og á sunnudag-
inn kemur er ákveðið, að hann
verði fulltrúi íslands á jólahljóm-
leikutn Kaupmannahafnarblaðsins
Politiken. FO.
Útbreiðið Alþýðublaðið.
Lögreslufrnmvarpið
samgykkt við 2. um-
ræðu í efri deild.
Alpýöuflokksmeonirnir
greiddn atkvæði gegn
frnmvarpinn.
\T IÐ atkvæðagreiðslu um
® frumvarp Hermanns
Jónasscvnar um lögreglu-
menn í efri deild í gær við 2.
umræðu voru breytingartil-
lögur þær, sem meirihluti
allsherjarnefndar, þeir Sig-
urjón Á. Ólafsson og Ingvar
Pálmason, höfðu gert við
frumvarpið, felldar. Minni-
hluti nefndarinnar, Magnús
Gíslason, vildi hins vegar að
frumvarpið yrði samþykkt ó-
breytt.
Þegar svo var komið, að búið
væri að fella þær breytingartil-
lögur, sem* Alþýðuflokkurinn
vildi fá fram við frumvarpið,
greiddu Alþýðuflokksmennirn-
ir í efri deild atkvæði gegn
frumvarpinu. Sömu aístöðu
munu Alþýðuflokksmenn taka
í neðri deild, ef ekki fást við-
unandi breytingar á frumvarp-
inu.
Morgunblaðið (og Þjóðvilj-
inn) reka í morgun upp mikinn
skræk út af þessu og halda því
fram, að þessi afstaða Alþýðu-
flokksþingmannanna sé ekki í
samræmi við skrif Alþýðu-
blaðsins um lögreglufrumvarp-
ið. Þetta er tilhæfulaus þvætt-
ingur. Alþýðublaðið skrifaði þ.
28. nóvember í ritstjórnargrein
um lögreglufrumvarpið:
„Hitt er annað mál, hvort
það nægði ekki alveg til þess
að ná þeim tilgangi, að lögleiða
aðeins heimild til þess að flytja
lögreglu frá einum stað til ann-
ars, þegar svo sérstaklega
stendur á. Það er aðalatriði
frumvarpsins og hefði fullkom-
lega nægt í Hafnarfirði í fyrra
vetur. Hitt virðist óþarft, að
baka ríkissjóði á þessum erfiðu
tímum aukinn kostnað með
fjölgun varalögreglumanna um-
fram það, sem leyft er í gildandi
lögum, svo og það, að veita
dómsmálaráðherra einum svo
ótakmarkað vald yfir lögregl-
unni eins og fyrirhugað er 1
frumvarpinu. En það eru gall-
ar, sem með samkomulagi ætti
að mega sníða af því.“
Þetta sagði Alþýðublaðið og
þær breytingar, sem hér er bent
f DAG
Næturlæknir er Björgvin Finns-
son, Garðastræti 4, simi 2415.
Næturvör'ður er i Laugavegs-
og Ingólfsapóteki.
OTVARPIÐ:
20,15 Spumingar og svör.
20,30 Kvöldvaka: a) Ei'nar Magn-
úsison: Roald Amxmdsen og
ferðir hans, IV. Erindi. b)
21,05 Þórarinn Guðnason
stud. med.: „Baráttan gegn
dauðanum“. Upplestur. c)
21,30 Tvísöngur með undir-
leik á gítar (frú Elísabet
Einarsdöttir og frú Nína
Sveinsdóttir).
Merkur tónlistarvið-
viðbnrðnríBeykjavík
ÞANN 18. þ. m. efnir Tón-
listarféiagið til stórfeng-
legustu tónleika, sem hér hafa
Verið haldnir. Verður flutt
Sköpunin, oratorium eftir
Haydn.
Syngur 70 manna kór auk
einsöngvara, en 35 manna
hljómsveit leikur undir.
Verður hljómleikurinn hald-
inn í bifreiðaskála Steindórs við
Seljaveg.
Leikfðng-
(!.■■•) leikfðng
á
FHTfiBÚflHRINNflR
SANITAS kaupir hæsta verði
sultuigl'ös, Vl Va og 1/4 flöskur,
whiskypeia, fægilögsflöskur og
brúsa, tómatflöskur, soyuglös
og 50 gr. glös. Komið strax með
'flöskurnar og glösin til okkar.
Hærra verð en áðiur. — Sanitas,
Lindargötu 1, sími 3190.
Útbreiðið Alþýðublaðið!
Bffl NÝJA BIO n
Ouli hershðftinginu
Ensk kvikmynd er sýnir
harðvítuga baráttu enskra
leyniþjónustumanna í
Kína gegn ofbeldi upp-
reisnarforingjans Wu Ling.
Aðalhlutverkin leika:
Adrianne Renn,
Griffith Jones
og hinn heimsfrægi mon-
gólski „karakter“-leikari
Inkijinoff.
Aukamynd:
Hnefaleikur um heims-
meistaratign.
Joe Louis gegn Max
Schmeling, sem er mest
umræddi hnefaleikur, sem
háður hefir verið í heim-
inum.
Börn fá ekki aðgang.
Ferðafélag íslands
efnir til Finnlandskvölds að
Hótel Borg á fimmtudagskvöld-
ið þann 14. desember. Húsið
opnað klukkan 8V2. Sigurður
Einarsson docent flytur erindi
um Finnland og sýnir skugga-
myndir. Dans til klukkan 1. Á-
góði kvöldsins rennur til Finn-
landssamskota. Aðgöngumiðar
seldir í bókaverzlunum Sig-
fúsar Eymundssonar og ísa-
foldarprentsmiðju til klukkan 6
á fimtudag.
Jólixi nálgast.
Eins og að undanförnu tekur
M æ'ðrasíyrksnef ndin á móti gjöf-
um til jólaglaðninigs handa fá-
tækum mæðnum og bömum
þeirra. Skrifstofa nefndarinnar í
Þinghoitsstræti 18 er opin dag-
Iega frá kl. 4—7. Þeir ,sem vilja
styrikja þessa starfsemi nefndar-
innar eru vinsamlega beðnir að
beiina gjöfum sínum þanigað. Oft
er þörf, en nú er nauðsyn.
á að nauðsynlegar séu að gera
á frv., hafa nú verið felldar.
Hins vegar mun Alþýðuflokk-
urinn freista að fá enn þær
breytingar á frv., sem hann tel-
ur nauðsynlegar og eðlilegar.
Það tilkynnist hér með vinum og vandamönnum, að faðir minn,
Sigurður Bjarnason,
Urðarstíg 11 A, andaðist á Landsspítalanum 11. þ. m.
Fyrir hönd systkina minna og annarra vandamanna.
Ólöf Sigui’ðardóttir Goodman. ,
Spilin gefa lenn með ánægjn.
Jólabækur baraa.
Dragið ekki til síðustu stundar að kaupa jólabækurnar handa
litlu börnunum: Mjallhvít — Hans og Gréta — Rauðhetta —
Þyrnirós (Kóngsdóttirin, sem svaf í hundrað ár) — Öskubuska
— allt eru þetta úrvals jólabækur.
Ennfremur: Búri bragðai’efur — Einn dagur úr æfi Shirley
Temple — Kötturinn, sem fór sinna eigin ferða — Alfinnur álfa-
kóngur — Dvergurinn Rauðgrani — Litla drottningin.
JÓLABÆKUR UNGLINGA:
Margt býr í sjónum, eftir Árna Friðriksson. Nokkur eintök
af þessari óvenjulega vel rituðu barnabók fást enn.
Jörðin okkar og við, eftir A. G. Whyte, Stórfróðleg bók og af-
burðaskemmtilega skrifuð bók um stjörnurnar úti í geimnum, sig-
urför lífsins á jörðunni og síðast en ekki síst sögu náttúruvísind-
anna um sköpun „konung konunganna11 — mannsins.
Ford. Þýðing Freysteins Gunnarssonar skólastjóra. Mjög
skemmtileg og lærdómsrík drengjabók.
Kappflugið umhverfis jörðina. Spennandi og skemmtileg
saga um kappflug kringum hnöttinn, sem margar þjóðir taka
þátt í.
Um sumarkvöld, eftir Ólaf Jóh. Sigurðsson. Safn af smá-
sögum, sumar sögurnar eru prýðisvel skrifaðar.
Grimms æfintýri, 1.—5. hefti. Heimsfræg æfintýri í vandaðri
útgáfu.
ALLAR ÞESSAR BÆKUR ERU MEÐ MYNDUM.
Til Jólanna
ÖL GOSDRYKKIR
frá H.f. OLGERÐIN EGILL SKALLAGRIMSSON
SÍMI 1390.
/