Tíminn - 09.06.1917, Blaðsíða 3

Tíminn - 09.06.1917, Blaðsíða 3
TÍMINN 51 og þykist vita, að landsstjórnin muni fúslega kannast við, að hér sé skýrt rétt frá, hvað viðskiftin við hana snertir. Reykjavík 7. júní 1917. Sveinn Björnsson. A t h s. Tímanum er mikil ánægja að ílytja ofanritaða skýringu frá for- manni Eimskipafélagsins. Hún sannar nefnilega til fulls þá sögu, sem minst var á í síðasta blaði, að Eimskipafélagsstjórnin hefir stutt að því eftir megni, að O. J. yrði sendur sem erindreki stjórnar- innar til Ameríku. Ennfremur að félagsstjórnin hafi líka álitið hann sérstaklega vel hæfan, líka til þessa trúnaðar starfs. En það sem erfitt var að trúa, áður en full umsögn félagsstjórnarinnar lá fyrir, var það, að hún hefði haft hr. O. J. sjálfan svo lítið með í þessum ráðagerðum. Hann er í stjórn fé- lagsins, og hún er alráðin í að senda mann vestur. Formaðurinn er búinn að taia um þetta fulltrúa- mál við yfirráðherrann. Síðan er vesturförin tekin fyrir á stjórnar- fundi í félaginu, en þá er O. J. ekki við, en þó vafalaust staddur i bænum. Þar er samþykt að fara fram á það við landsstjórnina, að sameina fulltrúasendingu fyrir landsstjórnina og Eimskipafélagið og stungið upp á O. J. »sem bæf- um manni«. Ef að líkum ræður, hefir félagsstjórnin svo ritað lands- stjórninni um málið, og þetta alt, eftir þvi sem ráðið verður af orð- um Sv. B. dn þess að láta O. J. vita hvað var á seiði. Þessi aðferð er mjög einkennileg, ef sjálft full- trúaefnið hefir gengið þess dulið, bæði á fundum og annarsstaðar, að verið var að undirbúa þetta tvöfalda ferðalag. Öll aðferðin lík- ust því, eins og »hærri forsjón« hefði ráðið, og beint ætlað O. J. vestur með þessum hætti og siðan látið erindrekaefnið — af tilviljun — vera fjarstaddan og óafvitandi um alt þetta ráðabrugg. Fessi einkennilega dirfska stall- bræðra O. J. í Eimskipafélags- stjórninni, að fara svona á bak við þann, sem málið kom mest við, væri mjög torskilin, ef ekki mætti gera ráð fyrir, að hann œtti þriðja erindið vestur, fyrir sitt eigið verzlunarhús, vegna skips, sem firmað mun þá hafa átt i Ameriku, og hafa því eigi gert ráð fyrir að hann yrði svo ófús til fararinnar, eins og nú er látið heita. »Lystarleysi« O. J. reyndist þá ekki meira en það, samkvæmt um- mælum Sv. B., að hann rœðir um málið við stjórnina, (þegar hann loksins fékk pata af því, hvað var að gerast), og á fundi í Eimskipa- félagsstjórninni, þar sem hann er »viðstaddur« 26. april, skýrir hapn frá »að mjög óvíst væri, að saman gengi með honum og landsstjórn- inni um að hann færi vestur. sem fulltrúi landsstjórnarinnar«. Af þessu er hægt að sjá, að O. J. hefir viljað fara með einhverj- um vissum skilyrðum (sbr. orðin »ganga saman með«). Hvað á milli hefir borið, er ómögulegt að segja. Ósennilegt er að landsstjórnin hafi ekki viljað borga sómasam- lega. Hilt gæti hafa komið til mála, að stjórnin hefði viljað, að erind- rekinn væri þá eingöngu í opin- berri þjónustu, og að O. J. liafi verið »ófús« til þess. Það væri og frá sjónarmiði duglegs kaupmanns betri »aðstaða« að geta gætt sinna hagsmuna jafnframt. En ekkert skal um þetta fullyrt. Að eins bent á, að eitthvað sérstakt virðist hafa borið á milli. Ef til vill upplýsist það síðar. Ef til vill mætti benda hr. Sv. B. á, að þessi uppástunga hans, ef hún hefði verið framkvæmd með þeim hætti, sem upprunalega virðist hafa verið til ætlast, nl. að O. J. væri til frambúðar í Ameriku fulltrúi Eimskipafélagsins og lands- stjórnarinnar, var að vissu leyti óheppileg. Mjög margir kaupsýslu- menn og félög hér á landi hafa nú orðið hagsmuna að gæta í Ame- ríku, þurfa að fá flýtt fyrir af- greiðslu skipa, fá undanþágur o. s. frv. Ef einn helsti keppinautur- inn er þar vestra fyrir sig sjálfan, Eimskipafélagið og landsstjórnina, gæti svo farið, að hver sem skip ætti í förum vildi heldur hafa sjálfur fulltrúa vestra, heldur en notfæra sér hjálp þvílíks erindreka. Hér í blaðinu hefir því jafnan verið haldið fram, að hvenær sem fulltrúamálinu vestra yrði komið í varanlegt horf, og það ætti að vera sem fyrst, þá yrði sá maður að vera algerlega í þjónustu lands- ins, og hafa engra sérhagsmuna að gæta. Og þar sem grein hr. Sv. B. bendif á, að sumir ráðherrarnir hafi verið i vandræðum með að finna mann til vesturfarar, þá mun það ekki eiga við alla. Og í þessu máli skiftir það nokkru að foringi Framsóknarflokksins, hr. Sigurður Jónsson, hefir mjög eindregið hall- ast að þvi, að senda lögfræðing vestur, og mun hafa haft þar á- kveðinn mann fyrir augum. Af leiðréltingu Sv. B. mætti þá gizka á, að hann hafi verið í minnihluta í stjórninni um þetta atriði. Með hráðabirgðarráðstöfunum þeim, sem stjórnin hefir gert i þessu máli, mætti álykta að stjórnin ætlaðist að þingið í sumar bindi enda á málið. Má ganga að því vísu, að Framsóknarflokkurinn, það sem til hans nær, haldi fast við þá kröfu, að fulltrúi landsins vestra sé algerlega óháður, og hafi eng- um störfum að gegna nema fyrir landið. Hvað aðrir flokkar vilja um þetta efni, lætur Tíminn ósagt. En trúlegt er það, að þessi aðstaða hr. S. J., sein ef til vill hefir komið í bága við »hærri forsjón« einhverra »hringa« i Rvik, sé að einhverju leyti ástæða til þeirrar takmarkalausu rógmælgi og ósannindauppspuna, sem beitt hefir verið gagnvart honum siðustu mánuðina, og sem á að undir- byggja kröfuna um, að hann fari frá i sumar, svo að sæti hans megi skipa einhverjum, sem sam ábyrgðin hefir meiri velþóknun á. Járnbraut—cinkaleyf i. í vetur hefir komið upp sá orð- rómur, að fossafélag eitt, útlent að vísu, en með nokkra íslend- inga i sinni þjónustu, hefði í huga að sækja um einkaleyli til Alþingis um að mega, undir eins að stríð- inu loknu, leggja járnbraut frá Rvík yfir Suðurláglendið, að afl- stöðvum við Þjórsá, og fá einka- leyfi til járnbrautarlagninga á þessu svæði. Að vísu skal ekkert um það fullyrt, á hve miklum rökum þessi orðrómur er bygður. Heldur ekki hve mikil alvara leyfisbeið- endum kynni að vera. Hefir áður veiið drepið á það hér í blaðinu, að fjárbrallsmönnum þætli fengur í þvílíkum meðmælabréfum frá þinginu, til að geta því betur fram- selt íslensku fossaréttindin erlendis, til einstakra manna eða félaga, sem vildu hindra samkepni héðan með því, að láta fossana liggja ónotaða. Enginn vafi er á því, að einstaka menn, einkum i Reykja- vík, hafa svo mikla tröllatrú á töframætti járnbrautanna, að þeir vilja fá Austurbrautina með hvaða kjörum, sem vera skal. f’arf ekki lengra að leita en til þingsins 1913, þar sem var harðsnúinn járnbraut- arflokkur, sem virtist vera fús á að ganga að hinum mestu ókjör- um, til að fá þessu áhugamáli í verk komið. Hefir svo þótt síðan, sem enn myndi lif í þeim glæðum, þótt lítið bæri á, rneðan ekki blés byrlega. En til að vera við öllu búinn, er varlegast að gera ráð fyrir þvi, að útlent fossafélag biðji Alþingi í sumar um einkaleyfi til að leggja Austurbrautina. Hvaða svar er þá viðeigandi? Enginn vafi er á því, að slík járnbraut myndi verða bæði höf- uðstaðnum og héraðinu austan- fjalls til mjög mikils gagns. En þegar talað er um gagn fyrir ís- lendinga af slíkri braut, þá er eingöngu átt við fólks- og vöru- flutning, en ekki við neinn iðn- rekstur i stærri stíl. En eí fossa- félag byggir brautina, leggur það eingöngu út í fyrirtækið vegna þess, að það ætlar að nota fossa- aflið til stóriðnaðar. Hitt kemur engum til hugar, að nokkurt fossa- félag fari að leggja hér járnbrautir til að flýta fyrir ræktun landsins, eða til að létta undir vöruaðdrætti höfuðstaðarbúa. Hins vegar myndi slíku félagi þykja það nokkru skifta, að hafa einkarétt á öllum járnbrautarflutningi um frjósamasta hérað landsins, og sækjast eftir því, til að vega upp á móti »óviss- um« útgjöldum. Og það eru líkur til, að slíkt félag þyrfti ekki að brýna lengi fylgismenn sina í þing- inu, til þess að þeir væru einka- leyfinu fylgjandi. En samt mælir margt á móti slíkri ráðstöfun. Samgöngutæki í höndum auðfélaga hafa jafnan reynst viðsjálsgripir, og almenningi dýr til afnota. Enda má segja, að í öllum löndum snúi menn meir og meir að því ráði, að þjóðfé- lagið eigi llutningatækin, einkum járnbrautir, til að fyrirbyggja kiig- un og okur frá hálfu félaganna. Engir samningar koma þar að haldi. Mega menn minnast þess, hversu Sameinaða félagið hefir reynst íslendingum í þessu efni. Hafa samningarnir ekki reynst haldgóðir, á neyðar-stundunum, og nógir íslendingar, til að sfyðja útlenda valdið. Og þó var þar ekki lögbundnu einkaleyfi til að dieita. Saga íslandsbanka getur og verið til leiðbeiningar. Fyrir þau augna- bliks hlunnindi, að fá 3 miljónir króna inn í landið,- afhenti þingið seðlaútgáfurettinn í þriðjung aldar, og stjórnin síðan sparisjóðsréttindi, sem ekki var ætlast til upphaflega. Fyrir þessa vanhyggju renna nú árlega mörg hundruð þúsund krón- ur af arði bankans (fyrir utan venjulega vexti af hlutafénu) út úr Iandinu. Það er skuldin, sem þjóðin verður að gjalda um margt ár enn, fyrir glappaskot þeirra for- ráðamanna, sem gína yfir skjót- fengnu fé með ókjörum og rétt armissi, í stað þess, að sæta lagi, og fá féð að láni, án niðurlægandi skilyrða. Sama mundi raunin verða með járnbrautar-einkaleyfi. Fyrir félag- ið væri það leikur. Brautin bygð vegna iðnaðarins. Samt áhætta, að það mundi síðar færa sig upp á skaftið, þegar það sæi sér fært, og gera landsmönnum þungar bú- siQar. Og ef ekkert einkaleyfi væri veitt, mundi réttur almennings í þessum héruðum að öllu leyti betur trygður. Ef fossafélagið beitti ójöfnuði með flutningsgjöld eða annað, yrði opin leið fyrir íslend- inga, að leggja braut sjálfir, þegar þeim hefði vaxið fiskur um hrygg. Hendur komandi kynslóða væru þá ekki bundnar. Hins vegar væri óviturlegt, að hindra sómasamlegt félag frá, að heQa stóriðnað við einhvern foss- inn, ef þar íylgdu engin mann- spillandi skilyrði. En ekkert einka- leyfi ætti slíkt félag að fá. Því væri nóg, að fá að reka iðnað sinn undir verndarvæng þjóðfé- lagsins, og óáreitt af því. Járn- braut þyrfti það, en ekki meira land en undir brautina sjálfa og nauðsynlegar stöðvar. Verðhækkun landsins með fram brautinni ætti ekki að verða fé- laginu tekjulind. Og til að hindra það, að óhlutvandir menn væru að leika sér að því, að semja við þing og stjórn, og bollaleggja fram- kvæmdir, sem í raun réttri væru að eins á pappírnum, og ættu aldrei annað að vera, yrði að krefjast af slíku félagi, að það setti háa tryggingu fyrir því, að eitthvað yrði því að verki. Annars væri þvílík málaleitun ekki virð-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.