Tíminn - 17.11.1917, Blaðsíða 3

Tíminn - 17.11.1917, Blaðsíða 3
Tl MINN 147 Til þens að fylgjast með TÍMANUM þurfa menn að eignast þessar úrvalsbækur: Stiklur eftir Sigurð Heiðdal. Verð 3,00, ib. 4,00. »í þessari bók eru 9 sögur — og allar góðar. Sumar jafnvel snild- arlegar, t. d. »Offi« (um hund) og »Hvar ertu?« (um dularfull fyrirbrigði, andatrú og endurfæðing). Og auk þess að efnið er marg- breytt og málið gott og þýtt, þá er frágangurinn allur óvenjulega góður«. Dr. V. G. í »Eimreiðinni« 1917. Singoalla eftir Viktor Rgdberg, fsl. þýðing eftir Guðm. Guðmunds- son skáld. Fyrra heftið 1,35, síðara heftið 1,65, ib. 4,00. Viktor Rydberg þarf ekki að lofa, heldur að eins benda mönnum á að lesa rit hans, og þá fyrst og fremst Singoöllu. Nýir tímar, saga eftir Axel Thorsteinson. Verð 1,50, ib. 2,3£>. JÓnsme88uhátíð, saga eftir Al. Kielland, íslenzk þýðing eftir Guðm. Halldórsson. Verð 1,00. Um verzlunarmái, sex fyrirlestrar eftir Jón Ólafsson rithöf., Guðm. Finnbogason dr. phil. (2), Svein Björnsson lögm., Matth. Ólafsson alþm. og Bjarna Jónsson háskólakennara. Verð 2,00. Pótt þú langföruil legðir, lag við kvæði St. G. St. eftir Jón Frið- finnsson. Verð 1,00. »U 202«. Stríðsdagbók kafbáts eftir fríherra von Spiegel, foringja kaf- bátsins. Verð 2,00. Enginn róman hefir enn verið skrifaður svo gripandi sem þessi lát- lausa frásögn af ferð kafbátsins »U 202« um að eins rúman hálfan mánuð. »Ferð Kaf-Deutschlands«, sem út kom í vor, er nú alveg á þrotum; upplagið af »U 202« var jafn-lítið og ættu menn því að hraða sér að ná i þessar bækur. Itóbínson Itrúsóe, hin ódauðlegasta allra unglingabóka, er nú nær fullprentuð. Bækurnar fást hjá öllum bóksölum á landinu eða beint frá ' r Bókaverzlun Arsæls Arnasonar, Reykjavík. laust gagnvart þessu og hangikjöt- inu þegar dæma á um það hvort vatnið eða saltið í því er 10°/o eða 12% og mætti nefna fleiri þess- konar dæmi. Verðlagsnefndarúrræð- ið mundi leiða af sér þann hrá- skinnsleik við kaupmenn, sem mundu, eins og ritstjórinn lýsti yfir á fundinum, fara það sem þeir kæmust, að ekki yrði við unandi stundu lengur. þegar á þetta alt er litið, örðug- leikana á þessu fyrirkomulagi og sögu landsverzlunarinnar, þá virðist manni grysja í hlutdrægnina þá að hugsað sé meir um hag kaup- manna en þjóðarinnar í heild sinni. En hversu vonlaust muni um það, að nú muni breytt í þetta horf sem ritstjórinn bendir til, sjá menn bezt með því að lesa fyrstu greinina hér í blaðinu. Stetnoliuhringarlnn. Mönnum, sem er ókunnugt um samábyrgðir þær, sem hér á landi eru utan um kaupmenn og stór- gróðafélög, kann að virðast undar- legur úlfaþytur sá, sem orðið hefir í smáblöðunum í Reykjavik út úr grein um steinolíu í síðasta blaði Tímans. T*ar var komið fram með þá sjálfsögðu tillögu, að lands- stjórnin ætti að taka næsta farm »hins íslenzka« steinolíufélags eign- arnámi til að koma á réttlátri stein- olíuúthlutun með^l héraða Iands- ins og til þess að sú steinolía verði ekki seld með hærra verði en olia landsverzlunarinnar er nú seld. Sleinolíufélagið kemur ekki sjálft fram í dagsbirtuna. Peðun- um er teflt fram. Óvinsælustu mennirnir i bæjarstjórn Reykja- víkur, »Morgunblaðið« og »Visir« erú hér sammála um að slá skjaldborg utan um hið óþokk- aða erlenda stórgróðafélag. Ástæður þær, sem færðar hafa verið gegn tiilögum Tímans eru ekki veigamiklar. Enginn hefir enn getað borið á móti því, að skort- ur muni verða á steinolíu í land- inu fyrst um sinn og að réttlát úthlutun geti því að eins orðið, að varan sé undir einni hendi. Sjálfsagt er að Reykjavíkurbær fái það sem honum ber hlutfallslega. En enginn borgari í Reykjavík, sem hefir snefil af sómatilfinningu, getur haldið því fram að Reykja- vík fái þegar í stað birgðir út vet- urinn, en ýms önnur bygðarlög yrðu þess vegna að sætta sig við að fá að eins birgðir til áramóta. Á tímum eins og þeim sem nú eru, ætti ekki að þurfa að skýra fyrir almenningi, að eitt verður gfir alla að ganga. Eins liggur það í augum uppi, að happasælla er að landsstjórnin hafi á hendi olíusöluna í Reykja- vík, heldur en bæði steinolíufélagið og bæjarstjórnin, því enginn hefir enn treyst sér til að hrekja það, að landsverzlunin selur steinolíuna fjórurn krónum ódýrari en bæjar- stjórn Reykjavíkur. Bœjarstjórnin mœtti þvi að eins fá steinoliuna til sölu, að hún skuldbindi sig til að selja steinolíuna með sama verði eða lœgra en landsverzlunin. Sú mótbára, að landsstjórnin hafi ekki heimild til að taka olíuna eignarnámi og úthluta henni, er svo barnaleg að hún er ekki svara verð, enda hefir bæjarstjórn og meira að segja steinolíufélagið viðurkent rétt landsstjórnarinnar í þessu efni. — Sama er að segja um þá viðbáru að landsstjórnin muni leggja skatt á Reykvíkinga með því að slá hendi sinni á stein- olíuna og selja hana sama verði um alt land. Nægir þar að vitna í eftirfarandi klausu í »Vísi«: »Landsverzlunin vill láta þess getið í sambandi við grein í Vísi á dögunum, að flutningsgjald á landssjóðssteinolíu út um land muni framvegis verða langt fyrir neðan 20 krónur, og síðast þeg- ar Willemoes kom með olíu- farminn, hafði hún verið flutt út um land fyrir sama gjald og til Reykjavíkur (ekkert auka- flutningsgjald lagt á hana). — Ef flutningsgjaldið til Reykjavík- ur hefir þá ekkert hækkað i þeirri ferð, þá er vonandi að þeirri reglu verði haldið«. Ekki er nú »Vísir« öfundsverð- ur af undanhaldinu sem í klaus- unni felst. En hvað á þá þessi gauragang- ur að þýða? Hér bólar á því sama eins og um svo margt annað. Ef stungið er upp á því að lands- stjórnin reyni á einhvern hátt að bæta kjör almennings og taka fram fyrir hendurnar á stórgróða- mönnum í Reykjavík, er eins og snert sé á opnu sári, alt er reynt að ónýta. Virðast þeir helst til margir sem gildir einu þótt dýrtið og atvinnuleysi liggi á mestum hluta þjóðarinnar eins og mara, ef þeir sjálfir græða. En vonandi tekur landsstjórnin nú í taumana svo að um munar. Svo lengi má brýna deigt járn að það býti. Grein þessi átti að koma í síð- asta blaði. Síðan hafa ýmsar ný- ungar komið fram í þessu máli. Morgunblaðið gat þess á dögunum í ósköp saklausri klausu að »stein- olía sú sem hingað kemur með Fredericia muni verða dálítið dýr- ari en olían sem það skip flutti síðast. Leiga skipsins dýrari að þessu sinni. Að sögn nemur verð- hækkunin um 6 kr. á hverja tunnu«. Dálítið dýrari! segir blað- ið. Þarna vantar ekki umburðar- lyndið! Steinolían sem landsverzlunin hefir fengið þessa dagana er seld sama verði og áður, 78 kr. tunnan. En sé það satt sem nú er sagt, að »Hið fslenzka« ætli sér, fái það að halda farminum, að gera lands- verzluninni það til skapraunar(I) að selja sína olíu langt undir verði og ódýrara en landsverzlunin, þá ætti því ekki að vera of gott að fá að halda henni. Hættan er ekki meiri en það, að allur almenning- ur mundi sjá hvar fiskur lægi undir steini og léti því eigi þessa aðferð félagsins blekkja sig svo, að hans fylgi brysti hvenær seni á þyrfti að halda til þess að taka höndum fj^rir kverkar okurtilraun- um af hendi félags þessa í fram- tíðinni, en sá er auðvitað tilgang- ur að styrkja nú aðstöðuna til þess að þeim yrði betur við komið á sínum tíma. Hvanneyri. íbúðarhúsið á Hvanneyri er brunnið. Skólastjórinn og fjölskylda hans, allir hinir kennararnir, alt vinnufólk við rekstur hins stóra bús og loks allir skólapiltarnir — búa nú i skólahúsinu og er þar þröngt á þingi, því að skólinn er þrátt fyrir dýrtíðina og erfiðar samgöngur, fullskipaður að nem- endum, nú eins og altáf. Kenslu- stundir hófust aftur á mánudaginn næsla, þrátt fyrir brunann. Bændaskólinn á Hvanneyri mun vera eftirsóttasti skóli landsins. Á hverju einasta ári þarf að vísa frá meir en helmingnum af þeim sem sækja um inntöku, af þeirri ástæðu að rúmið er takmarkað. Aðsókn- in er órækasti votturinn um þann sóma og það gagn sem landinu og bændastéttinni er að skólanum á Hvanneyri. í annan slað er landinu hinn mesti sómi að búskapnum sjálfum á Hvanneyri. þar er mesti lieyskapur á landinu og rekinn fyrirmyndar vel, með hinum beztu og hagvirk- ustu tækjum. Er það ekki minst í varið að bændaefnin islenzku sjái með eigin augum vel rekinn bú- skap og taki verklega þatt í rekstr- inum. Það á að vera metnaður bænda- stéttarinnar og landsins að bænda- skólajarðirnar verði regluleg höf- uðból, séu standandi skóli öllum sem koma og sjá, að þær séu það að öllu leyti. Þess vegna verður þegar á næsta vori að réisa á ný íbúðarhús á Hvanneyri og það ibúðarhús sem sæmir höfuðbóli landsins — bænda- skólajörð. Fátæktin hefir ræktað í okkur íslendingum margar ódygðir. Við gerum okkur von um að þær fari af okkur, þegar okkur hvað úr hverju vex fiskur um hrygg. Ein ódygðin, sem er bein afleiðing fá- tæktarinnar, er ræktarleysið um höfuðbólin forn og ný, og er skemst þess að minnast sem nú fer árlega fram á Þingvöllum og niðurníðslu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.