Tíminn - 17.11.1917, Blaðsíða 4

Tíminn - 17.11.1917, Blaðsíða 4
148 TIM INN 1 Líísábyrgðarfélagið Danmark. Skuldlausar rig-uir Tryggiugarnppliæö yfir 25 miljónir kr. yfir IOO milj. kr. Pessi 25 miljóna eign er sameiginleg eign þeirra, sem líf- trygðir eru í félaginu. Álíslenzk læknisskoðnn sem fyr, og polica frá skoðunar- degi hér. Félagið hefir keypt fyrir yflr 50 þúsand krónar banka- raxtabréf í Landsbanka íslands. Félagið hefir lánað bæjarsjóði Reykjayíkur 160 þúsnnd krónnr. Hár Bonns. Lág iögjöld. Umboðsmaður: Þorvalóur c&álsson, íœRnir. Bankastræti 10. Ritstjóra Tímans er kunnungt um að lífsábyrgðarfélagið Danmark tekur og hefir tekið íslenzka læknisskoðun full-gilda og heimilað umboðsmanni sínum hér að afhenda skírteini þegar að læknisskoðun afslaðinni. Skálholts mannsaldrana undan- föruu. Sama kæmi fram ef nú væri verið að hugsa sig um að byggja og byggja sómasamlega á Hvann- eyri. Pað væri ræktarleysi um höfuðból bændastéttarinnar nú á tímum, skilningarleysi á þær kröf- ur sem meginstétt landsins, bænd- urnir verða að gera til þeirrar stofnunar sem á að vera prýði hennar og ala farsællega upp fyrirmyndarmenn hennar. Nú situr á röggstólunum nefnd sem á að finna heppilegar leiðar til þess að veita mönnum atvinnu. Sú netnd hefir bent á ýmsar leiðir sem heppilegar eru og farnar verða. En hér er áreiðanlega ein leiðin sem fara á: að slá tvær flugur i einu höggi, veita mönnum atvinnu, við þetta og reisa sómasamlegt íbúðarhús á bændaskólajörðinni Hvanneyri, fyrirmyndar steinhús i stað timburhússins sem brann. Og það á að vera landi og þjóð vel ljóst að eflir 100 til 200 ár dæma eftirkomendur okkar um okkur núlifandi menn, meðfram eftir þeim menjum sem þeir þá sjá standa eftir okkur. íbúðarhúsið á bænda- skólajörðinni verður þá ekki síst tekið sem mælikvarði um hugsun- arhátt okkar sem nú lifum. Stein- húsin sem nú eru reist með þjóð- inni eru minnisvarðar. Bændurnir sem nú reisa steinhús reisa sjálfum sér minnisvarða með þeim. Með opinberum byggingunum sem nú eru reistar úr steini, reisir kyn- slóðin í heild sinni minnisvarða sína. , Kjötsalan. Kjötsölunefndin hefir gert marg- faldar tilraunir til þess að koma útflutningskjötinu á markað og fá sæmilegt verð fyrir það. En því miður hafa þær tilraunir ekki bor- -ið góðan árangur enn sem komið er. það sem áunnist hefir er aðal- lega það, að leyfi Breta er fengið til þess, að flytja út til Noregs 20 þúsund tunnur af kjöti, og er þá minst á mununum að yfir grípi alt útflutníngskjöt. En þessi íviln- un Breta virðist enn koma að litlu haldi. Norðmenn vilja sem sé ekki sækja kjötið, en setja það skilyrði að íslendingar flytji það til þeirra og vilja ekki borga kjötið fyr en það er komið á höfn í Noregi. Nú hefir nefndin gert ítrekaðar tilraunir til þess að fá leyfi Breta til þess að flytja kjötið beint til Noregs án viðkomu í breskri höfn, enda væri skip fáanlegt til þeirrar farar. En hingað til hefir það Ieyfi ekki fengist. En þurfi kjötskipið að koma við í Englandi á leiðinni, kostar sá krókur svo mikla töf og svo miklu hærri vátryggingu, bæði á farmi og skipi, að ekki borgar sig að selja Norðmönnum kjötið, því að þeir bjóða ekki það hærra verð í kjötið en Englend- ingar. _________________ Sykurverðið lækkað. Landsverzlunin tilkynti í gær, að sykurverðið væri lækkað. Mun stjómarráðið liafa fengið nokkurn veginn vissu um það frá skrifstof- unni í Höfn, að skip fáisttil þess að flytja hingað danska sykurinn. Fréttir. Tíðin. Síðastliðna viku hefir dregið úr frostum, verið lengst af þýtt um daga en frost um nætur. Næðingur með bleytuhríðum og regni hafa verið alla vikuna. Nýtt eldsneyti. Guðm. E. Guð- mundsson, sem einna mest hefir brotist í námugrefti í seinni tið hér á landi, hefir gert tilraunir um að búa til nýtt eldsneyti. Aðalefnin eru mór og tjara og er eldsneytið útbúið í mátulega stórum stykkj- um til notkunar. Látið er vel af að góður hiti fáist og segist Guð- mundur munu geta selt smálestina á 100 krónur. Hann mun hafa í hyggju að koma sér upp vélum til að búa eldsneyti þetta til í stórum stýl. Tryggyasafn. Matthías Þórðar- son fornmenjavörður hefir i huga að stofna á sfnum tíma, er húsrúm Ieyfir, sérstakt Tryggvasafn [Gunn- arssonar], f líkum, en smærri stýl og Jóns Sigurðssonarsafnið. Hefir hann í því skyni fengið og keypt ýmsa muni úr dánarbúi Tryggva, auk þeirra er Þjóðmenjasafninu voru ánafnaðir. Síra Tryggvi Pórhallsson hefir sótt um lausn frá prestsskap, frá næstu fardögum, án eftirlauna. Atvinnnskrifstofn hefir Stjórnar- ráðið sett á stofn, til þess að ráða menn í dýrtíðarvinnuna. Skifta umsóknir hundruðum, en verk- færaskortur hamlar enn að allir fái vinnu sem æskja. 0r því verð- ur bætt eftir beztu föngum og svo fljótt sem unt er. Einar H. Kvaran rithöfundum fór með síðustu ferð »Sterling« til Akureyrar og í erindum stórstúk- unnar um bindindismál. Aukaútsvörin i Reykjavík eru áætluð hálf miljón, en gjöld bæjar- sjóðs kr. 687904.45. Höfnin í Reykjavík. Hafnar- nefnd og bæjarstjórn veittu viðtöku hafnarmannvirkjunum í gær. Bryggjugjald af skipum, sem leggjast að stóru hafnarbryggjunni fram af Hafnarstræti er ákveðið 8 aurar af smálest (»br. reg. ton«) um sólarhringinn. Uppskipunar- gjald 10 aur. af hverju stykki undir 100 pundum en 20 aurar ef þyngri eru. Maðnr varð úti. Steindór Hjör- leifsson, Járnsmiður héðan úr bæn- um varð úti á Króardalsskarði milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar 31. f. m. Hafði orðið eftir af Sterl- ing á Seyðisfirði, en ætlað að ná skipinu á Mjóafirði. Líkið var fundið. Landsspítalinn. Nefndin sem kosin var til þess að gera tillögur um landsspítalann hefir ekki verið iðjulaus. Tillögur hefir hún gert um það að spítalinn verði reistur annaðhvort á svæðinu sunnan og austan við Kennaraskólann eða norðan og vestan hans, ofan við Laufásveg. Mælir meiri hlutinn þó með fyrri staðnum. Þá telur nefndin húsagerð hér enn svo áfátt að endurbóta þurfi við til þess að hentugt sé spítala. Venjulegir steinsteypuveggir rakir og kaldir. Nauðsynlegt að slétta þá og þétta, en útdráttarsamt að inála og fari líka illa á sleinhús- um. Högginn steinn þoli illa veð- urlag hér, órannsakað hvort yfir- borð hans megi þétta svo standist veður og vind. Telur nefndin æski- legast að úlfletir ytri veggja yrðu úr steini sem vel sé vatnsþéttur og snotur útlits svo ekki þurfi að mála. Óvíst sé hvort slíkt bygging- arefni fáist hér, en ekki ósennilegt. Vill að sendur verði hæfur maður til Ameríku til þess að athuga helstu aðferðir við steinsteypu o. fl. og gæti sú för orðið allri húsa- gerð hér á landi hin gagnlegasta. Lóðarstærðin vill nefndin sé 190X190 metrar. Gerir nefndin ráð fyrir að látið verða nægja að byggja fyrir 50— 60 sjúkrarúm, þar eð Landakots- spitalinn muni lialda átram störf- um. Er lóðin svo stór að stækka má spítalann svo rúmi 150 sjúkl- inga. Sem stendur er þörf talin fyrir 100 sjúkrarúm í landsspítala. Þótt ekki vilji nefndin gera á- kveðnar tillögur um byggingarefni þá telur hún að ekki komi til mála að reisa spítalann úr öðru efni en annaðhvort klofnu grjóti eða steinsteypu, að eflaust megi nota venjulegt klofið grjót i kjall- ara og undirstöðu, að óefað verði steinsteypa notuð svo mikið að að- drættir á möl og sandi komi að góðum notum á sínum tíma. Og mun á þessum ályktunum nefnd- arinnar hafin vinna nú þegar sem þá jafnframt verður mönnum dýr- tíðarhjálp. Tryggvi Gunnarsson hafði með erfaskrá ánafnað Dýraverndunar- félaginu megnið af eignum sínum, voru að eins undanteknir einstakir munir sem nánustu erfingjar erfa. Á að mynda sérstakan sjóð af eign- unum sem ber nafnið »Tryggva- sjóður«, og á Dýraverndunarfélagið að hafa umráð yfir honum. Steinþór Guðmnndsson cand. theol. gegnir skólastjórastarfi Ög- mundar Sigurðssonar við Flensborg- arskólann í vetur. En Ögmundur fór vestur um haf. Ritstjóri: Tryggri Þórhftllsson Laufási. Simi 91. Prentsmiöjan Gutenberg.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.