Tíminn - 27.04.1918, Síða 7

Tíminn - 27.04.1918, Síða 7
T í MIN N 95 Regíugjörð um ráðstafanir til að tryggja verslun iandsins. Samkvæmt heimild í lögum nr. 6, 8. febrúar 1917, um heimild handa landsstjórninni tii ráðstafaua til tryggingar aðflutningum til landsins, eru hér með sett eftirfarandi fyrirmæli. 1. gr. Meðan samningar standa nú yfir milli Bretastjórnar og sendi- manna lands&tjórnarinr.sr íslenzku um verðlag á íslenzkum afurðum árið 1918, er bannað að selja til útlanda eða gera samninga um sölu til útlanda á fslenzkum afurðum, sem framleiddar hafa verið eða fram- leiddar vcrða á yfirstandandi ári. 2. gr. Brot gegn ákvæðum 1. gr. reglugjörðar þessarrar varða sektum alt að 500 000 krónum. Bæði sá, sem selur eða lofar að selja vörur þær, sem greindar eru í 1. gr. og á þann hátt, er þar greinir, og sá, sern kaupir eða iofar að kaupa þær, skal sekur talinn við ákvæði þessarrar reglugerðar. Hið selda eða umsamda er að veði fyrír sektunum. 3 gr- Með mál út af brotum gegn reglugerð þessarri skal fara sem almenn lögreglumál. Áður en dómari úrskurði sektir, án þess að má! fari fyrir dóm, skal malið borið undir stjórnarráðið. 4 gr- Reglugjöi-ð þessi öðlast gildi þegar í stað. Þetta er birt öllum þeim til eftirbreytni, er' hlut eiga að máli. í stjórnanaði ídands, 22. apríl 191S. Sigurður Jónsson. Oddur Iiermaimsson. Auglýsing. í sambandi við reglugerð þá um ráðstafanir til að tryggja verzl- un landsins, sem gefin hefur verið út í dag, auglýsist hérmeð, að landsstjórnin vegna landssjóðs getur ekki tekið neina ábyrgð á afleið- ingutn af ráðstöfunum eða sölusamningum manna á miili hér á landi um íslenzkar afurðir til útflutnings, sem framleiddár hafa verið eða framleiddar verða á yfirstandandi ári. í stjórnarráði íslands 22. apríl 1918. Sigurður Jónsson. Oddur Hermannsson. Óheilindin í Heimastjórnarflokknum. Árásir ,..Noröurlands‘- á pingienn Eyfiröinga. Um það bil sem þingmenn riðu til þings, þá flutti »Norðurland« Jóns Stefánssonar greinarkorn, sem nefndist: »Reisu-passi handa þing- mönnum Eyíirðinga á aukaþingið 1918«. Er grein þessi lúalegar á- rásir á þá Stefán Stefánsson í Fagraskógi og Einar Árnason á Eyrarlandi. Hvað Stefáni viðvíkur, þá kveð- ur þar við sama tón og áður; það virðist svo, sem þeir »Norður- lands«-furstarnir álíti það lífs- ætlunarverk sitt, að ausa hann sí og æ auri og bera á hann alls- konar órökstuddar getsakir, og gera alt sem þeim er unt, til þess að lítilsvirða hann og gera lílið úr þingmensku-hætileikum hans. Er engu líkara en hér liggi megnt hatur frá þeirra hendi til grund- vallar, enda þótt þeir reyni að breiða yfir það í öðru orðinu, og er slíkt næsta undarlegt, er maður athugar það, að Stefán er eindreg- inn Heimastjórnarílokksmaður, og það þykjast þeir játa. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að Stefán er með alira lipr- ustu þingmönnum og fylginn sér, þólt hægt fari, og honum vinst vel, þvi hann er vinsæll mjög. Um framkomu hans á þingi, með til- liti til kjördæmisins, má geta þess, að hann hefir mörgu til leiðar komið, bæði í almennri löggjöf og í fjárveilingum kjósendum sínum og kjördæmi til hagnaðar og fram- fara. Hér er ekki rúm til að telja það upp, en hitt er eg ekki í nein- um efa um, að þar standi hann ekki að baki neinum fyrirrennara sinna í þingsessi, að þeim ólöst- uðum. Um Einar á Eyrarlandi er það að segja, að hann er mjög álitleg- ur þingmaður, gætinn og stiltur. Hann er ungur í starfinu, en eng- in ástæða til að álíta annað en að hann sé sóniasamlegur fulltrúi fyrir kjördæmið. — Rau svívirðingarorð sem »Norðurland« hefir um hann, eru svo ósæmileg og óþrifaleg, að eg vil alveg leiða minn hest frá að gera þau að sérstöku umtalsefni, en að eins geta þess, að eg trúi ekki öðru, en að allir valinkunnir borgarar þessa lands, sein verða svo óhepnir að sjá þessa óþverra- grein »Norðurl.«, muni meta hana eins og hún á skilið. Það er ekki i fyrsta sinni, sem bitrakkar úr Heimastjórnarflokkn- um ráðast aftan að hans beztu mönnum. Vil eg í því efni benda á framkomu þeirra gagnvart Guðm. landlækni Björnssyni og Bríetu Bjarnhéðinsdóttur fyrir landkosn- ingarnar. Það er sami leikurinn sem »Norðurlands«-furstarnir leika nú gagnvart einuin allra bezta manni ílokksins, Stefáni i Fagra- skógi. Nú vil eg spyrja: »Sýnist ieið- togum Heimastjórnarmanna það heppilegt, að halda framvegis áfram að baknaga beztu stuðningsmenn sína og beita þá ósæmilegum árásum og ósönnum aðdróttunum. Halda þeir að sá llokkur, sem slíkt lætur viðgangast átölulaust, muni halda virðingu sinni óskertri hjá alþjóð manna? Jón Árnason « t prentan. Úr Skagaflrði u/i. Hrið á hverj- um degi úr einhverri átt, eða þá ofsahlákur sein enda með hríð. Útlit ískyggilegt ef ekki batnar fyr- ir alvöru snemma í næsta mánuði eða jafnvel fyr. Úr Þorskaflrði 12/i. Yirðist að búpeningsfellir muni verða, ef ekki batnar tið innan skams. Allur fjöldi bænda verður hejdaus handa sauð- fé og hrossum á sumarmálum. í haust var þó álilið að almenn- ingur væri allbyrgur af heyjum og þau voru vel verkuð víðast hér á Vestfjörðum. Það er ekki sjaldgæft hér vestra nú, að sauðfé og hross séu búin að standa inni í 140 daga og kýr alstaðar siðan í leitum. Margir fnllyrða að þeir hafi eylt helmingi meiri heyjum í vetur, heldur en aðra undanfarna. Enn heíir enginn skorið niður fénað sinn það eg til veit, en viðbúið að menn verði að laka til þess ör- þrifaráðs ef þessu fer fram. Þingflokkarnir. Flokkaskiíting á þinginu hefir ekki tekið iniklum breytingum. Enn verður ekki annað séð en að þeir þrír llokkarnir sem styðja stjórnina geti unnið saman og ráð- herrarnir eigi sama fylgi og áður innan síns flokks. Mun og þing- mönnum það fyllilega kunnugt, að allur þorri kjósenda ætlast til þess af þeim fyrst og fremst, að ekki verði neinn ófriður vakinn, en sem flestir taki höndum saman til þess að stýra nú undan stórsjóum. Eilt atriði er það sem ýmsum mönnum er áhyggjuefni. Það er satnband heimastjórnarmanna við langsummenn. Sá ílokkur á engan þátt í stjórn- inni. Það eru blöð þess tlokks sem hafa haldið og halda uppi látlaus- um æsingum gegn stjórninni. Það furðar inarga á því að flokkur forsætisráðherrans skuli taka hönd- um saman við þessa menn. Og ekki sist fyrir þá sök, að sumir þeirra njóla einna minstrar virð- ingar þingsins og að maklegleik- um. Hafa þeir og sumir, bæði nú og fyr gengið á milli ílokkanna og boðið sig til kosningabandalags gegn þessum og þessum skilyrðum. Sjást og ljóslega merki þess nú að þeir hafa borið sinn hlut frá borði, troðið sér inn í flestar meiri háttar nefndir og sumstaðar tveir þeirra. Og innan nefndanna er haldið áfram róðrinum í virðingarstöður þar. Þvi er haldið fram að hér sé einungis um kosningasambaud að ræða. Væri betur að svo reyndist. En mikið er meinleysi sterkasta þingllokksins, að láta hinn veikasta svo raka að sér fríðindum. Og svo vill of fara að hver dragi dám af sínum sessunaut. Bjargráðaráðstöfun. Bjargráðanefnd þingsins er sezt að störfum. Á hún ærið verk að vinna. Og er nú mikið í húfi að ekkert liálfverk verði unnið, ekki gengið á snið við vandamálin, heldur teknar allar aíleiðingar, og þau ráð fundin sem duga. Verður hjer bent á eitt atriði, sem með öðrum ætti að gela hjálpað til um að leysa vandann, og einkum gera það auðveldara að vinnendur og þeir sem vinnu vilja veita, geti náð saman: Landssjóður œlti að ueita verka- /ólki þvi afslátt af fargjaldi með skipum síuum, sem leitar atvinnu til fjarlœgari staða. Er það vafalaust, að það kæmi hvorumtveggja til hags, bændum og verkafólki, og gerði það að verkum að framleiðslan ykist, þar eð llestir sem vildu, fengju vinnu- kraft, og kæmi í veg f}rrir atvinnu- leysi. Próttur. íþróltasamband íslands gaf út íþróttablað á suinardaginn fyrsla, er nefnist Þróttur. í því eru livetjandi og þarfar greinar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.