Tíminn - 06.02.1919, Blaðsíða 3

Tíminn - 06.02.1919, Blaðsíða 3
T í M I N N 31 slysatryggingarliðinu, sem vili fá atvinnu handa sjálfu sér. 2. Engir eiga að hafa rétt til að minnast á orðabókargerðina nema málfræðingar. Væntanlega kemur íslenzkum gjaldendum það ekki við hve mörgum tugum þúsunda yrði sukkað í aðra og þriðju lil- raun? Og meiri eru missmiðin á ferli þessa »atvinnufyrirtækis« en svo að engir beri skyn á þau nema náðaðir málfræðingar. 3. Jafnvel H. H. getur ekki neitað því að Tíminn hafi slungið upp á mjög vel hæfum manni til verksins. Og varla er su motbára mikils virði að af því að sá mað- ur sé í miklu áliti við þá stofnun, þar sem hann hefir unnið i mörg ár, þá megi ekki þess vegna fela honum virðulegra trúnaðar- starf. 4. H. H. gleymir að geta þess, að minst er á próf umsækjanda eingöngu af því að grobb Smára um visindamenskuna og sérþekk- inguna var alt of hlægilegt í aug- um þeirra mörgu manna sem vissu hversu erfiðlega honum gekk að ná prófinu. Hitt er annað mál að vont próf eða ekkert próf myndi lítt hafa sakað Smára, ef hann hefði áunnið sér traust og virðingu með öðrum hætti. H. H. er sjálfur gott dæmi þess hversu trábærir einginleikar, sýndir í verki, hækka menn f áliti. 5. Bjarnargreiði er það við Smára að tala um Jón Sigurðsson, Konráð Gíslason og Guðbrand Vigfússon í sambandi við hann. Það minnir á þegar Jón Trausti taldi til hversu sum mikilmenni væru misskilin t. d. hann sjálfur og Shakespeare. 6. Rangt er það, þótt litið sé, að Finnur Jónsson hafi lokið lélegu sérfræðingsprófi. Hann hlaut þvert á móti mjög háa einkun fyrir aðal viðfangsefnið, og hafði þar að auki lokið náminu á frábærlega skömm- um tíma. 7. Að leirskáld séu gáfu sinnar vegna, heppilegi rorðabókarhöf. má telja ósannað enn sem komið er. 8. Ef Smári er æskilegur forustu- maður við orðabókina, þá á hann eftir að sanna að svo sé. Próf hans mun tæplega talið þungt á met- unum. Lakara er þó hitt, að hon- um hefir ekki tekist á þeim árum, sem hann hefir dvalist hér, að loknu námi, að afla sér verulegs álils á nokkru sviði. Hann þáði að vera í nokkur ár ábyrgðarmað- ur að blaði, sem mjög torvelt var að fá dugandi menn lil að ábyrgj- asl. Jafnvel sárfátækur fjölskyldu- maður hafði neitað um þá aðstoð, er hann sá fyrirkomulagið. Eitt af framaverkum »Landsins« í líð Sinára var að sanna það, að allir samvinnumenn á íslandi hefðu af- salað sér réttinum til að skifta/við lánsstofnanir. Myndi Jón Sigurðs- son, sem neitaði rektorsemhættinu þólt fálækur væri, heldur en að setja blett á drengskap sinn, hafa gengið i slíka ábyrgð? Og myndi Jón Sigurðsson hafa verið ritstjóri að blaði svo árum skifti án þess að nokkurn tíma bólaði á sjálf- stæðri hugsun eða heilbrigðri fram- faralöngun? Prátt fyrir lof H. H. um andans yfirburði skjólstæðings hans, er torvelt að neita því, að það tækifæri, sem Smári hefir fengið til að sýna andlegt og lík- amlegt þrek sitt, ber honum lak- legan vitnisburð, bæði það að taka á cig ábyrgðina, sem var svo lítið fýsileg, og í öðru lagi að inna hana svo slælega af hendi. 9. Framkoma Smára í orða- bókardeilunni ber honum samt enn óhagstæðai i vitnisburð. Fyrsla grein mín skýrir ljóslega frá viður- kendum misfellum í orðabókar- málinu og bendir á einfalda leið til að bæta úr ágöllunum, að því leyli sem unt er. Smári hvergi nefndur beint eða óbeint. Út af þessu verður hinn tilvonandi sann- leiksleitandi svo reiður, að hann hellir illyrðum, dylgjum og hnút- um ekki einungis yfir Tímann, Finn Finnsson og samvinnufé- lögin(!), heldur blandar hann hin- um ímyndaða keppinaut inn í málið, heimspekisdeild háskólans og jafnvel sjálfum kenslumálaráð- herranum (út af Eiðum!). Er þetla merki um yfirburði sérfræðingsins? 10. Finst mönnum ekki von, þó að ýmsum verði á að draga i efa, að þessi maður muni vera vel fallinn til að hefja arf Jóns Ólafs- sonar til vegs og sæmdar? Skyldi hann vera líklegaslur til að líta eftir verki föður sins, segja til hve- nær honum er um megn að hald'a lengur áfram sem fullvinnandi maður? Er ekki heldur litið vís- indabragð að þessari ritmensku hans, hvað sem prófinu líður? Og myndi það ekki verða aifarasælla að leggja orðahókina alveg á hyll- una um nokkurra ára bil, heldur en að fela forustuna manni, sem eyðileggur álit sitt með hverju þvf orði, sem framgengur af hans munni, einmitt þegar hann réttir út báðar hendurnar móti hinu eft- irþráða hnossi? Spyr sá ekki veit. Finnur Finnsson. Æfiminhing þeirra feðganna Guðmund- ar Jónssonar bónda á Baug- stöðum og Siggeirs sonar hans. Guðmundur var fæddur á Minna- Núpi 24. október 1849, sonur Jóns Brynjólfssonar og Margrétar dóttur Jóns Einarssonar hreppstjóra á Baugstöðum og seinni konu hans Sesselju Ámundadóllur frá Eystra- Geldingarholti í Gnúpverjahreppi. Var Ámundi þjóðhagasmiður, list- fengur og skurðhagur vel. Eitt af verkum eftir hann er altaristafla í Gaulverjabæjarkirkju, smíðuð 1775. Ættartöiur verða ekki raktar hér, það hefir verið gerí í æfiminning- um Brynjólfs frá Minna-Núpi, . bróður hans. Var Guðm. lieitinn hjá foreldrum sínum þar til hann var 25 ára, þá fór hann til Reykja- víkur og lærði járnsmíði hjá Jón- asi Helgasyni. 1878 fór hann að Haga í Gnúpverjahreppi og giftist sama ár Guðnýju dóttur Ámunda Benediktssonar frá Stóruvöllum í Bárðardal. — Veturinn 1882 losn- uðu hálfir Baugstaðirnir úr á- búð. Atti móðir hans nokkuð af þeiin helming og vildi láta hann taka jörðina, og mun þar mestu hafa valdið trygð hennar við æsku- stöðvarnar, því jörðin var ,rír á- gangsjörð. Honum féll ekki jörðin en vildi þó fara að ráðum móður sinnar, hún hafði fram að því lagt honum bezlu ráðin og gefið hon- um bezta veganeslið, gotl andlegt uppeldi. Minna-Núpssystkyn máttu segja eins og Ben. Gröndal: »Mín kendi móðir mití að geyma lijarta trútt þótt heimur brygðist«. Harða vorið 1882 flutti Guð- mundur að Baugstöðum. Bú hans var mjög lítið. Jörðin var niður- nidd, ekki steinn yfir steini. Hann varð að velta í rústir og byggja á ný. Reisti hann lítinn bæ laglegan, girti túnið og varði það mikið fyrir ágangi. Guðmundur var í rauninni ekki búhneigður en hafði þó mikla ánægju af öllu jarðrækt- arstarfi og mikla tilfinning fyrir fegurð náttúrunnar. Guðmundur stundaði smíðar eftir því sem tim- inn leyfir einyrkjanum. Hann var vel skurðhagur þótt hann legði það Nekki fyrir sig. Hann lagði Skyldi hún vinna að útbreiðslu friðarhugmyndarinnar og koma á fót samvinnu milli friðarvina í öll- um löndum. Jafnframt þessu var komið á fót fundum milli stjórnmálamanna ýmsra þjóða, til þess að þeir kynt- ust og gætu rætt öll áhugamál sín i bróðerni. — Hinn fyrsti af þess konar fundum (Inter-parla- mentarisk Konference) var haldinn í París 1889. Hafa siðan verið haldnir margir slíkir fundir og hafa þeir átt talsverðan þátt í því að koma á fót sameiginlegri löggjöf hjá rikjunum. Noröurlanda þjóðir halda á hverju ári fund þar sem fulltrúar þinganna koma saman og ræða mál sín. Á í’arísarfundinum 1877 kom Clarendon iávarður fram með til- lögu um að öll þrætumál milli Norðurálfuríkja skyldu framvegis verða leidd til lykta með gerðar- dómi. Fundurinn aðhyltist stefn- Utla» en engar reglur var þó hægt semja um tilhögun gerðardóms- ins. Varð þvi lítill árangur af þessu, hefir nokkrum málum verið lokið með úrskurði gerðar- dóms. Langfrægast af slikum mál- um er Alabamamálið milli Eng- lands og Bandaríkjanna. Fvi lauk þannig að England varl872dæmt til að greiða Bandarikjunum af- skapléga fjárupphæð og England, sem var sterkara og voldugra ríkið beygði sig fyrir gerðardóminum. Er það einsdæmi í sögunni og allir þjóðarvinir vonuðu að þetta væri iagur fyrirboði nýrra tíma. v Gerðardómshugmyndin lók nú að breiðast út. Árið 1897 gerðu Englendingar og Ameríkumenn samning með sér um að deilumál- um milli þessara rikja skyldi fram- vegis ráðið til lykta með gerðar- dómi. Þó voru undantekin þau mál er snertu heiður, sjálfstæði og mikilvægustu mál er snertu lif þjóðanna. Við þetla minkaði gildi samningsins að miklum mun. — Ýmsar aðrar þjóðir hafa farið að dæmi þessara ríkja og gert með sér líka samniuga. Samningar milli einstakra rikja kveða svo á að öll- um málum undantekningarlaust, skuli ráðið til lykta með gerðar- dómi. Má nefna til dæmis þá samn- inga sem Danir gerðu við Holl- lendinga og ítali 1904 og 1906. Fessar friðarhreyfingar höfðu oftast komið neðan að og þjóð- höfðingarnir höfðu oftast verið þröskuldur í vegi fyrir þeim. En nú brá svo undarlega við að sjálf- ur hinn einvaldi keisari Rússlands tók málið í sinar hendur. Skömmu eftir að Nikolás II. kom til valda tók hann að vekja máls á því við aðra þjóðhöfðingja, að þeir sendu fulltrúa á allsherjar friðarfund. Heldur fékk þetta mál daufan byr hjá stjórmálamönnun- um, en ekki var hægt að synja boði Rússakeisara og var það loks afráðið, að fundurinn skyldi verða haldinn í Haag 1899. Var hann settur 18. maí, á afmælisdegi keis- arans. Á hinum fræga Haagfundi mættu fulltrúar 27 rikja. — Lýðveldin i Suður-Amerriku vildu ekki vera með. — Aðalverkefni fundarins var að fá rikin til þess að draga úr herbúnaði. Voru ýmsar tillögur í þá átt, en auðvitað hafði fundur- inn ekkert vald til þess að fyrir- skipa almenna afvopnun. Loks var settur á stofn alþjóða- gerðardómstóll í Haag 1903. Átti hann einkum að vera til þess, að rikin gætu fengið þar dómara eða oddamann í gerðardóma. En ekki skuldbundu þau sig til þess að leita þaugað. Dómstóllinn átti þvi fyrst og fremst að greiða fyrir því, að mál- in yrðu lögð í gerð og þar næst útvega eða hafa á boðstólum ó- hlutdræga dómara. En aftur var síður búist við þvi að hann sem heild myndi dæma málin. Friðarvinir væntu sér mikiis af Haagdómstólnurn, og kappkost- uðu því að sýna honum alian sóma. Andrevv Carnegie, stálkong- urinn ameriski, gaf 6 miljónir kr. tii þess að byggja höll mikla og skrautlega handa honum. Flest riki álfunnar sendu dýra skrautgripi til þess að prýða þessa friðarhöll, en lítið hefir hún verið notuð enn sem komið er. Árið 1907 var haldinn annar friðarfundur i Haag. Komu þangað fulltrúar þvi nær allra ríkja á jörð-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.