Tíminn - 15.05.1919, Síða 2

Tíminn - 15.05.1919, Síða 2
126 TlMIN N rækja þau. Enn þá vantar alla innlenda reynslu um vatnsiðju- fyrirtæki, eins og líka vegi vantar og önnur undirbúnings-mannvirki. Einnig er þess að gæta, að með- an jafnmikið los er á viðskiftum og iðjuaðferðum sem nú er í lok heimsstyrjaldarinnar, er eigi hægt að átta sig á haldkvæmi slíkra fyrirtækja. Viðurhlutamikið væri að láta rikið brjóta ísinn með vatnsiðju og ráðast í margra miljóna fyrir- tæki á þessum tíma og varla þarf að ælla að margir vildu til þess hvetja. Öðru máli gegnir með káup á nokkrum hentugum orkuvötnum eða hlutum þeirra, til að geyma þau betri tíma og til að varna því að þau verði hrifsuð úr höndum ríkisins. Slík kaup eru hyggileg og geta komið til greina, en vegna yfirvofandi þarfar ríkisins er eigi sjáanlegt, að kaupa þurfi orkuvatn i stórum stíl. Eðlilegast virðist að ríkið með umráðum yfir hentugum orkuvötn- um i hverjum landshluta og virkj- un þeirra, þegar nokkur innlend reynsla er fengin, standi á sporði óhollri samkepni og samtökum þeirra, sem orkuvinslu og vatns- iðju kunna að stunda, ef þörf krefðist; eins og það þá gæti neytt haganlegrar aðstöðu sinnar og gert vötnin sér að tekjulindum. Leiðin að þessu er því greiðari sem ríkið á þegar hluta í bestu fallvötnum landsins sunnanlands, austan og norðan og getur því haft í hendi sér að leyfa ekki virkjun þeirra. Sá Ijóður er að visu á ráði rík- isins yfir flestum þessum orkuvötn- um, að þau eru leigð útlendum fossafélögum, svo sem hluti þess úr Soginu, þjórsá, Jökulsá, Laxá og Skjálfandafljóti, en þau höft ætti að mega leysa, þar sem þörf krefur, svo sem við Sogið og Laxá eða Jökulsá. Hálfur Lagarfljótsfoss á Austurlandi er rikiseign og ó- bundinn að öllu. Ætti ríkið þannig ráð á hentugu fallvatni, einu eða tveimur, i hverj- um landsQórðungi, er eigi fyrirsjá- anlegt, að það hefði þörf fyrir meira eða nokkur tök á að nota meira næstu 2 mannsaldra. En að þeim tima liðnum eiga þau orku- vötn, sem virkjuð kunna að verða eftir sérleyfi á næstu árum, að falla til ríkisins með mannvirkjum eftir sérleyfistíma þeim, sem eg legg til að verði settur, og myndu á þann veg og upp frá því einka- umráð allrar vatnsorkuvinslu kom- ast í hendur rikisins, e/ þá þætti hentara að reka hana á þann veg. Liggi vötnin aftur ónotuð eða verði virkjun þeirra eigi leyfð — og ríkinu er ókleyft að nota þau öll —, þá er tilgangslítið að kaupa þau. Eftir framansögðu tel eg ekki þörf fyrir rikið að gera mikið að kaupum orkuvatna. Hinsvegar tel eg rétt, að það leysi úr sameign við einstaka menn eða kaupi noklt- ur hentug aflvötn, sem trygðu þvi góða aðstöðu til virkjunar í hverjum landshluta, ef grípa þyrfti fram í og hamla viðskiftakreppu eins og fyr segir. U. atr. Með frumvarpinu til sér- leyfislaga, er þessu atriði svarað alment. Lög geta að eins náð þeifn al- mennu reglum um leyfisveitingu, en ríkisvaldið verður á hverjum tíma að ákveða, hvort leyfi skuli veitt eða ekki, og eftir minni skoð- un þarf mjög vandlega að gæta þess, að eigi verði gálauslega veitt leyfi til stóriðjufyrirtækja við vötnin. Iðjufyrirtæki, sem nota tugi þúsunda eða jafnvel hundruð þús- unda af hestorkum, geta fljótlega orðið ofviða voru litla þjóðfélagi og atvinnuvegum vorum, tungu og þjóðerni stafað af þeim stór- hætta. Þau seyða að sér fjölda manna og draga því lið frá öðrum at- vinnuvegum. Mætti um það benda til síldveiðanna undanfarið á Siglu- firði, sem þó er að eins smá-mynd þeirra herhlaupa, sem staðið geta af föstum stóriðjufyrirtækjum og virkjun nokkurra stærstu afl- vatnanna. Iðjufyrirtæki, sem sópar að sér 1—2 þúsundum verkamanna, hlýt- ur að koma illa við landbúnað vorn og fiskiveiðar, eigi sist ef 2 eða fleiri þvílík fyrirtæki væri sam- ferða. Öllum hlýtur að vera ljóst, að kyrstaða og hnignun innlendra atvinnuvega er óumflýjanleg afleið- ing slíkra fyrirtækja. Það er óneitanlega mikilsvert að geta notað fossaafiið og stuðst við afurðir þær, sem með því má vinna, en þá framför má eigi kaupa of dýru verði. Og þótt nítrid-iðjan geti orðið landbúnaðinum að liði þegar stundir líða, þá er þörfin á henni eigi svo brýn, að tilvinn- andi sé að láta hana gleypa það vinnuafl, sem landbúnaður og sjáv- arútvegur styðjast við. Margir hafa bent á það þjóðráð, að flytja inn útlendan verkalýð og leyfa honum hér landvist við vatns- virkin. Þetta er samt þjóðráð, sem nágrannaþjóðirnar, Norðmenn og Svíar, hafa reist einna rammastar skorður við og af eðlilegum ástæð- um, en þær ástæður eru engu síður þungar á metum hjá oss. Sjálfsagt er ein aðalástæða þeirra að tryggja innlendum mönnum at- vinnu og hér mundi heldur eigi hlýða að bægja þeim frá, en á- stæðurnar eru fleiri og þar á meðal þær þjóðernislegu og menningar- legu, og þjóðfélag vort þolir miklu síður en þeirra, byltingar þær, sem leiða mundu af miklum iunflutn- ingi þess lýðs, er vill að stór- iðjunni dragast og landhreinsun þykir sumstaðar að losna við. Einmitt í »þjóðræðinu« liggur þjóðernishættan og sú menningar- lega, ekki síst fyrir tunguna, hætta sem öllum landsmönnum ætti að vera áhugamál að verjast, því að ekki má ráð fyrir því gera, að nokkur íslendingur vilji farga þjóð- erni og tungu fyrir stundarhag fárra manna eða nokkrar smálestir af saltpétursáburði. Ætti að hugsa sér stóriðjufyrir- tækin stunduð af innlendum mönn- um einvörðungu, þá má búast við að hlutfallið milli landbænda og annara atvinnurekanda haggaðist fljótt, eins og komið hefir í ljós í Noregi, þar sem á 35 árum hefir sú breyting orðið, að bændum og starfsmönnum i sveit hefir fækkað um 5%, en iðjulýðnum fjölgað um 150°/o, og þaö á þeim tima, er landsbúum hefir alls fjölgað um þriðjung. Og þessi breyting, sem annarsvegar stafar af vatnaiðjunni verður skiljanlegri,þegar þess er gætt, að mannsparasta iðjugreinin þar, nítrid-iðjan, þarf þó 10—12 menn íyrir hvert 1000 starfandi hestafla. Eg lít svo á, að leyfi til stóriðju- fyrirtækja í sambandi við vatns- virkjun verði að binda traustustu skilyrðum gegn þeirri hættu, sem að framan getur, bæði um fjölda og stærð fyrirtækjanna, sem og takmörkunum á innílutningi verka- lýðs. Að eins ein stórvirkjun ætti að leyfast í senn og áhrif hennar á þjóðarhaginn að vera komin í Ijós áður en næsta leyfi fengist. Eðlilegast virðist, ef þeim fyrir- tækjum Qölgaði, að dreifa þeim um landið. Stórfeld og mörg iðju- fyrirtæki í einum landshluta hljóta að gerbreyta starfsháttum öllum í nágrenninu og leiða til þess, að tunga og þjóðerni umturnist og máist fyrir útlend áhrif. Kgyptaland. Það eru mörg lönd og þjóðir, sem [aldrei hafa komið verulega við veraldarsöguna hvorki til góðs né ills. Það hefir hvorki verið neitt sérlegt við þau sem hefir dregið þangað ibúa annara landa, né íbúar þeirra gengið sérstaklega á annara hluta. Á þetta við um mörg þau lönd sem liggja bæði Qær og nær þeim stöðum þar sem miðpunktur sögunnar hefir verið í hvert skifti. Um önnur lönd gildir hið gagn- stæða. Þótt það hafi ekki verið án afláts, þá hafa þau ávalt við og við, orðið þátttaka í hinum stærstu byltingum í heiminum, á ýmsum sviðum, pólitiskum, efnahagslegum og andlegum. Egyptaland er eitthvert frægasta landið utan Norðurálfu sem telst til síðari flokksins. Öld eftir öld hafa aðrar þjóðir girnst kjötkatl- ana egyptsku. Vatnið úr Nilfljótinu og þurkur- inn, hafa gert Egyptaland að því landi sem á einna langelsta sögu allra landa á hnettinum. Laun vinnunnar.verðlaunhyggju- vits og framkvæmda, eru óvíða meiri en þar. Verkefnin voru mönnum lögð upp í hendurnar. Egyptaland var kjörinn staður til þess að verða eitt fyrsta framfaraland í heiminum. Þurkurinn varðveitir best allar menjar fornrar menningar. Minn- ismerki egyptsku fornmenningar- innar munu standa meðan jörðin er við líði. Þau fúna ekki úrraka, því þar kemur varla dropi úr lofti. Þar er sjálfgert forngripasafn sem varðveitir alt það sem mennirnir sjálfir ekki spilla. Og Forn-Egypt- ar varðveittu eftirkomendunum leifar menningar sinnar og vörðu þær tortíming af mannanna hálfu, með þvi að geyma þær i helgum grafreitum konunganna, sein eng- inn dirfðist að nálgast, án þess að draga skó af fótum sér. Egyptaland hefir vafalítið lengst allra ríkja verið voldugasta og auð- ugasta riki heimsins. Frá þeim timum eru hin stórkostlegu mann- virki, pýramídarnir, steinsúlurnar og sfinxinn, sem bera vott um ó- trúlega menningu og segja sögu Faraóa sem lifðu fyrir mörgum þúsundum ára. En landið bar svo langt aflönd- unum í kring að það gat eklti far- ið hjá því að þeir litu þangað girndaraugum. Saga Egyptalands segir frá því á víxl, að konungar Egypta lögðu undir sig löndin í kring, og að nágrannaþjóðir settust þar í að kjötkötlunum og kúguðu Egypta. Síðustu, meir en tvö þús- und árin, hefir Egyptaland lotið erlendu valdi. Rúmlega þrem hundruð árum fyrir Krisls burð, leggur Alexander mikli Egyptaland undir sig, sem þá laut Persum. Upp úr því hefst ný menningaröld á Egyptalandi sem stendur i mörg hundruð ár. Skömmu fyrir Krists burð ná Róm- verjar yfirráðunum. — Egyptaland nefnist þá með réttu kornforðabúr Italíu. Alexandría er þá ein mesta verslunarborg við Miðjarðarhaf, millistöð milli Miðjarðarhafslanda og hinna frjófsömu landa lengra i austurátt. Næstu aldirnar eftir Krists burð er Egyptaland eitt að- alsetur kristninnar, þar búa þá margir þeir sem enn eru tilbeðnir dýrðlÍDgar katólsku kirkjunnar. Svo hnignar Egyptalandi um leið og rómverska ríkinu hnignar og á sjöundu öld leggja Arabar, lærisveinar Múhameðs, landið undir sig. Kristna menningin fer smám saman út um þúfur og hún hverf- ur með öllu, en meðan Arabar ráða ríkjum á Egyptalandi stend- ur ríkið með blóma. í lok tólftu aldar t. d. er Saladín soldán á Egyptalandi, hinn glæsilegasti höfð- ingi, hygginn, hraustur og sigur- sæll, miklu meiri maður, mentaðri, mannúðlegri og betri, en kristnu herkonungarnir í Vesturlöndum, sem fara krossferðir til landsins helga, sem þá laut Saladín. Svo kemur sami dauði blettur- inn í sögu Egyptajands, sem i sögu allra landa austur þar, þá er Tyrkir setjast þar við stjórn. Atvinnuveg- um hnignar, mentalífið fellur í dá og verslunin minkar, því að skömmu síðar finna Vesturlandaþjóðirnar sjóleiðina til Indlands, suður um

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.