Alþýðublaðið - 24.03.1920, Blaðsíða 1
Alþýðublaðið
Gl eíiö tit af Alþýðuflokknum.
1920
Miðvikudaginn 24. marz
67. tölubl.
Verkakaupið hér í Reykjavik
íyrir almenna vinnu er nú komið
«pp í 1 kr. 30 aur. um tímann,
Pg hangir með því að vera jafn-
hátt, — miðað við vöruverð —
®ins og það var fyrir stríðið.
Öðru máli er að gegna í Ðan-
mörku. Þar heflr verkakaupið
atigið, frá stríðsbyrjun, langtum
ðrar en vöruverðið, svo verka-
menn þar eru nú langtum betur
settir, en þeir voru fyrir stríðið.
Kaup verkalýðsins í Ka.upm.-
höfn er nú að meðaltali svo sem
hér segir: Fyrir iðnaðarmenn 2 kr.
18 aur., fyrir alm. verkamenn
1 kr. 88 au. og fyrir kvenfólk
1 kr. 8 au. Hefir kaupið frá júní-
mán. í fyrra stigið að meðaltali
«m 44 aura um kl.tím.
Kaupið heflr stigið í Danmörku
frá stríðsbyrjun um 238°/o (úr 50
au. upp í 170 meðaltal), en vörur
verð hefir ekki stigið nema um
142°/o.
Hæst tímakaup hafa nú timbur-
menn. Þeir höfðu 84 aura 1914,
«n nú 3 kr. 14 au., eða liðlega
25 kr. daglaun með 8 tíma vinnu.
Múrarar höfðu 86 aura 1914, en
hafa nú 2 kr. 90 au., eða liðlega
23 kr. á dag með 8 tíma vinnu.
Skipstimburmenn höfðu 78 aura;
hafa nú 2 kr. 48 au., eða tæpar
20 kr. á 8 tímum. Járnsteypumenn
höfðu 69 aura, en hafa nú 2 kr.
35 aura, þ. e. 18 kr. 80 au. fyrir
■8 tíma. Söðlasmiðir og veggfóðr-
arar höfðu 58 aura, hafa nú 2 kr.
37 aura, eða tæpar 19 kr. fyrir
8 tíma vinnu. Götugerðarmenn og
múraraaðstoðarmenn höfðu 60 og
61 eyr., en hafa nú 2 kr. 31 og
2 kr. 29 aura, eða fram undir
hálfa nítjándu krónu fyrir 8 tíma
vinnu. Járnsmiðir og vélsmiðir
höfðu 62 aura, hafa nú 2 kr. 18
aU., þ. e. tæpl. 171/2 kr. á 8 tím.
^hóverksmiðjumenn, blikksmiðir og
^aftækjasmiðir liðL 2 kr. um tím-
ann. Bókbindarar fengu 50 aura
1914, en nú 1 kr. 96 au. Prent-
arar fengu 64 aura, en fá nú
1 kr. 80 au., og málarar, sem
fengu 72 aura, fá nú 1 kr. 85 au.
í flestum iðngreinum er unnið
að miklu leyti „upp á akkorð",
og er þá dagkaupið langtum hærra
en verið hefði eftir tímakaupinu
fyrir jafnlangan tíma.
(Eftir Politiken.)
Landatap Þjóðyerja.
Árið 1910 var hið þýzka ríki
rúml. 540 þús. ferkm. að stærð
og hafði um 65 miij. íbúa. Við
friðarsamningana urðu þeir að láta
af hendi 65 þús. ferkm. af landi
þegar í stað, og voru íbúar þeirra
héraða rúml. 6 milj.
Að líkindum fá þeir aftur Saar-
héraðið eftir 15 ár, en það er
1860 ferkm. að stærð og hefir
tæpl. 650 þús. íbúa.
Þar að auki eru héruð þau, er
atkvæðagreiðsla á að fara fram í.
Þau eru rúml. 33 þús. ferkm. að
stærð og hafa rúml. 3 milj íbúa.
í versta falli missa Þjóðverjar
þvfnær */s hluta af hinu þýzka
ríki (sem áður var) og sem svarar
V7 hluta af íbúafjöldanum.
Þar að auki hafa allflestar ný-
lendurnar verið teknar af þeim.
Hvað sem um réttmæti þess
verður sagt, að þessi lönd skuli
tekin af Þjóðverjum, þá er það
víst að þetta er geysileg blóðtaka
fyrir þýzku þjóðina, því héruð þau
sem af þeim hafa verið og verða
tekin fæddu nær 6V* milj. manna
í Þýzkalandi sjálfu, umfram sína
eigin íbúa, með afurðum sfnum,
og bætist það þvf ofan á neyð
Þjóðverja. —
(Eftir „Das Echo*.)
Alþýðublaðið
er ódýrasta, fjölbreyttasta og
bezta dagblað landsins.
Kaupið það og lesið, þá
getið þið aldrei án þess verið.
Fiskverð
í Khöfn og í Reykjavík.
í febrúar hófu danskir sjómenn
sölu á fiski í Khöfn án milligöngu-
manna, fisksala svokallaðra, og
varð það til þess, að bæjarmenn
fengu fiskinn 50°/o ódýrari en áður.
Fiskimenn lögðu bátum sínum að
hafnarbakkanum, og samstundis
streymdi fólkið að þeim og keypti
nýveiddan fisk fyrir 30 aura pund-
ið. Bátarnir seldu á einum degi
IOO 000 pd. af fiski.
Þetta þykir mikill gróði fyrir
bæjarmenn, og bæjarstjórnin f
Khöfn hefir ákveðið að gera báta-
eigendunum ýmislegt til hagræðis,
svo að þessi milliliðalausu viðskifti
geti haldist áfrain.
Bæjarstjórnin í Khöfrt hefir fyrir
nokkru komið upp fisksöluhúsum
og fengið sér flutningaskip til að
flytja fiskinn úr veiðistöðvunum til
borgarinnar, og var jafnvel í ráði,
að hún gerði út skip til fiskiveiða.
Fiskinn hefir bæjarstjórnin selt á
35 aura pundið
Allir bátar og skútur flytja fisk-
inn í þar til gerðum sjófyltum
þróm, svo kaupandinn fær hann
oftast bráðlifandi, en altaf hreínan
og óskemdan. — í fisksöluhúsun-
um er hann geymdur í vatnsker-
um með sfrennandi vatni. Fiskur-
inn er veginn á nákvæmum meta-
skálum, og framkoma sölumanna
hin kurteisasta.
Hér í Reykjavfk verðum við að
borga 30—35 aura fyrir pundið
í 3—6 daga gömlum fiski, krömd-
um og skítugum, sem legið hefir
allan þann tima í kös eða í bát
óslægður og sundurtrampaður und-
an stígvélahælum hásetanna. Fisk-