Tíminn - 21.02.1920, Page 4

Tíminn - 21.02.1920, Page 4
28 TÍMINN Ræktunarsjóður Islands. Hérmeð er skorað á þá, sem enn hafa eigi greifct afborganir og vexti af lánum úr sjóðnum, sem féllu í gjalddaga á síðastliðnu ári, að greiða það sem þannig er i vanskilum þegar í stað, þar eð annars verður að krefjast fullnaðargreiðslu á lánunum nú þegar. Gjalddagi á afborgunum og vöxtum af þjóðjarðasölusbnldabréfum er 11. júni ár hvert. Reykjavík, 20. febrúar 1920. Vigfás Einarsson. — Gjaldkeri sjóðsins. — næst i lifvörð páfans. Hann var fríður, gáfaður, mentaður, hafði ánægju af samkvæmislífinu og var hvarvetna í afhaldi. Það voru von- brigði fyrir föðurinn, því að hann æskti þess að hann yrði geistlegur maður. Þeir urðu ósáttir og hinn ungi maður dvaldist utanlands ár- langt. Hann kom heim þá erfaðirinn var látinn. Það kom öllum á óvart ao hann sneri nú baki við veröld- inni og varð prestur. Enginn veit hversvegna hann gerði þetta . . .« »Kæri barón! Mundi það ekki hafa verið vegna einhvers ástar æfintýris«, sagði fursta frúin. »Nei, svo var ekki sagt og það heyrðist ekki það minsta í þá átt, að neitt hneiksli hafi átt sér stað. Sumir sögðu að hann hefði kvænst i Englandi og mist konu sína. En enginn getur sagt um það með vissu. Hann varði hinum geysi- miklu auðæfum sínum til þess að bæta fátækasta lýðinn í Róm og fína fólkið sagði að hann væri orð- inn jafnaðarmaður. Hann öðlaðist takmarkalausa lýðhylli en sótti þó um það að fá að fara lil Lund- úna. Hann gerði þar hið sama sem í Róm, gekk út á götur og gatna- mót, til að hjálpa ekkjum og mun- aðarleysingjum, og þeim sem lengst eru leiddir — bæði á degi og nóttu og árum saman. En heilsu hans var ofboðið með þessu erfiði og yfirboðarar hans kölluðu hann heim. Hann var fertugur þá er hann kom aftur til Róms, en hvít- ur fyrir hærum. — Páfinn bauð honum veglegar tignarstöður, eina af annari. Hann féll á kné og baðst undan því. Hann vildi halda því áfram að vera prestur og starfa í fátækrahverfinu í Campana Rómana. Svartar fjaflrir. [Frh. af 1. siðu.] Fyrir koss þinn vildi eg kasta kórónu minni á bál. Yfir ást mína rignir Úrías hjartablóð .... Drottinn má dæma mig sekan; þau fyrirgefa mér, faðmlög þín. Batseba, Batseba mín«. Petta er niðurlag kvæðisins. - Davið Stefánsson dæmir ekki. — Hann lætur sér nægja að lýsa leik forlaganna með villugjörn manns- hjörtu. Þar sem rök ólánsins eru rakin til vissra undangenginna at- hafna, eins og í sögunni af Tótu, er hin réttláta hefnd, aukaatriði í kvæðinu. Af þessu leiðir það, að þar sem Da víð gerist ádeiluskáld og t.d.í»Ekk- illinn«, eða »Hjónabandið« missir hann flugsins. Hann er þá kominn mestum. Það megurn við og get- um því að eins, að við getum jafnframt séð skepnum okkar fyrir nægu fóðri. Minki heyskapurinn, sem helst er útlit fyrir, þá verð- um við að fara að dæmi annara þjóða og ala skepnur okkar á að- keyptu fóðri. Nú vill einmitt svo vel til, að við lifum á sannkölluðu matar- landi, ef við kynnum réttilega með að fara. Eg þykist aigerlega sann- færður um, að búfé okkar mundi hagnýta sér rniklu betur bæði land og fjörubeit, heyfóður, þang og sæþara, fengi það með því að staðaldri síldarmjöl og lýsi, stund- um líka kalk og önnur steinefni í réttum hlutföllum. ógrynni öll fara aftur í sióinn af fiskiúrgangi og sjávargróðri. í fisldúrganginum fáum við einmitt þau efni, sem við þurfum hvað helst, til þess að draga úr hey- fóðrinu, en jafnframt fullkomna það að næringargildi og efnasam- setning: Eggjahvítu, fitu og stein- efni, en kolvetnin eru vafalaust venjulega yfirgnæfandi, einkum í lélegra heyi og beit. Enn sú gullkista viða við sjávar- síðuna! Þang og þari í flæðar- málinu og í veiðistöðvunum hefir oft mátt fá sild og annan fiski- úrgang fyrir lítið, hefðu menn búið sig undir að grípa tækit'ærin. — „MORGUN“. 2. hefti kemur út 1. maí og verður að eins sent þeim er þá hafa greitt andvirði 1. árgangs. Með því að afgreiðslan hefir orðið þess vör, að eitthvað af sendingu 1. heftis hafi misfarist, eru þeir, sem pantað hafa ritið, en ekki fengið 1. hefti, beðnir að gera afgreiðslunni aðvart sem fyrst. Alt sem snertir afgreiðslu og innheimtu ritsins á að sendast til undirritaðs, en ekki til ritstjórans. Nýir kaupendur gefi sig fram. Pór. 13. Porláksson. út yfir þau landamerki, þar sein skáldandi hans nýtur sín best. — Sömuleiðis tekst honum miður með stórfeldar sögulegar lýsingar, eins og bruna bókasafnsins egypska, eða blóðnóttina í París. Ekki af því að hann sé ekki nógu mikill sagnfræðingur (Sbr. Sikileyjarspeki Mbl., sem minnir á andríki þess Reykvíkings, sem fordæmdi Jóns- messunótt Kjarvals af því að »ridd- ararnir voru ekki í nútíðarreiðbux- umil). Ástæðan til þess að Davíð nýtur sín miður á því sviði er það, að hann er fíngerður, veikbygður söng- fugl, skapaður til að ala aldur sinn með léttslígum ljósálfum, en ekki á vígvelli innan um hauga af mannabúkum, þar sem blóðið »gnúði hrafni á höfuðstafnk eins og Egill kemst að orði. Davíð Stefánsson virðist vera giftubarn í list sinni. Hann hefir orðið fyrir því mikla láni, að með- fæddir eiginleikar hans njóta sín afbragðsvel í þeirri umgerð, sem hið andlega líf samtíðarinnar skapar þeim. Hann er eins og fræ, sem hefir fokið fram hjá grýttum, þyrn- umvöxnum löndum og fallið í djúpan, frjóvan jarðveg, sem hæfir eðli þess, og gerir því unt að bera hundraðfaldan ávöxt. Davíð Stef- ánsson er ekki skapaður til að endurheimta til handa þjóð sinni stjórnmálafrelsi, bleika akra, græna skóga eða gullið úr iðrum jarðar- innar. Draumalöndin eru riki hans, sem eigi verður af honuin tekið. J. J. Préttir. ___* Gnðfræðisprófi við háskólann hafa þessir lokið: Árni Sigurðsson I. eink. 125 stig, Magnús Guð- mundsson I. eink. 105 stig, Stan- ley Guðmundsson II. eink. betri Hvað fór ekki í sjóinn á Vest- fjörðum í sumar í síldarhlaupinu mikla og hvað hefði ekki mátt veiða miklu meira, ef hægt hefði verið að taka á móti því? Benda mætti á hvort sveitafélög gætu ekki sent mann eða menn með tunnur sínar og salt á veiði- stöðvarnar, til þess að grípa þessi tækifæri og hirða úrgangssíld, sem alt af er talsvert af. En hér er verkefni fyrir stærstu samvinnu fyrirtækin okkar, Sambandið eða Sláturfélagið, að slofna sem allra fjrrst síldar- og fiskimjölsverksmiðj- ur, þaðan sem bændur um land alt gætu fengið síldarmjöl og lýsi handa skepnum sínum. Jafnframt ætti að gera tilraun með sjávargróður, hvort ekki svaraði kostnaði að hirða, þurka, mala og senda hann sem verslun- arvöru út um landið. Væri eitt- hvað af síldarmjöli t. d. látið saman við, mundi það verða á- gætt fóður. Mig hryllir við að hugsa um sinu-þúfnakollana okkar, þegar kaupamaðurinn er kominn upp í 100 kr. og þarf ef til vill oft að brýna. Ef eitthvað er komið í Bjarg- ráðasjóð, ætti að nota hann til þess, að koma upp innlendri fóður- verksmiðju. 104 stig, Pétur Magnússon II. eink. betri 96 stig, Halldór Kolbeins II. eink. betri 89 stig og Sveinn Ög- mundsson II. eink. betri 68 stig. Sterling varð að snúa aftur á austurleið, vegna kolaskorts; var kominn austur undir Dyrhólaey, en fékk þá svo þungan vind á móti, að óvíst þótti að kolin dygðu á höfn eystra. Bátstapi. Vélbátur hefir nýlega farist í Vestmannaeyjum og voru á honum 4 menn. Hveiti hækkar nú mjög í verði, enda er það keypt frá Bandaríkj- unum, og gengið á dollaranum svo óhagstætt, sem öllum er kunn- ugt. Hafa bakarar því neyðst til að hækka verð á hveitibrauðum og kökum. Hæstiréttur var settur I hinum nýviðgerðu húsakynnum á mánu- daginn var. Voru fáir viðstaddir, því að húsakynnin eru svo lítil. Er sá siður hafinn, að dómarar og málfærslumenn eru klæddir í síða kufla, dómararnir í dökkbláa með hvítum börmum, en mál- færslumennirnir í svarta með blá- um börmum. Kristján Jónsson dómstjóri hæstaréttar ílutti ræðu við setningu rétlarins. Einn dóm- aranna, Páll Einarsson, er enn ó- kominn til bæjarins. Læknaprófi hefir Óskar Einars- son lokið við háskólann og fékk háa I. eink. 1752/s stig. — Friðrik Björnsson hefir lokið fyrri hluta læknaprófs. Heim8peki8prófl hafa lokið við háskólann: Gústav A. Jónsson, Dýrleif Árnadóttir og Hinrik S. Oltósson. Islands Falk kom nýlega hing- að frá Færeyjum og hafði með sér franskan botnvörpung, sem hann hafði tekið fyrir veiðar í landhelgi. Kæru samherjar! Að endingu vil eg ráðleggja ykk- ur að nota síld, þó frekar síldar- mjöl og ögn af lýsi, handa öllum skepnum sem beitt er, hvort held- ur er á land eða í fjöru. Beri samt á »skjögri« í lömbum, þá bæta við fóðrið beinamjöli, þorskhausamjöli. Enn fremur handa öllum skepn- um sem fá sinuhey, hrakið hey eða á annan hátt lélegt heyfóður. (Lesið grein Björns Gíslasonar í Freyr.) Það þarf ekki að gefa mik- ið hverri skepnu, en svona notað borgar það sig best. Pað nefnilega margfaldar sjálft sig. Aliskepnur þurfa þess síst og borga venjulega lakast. Lágmjólka kýr fá oft tóma töðu. Það er mesti óþarfi og versta fóðureyðsla, svo framarlega sem nokkuð er til af útheyi, sem geng- ið getur í þær. Reynið að blanda stararheyi saman við hána, setja alt í vothey. Dugi það ekki, þá er að strá síldarmjöli út á, meðan þær eru að komast á bragðið. Já, kýr eru kenjóttar, en það má líka stundum kenna þeim betri siði, ef »fjósameistarinn«, ekki fjósakarlinn, vill ganga á undan með góðu eftirdæmi: Vinna verk sitt trúlega, gera skyldu sína. — Það er fyrst, þegar kýrin fer að mjólka 12—14 merkur í mál, að hún þarf tóma töðu eða hennar ígildi, Mjólki kýrin enn meira, Loftskeytaatöðin í Flatey á Breiðafirði hefir nýlega bilað og er óvíst hvenær úr því verður bælt. Haíði stöngin brotnað í ofviðri. Danir, búsettir í Reykjavík, stofna til hátíðahalds í tilefni af sameiningu Suður-Jótlands við Danmörku. Húsbruni. Aðfaranótt mánudags síðastl. kom upp eldur í húsi Tómasar Möllers póstafgreiðslu- manns og símastjóra í Stykkis- hólmi; brann liúsið til kaldra kola, og varð litlu bjargað öðru en símaborðinu, bókum og skjölum símans og póstafgreiðslunnar. Er mælt, að eigandinn verði fyrir miklu tapi, þar eð vátrygging hafi verið lág. Sýning. Heimilisiðnaðarfélag ís- lands hefir ákveðið, að gangast fyrir sýningu á heimilisiðnaði fyrir land alt sumarið 1921, og skorar á menn um almenna hluttöku. Verður síðar getið hvar og hvenær munum verður veitt viðtaka. Látinn er 31. f. m., austur á Hæli í Biskupstungum, Einar Gests- son, áður bóndi á Hæli, faðir Ei- ríks alþm. Einarssonar. Var einn af mestu merkisbændum á Suður- landi á sinni tíð. Úr Yostmannaeyjum fréttist um aflaleysi, en mikið veiðarfæratap upp á síðkastið. Þar er og svo kolalaust, að það hefir fyrir nokkru orðið að loka skólanum. Landsspítalinn. Árni Eggertsson rilaði grein fyrir jólin í Lögberg og hvatti landa vestra til þess að gefa landsspítalasjóðnum arðmiða sína af Eimskipafélagshlutabréfum. Hafa orðið ágætar undirtektir undir þá málaleitun. — Frú Guðný Bjarna- dóttir í Bolungarvík hefir sent sjóðnum 1000 kr. — Hjónin Stein- unn Vilhjálmsdóttir og Einar Ei- ríksson á Eiríksstöðum á Jökuldal hafa sent sjóðnum 200 kr. að gjöf. hrekkur ekki taðan jafn vel, nema gefin sé í mesta óhófi, enda ætti þá ekki að bæta við töðu eða heyi. 28—30 merkur í mál er jafnvel of mikið þuríóður, væri því betra úr þessu að ;bæta við síldarmjöli og maís (eða mysu) eftir þörfum og í ákveðnum hlutföllum. Lifeðlisfræði og fóðurfræði verð- ur ekki rituð eða lærð í stuttri blaðagrein. Lærðustu vísindamenn segja oft sitt hvað og margt er vafasamt og óráðið enn. En eitt er víst, að um leið og fóðurteg- undum fjölgar, verður meiri vandi að blanda fóðrið réttilega og/,hag- nýta það sem best. Leitið því upplýsinga og ráða hjá þeim, sem þið berið traust til og þetta mál^hafa kynt sér. Ráðu- nautar búnaðarfélagsins, kennarar bændaskólanna og fleiri eru vafa- laust ávalt s reiðubúnir til þess að Ieiðbeina, ,enda þeirra verka- hringur. Mannalát. Látin er nýlega hér i bænum Helga Árnadóttir, móðir Bjarna Jónssonar frá Vogi og þeirra bræðra. Hún var hátt á níræðis- aldri. — Látinn er nýlega á Lund- um í Borgarfirði Ólafur sonur Guðmundar bónda þar, rúmlega tvítugur. Bækur og x'itföng’ kaupa m«‘im í Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar Síðastliðið hanst var mér undir- ritaðri dregið gulhyrnt gimbrar- lamb með mínu marki: sýlt hægra sýlt og gagnbitað vinstra. Réttur eigandi gefi sig fram. Kjörseyri í Strandasýslu, í janúar 1920. Valg. Kr. Gunnarsdóttir. Skálda- og Ii8tanianna8tyrknum hefir nú verið úthlutað á þessa leið: Skátd og rithöfundar: Davíð Stefánss. f. Fagrask. kr. 800 Einar H. Kvaran ........ — 3000 Guðm. Friðjónsson...... — 1000 Guðm. Kamban............ — 1000 Jakob Tborarensen...... — 800 Stef. Sigurðss. f. Hvítadal — 800 Tryggvi Sveinbjörnsson... — 600 Málarar og myndasmiðir. Arngr. Ólafsson, námsst. kr. 1000 Brynj. Þórðarson, námsst. — 1000 Einar Jónsson f. Galtafelli — 1500 Eyjólfur Jónsson ferðast.. — 1000 Hjálmar Lárusson .... — 500 Jóh. Kjarval, ferðast. ... — 2000 Jón Þorleifsson, námsst. . — 500 Kristín Jónsd., ferðast. . . — 1500 Nína Sæmundsson.ferðast. — 1500 Ríkarður Jónsson, ferðast. — 2000 Sönglistamenn. Benedikt Árnason, námsst. kr. 1000 Eggert Stefánss., til fulln- aðarnáms.................— 1200 Páll ísólfsson, til fullnað- arnáms..................._ 1800 Þórarinn Guðmundsson, til að koma á hljóðfæra- sveit.................. — 500 Samtals kr. 25000 Sildin islenska, sem legið hefir í Kaupmannahöfn mun nú hafa að nokkru verið seld fyrir 45 kr. tunnan. Er það síldarútgerðar- mönnum mikið tjón. Ungmennafélag Akureyrar hefir gefið rúmlega 1600 kr. í Heilsu- hælissjóð Norðurlands. Ný bók. Nýlega er komin út önnur útgáfa, nálega óbreytt af reikningsbók handa alþýðuskólum eftir þá Jörund Brynjólfsson og Steingrim Arason kennara. Kosning verður engin í Reykja- vík. Þá er framboðsfrestur var liðinn hafði Sveinbjörn Egilsson ritstjóri Ægis einn boðið sig fram á móti Jakob Möller. En hann tók síðar aftur framboð sitt og er Jakob því sjálfkjörinn. Skipstjón. Færeyingar keyptu fyrir nokkru »Sigurfarann«, eitt af fiskiskipum Duusverslunar hér í bænum. Var skipið hlaðið hér vörum og fór af stað fyrir nálega fjórum vikum, áleiðis til Færeyja. Hefir síðan ekkert spurst til skips- ins og verður því líklega að teljast víst, að það hafi farist. Skipshöfn- in var færeysk. Húsbruni. Um miðjan mánuð- inn brann á Norðfirði hús, sem var eigD Vigfúsar Sigurðssonar. Höfnin hefir nú um hríð verið lögð innan hafnargarðsins. Hefir Islands Fallc hjálpað til að halda opinni leið inn að hafnargarðin- um. Konnngskoma. Það mun nú fullráðið.^að konungur komi hing- að til lands í lok júlímánaðar í sumar. Verður drotning hans með honumt_og®syniiv,.þeirra báðir. AYI Hafið þér gerst kaupandi að Eimreiðinni? Ritstjóri: Tryggvl ÞórhallBBOH Laufási. Sími 91. Prentsmifljan Gutenherg.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.