Tíminn - 05.06.1920, Blaðsíða 4

Tíminn - 05.06.1920, Blaðsíða 4
84 TiMINN Áugnlæknisferðalag 1920. Með »Sterling« 6. ferð 4. júlí austur um land til ísa- fjarðar. Dvel þar til 21. júlí. Fer með »Suðurlandi« til Reykjavíkur. A. Fjeldsted. því fram, að Sálarrannsóknarfé- lagið breska muni ekki hafa það álit á hinum spiritistisku fyrir- brigðum, að þau verði til þess að sanna það, að fengist hafi samband við framliðna menn. En hið sanna er — og það veit að heita má hver maður, sem hefir nokkuð kynt sér þetta mál — að Sálar- rannsóknarfélagið breska lætur al- drei uppi álit sitt á þessum hlut- um. Hins vegar er hverjum félags- manni heimilt að hafa sína skoð- un og koma fram með sínar skýr- ingar á hverju fyrirbrigði sem vera skal. Annars getur nokkur vafi leikið á því, hvort Sálarrannsókn- arfélagið sé yfirleitl mótfallið hinni spiritisku skýringu, því að einn mikilsmetinn félagsmaður þess hefir t. d. sagt nú fyrir stuttu: wfað virðist þá svo sem það sé viðurkent af flestum rannsóknar- mönnum, að aðalkenning spiritist- anna um framhald mannlífsins sé rétt og að unt sé að komast í samband við framliðna menn«. Það er eðlilegt að skiftar verði skoðanir manna um jafn-mikilvægt málefni og það er »Morgunn« hefir beitt sér fyrir, því það er í raun- inni eitt af hinum mikilvægustu úrlausnarefnum, sem mannsandinn hefir verið að glíma viö; þess meiri þörf á að ræða það með »heim- spekilegri ró«, skynsemi og still- ingu, en ekki með ofsa eins og þröngsýnum heittrúarmönnum hætt- ir stundum við, þá er einhverjir gerast svo djarfir að hrófia við margra aldagömlumtrúarákvæðum. »Morgunn« hefir rætt þetta mál með hógværð og stillingu og væri óskandi að andslæðingar spiritism- ans hetðu svo mikið traust á mál- stað sínum, að þeir sæu sér fært að forðast allan þjösnaskap og hlutdrægni i þeirri von að sann- leikurinn muni sigra að lokum. X. Fellir í Canada. Vestur-íslend- ingar hafa átt við likan kost að búa og við i vetur, hefir vetur verið með afbrigðum harður um alt Canada, Segir »Voröld«, frá 20. april, að 7000 gripir hafi þegar fallið af fóðurskorti í Albertafylki og fjöldi í Saskatchewan og Mani- toba. Maður nýkominn að vestan segir Tímanum að íslendingar búi yfirlcitt betur en alment og hafði bestu vonir um að hjá þeim yrði ekki teljandi fellir. Póstmeistarastaðan á ísafirði hefir verið veitt Finni Jónssyni á Akureyri. um séu auð síðan að bannið kom. Og lögreglan lælur það í ljósi, að þar sem mest umferð var áður á torgum og krossgötum sé nú miklu hægara að stjórna fólki en áður, nú fari það miklu varlegra á slík- um stöðum, en það var einmitt þar, sem mest voru slysin áður. Pá er fram líða stundir, þá má líka búast við því, að bannið dragi mjög úr hinum langvarandi sjúk- dómum, sem áður er minst á. Því að það er fyrir löngu vísinda- lega sannað, að áfengisnautn veikl- ar mjög líkama og sál — veldur taugaveiklun og úrkynjun og and- legri hrörnan. Þótt undarlegt sé, þá báru skýrsl- ur berklaveikislækna það með sér, að dauðsföll á meðal berkla- teikissjúklinga hækkuðu lítið að tiltölu í inflúensunni árið 1918. — En í fyrra hafa færri dáið úr þelrri veiki en nokkru sinni fyrr. Þetla halda menn að sé óbeinlinis að þakka banninu. Við það að eyða minna i áfenga drykki, gat fólk fremur aflað sér þeirra með- ala eður ráða, sem best á við berklaveiki, sem það varð áður að neita sér um vegna féleysis, Pað gat leigt betri ibúðir, sem voru sólríkari og loftbetri, og keypt góð matvæli, svo sem: mjólk, egg, smjör, svínakjöt og nautakjöt, en öllum berklaveikislæknum ber saman um, ^ongin oilífa eftir II. Róma var bæði kvíðin og óró- leg, þrátt fyrir allar fullyrðingar og hún var feimin er hún heilsaði Rossi. Hún lét hann setjast í hæg- indastól og sótti verkfæri sin. Hún skrafaði samhliða; hann mætti ekki taka til þess þótt hún borfði á hann, hún yrði að gera það; hann mætti ekki líta á myndina fyr en hún væri fullgerð. Hún komst að þeirri niðurstöðu meðan hún var að tala, að hann ætti að vera Tómas — þeir væru allir svo tor- tryggnir þessir sljórnleysingjar. Davíð Rossí sagði fátt í fyrslu, við því sem Donna Róma var að skrafa. Hún byrjaði að tala um út- sýnið, þá fátæklingana og loks út- lagana og þá losnaði um tungu- haft hans. »Það er gamalt hverfi í Löndon«, sagði hann, »rétt við hliðina á húsum ríka fólksins og heitir Sóhó. Þar er mjög þétlbýlt og mikið þar af glæpum, en engu að síður er þar frihöfn fyrir frelsisvini Norðurálf- unnar«. »Bjugguð þér þar?« »Já! British Museum liggur rétt hjá Sóhótorgi og þar hittast frelsis- vinirnir daglega. Þar eru sæti og hiti, sem þeir fara oft á mis við heima hjá sér«. »Bjó hann þar líka, Rossellí læknir, vinur yðar?« »Já. Eg sá hann fyrsta sinni á Sóhótorgi. Húsið sneri á móli trjágöngum. Læknisstofa hans var á neðri hæð. Það var notaleg stofa og þar brann æ eldur á arni. Dóttir hans svaf uppi á efri hæð- inni og við hliðina á herberginu hennar var vermihús og þar voru 20—30 kanarífuglar og þeir fóru undireins að syngja, þegar sólin skein í gegn um glerþakið. Hún vaknaði við það á morgnana, litla stúlkan!« Róma misti svampinn niður á gólf án þess hún tæki eftir þvf. »Lítið í þessa áttina! Þakka fyr- ir . . . . Finst yður það hafi verið rétt af honum vini yðar, að kasta frá sér veglyllunni og yfirgefa ást- vini sina á Ítalíu. Faðir hans hlýt- ur að hafa tekið sér það mjög nærri!« »Eg hefi heyrt að svo hafi verið! Hann bölvaði syni sínum og bann- aði honum að bera nafn sitt. — En sonurinn mátti ekki með neinu að þelta séu bestu meðulin gegn »hvíta dauða«. Lika má geta þess, að ungbarna- dauði hefir mjög minkað þessa fyrstu sex bannmánuði. í New- York hefir hann t. d. lækkað um 12°/o. Margir læknar þakka þetta banninu og segja það stafi af því, að nú höfðu fátækar mæður meiri peninga milli handa til að eyða fyrir mat. Þær höfðu líka betri tíma til að hugsa um baru silt og lifðu í hollara umhverfi. — í stullu máli: drykkjumannakon- unum hefir liðið að öllu leyti betur þessa sex bannmánuði, en nokkru sinni fyrr. Eg hefi nokkrum sinnum rekið mig á það, að það er nokkuð margt fólk, sem annars er með bindindi og banni,sem leggur trúnað á þá lækna, sem prédika það fyrir almenningi, að áfengi sé mjög gagnlegt lyf, og oft alveg nauðsyn- legt til að styrkja líkamann gegn næmum sjúkdómum. Það er nátt- úrlegt, að fólk leggi trúnað á þetta, ef það hefir eigi kynt sér þær vísindalegu rannsóknir, sem hér að lúta; það hefir verið marg- sannað á tilraunastofum beggja megin hafsins, að hvað lítið sem neytt er af áfengi veikir það mót- stöðuhæfileikann gegn sjúkdómum, og eyðir jafnvel hinum náttúrlegu eiginleikum, sem fuglar og dýr móti heyra orði hallað á föður sinn. »Hann er faðir minn, og það er nóg«, var hann vanur að segja«. Nú misti Róma annað verkfæri á gólfið. »En hvað um móður hans?« spurði hún. »Það var enn sorglegra. Fyrstu árin bað hún hann iðulega að koma. »Þú ert hin besta og ást- ríkasta móðir«, skrifaði hann, »en eg get ekki látið að ósk þinni«. Hún skrifaði honum og sendi hon- um peninga og föt. Hann gaf fá- tækum löndum sínum peningana og seldi fötin til að kaupa fyrir brauð handa þeim«. »Sá hann móður sína aldrei aftur?« »Aldrei! En hann geymdi minn- ing liennar og nafn eins og helg- asta dýrgrip. »Þið inæður«, sagði hann oft, »þið ættuð að vita hví- líkt vald þið eigið. Guð styrki þá vesalinga, sem ekkí hafa áttmóður«. »Var hann —varhann kvæntur?« »Já. Kona hans var ensk — og hún var nálega eins einmana og hann«. »Lítið í hina áttina! Þakka fyrir — Vissi hún hver hann var?« - »Enginn vissi það! Við héldum öll að hann væri ekkert annað en fátækur læknir í Sóhó«. »Þau — þau — voru hamingju- söm?« »Svo hamingjusöm sem ást og vinátla geta mest áorkað. Jafnvel þá er fátæktin kom . . .« »Varð hann fátækur?« »Já mjög fátækur. Það kvisaðist að Rossellí læknir væri byltinga- maður og þá sneru ensku sjúkl- ingarnir baki við honum. Hann varð aö flytja úr húsinu i Sóhó, í tveggja herbergja ibúð og þar bjuggum við öll fjögur. En ástúð og umhyggja frú Rossellí mildaði fálæktina. Hún var engill. Guð blessi hana!« Donnu Rómu var þungt um mál. »Svo dó hún?« Davíð Rossí laut höfði og setn- ingarnar komu sundurlausar af vörum han*: »Hún dó þá er síst skyldi. Við vorum mjög fátæk. Það var um hafa gegn vissum sjúkdómum. — Sama er hægt að segja um áhrif þess á likama mannsins; i staðinn fyrir að styrkja og eíla starfsemi hjartans, þvingar það og veikir, og hindrar lífvefinn í að mynda hin meðfæddu náttúrlegu varnar- gögn gegn sjúkdómseitri. Þó eru enn lil þeir læknar, sem hafa trú á nolkun áfengis gegn hilaveiki og næmum sjúkdsemum, en þeim er ávalt að fækka. Læknirinn sem áður er nefndur álítur að að likindum geti 3/s allra lækna verið án áfengis til lækii- inga, og það án nokkra óþæginda. í inflúensu-plágunni 1918 var á- fengi töluvert notað vestra, en samkvæmt skýrslum frá miklum meiri hluta lækna hefir það haft litla eða alls enga þýðingu sem læknislyf gegn þeim sjúkdómi. Frægur læknaskóli í New-York hefir nýlega gefið út bækling með heilbrigðisráðum fyrir almenning, og er þar meðal annars þessi grein: »Neytið ekki bjórs, vvhisky’s, víns eða annara áfengra drykkja, nema yður sé skipað það af Iækni«. Sannir mannvinir ætlu því af alefli að styrkja þau lög, sem reyna að forða fólki frá, að nota áfengi eftir eigin geðþótta«. Látum vér svo útrætt um á- rangur bannlaganna vestra að sinni. jólaleytið. Það var kalt veður og hráslagalegt. Hún varð innkulsa og fékk fyrir brjóstið. Lungnabólga. Það stóð ekki yfir nema þrjá eða fjóra daga. Læknirinn var altaf yfir henni. Enn hvað hún barðist fyrir því að mega lifa! Hún hugs- aöi til dóttur sinnar litlu sem var rétt nýorðin sex ára«. Hann gat vart talað vegna geðs- hræringar. Fréttir. Tíðin hefir verið góð þessa viku, hægviðri, nokkuð úrkomusamt fyrri hlutann, og dágóð hlýindi. Langvíðast af landinu fréllist um sæmileg skepnuhöld, sumstaðar ágæt. Kýr eru komnar út víðast í nærsveitum en verður að gefa með mat og hey þar sem til er. Undir Eyjafjöllum eru komnir svo góðir kúahagar, að alveg er hætt að gefa kúm og kominn gróðrarlitur á mjólk. Túnávinsla stendur nú sem hæst og ílestir byrjaðir að setja niður kartöílur. Ansturríslai hörnin. Nefndin sem átti að sjá um að veita aust- urrisku börnunum viðtöku, hefir nú fengið símskeyti um það að börnin munu alls ekki koma. Er þess getið að »trúarbragðalegar og aörar tálmanir« valdi þessu. Hefir nefndin ákveðið, að senda þær 20 þús. kr. í peninguin, sam safnast höfðu, lil Vínar, til hjálpar börn- unum. Tvívegis, eða oftar, hefir Morg- unblaðið borið það á Tímann að hann hafi verið því mótfallinn að Pétur Jónsson yrði ráðherra. Er óhugsandi annaö en að blaðið fari þar með vísvitandi ósannindi. Fyrst og fremst hal'ði Tíminn eng- in bein afskifti af vali ráðherr- anna, eins og vitanlegt er öllum. Hinsvegar varð Tíminn þeirri til- lögu Framsóknarflokksins mjög eindregið fylgjandi að þeir yrði báðir ráöherrar með J. M., Pétur Jónsson og Magnús Kristjánsson, enda hefði þá fengist mjög vel starfhæf og samhent stjórn. Sá tvískinnungur sem nú er í stjórn- inni er að dómi Tímans algerlega óhæfur og rná ekki standa lengur en skemst gelur orðið, en til at- vinnumálaráðherrans ber Tíminn fult traust og liefir að maklegleik- um þakkað honum hans góða starf um að bjarga landbúnaðin- um í harðindunum. Það er öld- ungis sama hvernig Morgunblaðið lætur, og hversu glatt það þykist vera yfir samvinnumanninum í stjórninni og dróttar hinu gagn- stæða að Timanum. Það trúir því enginn lifandi maður. Látinn er 29. f. m. á heimili sinu í Landakoti á Vatnsleysu- strönd Guðmundur hreppstj. Guð- mundsson. Hann var á 80. aldurs- ári, Knattspyrnn, og smærri kapp- leikir eru nú mjög iðkaðir á í- þróttavellinum. Fyrir konnngskomn. Mikil við^ gerð er látin fram fara á alþingis- húsinu; veriö að mála ráðherra- bústaðinn; meginið af torfinu rist af stjórnarráðsbleltinum, til þess að slétta betur. Sorglegnr atbnrðnr, en sem betur fer næsta sjaldgæfur hér, Hér með auglýsist, að sauðfjár- ' mörk undirritaðs eru: 1) Stýft, biti framan hægra, sýlt og gat vinstra. 2) Gat hægra, fjöður framan vinstra. Hjarðarholti, Dalasýslu. Björn H. Jónsson. varð uppvís um síðustu helgi. Fanst á höfninni lítill böggull og var i barnslík. Barnið er ekki talið andvana fætt, en hitt má vera að það hafi verið látið áður en þvi var í sjóinn kastað. Ekkert hefir enn orðið uppvist um hver hefir vajdið. Um íslenskan Iandbúnað hefir Valtýr Stefánsson áveituverkfræð- ingur ritað langa og rækilega rit- gerð, sem íslensk-danska félagið hefir gefið út á dönsku meðal smárita sinna. Ritgerðin er rituð með það fyrir augum að gefa al- menningi í Danmörku glögga og rétta mynd af islenskum búnaðar- háltum. Þólt svo sé, að Dönum sé bókin ætluð, þá munu þó marg- ir liér á landi hafa ánægju af að lesa hana, því að svo glögt al- ment yfirlit um íslenskan land- búnað er ekki til á íslensku og bókin er skemtilega samin, og vekur margar nýar hugsanir með þeim samanburði sem oft er gerður við danskan búskap. Yestan uni liaf er von á all- mörgum gestum hingað heim í sumar, Vestur-Islendingum sem ætla að dveljast liér a. m. k. í sumar. Munu þeir vera um 25. Prír piltav, 7, 9 og 12 ára gamlir hafa orðið uppvísir að því að fremja innbrot í Hljóðfærahúsið og stálu þaðan dálillu af penigum, Verkið frömdu þeir á annan í hvítasunnu. Háskólaráðlð hefir ráðstafað slyrkveitingum í ár úr miljónar- sjóðnum (samningasjóðnum) á þessa leið: íslensk-danska félagið til efiingar andlegs sambands milli íslands og Danmerkur 1500 kr. Utanfararstyrkur kandídata: Árni Sigurðsson caud. theol. 2000 kr., Sveinbjörn Jónsson cand. júr. 2000 kr., Guðm. Thoroddsen læknir 2500 kr., Helgi Skúlason læknir 1500 kr. Utanfararstyrkur háskóla- kennara: Stefán Jónsson dósent 2000 kr., Ág. H. Bjarnason pró- fessor 2000 kr. Rannsóknarstofa læknadeildar háskólans 6000 kr. Til áhaldakaupa handa heimspekis- deild 2500 kr. Guðm. G. Bárðar- son til jarðfræðirannsókna 2000 kr. Sig. Nordal prófessor til úlgáfu rils um Snorra Sturluson 1500 kr. Lagadeild, til að undirbúa efnis- skrá yfir íslensk lög 1000 kr. Jakob Jóh. Smári til útgáfu setn- ingafræði 2000 kr. Bókmentafélagið til útgáfu íslensks kvæðasafns frá 1400-1800, 1000 kr. Bókaútgáfa ný er sögð að hefja göngu sína og er boðin velkomin í grein í »Visi«, óskað »allra heilla« o. s. frv. Fyrsta bókin heitir »Kín- verska leynifélagið«. Einhverju væri þarfara að fagna. Forsætl8ráðherra kom heim úr utanför með Botniu. Emhætfispróf eru að byrja við háskólann. Eggart Jónsson bóndi á Gufu- nesi hefir selt þá jörð, en keypt Reykhóla vestra og flyst nú þang- að búferlum. Sögnfélaglð kaus á aðalfundi sinum, 31. f. m„ þá Hannes Þor- steinsson skjalavörð og Sighvat Gr. Borgfirðing, heiðursfélaga sína. Ritstjóri: Tryggvi Þórhallsson Laufási, Simi 91. PrentsmiðjoB Snttnberg,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.