Tíminn - 18.09.1920, Blaðsíða 1
TIMINN
um seeetiu bléð á ári
koslar tiu krónur df»
gangurinn.
AFGREIÐSLA
blaðsins er hjá Gnð-
geiri Jónssyni, Hverfis-
götu 34. Simi 286.
IY. ár.
Reykjavík, 18. septomber 1920.
37. blað.
Aðvörun
til innflytjenda á vörum.
Hérmeð auglýsist þeim til aðvörunar, sem hlut
eiga að máli, að Viðskiftanefndin mun hér eftir án
undantekningar kæra alla þá til sekta samkvæmt 8.
gr. reglugjörðar um innflutning á vörum frá 12.
marz þ. á., er flytja vörur hingað til landsins án
þess að hafa áður fengið leyfi þar til frá nefndinni.
Enn fremur eru allir ámintir um að tryggja sjer
innflutningsleyfi áður en þeir panta vörur sínar, því
að hér eftir mun netndin alls ekkert tillit taka til
yfirlýsinga hlutaðeigenda um, að þeir hafi þegar,
fyrir löngu eða skömmu, gjört ráðstafanir til að
útvega vörurnar eða pantað þær.
Reykjavík 13. september 1920.
Viðskiftanefndin
L. Kaaber. Oddur Hermannsson.
Jes Zimsen. H. Kristinsson.
Nýtt herveldi.
Friðsamir menn, sem óskuðu
Bandamönnum sigurs í heims-
styrjöldinni trúðu því, að ef veldi
júnkaranna þýsku væri brotið á
bak aftur, myndi herbúnaðar-
samkepninni linna og stríðshættan
minka, uns hún að lokum hyrfi
úr sögunni.
En þessu er öðruvisi varið.
Hernaðurinn lifir enn í góðu gengi.
— Þjóð Wilsons, Bandaríkin, vill
koma sér upp stærsta herskipa-
flota í heimi. þá halda Bretar líka
áfram með sína stórkostlegu her-
skipagerð. Og Frakkar eru nú enn
eiuu sinni orðin mesta herþjóð
álfunnar. Sigurinn hefir endur-
vakið hernaðarandann, sem var
lamaður meðan uppgangur og ó-
jöfnuður Rússa var sem mestur.
Frakkar og Bretar hafa skift
með sér nýlendum hinna sigruðu,
þ. e. Þjóðverja og Tyrkja. Én það
gengur ekki auðveldlega^ að hafa
hemil á þessu herfangi. Sýrland
gerir uppreist móti Frökkum, en
Mesopotamía gegn Englendingum.
Friðarfundurinn gerði þessi tvö
stórveldi að »verndurum« fólksins
í þessum fjarlægu, sögufrægu Asíu-
löndum. En verndin er í fram-
kvæmdinni sú, að landsfólkið er
brytjað niður eins og hráviði, af
sinum eigin »verndurum«. Bretar
hafa um 109 þúsund hermenn í
Mesapotamíu. Beir eiga í sífeldum
bardögum við landsfólkið, og fara
stundum halloka. En friðnum er
haldið uppi méð byssustingjum og
sprengikúlum. Þar sem morðvopn-
in ná ekki til, neita landsbúar að
viðurkenna veldi Brela. Sama er
sagan í Indlandi. Bar er hin megn-
asta óánægja með yfirráð Breta
og liggur við stór-uppreist. Eink-
um kunna Indverjar því illa, að
Bretar safna liði þar í landi til
að halda niðri öðrum undirokuð-
um þjóðum. Þykir þeim nóg að
vera kúgaðir sjálfir, þótt eigi verði
sjálfir meðsekir um ranglæti gagu-
vart öðrum þjóðum, í þágu sinna
eigin kúgara. Briðja hörmungar-
þjóðin eru írar. Þeir krefjast að
fá fult frelsi og eiga vitanlega engu
minni rétt til þess heldur en t. d.
Pólverjar eða Bæheimsbúar. En í
stað þess að unna írum hins sama
réttlætis, sem Bretar krefjast til
handa undirokuðum þjóðum 1 Mið-
Evrópu, þá svara þeir frelsiskröf-
um íra með því, að flytja þangað
mikinn her, og beita takmarka-
lausri hörku við íbúana, sem ekki
hafa unnið annað til saka, en að
krefjast hinna einföldustu mann-
réttinda, sem Bandamenn töldu sig
berjast fyrir.
Að vlsu myndu Þjóðverjar hafa
farið enn ver að ráði sínu, ef þeir
hefðu sigrað. En það sem skiftir
máli nú er það, að leiðandi menn
Bandaþjóðanna eru miklu nær
júnkurunum þýsku, heldur en þá
sjálfa mun hafa grunað, meðan
fögru orðin um »sjálfsákvörðunar-
rétt þjóöanna« voru mest á vörum
þeirra. Undirrótin er æ hin sama.
Ágirndin til fjár og valda. Harkan
gagnvart þeim, seir eru minni
máttar, tilfinningarleysið og skiln-
ingsleysið fyrir þörfum og rétti
annara. Sést glögglega hvar undir-
rótin er, þegar þessum tveim þjóð-
um, Frökkum og Bretum, ber á
milli eins o^ í vor út af steinolíu-
lindunum í Mesapotamíu. Bretar
höfðu orðið þar drjúgari í hinum
upphaflegu samningum, en auð-
menn Frakka urðu æfir við sina
fornu samherja út af því, að þeir
fengju of lítið af herfanginu. Lá
um stund við fullum vinslitum,
þvi að blöð Frakka drógu ekki
af um aðfinslurnar, né útskýringar
á þvi, að ágirnd og eiginhagsmuna-
dýrkun Englendinga væri orsök
til þess ranglætis, sem franska
þjóðin yrði fyrir. Jafnvel hin mikla
þjóðhetja Clemeneeau var dregin
inn í þessar deilur. Honum kent
um að hafa sýnt of mikla undan-
Iátssemi við Lloyd George í stein-
olíusamningunum. Litlu sfðar varð
önnur rimman milli Bretaog Frakka
út af Rússlandsmálunum. Vegna
skuldamálanna vildu Frakkar stríð,
en engan frið við Rússa. Bretar
áttu aftur á móti vonina mestu í
verslun við Rússa. Pess vegna vildu
þeir frið. Pelta varð svo mikið
deiluefni milli Frakka og Breta,
að nokkra daga í sumar, áður en
Rússar biðu ósigur hjá Varsjá, var
talað fullum fetum um það í ensk-
um blöðum, að bandalagið milli
Breta og Frakka væri í raun og
veru sprungið.
Hernaðarandinn lifir enn. Pjóð-
verjar eru afvopnaðir í bili. En
sigurvegararnir koma að miklu
leyti í þeirra stað. Þeir leggja undir
sig hinar máttarminni þjóðir og
reyna af alefli að auðgast með-þvi,
að nota auðsuppsprettur þessara
landa og ódýran vinnumátt þjóð-
anna. Blóðfórn stríðsins virðist
ekki líkleg til að þoka mannkyn-
inu nema lítið skref áfram eftir
vegum siðlegrar framþróunar.
Pað er auðvelt að sjá miklar
misfellur á ráði stórþjóða þeirra,
sem nú fara með heimsveldi. En
síst af öllu skyldu menn halda,
að smáþjóðirnar væru betri eða
göfuglyndari. Danir þeir, sem vildu
innlima þýska landshluta nú í vor
sem leið, voru búnir að gleyma,
að þeir höfðu áratugum [saman
áfelt júnkarana fyrir alveg sams-
lconar ranglæti. Þyrfti jafnvel ekki
að sækja dæmi jlil fjarlægra þjóða
til að sýna hversu veikar höndur
siðmenningin hefir Iagt á brota-
gjörn hjörtu mannanna.
Ameríkuferðir,
i.
Við vildum mega tala um Ame-
rfkuferðir eins og liðna sögu —
Ameríkuferðir í þeim stýl, sem tíðk-
uðust fyrir aldamótin. Við höfum
á undanförnum árum talað um
þær sem liðna sögu,
Við erum búnir að sætta okkur
við þá miklu blóðtöku sem land
okkar leið, er stór-hóparnir fóru
vestur um haf. Enda hafa þeir og,
landar vestra, sýnt það, að þeir
urðu landi sínu ekki að öllu glat-
aðir, þótt farnir væru aflandiburt.
Þeir bafa gert veg íslands meiri.
Þeir hafa verið útherjar íslenskrar
menningar. Peir hafa haldið hátt
merki íslendinga, því að þeir hafa
í hvívetna ataðið öðrum þjóðum
a. m. k. jafnfætis, ekki sist á þcim
sviðum, sem mest *r um vert.
Þeir hafa lagt drjúgan skerf til
bókmenta okkar. Þeir hafa og
margsinnis reynst ættjörð sinni
haukar í horni, þá er um það hefir
verið að ræða að hrinda þjóð-
nýtum málum í framkvæmd.
Við höfum á seinni árum talað
um aðrar Ameríkuferðir. Margar
ferðir hafa verið farnar umað auka
kynninguna þjóðarbrotanna á milli,
samúðina og bróðurþelið. Við höf-
um bollalagt um mannaskifti.
Konur og karlar íæru heiman á
unga aldri og dveldust nokkur ár
meðal landa vestra, til þess eink“
um að læra af þeim vinnubrögð,
vélanotkun o. s. frv. og til þess
yfirleitt að víkka sjóndeildarhring
sinn og vera þó sem heima —
hjá íslensku fólki. Jafnframt ætt-
um við að fagna góðum gestum
vestan um haf, hinum íádri, sem
rifja vildu upp gamlar minningar,
vitja frænda og vina og æsku-
stöðva, hinum yngri til náms,
einkanlega andlegs náms. Til þess-
ara Ameríkuferða hugsum við með
sérstakri gleði.
II.
Ameríkuferðirnar gömlu hófust
í algleymingi upp úr harðinda-
árunum kringum 1880. Nú hefir
enn harðindakafli gengið yfir ís-
land um nokkur ár og nú steðja
vandræði aö landi á ýmsa vegu,
sem óþarfi er upp að tetja. Og
nú heyrist það, úr all-mörgum
átlum, að kominn sé töluverður
Ameríkuhugur í fólkið.
Það er ekki að undra, þótt mörg-
um virðist nú þrengjast fyrir dyr-
um um afkomu og séu kvíðandi
um framtíðina. En það er skylda
allra þeirra, sem betur þekkja um
ástandið í heiminum, að láta hina
vita, sem miður þekkja, að það
er ekki glæsilegt, að leita nú af
lahdi burt í von um betri afkomu.
Pui að sannleikurinn er áreiðanlega
sá að þótl við eigum hér við mikla
erfiðleika að striða, þá munu þau
þó vera ]á löndin i heiminum nú,
sem betra er að bjjggja en Ísland.
Hann er annar nú en var, þá
er Ameríkuferðir voru mestar,
samanburðurinn á íslandi og Ame-
ríku. Það næj engri átt nú að
miða við það hvernig þeir hafa
komist af nýbyggjarnir sem veslur
fóru 1880—1890. íslenskir bændur
vestra munu eklci síður eiga við
erfiðleika að stríða nú, en stéltar-
bræður þeirra hér. Það mun ekki
vera minni vandkvæðum bundið,
að koma sér þar upp búi og nauð-
synlegum áhöldum. Erfiðleikar
dýrtíðar og styrjaldar hafa orðið
þar hlutfallslega enn meiri en
hér.
Bestu löndin standa þeim ekki
lengur opin innflytjendunum. Það
er setið á þeim fast. Bæði Banda-
ríkin og Canada tóku beinan þátt
í stríðinu. Það geta fáir gert sér í
hugarlund hvaða fjárhagsbyrðar, í
sköttum, sú þátttaka leggur á hvern
einasta borgara. Bæði löndin halda
áfram vígbúnaði og krefjast áfram-
haldandi framlaga úr vasa hvers
einasta til þeirra hluta, og kunna
að krefjast þeirra fórna af íbú-
um sínum sem nær ganga. í báð-
um löndunum er næsta ófriðvæn-
legt innan sjálfra landamæranna.
Hvergi um víða veröld er meiri
misskifting auðs. Verkföll og verk-
bönn eru daglegt brauð. Baráttan
er háð upp á líf og dauða milli
vinnuveitenda og verkamanna. Það
þarf ekki að spyrja um afleiðing-
arnar, um afkomu og öruggi ein-
staklingsins, undir slíkum kring-
umstæðum.
Það þyrftu að vera einhverjar
alveg einstakar kringumstæður fyr-
ir hendi, ætti það að vera ráðlegt
fyrir menn að taka sig upp héðan
og flytja vestur, í því skyni að fá
betri afkomu.
Harðindakaflarnir. koma æ við
og við yfir land okkar. Einum
slíkum er nú að halla — vonum
við. Utanaðkomandi orsakir, sem
þjá allan heiminn, gera okkur,
sem öðrum, og þó ekki eins mikið
og öðrum, erfitt um afkomu.
En harðindaköflunum léttir af.
Við höfum bygt landið í meir en
þúsund ár og vitum það. í hlut-
falli við önnur lönd hefir sennilega
aldrei bjartari framtíð blasað við
íslandi en nú — reynist þjóðin,
sem áður, þrautseig og þrótt-
mikil.
Margt er það þegar komið fram
sem skáldið »sá i anda« á alda-
mótunum síðustu og kvað um hið
þróttmikla kvæði. Margar hafa þær
þegar ræst hugsjónirnar og aðrar
eru að rætast. Hel og Hildi hefir
öldin geymt, sem af er, og mun
geyma, en það hefir miðað áfram og
mun miða. Yfirstandandi erfiðleika
munum við yfirstíga, enda munum
við. hvernig sem stríðið er blandið,
reynast boðorðinu tryggir: að elska'
°g byggja' og tregsta' á landið.
Sullaveikin.
Umræðurnar sem orðið hafa hér
í blaðinu undanfarið um hunda-
hreinsun og sullaveiki < hafa það
gott í för með sér að halda mönn-
um vakandi um þetta mál. Þess
er full þörf.
í ágústblaði Læknablaðsins rit-
ar Sæmundur prófessor Bjarnhéð-
insson grein sem eí næsta eftir-
tektaverð í þessu sambandi. Bregð-
ur hann þar. ljósi yfir útbreiðslu
sullaveikinnar, út frá krufningu á
líkum á spítalanum. Segir hann að
af 137 sjúklingum sem dáið hafi
úr holdsveiki á spítalanum, hafi
112 verið krufnir og þrjátíu af
þeiin liaft sulli, eða tæp 27°/o.
Hann bendir á að það sé at-
hugavert um þessa skýrslu, ef nota
ætti hana til þess að leiða álykt-
anir um útbreiðslu sullaveikinnar
í landinu, að krufningarnar eru of
fáar og að hér er einungis um
einn flokk sjúklinga að ræða.
Hann vill þó ekki samsinna því
að sennilegt sé að á holdsveikra-
heimilum, þar sem holdsveikar
manneskjur sýkja aðrar, sé einnig
hættara við sýkingu frá hundum,
því að hann vill halda að of mik-
ið sé gert úr þeirri gömlu kenn-
ingu að holdsveikin sé aðallega
sjúkdómur sóðanna og hinna fá-
tækustu.
Beinar ályktanir vill hann því ekki
draga af þessu um útbreiðslu veik-
innar nú á dögum. Skýrslur hér-
aðslækna bendi á að veikin sé í
rénun og rejmsla skurðlæknanna
sömuleiðis.
En hildaust má af þessu ráða
að ráðstafanirnar gegn veikinni
eru hvergi nærri eins vel fram-
kvæmdar og vera ætti, því að
með þeim ætti að vera hægt að út-
rýma veikinni að fullu og öllu.
í niðurlagi greinarinnar minnir
höf. á ritgerð Guðm. próf. Magnús-
sonar í Árbók Háskólans þar sem
hann kraföist upplýsinga um árang-
ur hundahreinsunarinnar og um
fyrirmælin um eyðingu sulla úr
sláturfé og bendir á hvað frekar
þurfi að gera: að taka upp rann-
sóknir Kabbes á sláturfé og hund-
um. Veit hann ekki til að neitt
hafi verið gert í þessa átt.
Vill Tíminn mjög eindregið styðja
þessa kröfu læknanna um öruggari
framkvæmd þessa máls, því að
það er fullkomlega satl að ekki
má »þagna um þetta mál fyr en
því er borgið á viðunanlegan hátt«.
Er óhætt að fullyrða, með prófess-
ornum, að óhugsandi sé að veru-
leg fyrirstaða verði af hálfu fjár-
veilingavaldsins um að veita það
fé sein til slíkra ráðstafana þarf.
Aðalatriðið er að einhverjum á-
kveðnum séu fengnar framkvæmd-
irnar í hendur og liggur beinast
við að dýralæknunum sé falið að
annast þær.
Dr. Valtýr Guðmundsson hefir
verið skipaður prófessor við Kaup-
mannahafnarháskóla í íslenskri
sögu og bókmentasögu. Er það
embætti ný-stofnað.